Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Side 12
12 MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 1987. Neytendur Eitthvað holK og fljótlegt - einmitt það sem heimurinn vill í dag Tilbúnir fiskréttir, sem bæði eru góð- ir á bragðið, hollir, ferskir og fljótlegir, alveg tilbúnir að skella í örbylgjuofn- inn eða venjulegan bökunarofh eru nú fáanlegir í öllum stærri matvöru- verslunum landsins. Þetta er innlend framleiðsla frá Marska á Skagaströnd, sem búin er að vera á markaðinum hér í rúmt ár. Marska er ungt fyrirtæki, rétt rúm- lega tveggja ára gamalt. Þar eru framleiddir tilbúnir sjávarréttir. I þeirri hollustuöldu, sem gengur yfir heiminn, er mikil eftirspum eftir til- búnum sjávarréttum. Það er einmitt það sem fólkið vill: eitthvað sem er hollt, en jafhframt verður rétturinn að vera fljótlegur f framreiðslu. Rétt- imir frá Marska, sem em fimm talsins, uppfylla þessi skilyrði fullkomlega. Fimm réttir Marska framleiðir nú fimm tilbúna rétti. Þeir em: Sjávarréttabaka, rækjubaka, sjávarbaka, rækjurúllur, skeljagratín og sjávarréttur Momay. Þeir tveir síðast töldu em raunvem- lega eins, nema hvað skeljagratínið er í mjög vönduðum innfluttum skelj- um. Innlendar skeljar reyndust bæði of litlar og of þunnar. En hægt er að nota sjávarrétt Momay sem fyllingu í skeljamar til þess að geta notað þær aftur og aftur. Þá framleiðir Marska einnig tvær aðrar tegundir af pönnukökum með ýsu og rækjufyllingu. Þær em enn sem komið er aðeins framleiddar fyrir veit- ingastaði. Allir þessir réttir em framleiddir undir sameiginlegu vörumerki sem er Sjávarréttir sælkerans. „Við leggjum gífurlega áherslu á stöðugleika í framleiðslunni. Réttimir eiga alltaf að vera nákvæmlega eins. Þannig geta viðskiptavinimir alltaf verið vissir um hvað þeir em að kaupa,“ sagði Steindór Haraldsson, framleiðslustjóri fyrirtækisins. Fram- kvæmdastjóri Marska er Heimir L. Fjeldsted. „Vinsælasti rétturinn er sjávarbak- an. Hins vegar höfum við heyrt að fólki finnist of dýrt að kaupa skelja- gratínið, en það er gott að nota sjávarrétt Momay í skeljamar og rífa ost ofan á og baka síðan í ofhi. I réttina em alltaf valdar bestu rækj- umar og ekkert til sparað. Svipaðir réttir og við framleiðum em fluttir inn til landsins en ég leyfi mér að fullyrða að þeir em allir úr miklu lélegra hrá- efni en okkar réttir og því er ekki um sambærilega vöm að ræða,“ sagði Steindór og Heimir tók í sama streng. Meira en tvö þúsund bökur ádag Framleiðslu hinna ýmsu rétta er skipt niður á ákveðna daga. Daginn sem DV kom í heimsókn var t.d. verið að framleiða rækjubökur. Framleiddar em meira en tvö þúsund bökur á dag Steindór R. Haraldsson og Heimir L. Fjeldsted fyrir utan Marska og Rækjuverksmiðjuna. í baksýn má sjá Spákonu- fellsborgina sem gnæfir yfir kauptúnið Skagaströnd. og allar em þær alveg nákvæmlega eins. Jukkið, sem sett er á bökumar, er framleitt í 100 lítra potti og þarf að laga marga potta af fyllingu yfir dag- inn. Það er mikil handavinna við framleiðsluna og miðað við aðstæður er ótrúlegt að hægt skuli að hafa fimm rétti í framleiðslu að sögn þeirra Steindórs og Heimis. Milli 10 og 15 manns vinna við mat- vælaframleiðsluna hjá Marska en 25 manns hjá Rækjuvinnslunni. Marska, sem er rekin í tengslum við Rækju- vinnsluna. Hægt er að flytja starfs- fólkið á milli ef á þarf að halda. Rúm Daginn sem DV kom í heimsókn var verið að búa til rækjubökur. A mynd- inni eru f.v. Sigrún Benediktsdóttir, Bryndís Steindórsdóttir og Sigrún Lárusdóttir. er fyrir 20 starfsmenn til viðbótar hjá Marska. Mikil aukning í augsýn Svo gæti farið að auka þyrfti íjölda starfsmanna miklu meira en það því búið er að gera samninga við erlenda aðila um dreifingu á framleiðsluvörum Marska bæði í Danmörku, Svíþjóð og í Englandi. Viðræður standa yfir við fleiri erlenda aðila sem sýna fram- leiðsluvörum Marska mikinn áhuga. „Þegar þetta verður komið i gang verður það ekki spuming um hvort við getum selt framleiðsluna heldur hvort við getum