Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Side 10
10
FIMMTUDAGUR 30. JULl 1987.
\
Utlönd
Borgarbúar bölva beram brjóstum
llonu Staller, itölsku fatafellunni og þingmanninum, leyfist það sem erlendum ferðamönnum er bannað í borgum
Ítalíu. Að sýna á sér brjóstin. Það er meira að segja litið hornauga á þá sem ganga í stuttbuxum og flegnum,
ermalausum bolum Simamynd Reuter
Það er ekki nema mánuður síðan
Italir kusu fatafellu á þing. Erlendir
ferðamenn á Ítalíu eiga hins vegar
á hættu að vera dæmdir til að greiða
sekt efþeir sýna of mikið af lærunum
á sér eða brjóstunum.
Þessi mótsagnakennda afstaða
gegn beru holdi skýtur svolítið
skökku við sérstaklega þegar sumar-
hitamir hafa verið svo miklir en hún
þykir bara vera eitt dæmi af mörgum
um þversagnimar sem menn reka
sig á hvað eftir annað á Italíu.
Umferðin í Róm stóð kyrr þegar
fatafellan Ilona Staller, sem var
írambjóðandi róttæklinga, átti það
til að birtast með ber brjóstin á götu
úti í kosningabaráttunni í júní.
Cicciolina, eða sú litla og holdmikla
eins og Ilona er stundum kölluð,
hlaut atkvæði mörg þúsund kjós-
enda. Svo virðist sem slagorð
hennar, „Niður með kjamorkuna og
upp með kynorkuna", hafi fallið í
góðan jarðveg.
Háttvirta Cicciolina
Það var með naumindum að
flokksbræður hennar gátu talið
hana á að mæta ekki í gegnsæjum
kjól við setningu þingsins. Og Giulio
Andreotti utanríkisráðherra lét þau
orð falla að þessi háttvirti nýi þing-
maður myndi líklega ekki leggja
mikið af mörkum til þess að leysa
kreppuna sem ríkir í vefnaðariðnað-
inum.
Það kveður aftur á móti við harð-
ari tón þegar ferðamenn fækka
öllum nema nauðsynlegustu spjör-
unum vegna hitanna í borgunum.
Yfirvöld í Feneyjum hafa ákveðið
að sekta þá sem vanvirða þessa við-
felldnu borg með því að fækka fötum.
Verða menn krafriir um íjórtfin
hundmð krónur á staðnum.
I Róm geta ferðamenn, sem ganga
um í stuttbuxum eða bikini, átt von
á því að lögreglan snúi sér að þeim
og skipi þeim að klæða sig betur.
Þeir sem baða sig í gosbrunnum eiga
á hættu að verða sektaðir. Hryllir
suma Rómarbúa við því að sjá ferða-
mennina busla í gosbrunnunum, þó
svo að hitinn sé þrjátíu og sex stig,
og hafa þeir á orði að Róm sé engin
baðströnd.
Nektarmyndir selja vel
Æ fleiri ítölsk frétta- og viðskipta-
tímarit skreyta forsíður sínar með
myndum af nöktu eða hálfhöktu
kvenfólki. Staðreyndin er sú að þau
seljast betur ef þau eru skreytt á
þennan hátt. Auglýsendur hafa
einnig orðið varir við sömu þróun.
Þykir varla stætt á öðru en að aug-
lýsa bíla og meira að segja ritvélar
og þvottavélar öðruvísi en að ber
skvísa sé látin hlykkjast um grípina.
Lítið ber samt á mótmælum gegn
þessu og er talið að það sé vegna
mikilla þjóðfélagslegra breytinga
sem orðið hafa á Italíu síðustu tíu
árin. Meðal annars er lögleiðing
skilnaðar og fóstureyðinga gengin í
gildi þó svo að kaþólska kirkjan
hafhi henni og fordæmi.
Eins og Rómverji í Róm
Vegna þess hve nektarmyndir eru
algengar og sala á klámritum mikil
eiga ferðamenn erfitt með að skilja
hvers vegna þeim er gefið að sök að
misbjóða almennu velsæmi með því
að klæðast stuttbuxum og ermalaus-
um og flegnum bolum í borgunum.
Þar virðist gilda að sértu í Róm þá
hagar þú þér eins og Rómveiji. Sem
sé, ekki er um það að ræða að svipta
sig klæðum þó svo að hitinn sé að
drepa mann.
Öllum Rómveijum, Feneyjabúum
og Flórensbúum með sjálfsvirðingu
dytti ekki í hug annað en að klæð-
ast á venjulegan hátt þegar þeir fara
út að versla eða sinna öðrum erind-
um innan borgarmarkanna. Líta
þeir með fyrirlitningu á útlending-
ana sem hegða sér öðruvísi.
Þeir ítalir, sem geta komið því við,
yfirgefa borgimar á heitasta tíma
ársins. ítalir taka sér einnig hvíld
um miðjan daginn á meðan útlend-
ingamir ráfa um í steikjandi hitan-
um.
Stjómarfár víðast ótvyggt
Vesturlandafólk býr við stjómar-
farslegt öryggi sem íbúar fárra
annarra ríkja eiga að fagna. Breska
tímaritið Economist birti nýlega nið-
urstöðu nokkurra sérfræðinga í
stjómmálum og alþjóðamálum, þar
sem reynt var að áætla hættu þá sem
er á skyndilegum breytingum valda-
hlutfalla í þeim löndum sem við-
kvæmust em talin fyrir slíku. Alls
em það fimmtíu lönd sem talin em
búa við einhverja ótiyggð í þessum
efhum.
