Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987. UMBOÐIÐ Á SIGLUFIRÐI Blaðbera vantar strax víðs vegar um bæinn. Upplýsingar gefur umboðsmaður DV, Friðfinna Símonardóttir, í síma 96-71208 eða 96-71555. HARSNYRTISTOFAN GRETTISGOTU 86. - SIMI18830 OPNUNARTIMI mánudaga til miðvikudaga 10-17 fimmtudaga og föstudaga 10-19 laugardaga 9-12 VERIÐ VELKOMIN FRAMANDI MENNING í FRAMANDI UNDI • Ert þú fædd/ur 1970 eða 1971? • Viltu auka þekkingu þína á umheiminum? • Viltu kynnast lifnaðarháttum annarra þjóða? • Viltu búa eitt ár í framandi landi? • Viltu verða skiptinemi? Umsóknarfrestur til 12. okt. Opið daglega milli kl. 14 og 17. Ef svarið er já hafðu þá samband við: á Islandi -alþjóöleg fræðsla og samskipti- Hverfisgötu 39, P.O. Box 735 - 121 Reykjavík, sími 25450. SEUUM SÍÐUSTU CITROEN AXEL BÍLANA AF ÁRG. 1987 Á SÉRSTÖKU TILBOÐSVERÐI AÐEINS KR. 239.000,- HVER BÝÐUR BETUR? Globus? Lágmúli 5, Reykjavík Sími 91-681555 Utlönd Réðust Inn í Líbýu Loftárásir eru nú gerðar á hermenn frá Chad sem hafa tekið á sitt vald flugvöll í Sahara-eyðimörkinni í Líbýu. Þrjú þúsund líbýskir hermenn reyndu að verja hann án árangurs. Hermennimir frá Chad em sagðir hafa eyðilagt þrjátíu orrustuflugvélar og fellt eða tekið til fanga fleiri hundr- uð líbýska hermenn i bardögum á landi á laugardaginn. Fréttir frá Líbýu herma að árásir hafi verið gerðar á flugvöll við Sara en þeim hafi verið hmndið. Flugvöllurinn í Saharaeyðimörkinni er mikilvægur aðstaða fyrir þá her- menn Líbýu sem staðsettir em í suðurhluta landsins og er hann í um hundrað kílómetra íjarlægð frá hinum viðurkenndu landamærum ríkjanna tveggja. Er þetta í fyrsta skipti sem her frá Chad ræðst inn fyrir landamæri Líbýu. Að sögn sendiherra Chads í París mun ekki verða reynt að halda flugvellin- um heldur munu hermenn frá Chad hverfa þaðan á brott eftir að hann hefur verið jafhaður við jörðu. Til- gangurinn sé einungis að eyðileggja hemaðarlega bækistöð þaðan sem ár- ásir séu gerðar á Chad. Árás þessi átti sér stað viku eftir að hermenn Chads voru reknir frá Aouzou sem er á umdeildu landa- mærasvæði. Hermenn frá Chad höfðu tekið borgina þann 8. ágúst en hún hafði verið fjórtán ár undir yfirráðum Líbýumanna. Handtóku tugi rétttrúnaðarmanna ísraelska lögreglan handtók um helgina tuttugu og níu rétttrúnaðar- ' gyðinga í átökum sem urðu milli þeirra og lögreglu við mótmæli gegn kvikmyndasýningum á laugardögum. Rétttrúnaðarmennimir telja kvik- myndasýningar þessar, á laugardög- um, sem og ó föstudagskvöldum, brjóta í bága við trúarreglur gyðinga. Hafa þeir undanfarið mótmælt þeim ákaft og um þessa helgi kom loks til beinna átaka milli þeirra og lögreglu. Lögreglan handtekur einn réttrúnaóarmannanna um helgina. Simamynd Reuter Kosningar Sammála um fast gengi Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahöfti; Nú er kosningabaráttan ó enda og hafa verið skiptar skoðanir um ágæti hennar. Þar sem hún hefur aðeins varað í þrjár vikur hafa fjölmiðlar og þá sérstaklega sjónvarp verið aðalvettvangur hennar. En í stað pólítískrar umræðu um stefnu flokkanna í hinum ýmsu málaflokkum hefur