Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Side 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstiórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sínti 27022
anHHmH
I^^BHHHHH
Frjálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 6. JÚU 1987.
Hundbitið fé
á Hellisheiði
Um helgina var verið að smala til
rúnings á Hellisheiði og fundu
smalamenn þá nokkuð af hundbitnu
fé á heiðinni. Tvö lömb voru dauð
og ein kind svo illa særð að það
varð að aflífa hana. Að auki voru
nokkrar kindur særðar.
Sigurður Auðunsson, fjallkóngur
Hvergerðinga, sagði að í leitum í
fyrrahaust hefðu menn einnig fundið
hundbitið fé á heiðinni og er talið
víst að hundar frá Skíðaskálanum í
Hveradölum. hafi ráðist á féð. Um
er að ræða tvo Scháferhunda og eiga
þeir að vera bundnir en misbrestur
mun vera á því að svo sé.
-S.dór
Akureyri:
Friðsamir en
útúrfullir
Jón G. Hauksscm, DV, Akureyri
Mikil ölvun var á Akureyri um
helgina og gleðskapur mikill enda
margir ferðamenn í bænum.
Að sögn lögreglunnar urðu engin
teljandi vandræði vegna ölvunar-
innar. „Menn voru friðsamir en
útúrfullir," sagði varðstjóri í lögregl-
unni á Akureyri.
Ráðist
á mann
Ráðist var á mann fyrir utan Þórs-
kaffi á þriðja tímanum aðfaranótt
sunnudagsins. Maðurinn var laminn
niður og gat enga björg sér veitt.
Ekki er talið að árasarmaðurinn
hafi átt neitt vantalað við manninn
heldur einfaldlega ráðist á þann sem
næstur var. Árásarmaðurinn var
settur undir lás og slá en sá sem
varð fyrir barðinu á honum slasaðist
■ a þó nokkuð og var fluttur á slysa-
deild.
Lögreglan þurfti þessa sömu nótt
að hafa afskipti af fjölmörgum öðr-
um slagsmálum víðs vegar um
borgina en umrædd árás ku hafa
verið sú alvarlegasta.
-Ró.G.
ÓVENJU LÁGT VERÐ
OPIÐ TIL KL. 16.00
Á LAUGARDÖGUM
LOKI
Skyldu Jónarnir ekki einu
sinni hafa fengið riklingsbita
að vestan?
Vestflrskir kratar reiðir:
Mættu ekki
á flokks-
stjórnarfund
„Við sáum ekki ástæðu til að
mæta á þennan fund til að leggja
blessun okkar yfir að Alþýðuflokk-
urinn skuli verða þriðja hjól undir
vagni í ríkisstjóm.
Við viljum mótmæla hvemig þátt-
töku flokksins í þessari stjóm er
háttað,“ sagði Valdimar L. Gíslason
í Bolungarvík, einn þriggja flokks-
stjómarfuiltrúa Alþýðuflokksins á
Vestfjörðum, í samtali við DV í gær.
Valdimar og hinir fulltrúar flokksins
á Vestflörðum, Kristján Jónasson á
ísafirði og Hjörleifúr Guðmundsson
á Patreksfirði, sátu heima í stað þess
að mæta á fund flokksstjómar Al-
þýðuflokksins sem haldinn var í
Reykjavík klukkan fjögur í gær. Á
fundinum var lagður fram mále&a-
samningur um stjómarsamstarf
Alþýðuflokks, Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks. Fjarvera vestf-
irsku fúlltrúanna vakti að vonum
athygli og þóttu þeir styðja illa við
bakið á Jóni Baldvin og Jóni Sig-
urðssyni, sem báðir em aldir upp á
Vestfjörðum.
„Það ríkir reiði hér fyrir vestan
yfir hrossakaupum sem átt hafa sér
stað í þessum stjómarmyndunarvið-
ræðum. ekki síst yfir því að Al-
þýðuflokkurinn gangist inn á sömu
stefriu og áður gilti í landbúnaðar-
málum. Það var ekki á stefnuskrá
hans fyrir kosningar að landsbyggð-
in yrði lögð í eyði,“ sagði Valdimar.
