Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987. Neytendur Heimilisbókhaldið eflir verðskyn almennings Hækkun á heimilisbókhaldinu hjá okkur milli júní oe júlí varð mjög óveruleg, náði ekki einu prósenti. Meðaltalið á mann í iúlí var 6.513 wVr misskólw SÉRHÆFÐIR DANSKENNARAR í: IEURC KRISPIT BARNADÖNSUM, Námsgjald, 1 klst. á viku: Börn, 4-5 ára, kr. 840 á mánuði. Aðrir, kr. 1.052 á mánuði. Gömlu dönsunum, Standard dönsum, Suðuramerískum dönsum. Sérnámskeið, tjútt - bugg - rokk. Nýtt: Sérstakir tímar í suðuramerískum dönsum. Lokaðir tímar þar sem fjöldi í tíma er 26 nemendur AFSLÁTTUR: Nýjung: Allt að 40% afsláttur á ýmsum dögum og ýmsum tímum. ELDRI BORGARAR: Sérstakir síðdegisdanstímar, allt að 50% afsláttur. Nýjung: Grelðsluskllntálar fýrlr þá sem þess óska. Forráðamenn grunnskóla, héraðsskóla og aðrir sem hug hafa á að fá danskennslu í byggðarlag sitt, hafið samband, við gerum gott og sanngjarnt tilboð. KENNSLUSTAÐIR: Reykjavík, Ármúli 17 a, sími 38830. Hafnarfj., Linnetsstígur 3, sími 51122. Ýmsir aðrir staðir á landinu. FID Innritun og upplýsingar virka daga kl. 13-19. Símar 38830 og 51122. HVER ER SINNAR GÆFU SMIÐUR“ Viltu njóta lífsins og verða öryggari með sjálfan þig? Ná betri tökum á mannlegum samskiptum og losna við áhyggjur og kvíða? Verða góður ræðumaður og virkja eldmóðinn? Ef svo er, þá áttu erindi á kynningar- fund á Dale Carnegie® þjálfuninni í ræðumennsku og mannlegum samskiptum sem haldinn verður mið- vikudaginn 9. september kl. 20.30 að Sogavegi 69. Allir velkomnir. Upplýsingar í síma 8 24 11. FJARFESTING I MENNTUN SKILAR ÞÉR ARÐI ÆVILANGT. 0 STJÓRNUNARSKÓUNN Konrað Adolphsson Einkaumboð fyrlr Dale Carnegie námskeiðin’ kr., en var 6.461 kr. í júnímánuði. Hins vegar er þetta 44 % hækkun frá ára- mótum. Meðaltal fyrstu 6 mánaða ársins reyndist vera 5.481 kr. á mann og eru júlítölumar 18 % hærri en sú tala. Hafa ber í huga að söluskatturinn sem settur var á matvælin 1. ágúst er enn ekki kominn í útreikninga okkar, en kemur nú fyrir ágústsuppgjörið. Til eflingar á verðskyni í verð- bólgunni Upphaflega var stofnað til heimilis- bókhaldsins til þess að efla verðskyn almennings á tímum mikillar verð- bólgu. Stór hluti fólks átti þá í fjár- hagserfiðleikum og þótti ekki veita af því að leiðbeina fólki um að feta hinn mjóa veg spamaðar. Fólk tók þessari nýbreytni vel á sínum tíma og vom ótal margar fjölskyldur af hinum ýmsu Það þaif meira til en matvæli fyrir hvem einstakling til þess að lifa. Það er oft hægt að gera hagstæð innkaup á matvælum og vissara að láta ekki freist- ingamar hlaupa með sig í gönur við vel út búin kjötborð stórverslananna. Margir em búnir að tölvuvæða heimil- isbókhaldið sitt. stærðum hvaðanæva af landinu með í búreikningahaldinu. Þátttakendurnir sparsamir Oft hafa heyrst þær raddir að ótrú- lega sparsamt fólk tæki þátt í heimilis- bókhaldi DV og þessar tölur gætu engan veginn staðist. Við getum hins vegar ekki rengt þær tölur sem við fáum sendar, sérlega ekki þegar við höfum einnig prófað að halda búreikn- ingana. Heildarkostnaður 22 þúsund á mann I opinberum neyslutölum er matar- kostnaður um 30 % af heildarkostn- aði. Það hreint ekki fjarri lagi að heildarkostnaðurinn á hvem einstakl- ing á heimilinu hafi verið um 22 þús. kr. fyrir júlímánuð. Það er svo