Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1987, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 30. JÚLl 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Sir Laurence Olivjer leikarinn góðkúnni, er nú orðinn 80 ára. Það eru rúm 65 ár liðin síðan hann lék í frumraun sinni og siðan hefur hann verið fastur gestur á skjánum. Hann hélt upp á afmæli sitt fyrir nokkru og fjöldi manns kom saman til að hylla gömlu kempuna. Sir Laurence tilkynnti þar að nú, eftir að hann væri orðin 80 ára, ætlaði hann að láta hvíta tjaldið eiga sig og hvila sig örlítið. Hann mun þó ekki draga sig alveg í hlé heldur er draumurinn að taka þátt í sjónvarpsþáttum og lesa Ijóð i útvarp. Bob Geldof og kona hans, Paula Yates, eiga í hjónabandsörðugleikum um þessar mundir. Það gengur svo langt að jafnvel hefur verið talað um skilnað. Hvort sem af því verður eða ekki þá á Bob heið- urinn og hugmyndina að starfi Paulu. „Af hverju verður þú ekki blaðamaður," spurði Bob hana einhverju sinni. „Ef þú skrifar eins og þú talar þá verður þú fljótlega rík." Paula, sem var þá atvinnulaus, var búin að fá sér vinnu við tónlistarblað eftir viku. Siðan hefur leiðin legið upp á við og nýlega er hún farin að taka viðtöl við frægt fólk í sjón- varpi. Karólína prinsessa af Mónakó er kasólétt og á að eiga eftir rúma tvo mánuði. Sú saga gengur nú fjöllunum hærra í furstadæminu að Karólína gangi ekki einungis með eitt barn undir belti heldur tvö. Prinsessan hefur þyngst um 14 kíló á meðgöngutímanum og er það mun meira en þegar hún gekk með hin börnin sín tvö. Karólína hefur ekki borið til baka þessar sögusagnir um tvíbura- fæðingu heldur brosir bara undirfurðulega þegar hún er spurð. Vígsla Bjamareyjarbóls Eitt úteyjafélagið í Vestmannaeyj- um, það sem nytjar Bjarnarey, vígði nýtt hús í eynni sl. laugardag og hlaut það nafnið Bjarnareyjarból. I tilefni dagsins bauð félagið öllum þeim Eyjamönnum er lyst höfðu í ferð út í Bjarnarey á opnunarhátíð- ina. Eyjamenn létu ekki bjóða sér tvisvar og fór hátt á þriðja hundrað manns út í eyna. Séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson og séra Ólafur Jó- hannesson vígðu húsið og Árni Johnsen flutti opnunarræðu. Veglegar veitingar voru á boðstól- um í nýja húsinu sem er allt hið myndarlegasta. Þar verður aðstaða fyrir 10-12 manns, auk allra þæg- inda. Sama dag var einnig bókasafn Bjarnareyjar opnað og hafin var skógrækt í girðingu í kringum Bjarnareyjarbólið. Dagurinn endaði með varðeldi, flugeldasýningu og söng. Og að lokum hélt hljómsveitin 7-UND tónleika á stórum palli við húsið. Hið nýja hús Bjarnareyinga er veglegt á að líta og kemur til með að veita veiðimönnum hið besta skjól og þægindi. Auróra Friðriksdóttir, umboðsmaður DV í Vestmanna- eyjum, stendur við fyrsta tré Bjarnareyinga en ætlunin er að hefja skógrækt í eynni. DV-myndir Ómar Garðarsson Bjarnareyingar hjálpuðu fólki í og úr bátunum og upp á eyna og gættu þess að enginn færi sér að voða i klettunum. Séð yfir hluta hópsins en það var hátt á þriðja hundrað manns sem kom í eyna, þáði veitingar og tók þátt i skemmtidagskránni. Mary King hefur úr nógu að velja á morgnana þegar hún setur upp hringana sína. Hún er stoltur eig- andi að stærsta hringasafni í Ameríku. í safninu eru 1.650 hring- ar af öllum stærðum, gerðum og litum. Það hefur tekið Mary 61 ár að safna öllum þessum hringum í safnið sitt og verðgildi þeirra er allt frá 40 'kr. upp í 40 þús. „Ég byrjaði að safna hringum þegar ég var 12 ára,“ sagði Mary. „Ég not- aði peningana sem ég fékk fyrir barnapössun til að kaupa fyrstu hringana mína. Síðan hef ég verið með algjöra bakteríu og kaupi hringa sem minjagripi hvar sem ég fer um. Vinir og kunningjar gauka líka að mér hringum við öll tæki- færi.“ Mary segist halda mest upp á stóra, áberandi hringa en hún notar sjálf aldrei nema tvo, mest þrjá hringa í einu. Mary King situr hér við hluta af hinu risastóra hringasafni sínu. Afgangurinn af safninu komst hreinlega ekki fyrir á myndinni!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.