Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Síða 9
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987.
9
Alexei Obukhov, næstæðsti fulltrúi Sovétmanna við afvopnunarviðræðurnar i Genf, kynnir nýjustu tillögur sovéskra
stjórnvalda fyrir Maynard Glitman og Ronald Lehman, helstu samningamönnum Bandaríkjanna, í gær.
Simamynd Reuter
„Stjömustríð"
verði innifalið
Sovétmenn endumýjuðu í gær kröf-
ur sínar um að hverjir þeir samningar
um takmarkanir á kjamorkuvígbún-
aðir, sem stórveldin geri með sér, taki
jafnframt til takmarkana á rannsókn-
um í tengslum við geimvamaáætlun
Bandaríkj amanna.
Bandaríkjamenn lýstu þegar
óánægju sinni með þessa afstöðu Sov-
étmanna og bandaríska sendinefndin
við afvopnunarviðræðumar í Genf,
hafhaði þessum nýju tillögum alfarið.
Alexei Obukhov, næstæðsti samn-
ingamaðurSovétríkjannaí Genf, sagði
á fundi með fréttamönnum í gær, að
hann hefði afhent bandarísku samn-
ingamönnunum tíu síðna uppkast að
samningi sem komið gæti í veg fyrir
vígbúnaðarkapphlaup úti í geimnum.
Hann sagði einnig að Sovétmenn
myndu leggja fram uppkast að samn-
ingi um samdrátt í langdrægum
kjamorkuvígbúnaði stórveldanna,
innan fárra daga.
Bandaríkjamenn segja að tillögum-
ar sem Sovétmenn lögðu fram í gær
sýndu að ekki hefði orðið nein raun-
veruleg breyting á afetöðu þeirra til
þess að tengja samdrátt í kjamorku-
vígbúnaði við geimvamaáætlun
Bandaríkjamanna sem nefrid hefur
verið „stjömustríð".
Talsmaður bandarískra stjómvalda
gagnrýndi einnig harðlega þá afstöðu
Sovétmanna að vilja láta samninga
við Bandaríkin taka til Pershing-
flauga Vestur-Þjóðverja, en banda-
rískir samningamenn hafa hafnað því,
þar sem um vopn í eigu þriðja ríkis
sé að ræða og umboð til að semja um
slíkt sé ekki fyrir hendi.
Haft er eftir samningamönnum í
Genf að þessi þróun sýni að gatan að
samningagerð sé ekki eins greið og
hún hefur virst vera undanfama daga,
eftir að stórveldin tvö höfðu bæði lagt
fram málamiðlunartillögur, þar sem
þau létu að nokkm af kröfum sínum.
Kvað þingmenn í kútinn
Ólafior Amaisan, DV, New Yarlc
Þingmenn gerðu í gær harðar at-
lögur að Edwin Meese, dómsmála-
ráðherra Bandaríkjanna, er hann sat
fyrir svörum hjá rannsóknamefhd
Bandaríkjaþings í Iransmálinu ann-
an daginn í röð.
Meese var harðlega gagnrýndur
fyrir það hvemig hann stóð að frum-
rannsókn málsins í nóvember síðast-
liðnum. Meese lét engan bilbug á sér
finna enda þaulvanur yfirheyrslum
hjá hinum og þessum nefhdum og
ráðum gegnum tíðina.
Nokkrum sinnum ætluðu þing-
menn að væna Meese um óheiðar-
leika og lygar en þá brást hann við
af mikilli grimmd og krafðist þess
að menn töluðu ekki undir rós og
færðu rök fyrir máli sínu. Honum
tókst að kveða menn í kútinn hvað
eftir annað.
Andstæðingar Meese og forsetans
hafa reynt að gera vináttusamband
hans við Reagan tortryggilegt. Segja
þeir að Meese geti ekki haldið hlut-
leysi sínu og rannsakað hugsanleg
afbrot sem framin hafi verið af undir-
mönnum forsetans eins og dóms-
málaráðherra beri að gera.
Repúblikanar hafa á móti bent á
að nauðsynlegt sé fyrir forsetann að
hafa dómsmálaráðherra sem hann
bæði virði og treysti. Einnig hafa
þeir bent á að demókratinn John
F. Kennedy skipaði Robert bróður
sinn í þetta embætti á sínum tíma
og Jimmy Carter setti nágranna sinn
í embætti dómsmálaráðherra.
Það verður að segjast eins og er
að frammistaða Meese hjá þing-
nefhdinni í gær var áhrifarík.
Ákveðni hans var mikil og hann
leyfði þingmönnum ekki að komast
upp með neitt múður. Eftir stendur
að enginn þingmaður vildi eftir yfir-
heyrslumar halda því fram að hlutur
Meese í þessu máli væri neitt undar-
legur en fyrir yfirheyrslumar höfðu
margir haldið þvi fram. Virðist því
sem Meese hafi enn einu sinni snúið
andstæðinga sína af sér.
I dag halda yfirheyrslur þingnefnd-
arinnar áfram og það er Donald
Regan, fyrrum starfsmannastjóri
Hvíta hússins, sem situr fyrir svör-
um. Beðið er með nokkurri eftir-
væntingu eftir framburði hans því
margir telja að hann beri mikla sök
á því hvemig mál þetta fór úr bönd-
unum.
