Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1987, Qupperneq 32
44
MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1987.
Jarðarfaiir
í Vigfús Brynjólfsson lést 31. ágúst
sl. Hann var fæddur í Ytri-Galtarvík
í Skilmannahreppi. Foreldrar hans
voru Guðlaug Jónsdóttir og Brynj-
ólfur Teitsson. Vigfús kvæntist
Sigríði Þórðardóttur og eignuðust
þau þrjú börn og bjuggu í Borgar-
firði til ársins 1955 en þá flutti hann
til Reykjavíkur. Upp frá því vann
hann sem verkamaður. Útför hans
verður gerð frá Bústaðakirkju í dag
kl. 15.
Guðmundur Tómasson trésmíða-
meistari, Tungubakka 32, Reykjavík,
sem lést í Landspítalanum 1. sept.
sl., verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju þriðjudaginn 8. september kl.
13.30.
Kornelíus Hannesson bifvélavirki,
Hæðargarði 8, verður jarðsunginn
frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðju-
daginn 8. september kl. 13.30.
Kristján Jónsson húsasmíðameist-
ari, Höfðahlíð 17, Akureyri, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 8. september kl. 13.30.
Guðríður Sigjónsdóttir, Hrafn-
hólum 6, Reykjavík, er lést í Landa-
kotsspítala 31. ágúst, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðju-
daginn 8. september kl. 15.
Þórður Ö. Jóhannsson kennari,
Þórsmörk 1, Hveragerði, sem lést
aðfaranótt 31. ágúst, verður jarð-
sunginn frá Hveragerðiskirkju
fimmtudaginn 10. september kl. 14.
Stefán Björnsson, Víðihvammi 13,
Kópavogi, sem lést 1. september sl,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 8. september kl.
15.
Útför Klöru Hallgrímsdóttur,
Frostaskjóli 9, Reykjavík, verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag, 7. sept-
ember, kl. 13.30.
Útför Ingólfs Ómars Þorsteins-
sonar, Móabarði 2b, Hafnarfirði,
sem lést 29. ágúst sl., fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag 7. sept-
ember kl. 15.
Spakmælið__________________________________
Enginn lýsir eigin lyndiseinkunn betur en með því hvern-
ig hann lýsir öðrum.
Richter
Nýjung frá Vöku - Helgafelli:
Nýjar Reikningsbækur
handa börnum
- bæði ætlaðar heimilum og
skólum
' Hjá Vöku Helgafelli eru komnar út tvær
nýstárlegar æfmgabækur í reikningi
handa byrjendum og eru þær hinar fyrstu
í bókaflokki sem hlotið hefur nafnið
Reiknaðu með mér.
I frétt frá útgefanda segir að þessar
bækur muni koma til móts við óskir fjöl-
margra foreldra og kennara því efni af
þessu tagi hafí ekki fengist hér á landi um
skeið.
Foreldrar hafa stundum kvartað yfir því
að þeir eigi í erfiðleikum með að aðstoða
börn sín við skólanámið því þeir hafi ekki
í höndum aðgengileg hjápargögn. Einnig
hafa heyrst raddir úr hópi kennara um að
þörf væri á auknu framboði námsgngna,
jafnt í stærðfræði sem öðrum greinum.
Bókaflokknum Reiknaðu með mér er
ætlað að svara þörfum beggja aðila því
bækurnar eru bæði hugsaðar til notkunar
á heimilum og í skólum.
í fyrri æfingabókinni vinna börnin með
tölumar 1 10, læra að telja og vinna með
einföld samlagningardæmi. Börnin eiga
bæði að lita í bókina og skrifa með blýanti.
1 seinni bókinni er haldið áfram á svip-
LUKKUDAGAR
7. sept.
37879
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800.
Vinningshafar hringi í síma
91-82580.
aðan hátt en unnið með tölurnar 1-100
og einföld samlagningar- og frádráttar-
dæmi.
Báðar bækurnar em settar fram á ein-
faldan og auðskilin hátt þannig að börnin
geta unnið sjálfstætt að lausn verkefna
og reikningsdæma eftir fyrstu tilsögn for-
eldra eða kennara.
Bækurnar eru prentaðar í tveimur litum
og með tilliti til ungra notenda hefur sér-
stök áhersla veríð lögð á vandaðan
frágang, m.a. með plasthúðun á litprent-
aðri kápu, sterkri vírheftingu og vönduð-
um pappír. Bækurnar em hvor um sig 72
bls. og kosta 486 krónur.
Prentsmiðjan Steinmark í Hafnarfirði
annaðist prentvinnslu bókanna sem fást í
flestum bókaverslunum landsins
Hvalveiðimálið:
Fram komin
viðbrögð af
hálfu banda-
riskra yfírvalda
- segir Helgi Ágústsson
„Ég get ekki neitað því að fram eru
komin ákveðin viðbrögð af hálfu
bandarískra stjómvalda en á þessu
stigi málsins get ég ekki látið það
uppi hver þau viðbrögð eru nákvæm-
lega,“ sagði Helgi Ágústsson í utanrík-
isráðuneytinu þegar blaðamaður DV
grennslaðist fyrir um afstöðu Banda-
ríkjastjómar við hvalveiðum Islend-
inga sem eiga að hefjast nú í vikunni.
Ámi Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu, sagðist hins
vegar ekki hafa neinar nýjar fréttir
að færa af hvalveiðideilunni. „Ég þori
engu að spá um viðbrögð bandarískra
yfirvalda," sagði Ámi við blaðamann
DV í morgun. KGK
í gærkvöldi
Áslaug Ingibjörg Kristjánsdöttir bankamær:
Lítið um dýralífsmyndir
Ég heyrði lítið í útvarpi um helg-
ina þar sem ég var lítið heima við.
