Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Page 27
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987. 3c Átt þú spariskírteini ríkissjóðs, sem eru innleysanleg núna ? íhugaÓu stöðuna vel því nú hafa vextirnir hækkað og eru allt að 8,5% umfram verðtryggingu < </) E o Það eru einkum tvær ástæður fyrir því að spariskírteini ríkissjóðs eru ein öruggasta og arðbærasta sparnaðarleiðin sem völ er á í dag. í fyrsta lagi hafa vextir af spariskírteinum ríkissjóðs hækkað og eru nú allt að 8,5% umfram verðtryggingu. Með því að fjárfesta í spariskírteinum ríkissjóðs getur þú tryggt þér háa raunávöxtun í langan tíma — hvernig sem árar. Pú tekur enga áhættu •g öryggift er þín megin í öðru lagi er ekki hægt að hugsa sér örugg- ara og traustara sparnaðarform en spariskír- teini ríkissjóðs. Þeini fylgir engin áhætta og ríkissjóður tryggir þér að vextirnir lækka ekki meðan á lánstímanum stendur. Ertu enn ■ vafa? Þú getur valið um spariskírteini sem greið- ast í einu lagi eftir 2 ár með 8,5% raunvöxtum á ári, eða spariskírteini sem greiðast í einu lagi eftir 4 ár með 8,0% raunvöxtum á ári. Einnig áttu kost á hefðbundnum spariskírteinum með 6 ára binditíma og 7,2% raunvöxtum á ári, en sem hægt er að láta standa í allt að 10 ár. Þann- ig getur þú rúmlega tvöfaldað höfuðstólinn á tíu árum. Fjárfesting sem laðar að Þegar þú ávaxtar sparifé þitt skaltu hafa í huga, að spariskírteini ríkissjóðs eru tekju- og eignaskattsfrjáls á sama liátt og sparifé í bönkum og bera auk þess ekkert stimpil- gjald. Þau eru innlent lánsfé og draga því úr erlendri skuldasöfnun og stuðla þannig að bættum hag þjóðarinnar. Aföllu þessu er ljóst, að spariskírteini ríkis- sjóðs eru ein vænlegasta leiðin í dag til ávöxt- unar á sparifé þínu. Spariskírteini ríkissjóðs færðu í Seðlabanka íslands og hjá löggiltum verðbréfasölum, sem eru m.a. viðskiptabankarnir, ýnisir sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.