-BTH
Europe er komin
Þeir stilltu sér upp fyrir Ijósmyndarann okkar strákarnir úr Europe og voru alsælir við íslandskomuna eins og sjá
má. Þeir munu sem kunnugt er halda hljómleika i Höllinni í kvöld með hátt i 30 tonn i farteskinu. Við skulum vona
aö jarðskjálftamælarnir fari ekki á hreyfingu á Stór-Reykjavíkursvæðinu svo að fólk haldi ekki að Suðurlands-
skjálftinn sé að riða yfir. DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Súld til
stranda
Veðrið verður í þyngra lagi.
Breytileg vindátt, tvö til fjögur vind-
stig. Súld við norðurströndina og
einnig við suðaustur- og austur-
ströndina en annars víðast þurrt.
Hiti sjö til tólf stig.
tekin um það af miimi hálfu en ég
útiloka ekki neitt,“ sagði Karvel
Pálmason alþingismaður í samtali við I
DV þegar hann var spurður að því 9
hvort hann myndi segja sig úr þing-
flokki Alþýðuflokksins en svo sem
kunnugt er hefur hann lýst því yfir I
að hann styðji ekki væntanlega ríkis- I
stjóm.
Nokkrir flokksstjómarmenn Al-
þýðuflokksins á Vestfjörðum komu |
ekki til flokksstjómarfundar Alþýðu- |
flokksins í gær þar sem endanlega var
ákveðið að flokkurinn ætti aðild að
ríkisstjóm. Aðspurður hvort um sam- 1
antekin ráð Vestfirðinga væri þarna |
að ræða sagði Karvel að hann vildi
ekki um það segja „en það er óhætt j
að fullyrða að það er megn óánægja 1
með stjómarþátttökuna á Vestfjörð- \
um,“ sagði Karvel.
Karvel var spurður að því hvort
ekki yrði óþægilegt fyrir hann að sitja I
í þingflokki Alþýðuflokksins án þess f
að styðja stjómina og svaraði hann
því til að menn skyldu bíða og sjá ,
hver óþægindin yrðu. „Ég held að I
óþægilegast væri að standa gegn sinni í
sannfæringu því skyldan býður mér
að taka afstöðu eftir henni,“ sagði ,
Karvel.
-ój í
Datvík: ú|
Bílþjófur í
banastuði
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri;
Bílþjófur lét heldur betur hendur
standa fram úr ermum á Dalvík að-
faranótt laugardags. Hann stal þremur
bílum um nóttina. Einn bílinn
skemmdi hann með því að aka honum
á kyrrstæðan bíl. Bílþjófurinn hefúr
ekki náðst.
Hann braust fyrst inn í bíl af gerð-
inni Lada og reyndi að tengja framhjá.
Ekki tókst honum það ætlunarverk
sitt.
Hann braust þá næst inn í Lada
Sport og reyndi aftur að tengja fram-
hjá. Honum tókst að ræsa bílinn og
ók af stað en lenti á kyrrstæðum bíl
í sömu götu. Eldur kom upp í Lödunni
eftir áreksturinn.
Sást hvar maðurinn hljóp í burtu en
hann þurfti greinilega að komast leið-
ar sinnar því næst stal hann Daihatsu
Charade. Sá bíll fannst við afleggjar-
ann að bænum Hamri, rétt sunnan við
Dalvík.
Lögreglan biður alla þá sem kunna
að hafa séð til mannsins á Dalvíkur-
veginum eða tekið hann upp í, að
hafa samband við sig. Dansleikur var
í Víkurröst þetta kvöld og er talið að
bílþjófurinn hafi verið að skemmta sér
þar og vantað far eftir ballið.
i
i
i
i
i
i
i
i
Danska stúlk-
an ófundin
i
i
„Stúlkan er enn ófundin en við vit-
um nú með vissu að hún komst með
flugi til Stokkhólms kl. 16.30 á mið-
vikudag því hún sást í þeirri vél. Við
teljum að þaðan hafi hún farið yfir til
Noregs þar sem hún á skyldmenni
skammt fyrir utan Osló. Samband hef-
ur ekki náðst við þessi skyldmenni
enn, það verður reynt í dag,“ sagði
Jónas Hallsson aðalvarðstjóri í morg-
un um leitina að dönsku stúlkunni,
Piu Jespersen, sem strauk af Ungl-
ingaheimili ríkisins á miðvikudag.
-BTH £
í