Senda þyrlur til tundurduflaleitar
Bandaríkin hyggjast senda átta þyrl-
ur til Persaflóa til tundurduflaleitar. I
dag er ráðgert að Caspar Weinberger,
vamarmálaráðherra Bandaríkjanna,
ræði við André Giraud, vamarmála-
ráðherra Frakklands, um ástandið á
Persaflóa. Hafa bandarískir embættis-
menn sagt að Bandaríkjastjóm ætli
að falast eftir aðstoð Frakka við tund-
urduflaleitina.
Yfirvöld í Vestur-Þýskalandi til-
kynntu í gær að þau hefðu hafnað
beiðni Weinbergers um aðstoð við
tundurduflaleit á Persaflóa. Ráðgert
er að bandarísku þyrlumar verði
komnar í notkun fyrstu vikuna í ágúst.
Fundist hafa fleiri tundurdufl á
svæðinu þar sem oh'uflutningaskipið
Bridgeton frá Kuwait sigldi á tundur-
dufl fyrir viku.
Floti fjögurra franskra herskipa er
nú á leið til Persaflóa. Vestur-Þjóð-
veijar segja að samkvæmt stjómar-
skrá þeirra geti þeir ekki sent herskip Bandaríkjamenn um aðrar leiðir til
til flóans en að þeir muni ræða við aðstoðar Bandaríkjunum.
Átta bandariskar þyrlur af gerðinni MK-105 munu leita tundurdufla á Persaflóa.
Símamynd Reuter
Útlönd
lokað í Panama
Háskólanum í Panama var í gær lokað um óákveðinn tíma, eftir að til
átaka kom milli óeirðasveita lögreglu og stúdenta við skólann.
Ríkisstjóm Panama gagnrýndi á sama tíma Bandaríkjamenn harðlega og
sakaði þá um afekipti af innanríkismálum landsins og þúsundir manna efiidu
til aðgerða til stuðnings stjómvöldum í Panama City, höfuðborg landsins.
Utanríkisráðuneyti Panama gaf í gær út tilkynningu þar sem segir að
frekari afekipti Bandaríkjamanna af málefnum Panama verði skoðuð sem
óvinveittar aðgerðir.
Bandaríska sendiráðið í Panama vildi ekki tjá sig um málið í gær en það-
an hafði fyrr um dagirrn borist gangrýni á það að blöðum stjómarandstæð-
inga í landinu hafði verið lokað.
Hítabylgjunni lokið
Hitabylgjuþeirri,semgengiðhefur ÍíftD I V I AKIH A
yfir Grikkland undanfama tíu daga, .. .„J/ L-íMN U
lauk í gær þegar hitastig féll niður ^ Jsjí||sp|m^£ín
um tíu gráður. Veðurstofan í Aþenu . “i O ÍÍÍ ÍJ
spáði í gær að hiti yrði áfram allt |\ :i|::Íg,
að þqatiu og fimm graðum á cel- 'UðC
cius, sem er mun kaldara en :::iij35
undanfama daga þegar hiti fór allt :::::::: Í Í Í i i Í Í •tiíSi!&: Í Í Í^Lif ií':
upp í görutíu og gögur stág. -hvJiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimTÍIiiiiiii-iiiiiÍiÍ
Talið er að hitabylgjan hafi átt iiuúiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiC^ÍSiðiii
hlut að máli í dauða allt að eitt þús- u:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::;
und manns í landinu. Starísmenn kirkjugarða hafa enn ekki undan að grafa
hina
látnu og í morgun var talið að i Aþenu biðu 285 lík greftrunar.
Fengu þyngstu dóma
Fyrrum æðsti yfirmaður kjamorkuversins í Chemobyl í Sovétríkjunum
og tveir aðstoðarmenn hans, sem taldir em bera beina ábyrgð á slysinu sem
varð í verinu á síðasta ári, hlutu þyngstu dóma sem hægt var að fella yfir
þeim fyrir afbrot sín. Allir þrir verða að afþlána tíu ára þrælkunarvinnu í
fangabúðum.
I dómsorði segir að mennimir þrír hafi gerst sekir um glæpsamlegt kæm-
leysi í starfi.
Talsmenn sovéska utanríkisráðuneytisins sögðu í gær að þrenn réttarhöld
til viðbótar væm fyrirhuguð í tengslum við sfy’sið, þar á meðal ein yfir
háttsettum embættismönnum sem hefðu verið ábyrgir í yfirstjóm orkuvers-
ins.
Vindsveipurinn skæðastur
Að sögn þeirra sem rannsaka sfysin sem urðu af völdum aurskriða á norð-
anverðri Ítalíu fyrr í vikunni, var það vindsveipurinn sem fylgdi skriðunum
sem varð fólki og eignum skeinuhættastur.
Að sögn þeirra sera lentu i skriðunum var vindsveipur þessi svo sterkur
að hann feykti þeim langar leiðir, auk þess að fleygja til bifreiðum og vinna
annað eignatjón.
Meir en tuttugu manna er saknað á svæðunum þar sem skriðumar féllu.
Talið er mjög ólíklegt að nokkur þeirra sé enn á lífi.