Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritst|órn ^ Awglýsingær - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987. „Frímúrara- reglan er mann- bætandi“ - segir settur biskup „Mér finnst þessi gagnrýni ekki á rökum reist, frímúrarareglan er mannbætandi félagsskapur sem reistur er algerlega á kristilegum grunni. Það hefur hingað til ekki verið gagnrýnt hér á landi að ís- lenskir prestar séu í frímúrararegl- unni. Má vera að það verði eitthvað rætt eftir þetta,“ sagði settur biskup íslands, Sigurður Guðmundsson, um yfirlýsingu sem kirkjuþing ensku biskupakirkjunnar sendi frá sér í mánuðinum um að helgisiðir frímúr- arareglunnar væru guðlast og ekki viðeigandi að prestar og biskupar gengju í regluna. Sigurður er í frí- múrarareglunni auk fjölda íslenskra presta „Það er líklega leyndin yfir regl- unni sem fer mest fyrir brjóstið á þeim. Þótt í reglunni sé fylgt ákveðn- um venjum er fráleitt að helgisiðir séu stundaðir þar sem jaðri við guð- last.“ -BTH Atta fluttir á slysadeild Lögreglunni á Akureyri var til- kynnt um harðan árekstur á Norðurlandsvegi við bæinn Garðs- vík á Svalbarðsströnd klukkan hálfátta í gærkvöldi. Tveir bílar skullu þar saman. Fjórir voru í bíl- unum og voru allir fluttir á slysa- deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Mun enginn vera lífs- hættulega slasaður. Annar bíllinn er talinn gjörónýtur og hinn mikið skemmdur. -sme 0k á átta bíla Um klukkan hálftvö í nótt stöðv- aði lögreglan drukkinn ökumann á Háteigsvegi. Maðurinn hafði keyrt utan í átta bíla áður en hann var stöðvaður. í morgun lá ekki ljóst fyrir hversu mikið bílamir voru skemmdir. -sme ÓVENJU LÁGT VERÐ 0PIÐ TIL KL. 16.00 Á LAUGARDÖGUM E Smiðjuvegi 2, Kópavogi. Símar 79866, 79494. LOKI Nú getur Óli Kr. í Olís náð sér í banka! Alþýðubankinn leítar til annarra banka vegna slæmrar stöðu: Iðnaðar- Lands og Samvinnubank inn í myndinni Alþýðubankamenn hafa undan- farið rætt oformlega við fúlltrúa nokkurra banka um samruna Al- þýðubankans við einhvem þeirra. Hefur verið rætt við Iðnaðarbank- ann, Samvinnubankann og síðast Landsbankánn, samkvæmt upplýs- ingum sem DV hefúr aflað sér. ans, hefúr haft forgöngu um þessar athuganir. Fyrst var rætt við Iðnað- arbankann, en þegar niðurstaða fékkst ekki í þeim athugunum var leitað til Landsbankans. Einnig munu þreifingar við Samvinnubank- ann hafa farið fram. Samkvæmt heímildum blaðsins hefur frekar verið um þreifingar að ræða en formlegar viðræður, en Ás- mundur Stefánsson, forseti ASÍ og formaður bankaráðs Alþýðubank- Samkvæmt upplýsingum DV mun Landsbankinn ekki fara í samkeppni við aðra banka um að ná Alþýðu- bankanum undir sig og það er talinn meiri ávinningur fyrir einhvem hinna minni banka að fa Alþýðu- bankann yfir til sín. Málið mun ekki vera komið það langt að bankaráð viðkomandi banka hafi fengið málið til athugunar og munu þreifingar liggja í láginni á meðan Asmundur Stefánsson er erlendis en hann er nú í sumarfni í Sovétríkjunum. Vegna bágrar stöðu Alþýðubank- ans, sem ljós varð á síðasta aðal- fúndi, er það talið nauðeynlegt fyrir bankann að ganga til samstarfs eða renna saman við einhvem hinna betur stæðu banka. -ój Þessi austurrísku feðgin ferðast um landið á puttanum. DV ók fram