Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Page 11
MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 1987. 11 Utlönd Jams Roskains, andófsmaður frá Lettlandi, sem nýverið var sleppt úr fang- elsi, heldur hér á Ijósmynd frá mótmælaaðgerðum i Riga í síðasta mánuði. Um þessi mótmæli verður fjallað i næsta tölublaði timarits andófsmanna. Símamynd Reuter Nýtt tímarit andófsmanna Á föstudag hófst útgáfa nýs tímarits á vegum andófsmanna í Sovétríkjun- um og er talið að því sé ætlað að kanna hversu langt umbótavilji Gorbatsjovs, aðalritara Kommúnistaflokks Sovét- ríkjanna, nær. Tímaritið nefnist Glasnost, en umbótastefiia Gor- batsjovs hefur einmitt verið nefhd því nafni. Andófsmennimir, sem standa að út- gáfúnni, segjast hafa farið fram á opinbera heimild stjómvalda til útgáf- unnar, en þar sem ekkert svar hafi borist við beiðninni, hafi þeir ákveðið að gefa út fyrsta tölublaðið án heimild- arinnar. Að blaðinnu standa margir hópar andófsmanna. Þeirra á meðal hópar kristinna manna, þjóðemis- sinnar í Lettlandi og þeir sem berjast fyrir réttindum fatlaðra. Ritstjóri tímaritsins, Sergei Grigory- ants, tók skýrt fram við fréttamenn að hér væri ekki um neðanjarðarút- gáfu að ræða. Sagði ritstjórinn alla starfsemina fara fram fyrir opnum tjöldum. Þá hefur sami hópur andófsmanna 1 hyggju að koma á eins konar pressu- klúbbi þar sem tekin verða til umfjöll- unar ýmis þau mál sem ekki em að jafhaði rædd opinberlega í Sovétríkj- unum. Á fyrsta fundi klúbbsins, sem haldinn verður á morgun, verða rædd ýmis lögbundin höft í Sovétríkjunum. Mubarak sjálfkjör- inn forseti Egypta Allt bendir nú til þess að Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, verði sjálfkjörinn til þess að gegna embætti áfram, að minnsta kosti eitt sex ára kjörtímabil til viðbótar. Mubarak hef- ur setið að völdum frá árinu 1981 og gæti átt langa framtíð í embætti þar sem engar hömlur em á því í egypsk- um lögum hversu mörg kjörtímabil forseti má sitja. Forsetakosningar fara fram i Egyptalandi þann 5. október næst- komandi. Undirbúningur endurkjörs Mubarak hófst nú um helgina þegar flokkur hans, Þjóðlegi demókrata- flokkurinn, tilnefhdi hann sem fram- bjóðanda sinn. Egypska þingið mun tilnefha forsetaefiii í kvöld og er talið víst að Mubarak hljóti tilnefiiinguna. Níu aðrir aðilar hafa farið fram á til- nefningu þingsins en enginn þeirra á stuðning til þess meðal þingmanna. Forsetakjörið þann 5. október er ekki kosning, heldur staðfesting al- mennings á tilnefningu þingsins með almennri atkvæðagreiðslu. Búist er við að tilnefning Mubarak verði stað- fest með nær öllum greiddum atkvæð- um. ■ Nýir rafmagns-teppastandar gera okkur kleift að sýna þér meira og meira úrval af tepparúllum á auðveldari hátt. 2) 3) 4) Á fallegu parketgólfinu taka stöku teppin sig sérlega glæsilega út. Bætt vinnuaðstaða auðveldar afgreiðslu og betri þjónustu. JL-teppadeild: Greiðslukjör gerast varla betri. RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND FH BYGGmBflVÖRPBl BYGGINGAVÖRUDEILD HRINGBRAUT 120 sími 28600 Stuðningsmenn Hosni Mubarak, for- seta Egyptalands, efndu i gær til aðgerða við eina af skrifstofum for- seta í Kaíró þar sem þeir lýstu stuðningi sinum við endurkjör hans í forsetaembætti. Simamynd Reuter Getum útvegað ýmsar stærðir af Ford dísilvél- um fyrir báta, iðnaðar- tæki og rafstöðvar. Hagstætt verð, stuttur afgreiðslufrestur. Almenna Varahlutasalan s/f Skeifunni 17, s. 83240 og 685100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.