Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987.
Sljómxnál
Ungir sjálfstæðismenn álykta:
Flokkunnn sambands-
laus við kjósendur
„Greinilegt er að Sjálfetæðisflokk-
urinn hefur ekki það samband við
kjósendur sem nauðsynlegt er,“ segir
í stjónmálaályktun sem samþykkt
var á þingi Sambands ungra sjálf-
stæðismanna í Borgamesi um
helgina. Á þinginu kom fram gagn-
rýni á starf flokksins en í lokaálykt-
unum þess var þó að mestu horfið
frá henni og almenn orð um stöðuna
látin nægja.
Útvegsbankamálsins er þar í engu
getið og stefria ríkistjómarinnar
ekki ganrýnd. Þó er í skilaboðum
sem ungir sjálfetæðismenn vilja
senda forystumönnum flokksins öll-
um nýjum sköttum mótmælt. „Við
myndun núverandi ríkisstjómar var
gengið of langt í skattahækkunum.
Almenningur þolir ekki meiri álög-
ur,“ segir þar.
Um efnahagsstefnu stjómarinnar
að öðm leyti er látið nægja að benda
á að „ef stjóm efhahagsmála fer úr
böndunum em forsendur fyrir tilvist
þessarar ríkisstjómar brostnar.“
Mikil spenna ríkti á þinginu þegar
nær dró kosningum til formanns
sambandsins. Svo fór að Ámi Sigfús-
son borgarfulltrúi var kjörinn
formaður. Hlaut Ámi 170 atkvæði
en Sigurbjöm Magnússon, mót-
frambjóðandi hans, hlaut 145
athvæði. Þetta er nokkm meiri mun-
ur en búist var við því fyrir þingið
töldu þeir, sem gerst þekkja til, að
kandidatamir stæðu nokkuð jafht
að vígi.
í ræðu sinni á þinginu ýjaði Ámi
að því að Sigurbjöm hefði ekki farið
með öllu heiðarlega að í kosninga-
baráttunni. Vom þar nefndir til
sögunnar listar með nöfhum þátttak-
enda á þinginu en þar átti að hafa
orðið breyting á. Af þessu urðu þó
ekki deilur.
Alls kusu í formannskjörinu 318
en 343 áttu kosningarétt og hafa
ekki áður verið fleiri. Á þinginu var
einnig kosið í stjóm sambandsins
fyrir fjögur kjördæmi, Reykjavík,
Reykjanes, Suðurland og Vestfirði.
Þinginu lauk síðdegis í gær.
-GK
„Við Sigurbjörn
erum skoðanabræður
- segir Ámi Sigfússon, nýkjörinn formaður SUS
„Ég gerði mér að sjálfeögðu vonir um að
vinna þessar kosningar en hins vegar er það
ekkert launungarmál að ég er einnig ánægð-
ur með þann mikla stuðning sem mótfram-
bjóðandi minn fékk hjá fjölda félaga okkar.
Sigurbjöm er að mínum dómi mjög hæfur
maður en það er einmitt einn mikilvægasti
þátturinn í okkar starfi að virkja slíka menn
til góðra verka,“ sagði Ámi Sigfússon, nýkjör-
inn formaður SUS, þegar blaðamaður DV
innti hann eftir því hvort hann hefði átt von
á þessum kosningaúrslitum.
Ámi var svo spurður hvort ekki væri hætta
á því að hin harða kosningabarátta ætti eftir
að auka sundurlyndi í röðum ungra sjálfetæð-
ismanna.
