Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Side 34
40 MÁNUDAGUR 6. JÚ 1987. ■-v þakrennur ryðga ekki! Einfaldar í samsetningu, þarf ekki að líma. ^ALFABORG BYGGINGAMARKAÐUR SKÚTUVOGI 4 - SÍMI 686755 Kvikmyndir Stjömubíó/Wisdom Hrói höttur í Bandaríkjunum bannaðar í hinni siðprúðu Ameríku. Þjóðfélagið hafiiar honum og hann fær hvergi vinnu, ekki einu sinni við að steikja hamborgara. Þegar þolin- mæði Wisdom þrýtur ákveður hann að gerast glæpamaður, hann sé hvort sem er stimplaður sem slíkur. Enginn venjulegur krimmi En Wisdom er óvenjulegur glæpa- maður. Hann rænir ekki fyrir sjálfan sig heldur fyrir aðra. Hann gerist Hrói höttur tuttugustu aldarinnar, rænir frá þeim ríku og gefur þeim fátæku með því að ráðast inn í banka og kveikja í veðskuldabréfum. Wis- dom og unnusta hans, sem fylgir honum dyggilega, verða þjóðhetjur og 65% þjóðarinnar segjast styðja þau í skoðanakönnunum. John Wisdom fær þó bakþanka þegar honum verður ljóst að framtak hans getur ekki breytt þjóðfélaginu. Þau reyna að flýja til Kanada en enginn má við margnum. Söguþráðurinn er nokkuð þungur en áhorfandanum er þó alltaf haldið við efnið vegna hinnar hröðu at- burðarásar myndarinnar. Tækni- vinnan er að öllu leyti góð og leikstjóm Emilio Estevez er mjög góð. Þar er piltur á réttu róli og á eftir að ná langt. Sem leikari er hann ekkert framúrskarandi en allir kom- ast skammlaust frá sínum hlutverk- um. Myndin er hin ágætasta skemmtun og vel þess virði að nýta kvöldstund til að kíkja á frumraun leikstjórans og handritshöfundarins Emilio Estevez en hins vegar finnst mér alltaf leiðinlegt þegar myndir enda illa. -JFJ Wisdom Bandarísk frá 20th Century Fox Framleidd at. Bernard Williams Leikstjóri og handritshöfundur: Emilio Estevez Aöalhlutverk: Emilio Estevez, Demi Moore, William Allen Young. Fyrir allmörgum árum var gerð kvikmynd um hin sögufrægu skötu- hjú Bonnie og Clyde sem ferðuðust um Bandaríkin, fylki úr fylki, og rændu banka. Þau víluðu ekki fyrir sér að láta byssumar tala og urðu óvinir þjóðarinnar. John Wisdom og kærasta hans, Karen Simmons, eru líka á flakki og ráðast inn í banka, - hins vegar elskar fólkið þau. John Wisdom er ungur maður sem framtíðin brosir við, allt þar til að hann útskrifast úr menntaskóla. Hann er með finar einkunnir, en um kvöldið, þegar ölið hefur svifið á sveininn, tekur hann bíl ófrjálsri hendi og lendir í árekstri. Fyrir þetta er Wisdom kominn á sakaskrá og eftir það eru honum allar bjargir John Wisdom og Karen unnusta um eins og Hrói höttur. hans verða að þjóðhetjum í Bandaríkjunum en eru þó hundelt af yfirvöldun- Á ferðalagi \m afsláttur Íjúníog júlí veitum viö 15% staðgreiðsluafslátt af pústkerfum í Volksvager. og Mitsubishi bifreiðar. Kynntu þér okkar verð, það getur borgað sig. SÍMAR: 91-695500 91-695650 91-695651 HEKIAHF Brúarhlöð í Biskupstungum Brúarhlöð er gljúfur Hvítá og um það segja Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson í Bókinni landið þitt ísland. „Við Brúarhlöð er kjarrgróður og undarlegar klettamyndanir í gljúfr- inu. Á einum stað stendur einstakur, hár og mjór klettadrangur upp úr miðri ánni, myndaður úr þursabergi, en þursaberg mikið og fagurt er bæði í gljúfrinu og hæðunum um- hverfis. Þar er brú á Hvítá, gerð 1959. Áin ruddi burt brú á þessum stað 1929 og í annað sinn 1930. Er talið að þá hafi dýpt hennar verið um 21 m og sennilega eitthvert mesta dýpi sem þekkst hefur í straumvatni hér á landi." í nágrenni við Brúarhlöð eru tveir vinsælustu ferðamannastaðir lands- ins. í norðaustri er Gullfoss, sem trúlega er þekktasti foss landsins, og ekki er langt í nafhkenndasta goshver í heimi, Geysi. Aðrir áhugaverðir staðir eru í grenndinni, þótt ekki séu þeir álíka þekktir og Gullfoss og Geysir. Rétt vestan Brúarhlaðar er gamall troðn- ingur sem liggur að Brattholti. Brattholt er efetur bæja við Hvítá að vestan. Feðginin á Brattholti, Tómas Tómasson og Sigríður, dóttir hans, áttu í harðri baráttu snemma á öldinni við að halda Gullfossi í íslenskri eigu. Útlendingar föluðust eftir fossinum og kom til greina að virkja hann til rafmangsframleiðslu. Einar Benediksson, skáld og at- hafnamaður, kom nokkuð við sögu í þeim málum. Brattholt átti hlut í Gullfossi og var ekkert gefið eftir til að fossinn mætti vera áfram í is- lenskri eigu. Fór svo að málstaður Sigríðar og Tómasar sigraði og komst Gullfoss í eigu íslenska ríkis- ins. Málareksturinn kostaði Sigríði mikið fé, en íslenska bóndakonan taldi það ekki eftir sér þegar svo mikið var í húfi. Vorið 1978 var minnismerki um Sigríði Tómasdóttur reist við Gull- foss. Ríkharður Jónsson er höfundur verksins. Ojúpt og straumhart vatniö hefur í tvigang eyðilagt brýr við Brúarhlöð. BINGÖ! Hefst kl. 19.30 Aðalvinninqur að verðmaeti _________kr.40bús. Heildarverðmæti vinninga kr.180 þús. TEMPLARAHÖLLIN Eiríksgötu 5 — S. 20010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.