Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Page 29
MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 1987.
41
Fréttir
Bautasteinn Kidda Friðþjófs
„Þetta eru mjöltankar eins og þið hafið í Reykjavík en ég
byggði yfir stjórnstöðina fyrir 3-4 árum. Þeir sem á eftir mér
koma breyta þessu kannski eitthvað, setja ef til vill upp bar
þama. Hins vegar mun turninn standa í framtiðinni og fólk
segja: „Þetta byggði Kiddi Friðþjófs. Það má segja að þetta
sé bautasteinninn minn,“ sagði Kristinn Friðþjófsson, for-
stjóri Svalbarða h/f á Patreksfirði.
Kristinn hefur reist hús upp á mjölgeymslutönkum sínum
sem er byggt yfir stjómstöð blöndunarverksmiðjunnar. Þar
em tæki til að hræra mjöl og annað slíkt er til þarf. Kristinn
segir að þessi bygging veki mikla athygli aðkomumanna enda
blasir hún við þegar menn koma keyrandi inn í bæinn. Væm
margh sem forvitnuðust 'um hana og tilgang hennar. Það
mætti hugsanlega velta því fyrir sér að bjóða upp á útsýnis-
yfirlit yfir bæinn.
-JFJ
Úr „bautasteininum“ er hið besta útsýni í ailar áttir og ef til
vill ekki svo afleit hugmynd að bjóða upp á útsýnisyfirlit fyr-
ir ferðamenn. DV-myndir KAE
Bautasteinn Kristins Friðþjófssonar blasir við þegar keyrt
er inn í bæinn. Þar uppi er stjórnstöð mjölblöndunarverk-
smiðju Svalbarða h/f.
Þegar komið er nær mannvirkinu kemur í Ijós að það er
engin smásmíði og leiðin upp bæði löng og ströng.
Unnið af krafti i malarnáminu við Völusteinsstræti. Hann dregur ekki af sér
sá með hakann.
Bolungaivík:
Mðkið unnið í vegagerð
Klukkan er tuttugu mínútur yfir
tólf, sem sagt kominn hádegismatur.
Hvíldartíminn í hádeginu er flestu
vinnandi fólki kærkominn. Það á ekki
við um alla. Átta manna vinnuflokkur
verður þess ekki var að verið er að
kalla úr nærliggjandi húsum, MAT-
UR!
Þessir atorkusömu verkamenn eru
að leggja nýja vegi í skemmtilegu gili
við Völusteinsstræti á Bolungarvík.
Til verksins nota þeir sex vörubifreið-
ar ýmist úr plasti eða timbri. Ámokst-
urstækin eru af ýmsum gerðum.
Verkinu virðist miða vel. Hvenær
framkvæmdh hófust var fyrsta spum-
ingin sem lögð var fyrh hópinn. Jú, í
fyrra var hafist handa og í sumar verð-
ur unnið af krafti.
Vinnuflokkurinn hefur þegar lagt
nokkrar götur í gilinu og virðist skipu-
lagning vera til fyrirmyndar þó engar
séu teikningamar til að fara efth.
Áttmenningamir máttu ekki vera að
neinu röfli við blaðamenn, þeir urðu
að sætta sig við hróp frá mömmum
og pöbbum, MATUR!
-sme
Fullhlaðnir vörubílar 4 leið til vegagerðar.
DV-myndir GVA
RÝMINGAR-
SALA ÁRSINS
Já, þetta er ótrúlegt en satt!
Þar sem verslunin BENTÍNA er að
hætta á allt að seljast frá
nýtísku leðurvörum niður í sokka.
BENTÍNA er á horni Laugavegar og Barónstigs
ATHUGIÐ:
Opið alla daga
nema sunnudaga
og auðvitað er
greiðslukorta-
þjónusta.
BENTÍNA
LAUGAVEG 80