„Ég vona að stjómmálasamtök okkar eigi
ekki eftir að lifa í minningunni um kosningar
á borð við þessar. Nú er átökunum lokið og
þá eiga menn að snúa bökum saman. Ég veit
að það er vilji Sigurbjöms að fylgismenn
hans standi með formanni sínum, enda vék
hann að því í ræðu sinni eftir að úrslitin lágu
fyrir. Auðvitað verða alltaf einhverjir sárir
eftir kosningabaráttu sem þessa en á endan-
„Eg er vígamóður
en ekki sár“
- segir Sigurbjöm Magnússon
„Auðvitað varð ég fyrir vonbrigðum. Það er
aldrei gaman að tapa. En ég þekki Áma Sigfús-
son að góðu einu og ég treysti honum vel í
forystuhlutverki ungra sjálfetæðismanna,1 sagði
Sigurbjöm Magnússon eftir að hafa beðið lægri
hlut fjTÍr Áma Sigfússyni í formannskjöri SÚS.
Sigurbjöm er ekki á því að þessi harða kosn-
ingabarátta eigi eftir að skaða samtökin: „Ég
held þvert á móti að við, ungir sjálfetæðismenn,
höfum haft gott af þessari snörpu kosningabar-
áttu. Þetta er nú í fyrsta skipti í tíu ár sem við
kjósum okkur formann, enda hefur kosningaslag-
urinn vakið verðskuldaða athygli í fjölmiðlum.
Ég held að lifandi samtökum sé lífenauðsynlegt
að lofta út öðra hvoru með hressilegum átökum.
Ef baráttan er drengileg, er engin ástæða til að
erfa við menn glímutökin. Ég þekki mína stuðn-
ingsmenn og veit að þeir kunna að taka ósigri.
Við erum vígamóðir en ekki sárir."
Lítur þú Sigurbjöm á ykkur Áma sem oddvita
fyrir ólíka skoðanahópa í röðum ungra sjálfetæð-
ismanna?
„Nei, alls ekki. Við erum auðvitað ekki sam-
mála í einu og öllu en hér var fyrst og fremst
verið að kjósa um menn en ekki málefni. Ég
held að um þessar mundir sé mikil málefhaleg
samstaða í okkar röðum, og það er engin sérstök
ástæða til að ætla, að sú kosningabarátta sem
um era það sameiginlegar hugsjónir okkar
sem mestu máli skipta. Við skulum minnast
þess að við Sigurbjöm erum skoðanabræður
þó okkur greini á um ýmis áhersluatriði."
GK
Ámi Sigfússon, nýkjörinn formaður SUS,
hafði gilda ástæðu til að brosa eftir glæsileg-
an sigur í formannskosningunni. Hér er Ámi
ásamt Bryndísi, eiginkonu sinni, eftir að úr-
slit kosninganna lágu fyrir. DV-mynd RG
nú er afstaðin, muni skapa varanlega flokka-
drætti meðal ungra sjálfetæðismanna." _GK
Sigurbjörn Magnússon í ræðustól eftir að úr-
slit í formannskjöri lágu fyrir. Sigurbjörn tók
ósigrinum með karlmennsku og hvatti stuðn-
ingsmenn sina til að standa með nýkjörnum
formanni ungra sjálfstæðismanna.
I dag mælir Dagfaii
Afjgreiðslutími sólubúða
Afgreiðslutími verslana í höfuð-
borginni hefur lengi verið umdeild-
ur. Lengi vel ríkti það ástand að um
það bil þegar Reykvíkingar vora
lausir frá vinnu og máttu vera að
því að versla, vora búðimar lokaðar
og þurftu þá borgarbúar að aka út
fyrir bæjarmörkin til að geta keypt
í sig og á. Þetta fyrirkomulag mun
hafa ráðist af því að Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur bannaði
félagsmönnum sínum að starfa eftir
klukkan fimm á daginn og um helg-
ar. Sú umhyggja var góðra gjalda
verð enda eftirvinnuþrælahaldið
landlægt í öðrum stéttum og víti til
vamaðar fyrir verslunarfólk. Gall-
inn var bara sá að verslunarmenn
enduðu sem fáglaunastétt eftir að
stéttarfélag þeirra kom í veg fyrir
eftirvinnukaupið og verslanir lögð-
ust niður unnvörpum vegna þess að
þær gátu ekki haft opið þegar kúnn-
amir máttu vera að því að versla.