miklu af púðrinu verið eytt í að ræða um mögulega stjómarmjmdun eftir kosningar. Hver sem stjómin verður þá þarf að bretta upp ermamar á næstu misserum. Greiðsluhallinn við út- lönd mun í ár nema rúmlega tuttugu milljörðum danskra króna, tala at- vinnulausra mun nema tvö hundmð og fimmtíu þúsundum og skattamir em nú þeir hæstu í heimi eða fimm- tíu og eitt prósent. Auk þess er ekki víst að jafnvægi verði á ríkisfjárlög- um næsta ár eins og í ár og verð- bólgan er um þijú til fjögur prósent. Fast eða of hátt gengi krónunnar á sinn þátt í fyrmefndum atriðum. Dagblaðið Politiken lagði níu spumingar um efnahagsmál fyrir þrettán þeirra sextán flokka er nú bjóða fram við þingkosningamar. Var meðal annars spurt hvort rík- isútgjöld ættu að vera stöðug, hækka eða lækka. Sama var spurt um skattana. Spurt var hvort gengi krónunnar ætti að vera fast og þá miðað við Evrópubandalagsgjald- miðlana eða gjaldmiðla þeirra landa sem mest er verslað við, Bandaríkin, Skandinavíu og Bretland. Var spurt hvort nauðsynlega þyrfti að vera jafnvægi á ríkisfjárlögum og hvort verðbólga væri endilega af hinu illa. Loks var spurt hversu fljótt við- skiptahallinn ætti að vera úr sögunni og hvort væri mikilvægara, baráttan við hann eða atvinnuleysið. Þykir athyglisvert að flokkarnir eru nokkuð sammála hvað varðar gengi krónunnar. Á gengi hennar að vera nokkum veginn fast í nán- ustu framtíð. Varðandi spuminguna um verð- bólgu em allir flokkar sammála um að henni eigi að halda niðri. Vegna óska um fast gengi krónunnar þrátt fyrir lélegri samkeppnisaðstöðu út- flutningsfyrirtækja getur orðið erfitt að koma viðskiptahallanum við út- lönd fyrir kattamef. Segja íhaldsmenn beinlínis það gamaldags hugsunarhátt að halda að greiðsluhalli og atvinnuleysi séu svo samtengd vandamál. Með auk- inni atvinnu megi auka framleiðslu og útflutning og þannig lækka greiðsluhallann. Hvað varðar ríkisútgjöld em stjómarflokkamir fjórir sammála um að þeim eigi að halda stöðugum. Framfaraflokkurinn vill lækka rík- isútgjöldin meðan jafnaðarmenn, sósíalistar, kommúnistar og græn- ingjar vilja hækka ríkisútgjöld á sviði eftirlauna, ellilífeyris, náms- lána og mörgum öðrum sviðum. Varðandi skattana segja stjómar- flokkamir að ekki sé rými til skatta- lækkana nú. Samkvæmt Vinstri flokki og Ihaldsflokki getur það fyrst orðið þegar jöfriuður er kominn á viðskipti við útlönd. Ef lækka eigi einhveija skatta verði að hækka aðra. Stjómarandstaðan er ekki sammála. Jafhaðarmenn telja ekki vera rými til skattalækkana en hindra eigi hækkun einstaklings- skatta. Sósíalistar vilja nýja sköttun, þar á meðal á verðbréfahagnað og verðbréfaverslun og ef skattalækk- un kemur til mála em flokkamir sammála um að tekjuskattur eigi að lækka. Framfaraflokkur vill tafar- lausa lækkun tekju-, eigna og fyrir- tækjaskatts. Allir flokkar vom sammála um að helst þyrfti að vera jafhvægi á ríkis- fjárlögum. Stjómarflokkamir vilja fara afar hægt í að lofa lækkun greiðsluhallans en stefiia á að hann sé úr sögunni við lok komandi kjör- tímabils eða 1991.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.