Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987.
9
Ferðamál
Svo sem maðurinn sáir...
Hefjumst handa - græðum landið okkar!
Þetta er þvi miður alltof algeng sjon hér á landi. Með landgræðslupokanum getur þú snúið vörn í sókn.
Áburðarverksmiðja ríkisins og
Landgræðsla ríkisins hafa nú hrund-
ið af stað herferð fyrir uppgræðslu
á víðavangi undir kjörorðinu: Hefj-
umst handa - græðum landið okkar.
Þessari herferð er ætlað að verða
almenningsátak í því að rækta upp
moldarbörð og ógróna mela á hinum
fjölmörgu leiðum ferðamannsins.
í þessu skyni hafa Áburðarverk-
smiðjan og Landgræðslan látið
útbúa fyrir sig fimm kg. poka sem
innihalda venjulegan áburð, að við-
bættum 250 gr. af uppgræðslufræjum
sem hafa verið sérstaklega valin og
hönnuð í Kanada fyrir Landgræðsl-
una. Fræin hafa verið húðuð með
sérstökum leir í því skyni að þau
blandist og dreifist jafht með áburð-
arkomunum en sá sem sáir þarf því
ekki annað en að opna pokann og
dreifa innihaldinu á viðeigandi
svæði.
Það er von þeirra sem að herferð-
inni standa að ferðamenn hér
innanlands kaupi þó ekki sé nema
einn poka þegar lagt er af stað í
ferðalag og dreifi síðan úr honum á
viðeigandi stað, en pokamir munu
verða til sölu á öllum bensínaf-
greiðslustöðum og kosta aðeins 200
kr.
„Landvernd var með hliðstæða
herferð í gangi fyrir tíu til tólf árum
en síðan þá hafa menn alltaf verið
að spyrja um landgræðslupoka af
þessu tagi. Ég held því að það sé
full ástæða til að svara þeirri eftir-
spum og hvetja jafnframt fleiri til
að hugsa um landið sitt,“ - sagði
Þorsteinn Þórðarson hjá Áburðar-
verksmiðjunni þegar við leituðum
upplýsinga um pokana.
„Fólk er ekki einungis að gera
mikið gagn með því að dreifa úr
landgræðslupoka. Ég er viss um að
flestir hafa mjög gaman af þvi að
leggja landinu sínu lið á þennan
hátt, auk þess sem slíkt framtak er
auðvitað fagurt fordæmi fyrir böm
og unghnga," - sagði Þorsteinn enn-
fremur.
Hann tjáði okkur jafhframt að
ætlunin væri að auglýsa pokana nú
á næstunni, bæði í útvarpi og í blöð-
um.
En hvar em þá þau svæði sem
helst þurfa á uppgræðslu að halda.
Eru ekki alvarlegustu gróðursárin
uppi á afréttum, langt úr allri þjóð-
leið?
„Þessi svæði em því miður mjög
viða og alls ekki síður i þjóðbraut
en úr alfaraleið. Ég þarf t.d. ekki
annað en að líta hér út um gluggann
á skrifstofunni minni og þá blasa við
gróðursár og rofabörð. Við erum ein-
mitt að leggja áherslu á það að með
landgræðslupokunum leitist fólk við
að stöðva uppblástur þar sem hann
er á byrjunarstigi. En það verður
gert með því að sá í gróðursár sem
því miður em oft upphafið að alvar-
legum uppblæstri."
Þorsteinn tjáði okkur að með ein-
um landgræðslupoka mætti rækta
upp 100 fermetra svæði. Það munar
nú um minna ekki satt? KGK
Fatlaðir í flugi
Hjólastólamir sem notaðir em um
borð í 747 vélum Air France. Franska
flugfélagið Air France hefur komið
fyrir hjólastólum fyrir fatlaða í nokkr-
um af 747 vélum sínum. Em hjólastól-
amir ætlaðir fyrir fatlaða farþega til
þess að auðvelda þeim að komast á
salemi vélanna. í nokkrum sætanna
við ganginn er hægt að taka stólarm-
inn upp og getur þá farþeginn auðveld-
lega flutt sig yfir í hjólastólinn.
Salemin hafa einnig verið þannig
úr garði gerð að auðvelt sé fyrir fólk
í hjólastólum að komast þar að.
-A.BJ.
logandi Rinarfljót
Ef þú verður á ferðinni í grennd við
Rínarfljót í sumar em það sérstaklega
þijár dagsetningar sem þú ættir að
merkja við á dagatalinu: 4. júlí, 8.
