Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987. Gunnar Guðmundsson lést 23. júlí sl. Hann fæddist í Reykjavík 9. apríl 1947, sonur hjónanna Guðmundar Þ. Björnssonar og Sigurveigar Stellu Konráðsdóttur. Hann lauk raftækn- inámi frá Tækniskóla Islands um áramótin 1978-79. Stofnuðu þeir Friðrik Dungal fyrirtækið Rafmótun sf. á árinu 1984 og ráku það í samein- ingu til dauðadags. Gunnar var kvæntur Kolbrúnu Jónsdóttur og áttu þau saman eina dóttur. Gunnar átti dreng fyrir. Útför Gunnars verð- ur gerð frá Bústaðakirkju í dag kl. 15. Jarðarfarir Friðrik Dungal lést 23. júlí sl. Hann fæddist 11. desember 1959, sonur Guðrúnar Árnadóttur og Höskuldar Dungal. Friðrik lærði rafvirkjun og vann alltaf við það starf. Stofnaði hann fyrirtæki fyrir nokkrum árum með Gunnari Guðmundssyni. Eftir- lifandi eiginkona Friðriks er Árný Richardsdóttir. Þau hjón eignuðust tvo syni en misstu annan fyrir tæpu ári síðan. Útför Friðriks verður gerð frá Bústaðakirkju í dag kl. 15. PANTANIR SÍMI13010 m KREDIDKORTAÞJONUS TA HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. ODYR MALNING Til sölu úrvals vesturþýsk innimálning á mjög qóðu verði vegna breytinga. Opið kl. 1-6. Bíldshöfða 18, Reykjavík. RYÐI f Sími 67 33 20. ATHUGIÐ SMÁAUGLÝSINGADEILD DV Smáauglýsingadeild DV verður opin um verslunarmannahelgina sem hér segir: Opið föstudag til kl. 22. Lokað laugardag, sunnudag og mánudag. í gærkvöldi_________________________________________pv Sigurður Benedikt Bjömsson yfiiverkstjóri: Vandaðri fréttaflutningur hjá Ríkissjónvarpinu Ekki horfi ég nú mjög mikið á sjón- varp en ég vil þó geta valið úr og þess vegna keypti mér afruglara fyr- ir stuttu. Það var til að fá meira úrval bíómynda sem ég keypti mér afruglara. - Ekki til að horfa á Dall- as og Dynasty. Frá því í september og alveg fram í maí horfi ég ekkert á sjónvarpið því ég er í kvöldskóla. En ég vildi þó gjaman fá tækifæri til þess að sjá sjónvarp á vetuma. Því finnst mér vanta samfelldari dagskrá og þá jafnvel frarn á nótt. Það sem freistar mín aðallega í kassanum em betri framhaldsþættir eins og Pétur mikli sem sýndur var í gærkvöldi. Síðan em það náttúm- lífsþættir og svo íþróttir og þá sérstaklega fótbolti og billiard sem mætti sýna meira frá. Fréttir horfi ég á og eftir að hafa borið fréttatímana frá báðum stöðv- unum saman finnst mér ríkissjón- varpið hafa vinninginn og standa sig Sigurður Benedikt Bjömsson. betur í öllum fréttaflutningi. Þar er mun vandaðri frágangur og fréttim- ar allar viðameiri og ýtarlegri. Dagskrá Ríkissjónvarpsins hefur ekkert verið neitt sérstök undanfar- ið. Það eina sem hefur verið varið í lengi em framhaldsþættimir um Pétur mikla. Þó var sænska mánu- dagsmyndin núna sl. mánudag alveg virkilega góð. Ég hlusta þó nokkuð á útvarp og þá yfirleitt á Rás 2 sem hefúr batnað ótrúlega með vaxandi samkeppni. Þættimir I hringiðunni, sem em al- veg sérstaklega góðir þættir, hafa líka bætt rásina um allan helming. Sumt á Stjömunni og Bylgjunni er gott en margt þar er orðið hálf þreytt. T.d. finnst mér þátturinn Bylgjan á hádegi vera orðin þreyttur og afdankaður þáttur. Ég fer þó nokkuð í leikhús á vet- uma. Nú síðast sá ég Uppreisn á ísafirði í Þjóðleikhúsinu sem mér fannst mjög gott. Ég var virkilega spældur yfir að Hitt leikhúsið setti ekki upp neitt sl. vetur. Það var svo virkileg sprenging þegar það kom inn á markaðinn. Það jók samkeppn- ina og leikhúsin hafa ekki nema gott eitt af því. Hallmar Freyr Bjarnason lést 21. júlí sl. Hann var fæddur á