Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Page 30
42
MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 1987.
Andlát
Vilberg Guðmundsson rafvirkja-
meistari, Sörlaskjóli 22, Reykjavík,
andaðist í Landakotsspítala fimmtu-
daginn 2. júlí.
Þorsteinn Friðþjófsson, Bölum 4,
Patreksfirði, lést á sjúkrahúsi Pat-
reksíjarðar 1. þessa mánaðar.
Kristjana Einarsdóttir, Langholts-
vegi 116, lést í Landakotsspítala
sunnudaginn 28. júní. Jarðarförin
hefur farið fram.
Jóhannes Hjartarson til heimilis á
Holtsgötu 14, Ytri-Njarðvík, lést á
heimili sínu 2. júlí sl.
Þorleifur Jónsson loftskeytamað-
ur, Löngufit 10, Garðabæ, lést 3. júlí
á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði.
Ólafur Guðjónsson, Esjubraut 6,
Akranesi, verður jarðsettur frá
Akraneskirkju í dag, 6. júlí, kl. 13.30.
Helga C. Jessen lést á Hrafnistu
fimmtudaginn 2. júlí.
Kristín Þorgrímsdóttir, Brúarholti
2, Ólafsvík, verður jarðsungin frá
Ólafsvíkurkirkju þriðjudaginn 7. júlí
kl. 14.
Ólafur Þórður Þórarinsson, Kárs-
nesbraut 111, Kópavogi, er lést
laugardaginn 27. júní, verður jarð-
sunginn frá Langholtskirkju þriðju-
daginn 7. júlí kl. 10.30.
Áslaug Tryggvadóttir, Laufásvegi
37, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kapellu í dag, 6. júlí, kl. 13.30.
Útför Antons Nikulássonar, Lang-
holtsvegi 82, fer fram frá Fossvogs-
kirkju, miðvikudaginn 8. júlí kl.
13.30.
Þórhallur Guðmundsson frá Lauf-
ási, til heimilis að Droplaugarstöð-
um, áður Furugerði 1, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju í
dag, 6. júlí, kl. 15.
Kvikmyndahús
Bíóborg
Arizona yngri
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Moskítóströndin
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05.
Krókódila Dundee
Sýnd kl. 5 og 11.
Morguninn eftir
Sýnd kl. 7 og 9.
Bíóhúsið
Bláa Betty
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bíóhöllin
Innbrotsþjófurinn
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Lögregluskólinn
Allir á vakt
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Leyniförin
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Með tvaer i takinu
Sýnd kl. 5 og 7.
Blátt flauel
Sýnd kl. 9.
Vitnin
Sýnd kl. 9 og 11.
Litla hryllingsbúðin
Sýnd kl. 5, 7 og 11.05.
Háskólabíó
Herdeildin
Sýnd kl. 4.45, 7, 9.05 og 11.15.
Bönnuð innan 16. ára.
Laugarásbió
Djöfulóður kærasti
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 12 ára.
Draumátök
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16. ára.
Hrun ameríska
heimsveldisins
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11,
Bönnuð innan 16. ára.
Regnboginn
Hættuástad
Sýnd kl. 3, 5. 7, 9 og 11.15.
Dauðinn á skriðbeltum
Sýnd kl. 3.05, 5.05. 7.05, 9.05 og 11.05
Á toppinn
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05,
9.05 og 11.05.
Gullni drengurinn
Sýnd kl. 3, 5, 9 og 11.15.
Þrir vinir
Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15.
Herbergi með útsýni
Sýnd kl. 7.
Kvikmyndasjóður kynnir
Rokk í Reykjavík
Sýnd kl. 7.
Hrafninn flýgur
Sýnd kl. 7.
Stjömubíó
Kraftaverk
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Wisdom
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur á vegum
Félagsvísindadeildar
Bandaríski félagssálfræðingurinn F.E. Fi-
edler er nú staddur hér á landi og mun
halda fyrirlestur á vegum Félagsvísinda-
deildar þann 6. júlí. Fiedler var meðal
brautryðjanda í rannsóknum á forystu-
hæfileikum og hefur verið bæði áhrifa- og
afkastamikill á því sviði. Óhætt er að segja
að hann sé meðal virtustu félagssálfræð-
inga nútímans. Hann er nú prófessor við
Washingtonháskóla í Seattle. Fyrirlestur
hans mun fjalla um þátt greindar í störfum
forystumanna sem er óneitanlega forvitni-
legt efni og ætti að vekja áhuga margra,
ekki síst þeirra sem starfa við eða kenna
stjórnun. Fyrirlesturinn verður haldinn
mánudaginn 6. júlí kl. 17.15 í stofu 206 í
Odda við Sturlugötu.
