Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 1987. Útlönd Ætlunin að vaska jafnvægi landsins Jiaime Lusinchi, forseti Venezuela, sagði í gær að óeirðir stúdenta í landinu undaniarið væru liður í áætlun sem miðaði að því að koma stjóm þess úr jafhvægi og hét forsetinn því að ríkisstjóm hans myndi standa af sér árásir þessar. Sagði forsetinn að minnihlutahópur sá sem stendur á bak við tilraunirnar gæti valdið miklu tjóni, sársauka og fómum, en honum tækist aldrei að ógna lýðraóislegri stjóm landsins. Tveir námsmenn létu lífið og liðlega sjötíu meiddust í óeirðum í Caracas, höfuðborg Venezuela, og sex öðrum borgum í vikunni er leið. Námsmennim- ir vom að mótmæla mikilli verðbólgu í landinu og höftum á mótmælastarf- semi. Panama á barmi Eric Arturo Delvalle, forseti Pan- ama, hvatti í gær landsmenn sína til þess að sameinast um að forðast það ógnarástand sem framundan virðist vera i landinu. í útvarps- og sjónvarpsávarjú fór forsetinn fram á að mótmælum yrði hætt í landinu og hvattí deiluaðila til þess að koma í veg fyrir að landið hrapaði niður í hyldýpi blóðs, dauða og sorgar. Devalle sagði einnig að stjómvöld yrðu að efna til rannsóknar á ásök- unum á hendur yfirmanns hersins, þess efnis að hann hafi átt hlut að spillingu og morðum. Hershöfðing- inn, Manuel Antonio Noriega, er í raun valdamesti maður Panama. Talið er að Delvalle hafi haldið ræðu sína í gær að hans undirlagi. Felldu borgarstjora, lögreglu og bændur Skæmliðar vinstri sinna í Perú felldu borgarstjóra, lögreglumann og fjóra bændu sem þeir sökuðu um að gefa stjómarher landsins upplýsingar, í hörð- um aðgerðum víða í sveitum Perú um helgina. Skæmliðamir, sem vom maóistar úr röðum Sendero Luminoso hreyfingar- innar, tóku bænduma fjóra af lífi eftir að hafa dregið þá fyrir svonefiidan alþýðudómstól. Þá skutu félagar úr sömu hreyfingu borgarstjóra Santa Cruz De Chuca, sem er um sex bundmð kílómetra frá Lima. Loks sátu félagar úr Sendero Luminoso fyrir lögreglumanni í Huancayo, austan við Lima og skutu hann til bana. Gassprenging lagði íbúðarhús í rúst Að minnsta kosti einn lét nokkurra er saknað og á þriðja tug fólks slasaðist þegar mikil gas- sprengins lagði tvær hæðir íbúðar- byggingar í Genúa á Ítalíu í rúst í gær. Meðal þeirra sem er saknað em slökkviliðsmaður og starfsmaður gasveitunnar í Genúa, sem líklega hefur verið að reyna að gera við gasleka sem komið haföi fram í bygg- ingunni. Þá er enn saknað fjögurra íbúa byggingarínnar en þar sem fjöl- margir íbúanna höfðu farið niður á strönd, skammt frá borginni, til að njóta helgarinnar, var ekki vitað hvort fjórmenningarnir höfðu verið heima við eða ekki. Þegar sprengingin varð vom slökkviliðsmenn og starfsmenn gas- veitu að kanna gasleka, sem íbúar byggingarinnar höföu tilkynnt um. Sprengingin skók allt nágrenni byggingarinnar og flestir þeir sem meiddust við hana vom gangandi vegfarendur sem urðu fyrir glerbrot- um og múrbrotum. Vilja hætta landbunadamiðurgreiðslum Ríkisstjóm Ronald Reagan, Bandaríkjaforseta, mun í dag skýra frá fyrir- huguðum aðgerðum sem miða að því að hætta öllum niðurgreiðslum á útflutning á landbúnaðarafurðum svo og að fjariægja allar viðskipahömlur á afurðir. Ætlunin er að framkvæma þetta fýrir árslok 1988. Að sögn bandaríska stórblaðsins New York Times er ætlunin að viðhalda lágmarkslaunum fyrir bændur meðan niðurgreiðslur og framleiðslutaygging- ar em felldar niður í áföngum. Bændur verða hvattir til þess að leita sér annarrar atvinnu. Barbie dæmdur til Irfstíðarfangelsis Klaus Barbie, fyrrum yfirmaður Gestapó í Lyon í Frakklandi, var á föstudagskvöld fundinn sekur um glæpi gegn mannkyninu og dæmdur til lífstíðarfangelsis, af frönskum dómstóli. Barbie, sem nefhdur hefur verið slátrarinn frá Lyon, tók dóminum með jafnaðargeði. Hann hefur að mestu neitað að vera viðstaddur rétt- arhöldin yfir sér sera staðið hafa í tvo raánuði. Heldur hann því fram að ólöglega hafi verið að því