Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Qupperneq 28
40 MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987. KANTSTEINAR Járnbentir og vélsteyptir kr. metrinn. Margra ára reynsla. KANTSTEYPAN, s. 672535. FRÆÐSLUSKRIFSTOFA VESTFJARÐAUIVIDÆ M ISf ÍSAFIRÐI Eftirtalin störf eru laus til umsóknar: Ein staða skólasálfræðings. Ein staða sérkennslufulltrúa/kennslufulltrúa. Hálf staða ritara. Þá vantar talkennara og bókasafnsfræðing til sér- stakra verkefna sem mætti vinna í áföngum eftir samkomulagi. Ein staða kennsluráðgjafa í Vestfjarðaumdæmi. Miðað er við hlutastörf, 25-50%, með búsetu hvar sem er í umdæminu. Óskað er eftir kennurum með starfsreynslu og/eða framhaldsnám. Fræðsluskrifstofan býður fram góða vinnuaðstöðu í húsakynnum sínum á ísafirði og starfsandi er góður meðal skólamanna á Vestfjörðum, auk þess sem boð- ið er upp á góð laun fyrir ofangreind störf. Upplýsingar veitir fræðslustjóri, Pétur Bjarnason, í síma 94-3855 og 94-4684 og forstöðumaður ráðgjaf- ar- og sálfræðideildar, Ingþór Bjarnason, í síma 94-3855 og 94-4434. TOLLMEISTARINN NÝ TOLLALÖG, STRANGARA EFTIRUT Hér er góð lausn, ódýr og árangursrík. Tollmeistarinn er nýtt forrit sem hannað er fyrir P.C. tölvur. Forrit sem hjálpar þér við frágang, dregur úr töfum á afgreiðslu tollskjala hjá tollyfirvöldum. Forritið er hannað eftir þörfum innflytjenda, ásamt kröfum embættisins um frágang. Forritið er einfalt í notkun, einnig fyrir byrjendur. Allar breytingar á núverandi kerfi eru í þessu forriti, nákvæmni er númer eitt. Ert þú leiður á athugasemdum frá toll- ínum, lausnin er Tollmeistarinn sem gerir athuga- semdir strax, þannig að betri frágangur verður á innlögðum aðflutningsgögnum. Rétt unnin aðflutn- ingsskýrsla flýtir afgreiðslu. Margir innflytjendur álíta nýja kerfið auðveldara. Inn- flytjendur álíta að nú muni tollyfirvöld alfarið sjá um útreikning. Rétt er að embættin munu reikna út skýrsl- urnar, en gera jafnframt mun meiri kröfur um gerð og frágang aðflutningsskýrslu. Illa unnin skýrsla tefur örugglega afgreiðslu hjá toll- embættum og munu væntanlega margir fúskarar falla úr leik. Samkeppnin fer harðnandi, meiri kröfur, nýtt skipulag, gott kerfi. Góð kunnátta innflytjenda er raunveruleg krafa. Dæmi um ýmsar nýjungar sem innflytjandi þarf að svara: Yfirfærslunúmer banka, Vy lykill, sérstakur skýrslulyk- ill, tegund gjalda, upprunaland o.m.fl. Tollmeistarinn hefur verið hannaður til að auðvelda og bæta aðflutningsskýrslugerð, með spurningum lið fyrir lið. Nánari upplýsingar gefur Rúnar Georgsson í síma 652130 eða Niels Einarsson í síma 52996. Forritið mun kosta u.þ.b. 18.000 kr. en verður á kynn- ingarverði út september '87 á kr. 6.000,- m/söluskatti. Svidsljós Hattamir hennar Söru Fyrir skömmu gáfum við ykkur örlítið sýnishom af hinum ýmsu hárgreiðslum Söru Ferguson, þeirrar hressilegu, þunguðu her- togaynju af York. Nú er komið að höttunum, þeir eru ekkert síður fjölbreytilegir. Sara er mikið fyrir hatta, eins og sannri prinsessu sæmir, og sérstaklega fyrir stóra og mikla hatta eins og sjást hér á myndunum; enga pena og tíkarlega hatta, takk. Þótt það sé ennþá prinsessuhátturinn að bera hatta við hin ýmsu tækifæri þá eiga hatt- ar ekki miklum vinsældum að fagna á meðal annarra ungra kvenna um þessar mundir. En hvernig væri að prófa? Stórir hatt- ar eru örugglega fínir í rigningu sem og í miklu sólskini; ágætis- skýli. En þá er bara eitt vandamál fyrir íslenskar stelpur sem hygðust bera hatt á höfði; rokið, það ís- lenska. Súperman enginn ,,súperpabbi“ Gae Exton, eiginkona Chris Reeve, mætir hér ein með börnin tvö á frumsýn- ingu nýjustu Súpermanmyndarinnar í London. Súperman sjálfur var fjarri góðu gamni. Hann var að njóta lífsins með yngismeyjum í Ameríkunni. Einkalíf fræga fólksins gengur allt- af jafn brösulega. Daglega fáum við fregnir af nýjum og nýjum hjóna- skilnuðum þeirra á meðal. Það nýjasta í þeim efnum er að Christop- her Reeve, sá sem leikur Súperman, sé nú fluttur burt frá konu sinni og tveimur börnum. Hann hefur verið í sámbúð með fyrrverandi fyrirsæt- unni Gae Exton síðastliðin níu ár. Saman eiga þau tvö börn, Matthew, sjö ára, og Álexöndru, þriggja ára. En nú er Súperman sjálfur sem sagt floginn á vit ævintýranna og leikur víst á als oddi með sætum stelpum í Massachusetts. Gae tekur á málinu með mestu ró en margir vilja meina að samband þeirra hafi verið nokkuð furðulegt gegnum árin. Hún hefur sárasjaldan fylgt honum þegar hann hefur farið út að skemmta sér en hann hefur víst gert mikið að því. „Hann er mikill kvennamaður," segja vinir hans. En ástæðan fyrir skilnaðinum mun einmitt vera sú að hann langar til að skemmta sér reglulega með ungum fegurðardísum og þá er betra að vera ekki í neinu föstu sambandi. Eiginkonan stendur ein uppi með börnin í húsi þeirra í London en seg- ist ekki vera fjárhagslega háð Súperman. Hún komi alveg til með að standa á eigin fótum og fari bara að vinna meira ef þess þarf. Fólk sem þekkir til Gae segir hana mjög svo þægilega manneskju. Hún sé frekar gamaldags og líði best heima með börnunum. Hún er heldur ekkert fyr- ir það að slá um sig þótt nóg hafi verið af peningunum. Allra sinna ferða hefur hún farið með strætis- vagni og telur það ekki eftir sér. „Hún meira að segja stendur úti þótt hann rigni og bíður eftir vagninum til þess að sækja börnin í skólann,“ segja þeir sem til þekkja. En Súperman gekk þó einum of langt þegar hann mætti ekki einu sinni á frumsýningu nýjustu Súper- manmyndarinnar í London nú fyrir skömmu. Þar mætti Gae með börnin tvö en ekkert bólaði á pabba. Hann var að skemmta sér í Ameríkunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.