Þríþætt
Niðurstöður umfjöllunar þessarar
em byggðar á þríþættu mati. I fyrsta
lagi á stöðu efnahagsmála og spám
um þróun þeirra. I öðm lagi á stöðu
í stjómmálum, þar sem tekið er með
hversu lýðræðisleg og hversu fijáls-
lynd stjómvöld em, svo og hversu
nálægt ríkið er styijaldarástandi. I
þriðja lagi á þjóðfélagsháttum, þar
með talið hvort um þéttbýlis- eða
dreifbýlisland er að ræða, sem og
spillingu og spennu milli kynþátta.
Ekki á óvart
Niðurstöður sérfræðinganna koma
líklega fáum á óvart, að minnsta
kosti ekki þeim sem fylgjast með
fréttum. Mest hætta er talin á stjóm-
arfarslegum sviptingum við Persaf-
lóa og í löndum suð-vestanverðrar
Afríku. Fjögur ríki em talin í mestri
hættu, það em íran og írak, Eþíópía
og Súdan.
Athyglisvert er að þessi fjögur ríki
umlykja nánast Arabíuskaga og þar
með Saudi-Arabíu. I Saudi-Arabíu
er hins vegar hættan aðeiils talin í
meðallagi.
Af þeim ríkjum, sem talið er að
mjög mikil hætta sé á sviptingum í,
em fjögur í Afríku. Það em Ug-
anda, Zambía, Nígería og Zaire. Eitt
af ríkjum Suður-Ameríku er talið
búa við mikla hættu, það er Chile,
og eitt Mið-Ameríkuríki, E1 Salvad-
or, er einnig talið mjög viðkvæmt.
Af Asíuríkjum er Víetnam eitt ta-
lið vemlega hætt komið, þrátt fyrir
tilraunir stjómvalda þar til að
treysta stöðu sína og bæta afkomu
almennings.
Töluverð hætta
Þau ríki, sem talin em búa við
töluverða hættu á stjómarfarslegum
sviptingum, dreifast mun meir. Með-
al þeirra em Mexíkó, Guatemala,
Bólivía og Perú í Ameríku, Suður-
Afríka, Zimbabwe, Tansanía,
Marókkó og Túnis í Afríku og
Filippseyjar, Bangladesh, Pakistan
og Burma í Asíu. Alls em seytján
ríki talin í þessum flokki.
Það sem ef til vill kemur ofurlítið
á óvart í niðurstöðum sérfræðing-
anna um þennan ríkjahóp er að þeir
telja töluverða hættu á stjómarfars-
legum sviptingum í Egyptalandi.
Vegur þai' þungt að friður þykir við-
kvæmur umhverfis Egypta, spilling
stjómvalda og hversu háð ríkið er
utanríkisviðskiptum.
Pólland og Tyrkir
Það er ekki fyrr en komið er niður
í þann hóp ríkja sem talin em búa
við áhættu í meðallagi að fyrsta
Evrópuríkið kemst á lista. Það er
Pólland, en talin er nokkur hætta á
að þar dragi til stjómarfarsbreyt-
inga, einkum vegna stöðnunar
stjómvalda, mikilla valda hers,
vegna þess hversu margir landsmenn
líta á ríkisstjómina sem ólögmæta
og vegna mikillar verðbólgu.
Júgóslavía býr við svipaða stöðu,
nema að hætta á innamríkisátökum
er þar talin meiri en í Póllandi.
Tyrkir em einnig í þessum ríkja-
hópi og vegur þar þyngst styrjaldar-
hættan, einkum hættan á innan-
landsátökum.
Hætta á sviptingum er talin vera
í meðallagi í þrettán ríkjum, Sri
Lanka, Thailandi, Malaysiu og Indl-
andi í Asíu, Columbíu, Ecuador,
Argentínu og Uruguay í Ameríku
og Alsír í Afríku, auk þeirra sem
fyrr em talin.
Lítil hætta
Loks kemur svo fámennur hópur
ríkja þar sem talin er lítil hætta á
skyndilegum breytingum, en hætta
þó.
Tvö Evrópuríki teljast þar í flokki,
Portúgal og Grikkland. Ekki er það
neitt eitt atriði sem vegur þungt í
mati á þessum tveim löndum heldur
fremur slæleg staða í flestum málum.
Það em níu ríki sem teljast búa
við ofurlitla hættu. Auk framan-
greindra em það Suður-Kórea,
Singapore, Taiwan, Hong Kong og
Kína í Asíu en Brasilía og Venezu-
ela í Ameríku.
Niðurstöður þessar em byggðar á
stigagjöf, þar sem ríki getur fengið
allt að hundrað stigum. Mikill mun-
ur er á ríkjum innbyrðis, því Irak
fékk áttatíu stig og er talið í mestri
hættu, en Brasilía fékk ekki nema
liðlega tuttugu stig þó að talin sé
einhver hætta á sviptingum þar.
Ástralía og norðrið
Af ríkjum heimsins má því næstum
alhæfa að auk landa á norðurhveli
búi Ástralía ein við tryggt stjómar-
far. Flest Evrópuríki búa við öryggi,
sem og ríki Norður-Ameríku og Sov-
étríkin. Teljast verður þó athygli-
svert að engin hætta er talin á
stjómarfarslegum breytingum í Afg-
anistan sog Gaddafi, leiðtogi Líbýu,
virðist vera talinn fyllilega traustur
í sessi, þrátt fyrir reglubundinn orð-
róm um uppreisnartilraunir gegn
honum. Stjómvöld Nicaragua em
einnig talin traust, þrátt fyrir harða
hríð kontrahreyfingarinnar að þeim,
með fulltingi Bandaríkjamanna.
Umsjón: Halldór Valdimarsson og Ingibjörg Sveinsdóttir