Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987.
Fréttir
Viðtal DV við forseta Islands í Færeyjum:
„Ferðin hefur verið alveg einstök1
Jón G. Hauksson, DV, Færeyjum;
„Ferðin hefur verið alveg ein-
stök.“ Færeyingar eru svo greini-
lega að votta íslendingum einlæga
og djúpa vináttu með því að bjóða
fulltrúa íslendinga til sín í opin-
bera heimsókn. Og svo vel hafa
þeir staðið að heimsókninni að hún
er okkur öllum sem hér erum ógley-
manleg," sagði forseti Islands,
Vigdís Finnbogadóttir, í viðtali við
DV í gær um heimsókn sína til
Færeyja.
Vigdís sagði að landslagið og
náttúra eyjanna hefðu mikinn
áhrifamátt og að það væri engin
furða þótt Færeyingar ættu góða
myndlístarmenn: „Náttúran hér
heillar til myndsköpunar.“
Góðar samgöngur vakið at-
hygli forsetans
Að sögn Vigdísar hafa góðar sam-
göngur milli eyjanna vakið sér-
staka athygli hennar. „Það er mjög
virðingarvert hve mikla áherslu
þeir leggja á góðar samgöngur til
að halda þjóðinni saman. Þeir sjá
til þess að fólkið geti hist sem mest
og best með því að hafa góða vegi,
jarðgöng og nota ferjur í ríkiun
mæli. Auk þess sem færeyska land-
stjórnin hefur þyrlur í áætlunar-
ferðum um eyjarnar. Þeir tengja
byggðirnar saman af mikilli stað-
festu.“
„Mér hefur verið sagt að áður en
farið var út í að hrinda í fram-
kvæmd þessum miklu samgöngu-
bótum til að halda þjóðinni saman
hafi komið fram úrtölumenn sem
ekki trúðu á þetta byggðasjónar-
mið. En nú er árangurinn að koma
í ljós, byggðirnar eru að rísa upp
af margföldum krafti. Átthagakær-
leikurinn er afar sterkur í þessum
eyjum.“
Ekki hrædd að fljúga í þyrlu
- Nú hefur þú ferðast mikið um
í þyrlu, hefur engin hræðsla gert
vart við sig hjá þér?
„Nei, ég hef ekki verið hrædd.
Ég er svo lánsöm að vera hvorki
lofthrædd né flughrædd."
"Mjög tignarlega sjón í eyjunum
kvað Vigdís hafa verið þegar hún
gekk út á þverhnípta bjargbrún í
Beinisvörð í Suðurey á laugardag-
inn. „Að ganga út á grasivaxna
bjargbrúnina í þokunni og líta þar
niður þverhnípið er einhver áhrifa-
mesta sjón sem um getur. Og svo
ánægjulega vildi til að þegar ég
flaug til baka hafði þokunni létt
og þetta tignarlega bjarg birtist í
öllu sínu hrikalega veldi.“
Færeysku dansarnir
„Og svo eru það að sjálfsögðu
færeysku dansarnir og ljóðabálk-
arnir löngu sem eru þeirra „Islend-
ingasögur". Færeyingar hafa einir
þjóða varðveitt kvæðin eins og við
miðaldasögurnar á eigin máli. Þeir
skilja manna best að hvert kvæði,
hvert ljóð hefur sögu að segja.
Kvæðin eru mikill þjóðarauður
þessarar vinaþjóðar okkar. Þau
eru eitt merkasta framlag þeirra til
heimsmenningarinnar,“ sagði for-
seti íslands, Vigdís Finnbogadóttir.
Atli Dam, lögmaður Færeyinga, sýnir hér Vigdísi Finnbogadóttur, forseta
íslands, 450 metra þverhnípt bjarg á Suðurey á laugardaginn. „Að ganga út
á grasivaxna bjargbrúnina og líta þar niður þverhnipiö er einhver áhrifa-
mesta sjón sem um getur,“ segir Vigdís um þessa ferð sína á bjargbrúina.
DV-simamynd GVA
Hér bragðar Vigdis á skerpukjöti, sem er sigið kindakjot, i hádegisverði
hjá bóndahjónunum á Stóra Dímoni. DV-simamynd GVA
Skerpukjötið gott
Jón G. Haukæan, DV, Færeyjum:
„Maturinn, sem ég fékk þegar ég
sótti Stóra Dímon heim, var stórgóð-
ur. Þetta er matur sem forfeður okkar
lifðu á,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir,
forseti Islands, á blaðamannafundi í
Þórshöfn í gær þegar hún var spurð
um matinn sem hún fékk.
Á Stóra Dímon var henni boðið upp
á skerpukjöt, sem er sigið kindakjöt,
rúllupylsu, lundabringur og kindakjöt.
Vigdís var spurð að því hvað hún
ætlaði að gera eftir að hún hætti sem
forseti. „Ég vona að það verði eitthvað
fyrir mig að gera heima á íslandi,"
svaraði Vigdís.
Hún var þá strax spurð að því hvort
hún ætlaði að gefa kost á sér aftur sem
forseti á næsta ári. „Það er ennþá
langur tími til stefnu til júní á næsta
ári.“ - En ertu búin að ákveða þig?
var þá spurt, en ekkert svar kom við
því.
Vigdís var spurð að því hvort þeir
sem stjómuðu í Færeyjum gætu ekki
nýtt sér heimsókn hennar, en kosning-
ar verða um tvo færeyska fulltrúa á
danska þingið í Færeyjum á morgun,
8. september. „Heimsókin var ákveðin
löngu áður Poul Schlúter, forsætisráð-
herra Dana, akvað að hafa kosning-
ar.“ Vigdís minnti síðan á að embætti
forsetans stæði fyrir utan kosningaerj-
ur.
Vigdís sagði á fundinum frá
skemmtilegu atviki, þegar hún hitti
83ja ára gamla konu í einni eyjunni.
Hún hefði sagt konunni að hún bæri
aldurinn vel. ,,„Já, það er vegna þess
að ég dansaði svo mikið þegar ég var
ung kona“ svaraði konan mér,“ sagði
Vigdís.
Vigdís sagði að dansar Færeyinga
væm stórkostleg menning sem hefði
vakið mikla athygli hennar.
Vigdísi Finnbogadóttur var hvarvetna fagnað innilega í Allir, sem áHu myndavélar, notuðu þær óspart til að
Færeyjum. DV-simamynd GVA mynda forseta íslands. DV-símamynd GVA
Forset-
inn
kemur
heim
í dag
Jón G. HBWksaan, DV, Færeryjum:
Forseti íslands, Vigdís Firin-
bogadóttir, kemur heim úr opin-
berri heimsókn sinni til Færeyja í
dag klukkan þrjú.
Vigdía fór af hótelinu, sem hún
gisti á í Þórehöfh, í morgun og
hélt til eyjarinnar Voga en þar er
flugvöllur Færeyinga. Foreetinn
skoðaði í morgun elliheimili og í
hádeginu snseddi hún hádegisverð
á Hótel Vogum.
Eftir hádegisverðinn flýgur for-
setinn síðan með vél Flugleiða frá
Vogum í Færeyjum til Reykjavík-
ur.