Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Page 18
18
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987.
NÓABORG. STANGARHOLT111
Fóstrur og aðstoðarfólk
óskast til starfa nú þegar.
Upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 29595.
GRANDABORG
v/Boðagranda
óskar eftir að ráða fóstrur eða starfsfólk til starfa nú
þegar e.h.
Upplýsingar í síma 621855.
Vistunarheimili -
Öskjuhlíðarskóli
Vistunarheimili óskast fyrir unga pilta utan af landi
sem verða nemendur í Öskjuhlíðarskóla skólaárið
1987-88.
Upplýsingar um greiðslu og fyrirkomulag hjá félags-
ráðgjafa í síma 689740.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðinga vantar til starfa á Sjúkrahúsinu á
Egilsstöðum.
Nánari upplýsingar gefa Gunnar í síma 97-11073 og
Áshildur í síma 97-11631.
Sjúkrahúsið
Lagarási 19, 700 Egilsstöðum
FELLA- OG HÓLAHVERFI
STARFSKRAFTUR:
Við erum hress og ánægð börn og hressar og ánægð-
ar konur. Okkur vantar aðeins 1 starfsmann til að
vera með okkur kl. 12.30-17.30.
Upplýsingar á staðnum eða í síma 78350.
Skóladagheimilið Hraunkot,
Hraunbergi 12.
FJÖLBRAÓTASKÚUNN
BREIÐHOLTI
FRÁ FJÖLBRAUTASKÓLANUM í BREIÐHOLTI
Óskum eftir að ráða starfskraft til starfa á prentstofu
Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Um er að ræða hlutastarf.
Upplýsingar á skrifstofu skólans kl. 8.00-15.00 næstu
daga. Sími 75600.
UMSJÓNARFÓSTRA
Umsjónarfóstra með daggæslu á einkaheimilum ósk-
ast til starfa strax.
Um er'að ræða 9 mánaða afleysingu vegna námsleyfis.
Upplýsingar veitir Fanny Jónsdóttir deildarstjóri í síma
27277.
KVARNABORG, NÝTT DAGVISTARHEIMILI
í ARTÚNSHOLTI
óskar eftir fóstrum í heilar og hálfar stöður 15. sept. nk.
Upplýsingar veitir forstöðumaður, Margrét Petersen,
í síma 27277.
Menning
MyndHst
Þorgeir Ólafsson
Gestur
Á sýningunni í Gallerí Borg sýnir
Gestur höggmyndir úr steini, sem
hann heíur gert undanfarin þrjú ár.
Sumir þessara skúlptúra eru gerðir
úr graníti og fleiri steintegundum, sem
hann varð sér úti um þegar þau hjón-
in voru við störf í Sveaborg í Finnl-
andi. Það sem öðru fremur einkennir
skúlptúra hans nú eru einföld og sterk
form, ásamt áherslu á eiginleika efnis-
ins sem hann vinnur i. Hann nýtir sér
séreinkenni steinsins og magnar and-
stæðumar í efhinu ýmist með þvi að
slípa hann spegilsléttan eða láta hrjúft
yfirborðið standa óhreyft. Þessum
andstæðum teflir hann einnig saman
í sumum skúlptúrunum. Það leynir sér
ekki að það á vel við Gest að vinna
með stein, og maður getur ekki annað
en dáðst að þolinmæði hans og þraut-
seigju við þetta vandasama efni, því
vandvirkni hans er viðbrugðið.
Gestur Þorgrimsson
Gestur Þorgrimsson og Sigrún Guðjónsdóttir á sýningunni í Gallerí Borg.
Gestur og Rúna
í Gallerí Borg
Gestur Þorgrímsson og Sigrún Guðjóns-
dóttir (Rúna) hafa opnað sýningu í Gallerí
Borg við Austurvöll. Rúna sýnir leirmyndir
og teikningar en Gestur höggmyndir úr
steini.
Um þessar mundir eru fjörutíu ár liðin
frá því að Gestur og Rúna komu heim
frá listnámi í Kaupmannahöfh. Þá
komu þau á fót leirmunaverkstæðinu
Laugamesleir sem þau starfræktu til
ársins 1954 og endurvöktu siðan árið
1968. Á síðustu árum hafa þau gert
margar veggskreytingar, úti og inni,
fyrir ýmsa aðila.
Rúna
Rúna sýnir annarsvegar myndir sem
hún hefur teiknað eða þrykkt á jap-
anskan pappír og hins vegar myndir
sem gerðar eru með sérstakri tækni á
leirflísar. Japanski pappírinn er efhis-
mikill og gljúpur, andstætt við leirflís-
amar sem hafa harða og glansandi
áferð. Hið mjúka og ávala form, ljóð-
rænt, létt og taktfast, einkennir
myndir Rúnu. Yfir þeim er einhver
mannúðlegur blær sem kemur manni
í gott skap! Fígúrur hennar em bústn-
ar og aðlaðandi verur úr öðrum heimi
færandi góð tíðindi. Áhorfendur kom-
ast varla hjá því að taka eftir fiskun-
um, eplunum og ormunum í myndum
Rúnu. Allt em þetta vel þekkt tákn
úr myndlist fyrri tíma, sem vísa til
atburða sem sagt er frá í Biblíunni.
Hver og einn verður síðan að gera það
upp við sig hvort hann telji að Rúna
noti þessi fyrirbæri sem tákn eða sem
ákveðin form. Það getur, hvað sem
öðm líður, gert heimsóknina á sýning-
una enn skemmtilegri að velta
vöngum yfir því. Sýning Gests og
Rúnu stendur til 15. september.