á þau við Sólheima i Skaga- firði. Þau sögðust vera frá Vín og ætla að fara hringinn. Venjulega sækja þau suður á bóginn, til stranda Ítalíu og Júgóslavíu, á sumrin. En í þetta skiptið var stefnan tekin í þveröfuga átt. Og að sögn hefur þeim gengið ágætlaega að fá far með íslenskum ökuþórum. DV-mynd JGH. Veðrið á morgun: Skýjað um mestallt land Á morgun verður fremur hæg norðvestan- og vestanátt á landinu, skýjað um mestallt land og víða skúrir norðanlands og á annesjum vestanlands. Hiti verður 8-15 stig. Guðmundur J. Úrsögn úr Alþýðubanda- laginu „Ástæðumar fyrir úrsögninni eru margþættar og einfaldar. Spumingin er hvort maður eins og ég, sem er í þjónustu verkafólks, eigi að einhenda sér í verkalýðsbaráttuna eða verá í flokki sem hann vill ekki lúta vegna ósamkvæmni í gjörðum flokksins og ástandsins í flokknum. Þar logar allt í innanflokksdeilum og flokkurinn ætti að lýsa þvi yfir að hann væri ekki þátttakandi í pólitík meðan for- ystumenn keppast við að reyta æmna hver af öðrum, á meðan þeir takast á um völd og áhrif,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar og Verkamannasambandsins. Guðmundur hefur sagt sig úr flokkn- um eftír 43 ára vem þar og segir flokkinn vera í tapstöðu. Guðmundur sagðist enga ákvörðun hafa tekið um að fara í annan pólitískan flokk enda myndi hann ganga tregur til þess leiks, það væri ekki ástæða úrsagnarinnar. -JFJ í 4 : 4 4 Þröstur gerði jafhtefli 4 í morgun var tefld ellefta umferð á heimsmeistaramótínu í skák fyrir 20 ára og yngri á Filippseyjum. Hannes Hlífar tapaði þá fyrir Frakkanum Deg- arve en Þröstur Þórhallsson gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Rechlis frá Israel. Þröstur er nú með sex og hálfan vinning en Hannes Hlíf- ar er með fjóra og hálfan. Indlandsmeistarinn Anand er enn efstur með níu vinninga en Blatny frá Tékkóslóvakíu er í öðm sætí með sjö og hálfan vinning, eftir að hafa tapað í elleftu umferð fyrir Anand. Agdenstein er í þriðja tíl sjötta sæti með sjö vinninga, en skák hans við Júgóslavann Sokolov var ólokið í ell- eftu umferð þegar DV náði tali af Þresti í morgun. -KGK 4 4 4 4 4 4 Vorslusviptingar: Rætt um w breyttar reglur a Fundur var haldinn hjá Borgarfó- getaembættinu í gær og vom á honum rædd vandamál varðandi framkvæmd vörslusviptinga. Vörslusviptingar hafa ekki verið framkvæmdar á vegum embættisins um skeið vegna deilna um tilhögun þeirra. Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, sat fundinn í gær og hann sagði að þar hefðu engar lokaákvarðanir verið teknar. „Það fóm fram umræður um nýjar reglur varðandi vörslusviptíngar. Það er verið að fást við þetta mál núna en annars lítið um það að segja á þessu stigi,“ sagði Þorsteinn. -ATA 4 4 4 4 Sri Lanka: A Fær hemaðar- aðstoð æ Bandaríkjamenn bmgðust í morgun 1 jákvætt við beiðni stjómvalda á Sri Lanka, irni hemaðarlega aðstoð, til þess að kæfa uppreisn sem risið hefúr þar vegna samninga við Indverja. Seytján hundmð manna indverskt herhð lenti í morgun á Jaffnaskaga, til að aðstoða við að framfylgja samn- ingnum. Sri Lanka hefur einnig farið fram á aðstoð frá Bretlandi, Pakistan og Kína en ekki er vitað hvers kyns sú aðstoð verður. -HV ^| i í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.