Húsavík 21. nóvember 1931. Foreldrar hans voru hjónin Kristjana Helgadóttir og Bjarni Ásmundsson. Hallmar hóf nám í múraraiðn 1960, sveinsprófi lauk hann 1964 og meistarabréf fékk hann 1967. Upp frá þeim tíma var hann byggingameistari á Húsavík. Hann stofnaði ásamt fleiri múrurum byggingafyrirtækið Varða hf. sem var verktakafyrirtæki og starfaði til fjölda ára á Húsavík. Eftirlifandi eig- inkona Hallmars er Guðrún H. Ingólfsdóttir. Þau hjónin eignuðust fimm börn. Útför Hallmars verður gerð frá Húsavíkurkirkju í dag kl. 14. Ásgeir Bjarnason, Ægisgötu 27, Reykjavík, lést þann 19. júlí. Útförin hefur farið fram. Guðrún Þorsteinsdóttir frá Fögru- völlum, Hellissandi, Silfurgötu 45, Stykkishólmi, andaðist 24. júlí. Útför hennar fer fram frá Stykkishólms- kirkju föstudaginn 31. júlí kl. 14. Svava Tryggvadóttir, Furugerði 9, áður Lokastíg 6, verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnaðarins föstu- daginn 31. júlí kl. 10.30. Pétur Georgsson netagerðarmað- ur, Grundartúni 1, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 31. júlí kl. 11.30. Árni Gíslason, Ásbúðatröð 9, Hafn- arfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, föstudag- inn 31. júlí kl. 15. Karl Pálsson, útgerðarmaður frá Flatey á Skjálfanda, verður jarð- sunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 31. júlí kl. 10.30. Helga Steinvör Helgadóttir, Brekkustíg 14, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag 30. júlí kl. 15. Helga Daníelsdóttir frá Sellandi, verði; . jarðsungin frá Akureyrar- kirkju í dag 30. júlí kl. 13.30. Þorbjörg Höskuldsdóttir frá Set- bergi, verður jarðsungin frá Vopna- fjarðarkirkju, föstudaginn 31. júlí kl. 14. Ferðalög ÚTIVIST Útivistarferðir Ferðir um verslunarmannahelgi, 31. jítli - 3. ágúst. 1. kl. 20 Núpsstaðarskógar. Tjöld. Einn skoðunarverðasti staður á Suðurlandi. 2. Kl. 20 Lakagígar - Leiðólfsfell. Gengið um Lakagíga. Ekið línuveginn. Heim um Eldgjá og Laugar. Hús og tjöld. 3. Kl. 20 Kjölur - Drangey - Skagafiörð- ur. Farið um Skagafiörð og í ógleyman- lega Drangeyjarsiglingu. Svefnpokagist- ing. 4. Kl. 20 Þórsmörk. Ódýr Þórsmerkur- ferð. Skálagisting í Básum. Laugard. kl. 8. Skógar Fimmvörðuháls Þórsmörk. Sumarleyfisferðir. 1. Eldgjá - Strútslaug - Þórsmörk, 27. júlí - 2. ágúst. Bakpokafeð. 2. Hornstrandir - Hornvík, 31. júlí - 4. ágúst. Rúta eða flug til Isafjarðar, með skipi til Hornvíkur og tjaldbækistöð þar. 3. Lónsöræfi. 5.-12. ágúst. Tjaldbækistöð við Illakamb. 4. Hálendishringur. 9.-16. ágúst, 8 dagar, styrr ferð. Gæsavatnaleið - Askja - Kverk- fjöll - Mývatn. 5. Tröllaskagi 9.-15. ágúst. Ný ferð. Farið Tungnahrygg úr Barkardal að Hólum og síðan ekið til Siglufjarðar, gengið þaðan um Héðinsfjörð til Ólafsfjarðar. Gist í húsum og tjöldum. Uppl. og farm. á skrif- stofunni, Grófinni 1, símar 14606 og 23732. Sjáumst. Ferðir FÍ um verslunar- mannahelgina. 31. júlí-3. ágúst. 1. Arnarfell hið mikla - Nýidal- ur/Jökuldalur. Gist tvær nætur í tjöldum í Þúfuveri og síðustu nóttina í sæluhúsi í Nýjadal. Á laugardag er farið á bát yfir Þjórsá og gengið á Arnarfell hið mikla. 2. Siglufjörður - Siglufjarðar.skarð. Ekið norður um Kjöl og suður Sprengisand. Gist í svefnpokaplássi. 3. Snæfellsnes - Breiðafjarðareyjar. Gist í svefnpokaplássi í Stykkishólmi. 4. Núpsstaðarskógar. Brottför kl. 8, gist í tjöldum. Gengið um svæðið, s.s. Súlu- tinda, Núpsstaðarskóga og víðar. 5. Þórsmörk - Fimmvörðuháls. Gist í Skagfjörðsskála/Langadal. 