ágúst og 19. september. Þessa daga
mun fljótið hreinlega verða logandi
af flugeldasýningum og skemmtileg-
heitum.
Hátíðahöldin byrja í Rudesheim og
Bingen laugardaginn 4. júlí. Á 7,5 km
löngum kafla verða hallir og kastalar
beggja vegna við ána uppljómaðir,
sömuleiðis öll minnismerki, kirkjur og
tumar. Hámarki ná svo hátíðahöldin
þegar flugeldasýningamar verða. Um
45 skip munu sigla uppljómuð fram
og aftur um fljótið. Með því að tryggja
sér sæti um borð tryggir maður sér
auðvitað bestan aðgang að þessu sjón-
arspili.
8. ágúst ljómar Rín á milli bæjanna
Spay og Koblenz. Kveikt verður á
hallar- og kastalaljósum um hálftíu-
levtóð um kvöldið. Um sama levti
leggja sjötíu ljósum prýdd hátiðaskip-
in af stað í þessa 17 km löngu siglingu.
Hvorki meira né minna en átta meiri
háttar flugeldasmingar verða á leið-
inni og stendur ferðin til kl. 4 um
morguninn.
Síðasta Rínarhátíðin verður svo
laugardaginn 19. september. Þá taka
svsturborgimar St. Goar og St. Goars-
hausen sig saman og hafa sína eigin
Rínarhátíð.
Umgjörðin um hátíðina verður á
sögufrægum stöðum eins og Katz.
Maus og Rheinfels og hægt er að fá
bestu áhorfendasætin sem völ er á um
borð i sextíu skipum sem sigla um
hátíðasvæðið.
Athugið því áætlun ykkar ef þið
verðið á ferðinni í sumar og missið
ekki af þessum logandi fljótahátíðum.
-A.BJ.
Leiðbeiningar fyrir
Mallorcafara Atlantik
Ferðasknfstofan Atlantik gefur
út mjög greinargóðan leiðbeininga-
bækling fyrir farþega sem hvggjast
heimsækja Mallorca á þeirra vegum.
I bæklingnum er að finna upplýsing-
ar og leiðbeiningar um fjölmargt sem
ferðamönntmi kemur vel að kunna
skil á. T.d. em leiðbeiningar um
heilbrigðisþjónustuna , fjármál og
afgreiðslutíma verslana sem er
misjafn eins og stendur í bæklingn-
um. Aðalreglan er sú að verslanir
em opnar frá kl. 9-13 og 16-20 alla
daga nema sunnudaga. Stóm vöm-
húsin í Palma em undantekning. því
þau em ekki lokuð um miðjan dag-
inn og em einnig stundum opin á
sunnudögum.
Þá er orðalisti sem getur komið í
góðar þarfir þegar kevpt er í matinn,
leiðbeiningar um veitinga og
skemmtistaði, hvað algengir máls-
verðir kosta og spönsk nöfri á ýmsum
réttum. Þá em leiðbeiningar mn
hvemig eigi að hringja heim til ís-
lands, um skeyta og póstþjónustu og
samgöngur á Mallorka.
Um vatnið segir t.d. að á Mallorka
sé það ekki óhæft til drvkkjar en
farþegum er eindregið ráðlagt að
kaupa hreinsað vatn sem fæst alls
staðar á flöskum og kútum. Það
heitir Aqua mineral og til bæði með
kolsýru, con gas, og án, sin gas.
Þá fylgir með bæði kort af eyjunni
og miðborg Palma.
Ferðaskrifstofan Atlantik á hrós
skilið fyrir þessar ágætu ferða-
mannaupplýsingar. -A.BJ.
Ferðast fyrir
eina krónu
Ödýrasta almenningsfarartæki,
sem við höfúm heyrt um, er neðan-
jarðarlestin f Mexico City. Það
kostar ekki nema sem svarar rétt
um 1 kr. íslenskri að fara með lest-
inni og skiptir þá vegalengdin ekki
máli, Kort yfir ferðir lestarinnar fást
ókeypis í farmiðasölunum á öllum
lestarstöðvunum.
Hins vegar má aðeins hafa með-
ferðis litla böggla og er ferðafólki
ráðlagt að gæfa sín á vasaþjófúm,
eins og í öðrum stórborgum.
-A.BJ.
ASEA Cylinda
þvottavélar ★ sænskar og sérstakar
Fá hæstu neytendaeinkunnir fyrir þvott, skolun,
vindingu, taumeðferð og orkusparnað. Efnis-
gæði og öryggi einkenna ASEA. Þú færð ekki
betri vélar!
/FOniX
HATUNI 6A SIMI (91 )24420