Happdrætti
Vinningsnúmer í stuðnings-
happdrætti Kvennalistans
Dregið var í stuðningshappdrætti Sam-
taka um kvennalista 30. júní sl. Upp kom
númerið 623 og er eigandi miða með því
númeri vinsamlegast beðinn að hafa sam-
band við skrifstofu Kvennalistans, Hótel
Vík, s. 13725 sem fyrst.
Tilkyiiniiigar
Breytingar á mælingar-
reglum fiskiskipa
Hinn 1. júlí 1987 tóku gildi hér á landi
nýjar reglur um mælingar fiskiskipa.
Ráðuneytið vill af því tilefni vekja at-
hygli á að öll skip, sem smíðar hefjast á
eftir 30. júní 1987, falla undir hinar nýju
mælingarreglur. Við ákvörðun á því hven-
ær smíðatími fiskiskips hefst. leggur
ráðuneytið til grundvallar tilkynningar til
Siglingarmálastofnunar ríkisins þar að
lútandi, sem stofnuninni hefur borist fyrir
1. júlí 1987. Munu þau fiskiskip. sem sam-
kvæmt þessum nýju mælingarreglum
mælast 10 tonn eða stærri. ekki fá leyfi
til botnfiskiveiða nema úr rekstri sé tekið
sambærilegt fiskiskip, sem hefur sérstakt
leyfi til botnfiskiveiða samkvæmt gildandi
reglum.
3 prestar vígðir
Settur biskup, sr. Sigurður Guðmundsson,
vígir á sunnudag 3 guðfræðikandidata til
prestsstarfa. Það eru þeir Guðmundur
Guðmundsson sem ráðinn hefur verið
æskulýðsfulltrúi Þjóðkirkjunnar. Hulda
Hrönn M. Helgadóttir sem valin hefur
verið til starfa sem prestur Hríseyjar-
prestakalls og Ægir Sigurgeirsson sem
valinn hefur verið prestur Höfðakaupstað-
arprestakalls. Vígsluvottar verða sr.
Arngrímur Jónsson, Reykjavík, dr. Einar
Sigurbjörnsson prófessor, sr. Friðrik
Hjartar, Búðardal, og sr. Gunnþór Inga-
son, Hafnarfirði. Vígslan fer fram í
Dómkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 11.
Dómkórinn leiðir messusöng en Marteinn
Friðriksson annast kórstjórn og undirleik.
Þau Hulda Hrönn og Ægir eru í hópi
fyrstu prestanna sem valdir eru samkv.
hinum nýju lögum um veitingu presta-
kalla en þar kveður á um að hópur
kjörmanna, þ.e.a.s. það er sóknarnefnd og
varamenn þeirra, velji milli þeirra umsæk-
enda sem sækja um prestakallið. Voru þau
bæði valin samhljóða af kjörmönnum.
Guðmundur Guðmundsson er hins vegar
ráðinn af biskupi til embættis æskulýðs-
fulltrúa þjóðkirkjunnar. í hinum nýju
lögum eru ákvæði um að söfnuðir geta
kallað prest til starfa og það hefur þegar
gerst. Nýverið kölluðu söfnuðir Staðar-
fellsprestakalls í Köldukinn sr. Björn H.
Jónsson á Húsavík sem þar hefur verið
settur prestur undanfarið ár. Kölluðu þeir
sr. Björn til prestsstarfa um eins árs skeið.
Einnig hefur sr. Bjami Th. Rögnvaldsson
verið kallaður til þjónustu í Prestbakka-
prestakalli í Húnavatnsprófastdæmi til
tveggja ára.