6. Landmannalaugar - Sveinstindur/ Eldgjá. Gist í sæluhúsi Fl í Laugum. Gengið á Sveinstind annan daginn, en ekið í Eldgjá hinn og gengið að Ófærufossi. 7. Álftavatn - Strútslaug. Gist í sæluhúsi Fl v/Álftavatn. Annan daginn er gengið að Strútslaug, en hinn gengið um í ná- grenni Álftavatns. Til athugunar fyrir ferðamenn. Þeir sem ætla að tjalda á umsjónarsvæði FÍ í Langadal/Þórsmörk um verslunarmanna- helgina eru beðnir að panta tjaldstæði á skrifstofu FÍ, en nauðsynlegt er að tak- marka fjölda gesta á svæðinu. Dagsferðir Ferðafélagsins. Sunnudagur 2. ágúst. Kl. 8 Þórsmörk. Verð kr. 1000. Kl. 13 Keilir. Verð kr. 600. Mánudagur 3. ágúst kl. 13 Gengið með Hengladalsá. Verð kr. 600. Miðvikudagur 5. ágúst kl. 8 Þórsmörk, dagsferð verð kr. 1000. KI. 20 Sveppaferð í Heiðmörk. Verð kr. 300. Fimmtudagur 6. ágúst kl. 8 Kerlingar- ferð - dagsferð. Verð kr. 1200. Brottför í ferðirnar er frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt f. böm m. fullorðnum. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins. 29. júlí - 3. ágúst. (6 dagar); Eldgjá - Strútslaug - Álftavatn. Gönguferð með viðlegubúnað. 29. júlí - 2. ágúst (5 dagar); Landmanna- laugar - Þórsmörk. Gengið frá Land- mannalaugum milli gönguhúsa FÍ til Þórsmerkur. 31. júli - 6. ágúst. ( 7 dagar); Arnarfell hið mikla - Þjórsárver - Kerlingafjöll. 31. júli - 3. ágúst. (4 dagar) Núpsstaðar- skógar. 7.-12. ágúst (6 dagar) Landmannalaugar - Þórsmörk. 7.-16. ágúst (6 dagar); Hálendið norðan Vatnajökuls. Pantið tímanlega í sumarleyfisferðirnar. Upplýsingar á skrifstofu Fl, Öldugötu 3. Tilkyimingar Loftbrú - Vestmannaeyjar - Hella Sem undanfarin ár mun Leiguflug Sverris Þóroddssonar halda uppi loftbrú um versl- unarmannahelgina. Reglulegum ferðum verður haldið uppi og það verður farið að minnsta kosti á klukkutíma fresti, eins lengi og þátttaka leyfir, frá Rvík til Vest- mannaeyja og frá Hellu til Vestmanna- eyja. Fargjöld eru á mjög viðráðanlegu verði kr. 1300 frá Hellu til Vestmannaeyja og kr. 2000 frá Rvík til Vestmannaeyja. Farpantanir á Hellu í síma 99 5165 og 28011 hjá Leiguflugi Sverris. Tryggið ykk- ur tímanlega ferð með LÞS. Háls-, nef- og eyrna- læknir á ferð um Austfirði og Suðurland Einar Sindrason háls-, nef- og eyrnalæknir ásamt öðrum sérfræðingum Heyrnar- og talmeinastöðvar Islands verða á ferð um Austfirði og Suðurland dagana 8. ág. til 14. ág. nk. Rannsökuð verður heyrn og tal og útveguð heyrnartæki. Farið verður á eftirtalda staði: Fáskrúðsfjörður 8. ágúst, Breiðdalsvík 9. ágúst, Djúpivogur 10. ágúst, Höfn í Hornafirði 11. og 12. ágúst, Kirkjubæjarklaustur 13. ágúst og Vík 14. ágúst. Tekið á móti tímapöntunum á við- komandi heilsugæslustöð og er fólki bent á að panta tíma sem fyrst. Sumarslátrun hafin á Hornafirði Nýlega hófst sumarslátrun í sláturhúsi Kaupfélags Austur-Skaftfellinga á Höfn í Homafirði. Slátrað verður 100 lömbum á viku í 6-7 vikur, eða fram að hefðbund- inni sláturtíð. Stefnt er að því að halda áfram slátrun að henni lokinni, allt fram að jólum, þannig að ófryst kjöt verður á boðstólum fyrir neytendur það sem eftir er ársins. Slátrað er á mánudögum og kjöt- ið kemur á markað í Reykjavík á miðviku- dagsmorgnum. Það er selt í þeim verslunum sem viðskipti eiga við Búvöru- deild Sambandsins. Þetta er þriðja árið í röð sem sumarslátrun fer fram á vegum Búvörudeildar, fyrri tvö árin var slátrað í Borgamesi. Verðið á þessu ferska kjöti er núna 30% hærra í heildsölu en á frystu lambakjöti og mun fara stiglækkandi fram að sláturtíð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.