Ég heyrði þó þamaútvarp rásar 2 á
laugardagsmorgun og messu á
sunnudagsmorgun. Hinar stöðvam-
ar em keimlíkar, það er helst að
maður hlusti á þær þegar maður er
að ryksuga á laugardögum.
Mér fannst sjónvarpið ágætt nema
Derrick, hann er farinn að þreytast
svolítið, einnig finnst mér of lítið um
dýralífsmyndir. Það var gaman að
sjá Fyrirmyndarföður að nýju og
listaverkaþátturinn í gærkvöldi var
góður, en stuttur.
Á laugardaginn vom tvær bíó-
myndir og horfði ég á þá fyrri sem
Áslaug Ingibjörg Kristjánsdóttir.
var góð. Ég var orðin of syfjuð til
að horfa á þá síðari þannig að ég
slökkti. Mér sýnist að þegar sjón-
varpið er með tvær bíómyndir sé það
fulloft sem önnur er slök.
Bamaefni finnst mér af skomum
skammti í sjónvarpi. Það litla sem
er, er ekki á góðum tíma, en það
byrjar klukkan hálfsjö og er ekki
alltaf búið klukkan sjö en þá held
ég að flest fólk borði kvöldmat.
Ég er ekki með afruglara og líður
ekkert illa út af því. Ég hef þó séð
eitthvað af því efni sem að Stöð 2
sendir út ótruflað og finnst það á-
gætt.
Davíð Oddsson klippir á borðann, sem strengdur var yfir Laugaveg við Frakkastig, að viðstöddu fjölmenni í blíðskapar-
verði. Ekki er þess að vænta að fleiri slíkir borðar verðir strengdir yfir Laugaveginn alveg á næstunni.
Opnun Laugavegarins:
Heíldarkostnaður 24
milljónir króna
Sá hluti Laugavegarins, sem hefur
verið í endurbyggingu í sumar, var
formlega opnaður á laugardag með
tilheyrandi viðhöfn og að viðstöddu
miklu fjölmenni. Skrúðganga var farin
frá Hlemmi og gekk niður að mótum
Laugavegar og Frakkastígs þar sem
Davíð Oddsson borgarstjóri klippti á
borðann sem strengdur var yfir Lauga-
veginn við Frakkastíg. Einnig vom
formlega tekin í notkun ný bílastæði
á Faxaskálasvæðinu sem rúma 370
bíla.
Samtökin Gamli miðbærinn notuðu
tækifærið til að kynna þjónustu sína
en yfir 800 aðilar em með ýmiskonar
þjónustustarfsemi í miðbænum.
En hver er heildarkostnaður þessara
framkvæmda og hvert er ffamhaldið?
DV leitaði svara hjá Inga Ú. Magnús-
son gatnamálstjóra. „Heildarkostnað-
ur við þessar framkvæmdir í sumar
er 24 milljónir króna sem greiddar em
af borginni. Það eina sem kaupmenn
við Laugaveginn leggja til em hitun
á gangstéttum hver fyrir framan sitt
fyrirtæki." Um framhaldið sagði Ingi
að þeir væm búnir að fá nóg í bili og
hann vænti þess ekki að það yrði
meira um slíkar framkvæmdir alveg á
næstunni. Það gæti orðið ef áhugi
yrði fyrir hendi en hann reiknaði ekki
frekar með því. -GKr
Skreyttir strætisvagnar þeystu um götur Reykjavikur í tilefni opnunar Laugaveg-
arins. Þetta er hinn svokallaði miðbæjarstrætó sem ekur á 10 mínútna fresti
um miðjan daginn og allir geta notfært sér endurgjaldslaust.
Landssamband framsóknarkvenna:
Vilja að konur taki þau sæti sem losna
„Við viljum að konur taki sæti
karla á framboðslistum flokksins
þegar þeir gefa þau eftir af fusum
og frjálsum vilja,“ sagði Unnur Stef-
ánsdóttir, formaður Landssambands
framsóknarkvenna, í samtali við DV.
Á fundi sambandsins í Varmahlíð,
sem haldinn var um helgina, var
gerð ályktun þessa efhis. I drögum,
sem lágu fyrir fundinum, var gerð
tillaga um enn harðari ályktun um
stöðu kvenna innan flokksins. Þar
var rætt um að konur kynnu að
hasla sér völl á öðrum vettvangi ef
hlutur þeirra ykist ekki. Sú ályktun
var látin niður falla.
„Við viljum fá jafnrétti í Fram-
sókn. Það er flokknum nauðsynegt
til að hann endumýist eðlilega,"
sagði Unnur. „Ef til vill þýðir þessi
ályktun okkar þó að enginn karl
fæst til að hætta á næstunni."
Á fundinum var einnig samþykkt
að lýsa furðu á að viðskiptaráðherra
skyldi ekki enn hafa „staðfest rétt-
mæt kaup samvinnuhreyfingarinnar
á Útvegsbankanum," eins og það er
orðað. Þá segir þar að „landsmenn
allir hljóti að fylgjast með því hvort
krossapróf forsætisráðherra bindi
hendur fleiri ráðherra en Sjálfstæð-
isflokksins."
Á fundinum var lýst áhyggjum
vegna þróunar efnahagsmála og lát-
in í ljós sú von að „afskipti ríkis-
valdsins af kjaramálum leiddu til
raunvemlegra kjarabóta fyrir hina
lægstlaunuðu."
„Við erum ekki lagstar í stjómar-
andstöðu," sagði Únnur „en við
viljum að okkar menn hagi sér vel.“
-GK