Stjórnarfundur Framsóknar-
félags Reykjavíkur
Á stjórnarfundi í Framsóknarfélagi
Reykjavíkur 22. júní sl. var eftirfarandi
samþykkt gerð: „Stjórn Framsóknarfélags
Revkjavíkur harmar hve viðræður um
myndun nýrrar ríkisstjórnar hafa dregist
á langinn, en nær 9 vikur eru nú liðnar
frá kosningum. I þeim stjórnarmyndunar-
viðræðum, sem nú eiga sér stað milli
Sjálfstæðisflokks. Framsóknarflokks og
Alþýðuflokks. hefur nokkur skriður kom-
ist á samninga um fyrstu aðgerðir í
efnahags- og ríkisfjármálum, en Ijóst er
þó að Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki
ganga eins rösklega til verks og nauðsyn-
legt er. Er það furðulegt í ljósi þeirrar
staðreyndar, að staða ríkissjóðs er miklum
mun verri en fjármálaráðherra gerði þjóð-
inni grein fyrir í kosningabaráttunni.
Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur tel-
ur vafasamt, að Framsóknarflokkurinn
eigi að taka þátt í ríkisstjórn, sem ekki
telur sér fært að undirbúa framhaldsað-
gerðir í efnahags- og ríkisfjármálum
MARKVISS SKYNDIHJALP VIÐ MEÐVITUNDARLAUSA
Alhugiö hvorl hmn slas-
aói er meövilundarlaus.
- lalið viö hann
- yliö viö honum
Aihugiö hvon hinn meö-
vitundarlausi andar með
pvi aó hlusta eftir andar-
drællinum eða leggja
aöra hondina a brjost-
kassann og finna hvort
hendurnar hreyfast fynr
ahrif andardratlarms
ef hann andarekki.
Opniö ondurveg
öndunarvegurinn er
opnaöur meö þvi aö taka
annarn hendi um ennió
og hinni um hokuna.
Hokunni er siöan ýtt
fram og hofuóið sveigt
ems langt aftur og unnt
er.
Við þaö lyftist tungan
fram og óndunarvegur-
inn opnast. Hlustiö siðan
meö eyraö fast viö nef og
munn hins meövitundar-
lausa.
beitió biastursaóferóinni
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavíkurdeild RKl heldur námskeið f
skyndihjálp. Það hefst þriðjudag 7. júlí að
Ármúla 34 (Múlabæ) kl. 20 og stendur yfir
5' kvöld. Skráning í síma 28222. Nám-
skeiðsgjald er kr. 1000. Leiðbeinandi
verður Guðlaugur Leósson. Öllum heimil
þátttaka. Á námskeiðinu verður leitast við
að veita sem almennasta þekkingu um
skyndihjálp. Meðal annars verða kennd
viðbrögð við öndunarstoppi, beinbrotum,
bruna og sýnd myndbönd um ýmsa þætti
skyndihjálpar. Nú er gott tækifæri fyrir
fólk að læra fyrstu viðbrögð við slysum
eða endurbæta fyrri þekkingu. Talið er
nauðsynlegt að fóik fari í gegnum allt
námskeiðið á 3 ára fresti til að halda þekk-
ingunni við en fari á 2 kvölda upprifjun-
arnámskeið einu sinni ári. Boðið verður
upp á slík námskeið á næstunni ef þátt-
taka fæst. Námskeiðinu lýkur með verk-
efni sem hægt er að fá metið í ýmsum
skólum.
■
Lúðrasveit Reykjavíkur 65
ára
Lúðrasveit Reykjavíkur er 65 ára um þess-
ar mundir en hún var stofnuð 7. júlí 1922.
Lúðrasveitin varð til við samruna tveggja
félaga, Hörpu (stofnuð 1910) og Gígju
(stofnuð 1915). Stofnendur Lúðrasveitar
Reykjavíkur voru 31. Fyrsti stjórnandi
hennar var þýski hornleikarinn Otto Bötc-
her. Hljómskálann byggði Lúðrasveit
Reykjavíkur 1922-1923, en hann hefur sfð-
an verið æfingastaður sveitarinnar.
Núverandi stjórnandi er Róbert Darling.
Markmið sveitarinnar hefur verið frá upp-
hafi að vinna að eflingu tónlistarlífs og
stuðla að kennslu á blásturshljóðfæri.
Starfsemin hefur að sjálfsögðu að mestu
leyti verið bundin við Reykjavík en LR
hefur jafnframt leikið á ýmsum stöðum
um land allt. Þrisvar hefur LIl farið í tón-
leikaferðir til útlanda. Til Færeyja 1964,
til Kanada og Bandaríkjanna 1972 og til
Kanada 1975. í sumar verður enn haldið
til Kanada og Bandaríkjanna. Sveitinni
hefur boðist að taka þátt í íslendingadeg-
inum á Gimli 2. og 3. ágúst sem í ár er
um leið 100 ára afmælishátíð Gimlisveitar.