staðið þegar hann var framseldur frá Boliv- íu til Frakklands í byijun þess árs og hefur ekki viðurkennt réttmæti réttarhaldanna. DV Fimm hundrað and- ófsmönnum sleppt úr haldi í S-Kóreu Valdaránsins í Pakistan minnst Eitt hundrað sjötíu og sjö andófs- mönnum, sem setið hafa í fangelsum í Suður-Kóreu, var í morgun sleppt úr haldi. Áætlað er að liðlega þrjú hundruð til viðbótar verði sleppt úr haldi síðar í þessari viku. Þá tilkynntu talsmenn dómsmálaráðuneytis S- Kóreu í morgun að Kim Dae-Jung og um tvö þúsund aðrir andófsmenn, sem hafa setið í fangelsi undanfarið, muni fá aftur full borgaraleg réttindi ekki síðar en í næstu viku. Síðar á þessu ári er ætlun stjóm- valda að leysa úr haldi hundruð andófsmanna til viðbótar. Aðgerðir þessar em fyrsta skref stjómvalda í átt til þess að standa við loforð sín um aukið lýðræði í Suður- Kóreu. Mótmælaaðgerðir halda enn áfram í landinu. Um helgina lést Lee Han- Yol, námsmaðurinn sem legið hefur dauðvona á sjúkrahúsi, eftir að hafa fengið táragassprengju í höfuðið í átökum námsmanna og lögreglu í júníbyrjun. Þegar fregnin um dauða Kim Myung-Yoon, einn þeirra andófsmanna sem sleppt var úr haldi í morg- un, fékk góðar viðtökur meðal samherja sinna. Hann hefur setið i fangelsi um nær mánaöarskeið eftir að hafa efnt til mótmælaaðgerða. Símamynd Reuter hans spurðist út kom til átaka milli námsmennina sem svöruðu fyrir sig um tvö þúsund námsmanna og óeirða- með múrsteinakasti og bensínsprengj- lögreglunnar í Seoul, höfuðborg um. S-Kóreu. Lögreglan beitti táragasi á „Niður með forsetann" hrópuðu þessar pakistönsku konur í gær en þær voru meðal þeirra tugþúsunda er minntust valdaránsins í Pakistan fyrir tíu árum. Símamynd Reuter Sjö manns biðu bana og að minnsta kosti fimmtíu særðust í sprengjutil- ræðum í Lahore í Pakistan í gær. Þar var efiit til mótmælaaðgerða í tilefhi þess að tíu ár voru liðin frá valdarán- inu sem kom Zia ul-Haq í embætti forseta. Flestir mótmælendanna komu sam- an í höfuðborginni Karachi þar sem tuttugu þúsund manns hlýddu á stjómarandstöðuna kalla forsetann umboðsmann bandarískrar heims- valdastefnu. Benazir Bhutto, dóttir Ali Bhutto forseta sem steypt var af stóli fyrir tíu árum, var ekki viðstödd en stuðningsmenn flokks hennar og annarra stjómarandstöðuflokka minntust valdaránsins með því að setja á sig svört sorgarbönd. Einnig skreyttu þeir bíla sína og hús með svörtum fánum. Bhutto var sakaður um kosninga- svindl árið 1977 og steypti Zia, sem þá var yfírmaður hersins, honum af stóli. Zia lofaði almennum kosningum en þær drógust á langinn og 1979 lét hann taka Bhutto af lífi. Ottast fleiri Mikil spenna ríkir nú í Manila, höf- uðborg Filippseyja, eftir sprengju- árásir þar um helgina. Árásimir em gerðar í þeim tilgangi að skapa ótta- blandið andrúmsloft og grafa undan stjóm Aquino forseta, að því er herinn fullyrðir. Vopnaðir hermenn em á verði við aðalstöðvar lögreglunnar og einnig verður settur vörður við útvarps- og sjónvarpsstöðvar auk þess sem sérstök gæsla verður við mikilvægar stjómar- byggingar og sendiráð. Ofgahópar hægrisinnaðra em sak- aðir um fjögur sprengjutilræðanna um helgina. Er tilgangur þeirra sagður vera að koma í veg fyrir að nýtt þing komi saman þann 27.júlí næstkom- andi. Hægri menn og frambjóðendur vinstri flokkanna biðu ósigur í kosn- ingunum í maí. Þingið hefur tilkynnt að endurskoðaður verði samningurinn við Bandaríkin um herbækistöðvar þeirra á Filippseyjum. Þrír hermenn féllu fyrir hendi skæmliða kommúnista um helgina. Þar með hafa tuttugu og fimm manns látið lífið í átökum sem undanfarið hefur komið til víðs vegar um landið. árásir frá hægri og vinstri Myndir af Sámi frænda og Aquino forseta voru brenndar í mótmælaaðgerðum í Manila á Filippseyjum um helgina. Var meðal annars verið að sýna and- stöðu gegn bækistöðvum bandaríska hersins þar og íhlutun Bandarikjanna í málefni landsins. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.