Smám saman gliðnaði þó vamar-
línan hjá Verslunarmannafélaginu
og verslanir hafa nú opið fram að
kvöldmat og langflestar á laugar-
dögum líka. Mun það hafa verið
gert í þágu viðskiptavinanna, sem
verður að teljast óvæntur greiði,
miðað við þá hörðu og fastmótuðu
stefiiu verslunarmanna að haga opn-
unartímanum í samræmi við þarfir
fólksins innan búðarborðsins en
ekki utan. En svona er déskotans
frelsið, verslunarfrelsið, sem sumir
hafa að leiðarljósi. Það er sífellt ve-
rið að taka tillit til óskyldra og
utanaðkomandi aðila sem kemur
verslunin ekki nokkum skapaðan
hlut við nema fyrir það eitt að halda
henni gangandi. En Verslunar-
mannafélagið veit sem er að það er
algert aukaatriði en hitt þýðingar-
mest að verslanir séu opnar þegar
verslunarfólkinu hentar en ekki
kúnnunum.
Eftir að opnunartími verslana hef-
ur verið lýmkaður í höfúðborginni,
eins og að framan er greint, hefði
maður haldið að spumingin væri
orðin sú hvenær ætti að loka en
ekki hvenær ætti að opna. Manni
sýnist sem sagt að Reykvíkíngar
geti verslað mestan hluta sólar-
hringsins, nema þá yfir blánóttina
og á sunnudagsmorgnum. Þetta veit
Verslunarmannafélagið sennilega
ekki vegna þess að talsmenn þess
era enn að mótmæla fijálsum opnun-
artíma og ganga á milli verslana til
að hóta sínu fólki öllu illu ef það fer
ekki heim áður en kúnnamir koma
í búðina.
Hvort sem það er af prakkaraskap
eða ókunnugleika hefur komið fram
tillaga fi-á einum borgarfúlltrúa í
borgarstjóm um að verslunartíminn
verði gefinn frjáls. Hann vill með
öðrum orðum að verslunareigendur
fái að ráða því sjálfir hvenær þeir
hafa opið og beina þannig verslun-
inni yfir á nóttina fyrir þá sem sofa
á daginn - sem þýðir að verslunar-
fólk kemst á næturvinnukaup.
Tillagan hefur verið tekin svo al-
varlega í borgarstjóm að henni er
vísað frá borgarráði til borgarstjóm-
ar sem vísar henni aftur til borgar-
ráðs og borgarfúlltrúar geta
ómögulega gert það upp við sig hvort
gefa eigi verslunartímann frjálsan
eftir að hann er orðinn frjáls eða
hvort þeir eigi ekki að gefa hann
frjálsan úr því að hann er orðinn
frjáls hvort sem er. Og Verslunar-
mannafélagið mótmælir ennþá að
stéttarbræðumir vinni meðan þeir
era að vinna og mótmæla því líka
að höfuðborgarbúar geti verslað
þegar þeir mega vera að því að
versla.
Ekki er gott að sjá hvenig þetta
alvörumál endar en meðan dafnar
verslun í Reykjavík með ágætum,
nema á nóttinni. Eins og gefúr að
skilja hlýtur borgarstjóm að taka
ákvörðun um það hvenær borgarbú-
ar mega versla, sérstaklega þegar
enginn gerir neitt með það og versl-
anir hafa opið þegar þeim sýnist.
Vonandi velkist málið áfram innan
borgarstjómar og borgarráðs svo að
Verslunarmannafélagið geti áfram
haft skoðanir á máli sem enginn
gerir neitt með. Stéttarfélög verða
að hafa einhvem tilgang. Markmið
VR hefur verið og verður í framtíð-
inni að koma í veg fyrir of mikla
vinnu félagsmanna til að tekjumar
verði í lágmarki, til að félagið geti
áfram barist fyrir bættum kjörum,
og þá sérstaklega fyrir þeim kjörum
sem fyrir löngu hafa náðst án þess
að stéttarfélagið hafi við það ráðið.
Dagfari