annað eftirspumin- inni og framleitt nægilegt magn,“ sagði Heimir. Verið er að undirbúa að flytja réttina út til Englands og selja í verslunum Marks og Spencer verslunarkeðjunnar sem er með stór- verslanir dreift um landið. Fulltrúar frá fyrirtækinu, með einn af ffamkvæmdastjórunum í farar- broddi, kom í vor og skoðaði verk- smiðjuna og einnig rækjuvinnsluna. Hann samþykkti hana eins og kallað er á fagmáli en þetta er eina rækju- vinnslan á landinu sem þessir aðilar hafa samþykkt. Kröfur, sem Marks og Spencer gera í matvælaiðnaði, em með þeim ströngustu í heiminum. Framkvæmdastjórinn var svo hrif- inn af nýveiddri rækjunni, sem aldrei hafði í frost komið er hann bragðaði á henni nýpillaðri, að hann vildi ólmur fá slíka rækju í verslanir sínar. Þegar var reynt að útskýra fyrir honum að það væri miklum erfiðleik- um bundið að koma rækjunni ófrystri og óskemmdri frá Skagaströnd i versl- anir hans í Englandi sagði hann bara: Ég vil fá þetta, það er ykkar mál að leysa flutningsvandamálið! Reyndar er búið að senda prufusend- ingu til fyrirtækisins og tókst með mikilli fyrirhöfn að koma rækjunni óskemmdri til skila. Er þó ekki líklegt að af þessu verði í framtíðinni vegna flutningaörðugleika. Það er hins vegar hægt að flytja rækjuna út í saltpækli. Helst hún þannig fersk í allt að þrjár vikur. 350 milljóna velta eftir tvö ár? Þessi útflutningsmál og fleiri mögu- leikar eru í deiglunni hjá þeim félög- unum hjá Marska. „Það stendur á framleiðslugetu okk- ar. Við þurfum að stækka verksmiðj- una. Veltan hjá rækjuvinnslunni var 100 milljónir á síðasta ári og í ár stefnir hún í 170 milljónir. Ef okkur tekst að auka matvæla- framleiðsluna ætti veltan hjá okkur að vera orðin 250-350 milljónir eftir svona tvö til þrjú ár,“ sögðu þeir félag- amir Stpindór og Heimir. Rækjuvinnslan og Marska eru spöl- kom frá höfhinni en samt rétt á sjávarkambinum. Fyrirtækin eiga lóð- ir sitt hvorum megin við núverandi verksmiðjuhús og er ætlunin að þar rísi framtíðarbyggingar. Eitt af því sem er á döfinni hjá Marska er að geta tekið í notkun stór- tæka pönnukökuvél sem skilar bakaðri pönnuköku á sekúndu. Það em 15 pönnukökupönnur saman í vél- inni. Þessi vél er mjög fullkomin þegar hún er í fúllum afköstum, skilar þá upprúlluðum pönnukökunum með fyllingu og öllu saman! Hins vegar er ekki hægt að nota hana eins og er þvi hún er of afkastamikil fyrir starfs- fólkið, vantar viðbótaráhöld til þess að hún komi að fullum notum. Þorskurinn kemur - rækjan fer Það em þrjú fyrirtæki á Skaga- strönd sem eiga sjávarréttaverksmiðj- una Marska, Rækjuvinnslan á einn þriðja hlut, frystihúsið Hólanes einn þriðja og Skagstrendingur einn þriðja. í tilbúnu réttina er notuð úrvals rækja, úthafsrækja yfir sumarið og flóarækja yfir veturinn. í vetur hrundi rækjustofninn, afhnn fór úr 628 tonnum í 123 tonn. Heimir segir það vera að kenna gífurlega miklum þorskgöngum því það fer sam- an að þegar sjórinn hlýnar kemur þorskurinn en rækjan hverfur. Flóarækjan er kvótabundin á vet- uma en ékki úthafsrækjan. Reiknað er með að í sumar komi upp úr sjó 1000-1400 tonn, miðað við apríl til september. Nýting rækju er hins vegar ekki nema um 25%. 75% hlutar em skel og annar úrgangur. „Það em til vélar sem mala skelina í gæludýrafóður. Þannig væri hægt að fá 5-6 kr. danskar fyrir kg. Markað- urinn er fyrir hendi en tækin til að vinna þetta em dýr,“ sagði Heimir. Núna em fimm rækjuverksmiðjur við Húnaflóann þannig að árlega er fleygt milljónaverðmætum í skehnni. Vélamar, sem Heimir talar um, mala skelina án þess að hita hana upp eins og þekkt er. En við það að hita skel- ina verða efnabreytingar í henni og næringargildið rýmar. Það em því engin smáverðmæti sem verða til í höndunum á þeim sjö hundr- uð íbúum sem búa á Skagaströnd og allt útlit fyrir að þau stóraukist á næstu árum. -A.BJ. Hallbjörn Hjartarson, sá frægi húnvetnski káboj, vinnur við framleiðslu sjáv- arréttanna á Skagaströnd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.