Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Page 17
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1987. 17 Lesendur AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VEF®TRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓEIS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1984-1. fl.A 01.08.87-31.01.88 kr. 243,86 ‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðsferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, júlí 1987 Margréti ofbýöur ill meðferð á hestum. SEÐLAB ANKIÍSLANDS „Mesti viðbjóður sem ég hef horft upp á“ Margrét Hjálmtýsdóttir hringdi: Þannig hljóðar fyrirsögn á frétta- pistli í DV 27. júlí síðastliðinn um misþyrmingar á dýrum sem áttu sér stað á klettasyllu neðan við Gullfoss á vegum kvikmyndagerðarmanna. Venjulegt fólk trúir varla að nokkur skuli taka þátt í svo svívirðilegu at- hæfi gagnvart saklausum dýrum sem fréttin greinir frá. Það eru til dýravemdunarlög í landinu, þess vegna em fólskuverk á dýrum glæpsamleg og refsiverð. Það ber að tilkynna illa meðferð á dýrum til lögreglu eða sýlumanns hvar sem er á landinu. Dýravemdunarfélög Islands láta einnig slík mál til sín taka. Öllu góðu fólki, sem kynnist dýrum, þykir vænt um þau og ber virðingu fyrir þeim. Miðarfrá Fararheill Birgir á Akureyri hringdi: Að undanförnu hafa mikið verið auglýstir í sjónvarpi miðar frá Fararheill. Miðana á maður að geta fengið á bensínstöðvum og er dregið úr þeim hvem laugardag á rás 2. Hér á Akureyri eru 7-8 bensín- stöðvar og hafa miðamir ekki sést á neinni þeirra. Mér þætti vænt um að fá að vita hvað veldur því að Akureyri er höfð útundan í þessu máli. Ekkert álegg? Nokkrar húsmæður: Við eruin haldnar óskaplegri minnimáttarkennd gagnvart bú- reikningum Bryndísar Schram og langar til að fá að vita nokkur atriði um heimilishald þar á bæ: Mætir fólk yfirleitt í matinn eða er mikið um það að fólk borði úti? Er enginn sem þreytist á ung- hænum eftir að hafa borðað þær nokkrar helgar í röð? Með hverju skreytir Bryndís fiskinn til að hann verði skemmti- legur og aðlaðandi fimm sinnum í viku? Notar hún ekkert álegg, ekki einu sinni smjör? Gott og mikið efni fyrir verslunarmannahelgina 16 síðna blaðauki Víkuleða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.