ótrúlega margt annað en matvara sem fæst nú orðið í matvöm- búðunum. í morgun verslaði undirrit- aður í verslun þar sem hægt var að kaupa bæði sængurfatnað og sokka, nærfatnað og búsáhöld fyrir utan alla venjulega matvöm. Allt er svo greitt í einu lagi við kassann. Ekki nokkur leið að skrifa þetta allt á matarkostnað í heimilisbókhaldinu, þótt óneitanlega sé allt keypt í matvömbúð. Leiðir til sparnaðar Hins vegar hefur öllum komið saman um að búreikningar leiði til spamaðar þótt óbeint sé, auk þess sem mikið hagræði sé að því að vita nokkum- veginn upp á hár í hvað laununum hefur verið varið. Það er því ekki hægt annað en að „græða'1 á því að halda búreikninga, hvemig sem á það er litið. Við neitum því líka alfarið að ekki sé hægt að spara í matarinnkaupum hér á landi. Það er hægt að vera hag- sýnn og búa í haginn með því að kaupa vörumar þegar þær em boðnar á hag- stæðu verði. -A.BJ. Hollustumatur Sulta í örbylgjuofni á helmingi skemmri tíma Það er mjög auðvelt að búa til sultu og hlaup í örbylgjuofni og tek- ur miklu skemmri tíma heldur en þegar það er gert á venjulegan hátt. Að vísu er ekki hægt að búa til eins stóra skammta og þegar notaður er pottur á eldavélinni en sulta og hlaup er best nýlagað. Fæstir hafa heldur góða geymsluaðstöðu svo best er að fiysta berin eða ávextina og sulta í litlum skömmtum. Ég ætla að gefa hér grunnupp- skrift að beijasultu sem inniheldur ekki of mikinn sykur. í þessa uppskrift er hægt að nota hvaða ber sem er og ég hef líka not- að afbrigði af þessari uppskrift til að búa til rabarbarasultu. Þá þarf að bæta við um það bil 1 dl af vatni út í uppskriftina, annars verður sult- an of stíf. Sama gildir um rifsbeija- hlaup. Krækiber og önnur ber, sem þarf að sía, er best að sjóða í 1-2 msk. af vatni þangað til þau springa, sía síðan og fara að öðm leyti eftir upp- skriftinni. Mjög gott er að blanda saman krækibeijum og eplum til helminga. Það er líka gott að blanda saman rabarbara og hvaða berjateg- und sem er til helminga. Rabarbara- bragðið er ríkjandi og það sama gildir um epli. Hér kemur uppskrift- Svanfríður Hagvaag skrifar 450 g ber og/eða ávextir 350 g sykur vatn ef með þarf Blandið saman berjum, niðurbrytj- uðum ávöxtum ef þeir em notaðir og sykri. Það þarf að nota mjög stóra skál sem þolir mikinn hita þar sem sultan sýður mikið upp. Sjóðið án þess að byrgja ílátið á hæsta straum í 3 mín. og hrærið síðan vel þangað til allur sykur er vel uppleystur. Sjóðið aftur í 5 mín. og hrærið þá dálítilli smjörklípu (á stærð við baun) út í. Það er til þess að sultan sjóði ekki eins upp. Sjóðið nú í 8 mín. í viðbót og hrærið í. Athugið hvort sultan er nógu stíf með því að lyfta sleifinni upp. Sultan ætti að dijúpa hægt í löngum drop- um. Ef hún er ekki orðin nógu stíf þarf að sjóða hana í 1-2 mín. í við- bót og prófa síðan. Það þarf að fara varlega og sjóða hana ekki alltof mikið þar sem hún heldur áfram að sjóða í dálítinn tíma, eins og allt sem soðið er í örbylgjuofni, eftir að hún kemur út. Sótthreinsið litlar krukk- ur með því að láta í þær dálítið vatn, þekja með filmu og sjóða í ofhinum þar til vatnið bullsýður. Takið þá krukkumar út, notið hanska þvi þær em heitar og hellið vatninu burtu. Ausið sultunni í og lokið krukkunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.