Auk þess að leika á Gimli mun Lúðrasveit-
in ferðast og leika í byggðum Vestur-
íslendinga í Manitoba, Ontario og North
Dakota. Þetta verður þriggja vikna ferð
og þátttakendur um 50, þar af 30 hljóð-
færaleikarar. Núverandi formaður sveit-
arinnar er Bjarni Ragnarsson.
Spakmælið________________________________
Hlæ þú ofurlítið meira að þínum eigin áhyggjum
og ögn minna að náungans.
- E. Fullerd
samhliða brýnustu aðgerðum strax. An
slíkra aðgerða er teflt í tvísýnu þeim ár-
angri, sem ríkisstjórnin náði á síðasta
kjörtímabili. Verðbólgudraugurinn er á
næsta leiti og náist ekki viðunandi sam-
komulag um að kveða hann niður, er ljóst
að ríkisstjóm þeirra þriggja flokka, sem
nú ræðast við um stjórnarmyndun, yrði
skammlíf."
Frumsýning hjá
Strengjaleikhúsinu
Strengjaleikhúsið frumsýnir „Sjö spegil-
myndir“ í Hlaðvarpanum við Vesturgötu
7. júlí nk. Sjö spegilmyndir er leik- og tón-
verk fyrir tvo leikara, flautuleikara og
segulbönd um höfuðskepnurnar utan
manneskjunnar og innan. Verkið, sem er
án orða, er samið af Messíönu Tómas-
dóttur og finnska tónskáldinu Patrick
Kosk en unnið hefur verið að algerum
samruna tónlistar við hinn sjónræna og
leikræna þátt. Leikarar í sýningunni eru
þau Þ*ör Tulinius, Ása Hlín Svavarsdóttir
og Kolbeinn Bjarnason flautuleikari.
Form sýningarinnar er nánast ritúal eða
helgileikur í hringformi þar sem annar
helmingur hringsins afmarkast af leik-
myndinni sem samanstendur m.a. af sjö
speglum. í hinum helmingi hringsins sitja
áhorfendur í sjö fimm manna hópum sem
leikur, mynd og tónlist höfða til á mismun-
andi hátt. Verkið, sem tekur um eina
klukkustund í flutningi, verður sýnt í
Hlaðvarpanum 7.-12. júlí og 16.-19. júlí,
en að því loknu fer hópurinn í leikferð um
Norðurlönd og sýnir m.a. á hinni alþjóð-
legu leiklistarhátíð í Tampere í Finnlandi.
Forsala aðgöngumiða verður í síma 15185.
Ársþing Norræna veitinga-
og gistihúsasambandsins
Þann 13.-16. júní sl. var haldið hér á landi
ársþing Norræna veitinga- og gistihúsa-
sambandsins, (Nordisk hotel- og restaur-
antforbund) en Samband veitinga- og
gistihúsa á aðild þar að. Eru ársþing nor-
ræna sambandsins haldin til skiptis í
löndunum 5. Rætt var um ástand og horf-
ur á vinnumarkaði hvers lands um sig,
almennt ástand í ferðaþjónustu og mögu-
lega samvinnu varðandi markaðssetningu
í öðrum löndum. Ennfremur voru rædd
fjölmörg sameiginleg hagsmunamál og
skipst á upplýsingum. Meginkrafa er sú
að ferðaþjónusta fái að dafna við lífvænleg
skilyrði og losað sé um alls kyns höft og
bönn sem hvorki ferðamenn né þeir sem
þjóna þeim skilja. Á þinginu var Einar
Olgeirsson, hótelstjóri á Hótel Loftleiðum
og formaður Sambands veitinga- og gisti-
húsa, kjörinn forseti norræna sambands-
ins til tveggja ára.
Námskeið í lífefli
og djúpslökun
Fræðslumiðstöðin Þrídrangur verður með
námskeið í lífefli og djúpslökun. Leið-
beinandi er Gunnhildur H. Axelsdóttir og
fylgir námskeiðinu slökunarsnælda og les-
efni. Námskeiðið er helgi og 1 kvöld.
Helgarnar 18.-19 og 25.-26. júlí. 1 nám-
skeiðinu eru hvíldarþjálfun sovéska
læknisins Dr. A.G. Odessky gerð ítarleg
skil. Þessi slökunaraðferð, sem var sér-
staklega hönnuð fyrir sovéska geimfara,
er talin meðal fremstu aðferða til tauga-
og vöðvaslökunar. Hún byggir á áhrifa-
mætti sjálfsefjunar, öndunartækni úr
þjálfunarkerfi yoga og ákveðinni tónlist
sem hefur sjálfkrafa slökun í för með sér.
Rannsóknir á áhrifum djúpslökunar hafa
leitt í ljós að einstaklingar sem iðka að-
ferðina reglulega geta náð alhliða slökun
á aðeins örfáum mínútum. Á námskeiðinu
eru einnig teknar fyrir lífeflisæfingar Ale-
sanders Löwen. Lífeflisæfingakerfið er
stundum nefnt „Yoga tuttugustu aldar-
innar" og þykir henta vel sem alhliða
heilsurækt. Ávinningur af lífeflisæfingun-
um er m.a. að losa um vöðvaspennu, stuðla
að aukinni blóðrás, dýpri öndun og útrás
innibyrgðra tilfinninga. Innritun og nán-
ari upplýsingar eru á kvöldin milli kl. 20
og 23 í síma 671168. Þátttaka er öllum
heimil.
Gönguklúbburinn Hana nú
í Kópavogi.
Á hverjum laugardegi allan ársins hring
fer Gönguklúbbur Frístundahópsins Hana
nú í Kópavogi í sitt vikulega bæjarrölt.
Það er komið saman að Digranesvegi 12
kl. 10 f.h., drukkið molakaffi og rabbað
saman og síðan gengið um bæinn í klukku-
tíma. Þessi laugardagsganga er ekki
eingöngu ætluð fyrir fyrir félaga í Hana
nú heldur eru allir Kópavogsbúar vel-
komnir í gönguna. I laugardagsgöngunum
er rölt um bæinn og margir Kópavogsbúar
hafa kynnst bænum í fyrsta sinn í göngun-
um. í laugardagsgöngunni er gengið í
hægðum sínum og hæfir hún vel fjölskyld-
um og oft ganga tvær eða þrjár kynslóðir.
Aðstandendur Hana nú vilja hvetja íbúa
í Kópavogi - unga og aldna - til áð reyna
þennan einfalda og skemmtilega tóm-
stundakost.
Sýningar
Nína Gautadóttir með sýningu
í París
Um þessar mundir stendur yfir sýning á
málverkum eftir Nínu Gautadóttur í Ga-
lerie Etienne Gausanne á 25 rue de Soine
í París. Nína sýndi málverk í fyrsta sinn
á Kjarvalsstöðum 1986. Öll verkin, sem
hún sýnir nú, eru unnin síðan þá. Mikill
fjöldi fólks var við opnunina og mikil
stemming.
Málverkasýning á
Patreksfirði
Jóhanna Wathne listmálari sýnir 24 olíu-
málverk í veitingahúsinu Grillinu á
Patreksfirði. Jóhanna stundaði nám í
Myndlistarskólanum um árabil. Einnig
hefur hún stundað nám í Kanada og Norð-
ur-Dakóta. Sýning þessi er fimmta einka-
sýning Jóhönnu.
LUKKUDAGAR
6. júli
12967
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800.
Vinningshafar hringi i síma
91-82580.
Loftastoðir
BYGGIIMGA-
MEISTARAR
Eigum nú á
lager loftastoðir
á mjög
hagstæðu
verði.
★
Stærðir
2,30-3,80 m
og 2,50-4,40 m
★
Góðir greiðslu-
skilmálar.
★
Leigjum einnig
ut
loftastoðir.
Fallar hf.
á
ST. 22-29 Verð. 1.595,-
KangaRoos með
vasanum. Vorum
að fá nýja send-
ingu af þessum
leðurskóm.
smáskór
Sérverslun með barnaskó.
Skólavörðustig 6b,
bakhlið nýja hússins.
Gengið inn
frá Skólavörðustíg.
Póstsendum. S. 622812.
ATH! Opið á laugardögum
kl. 10-12 i júli.