Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987. Frjálst.óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr. Verð í lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr. Gorbatsjov skorar mörkin Undir stjórn Gorbatsjovs hafa Sovétríkin á síðustu vikum stigið mikilvæg skref, sem ekki eru sjónhverf- ingar. Þau fela í sér raunverulega slökun, sem vekur vonir um, að unnt verði að gera jörðina að friðvæn- legri bústað en verið hefur um allt öf langt skeið. Á sama tíma hefur atburðarásin varpað óþægilegu kastljósi að Reagan Bandaríkjaforseta sem hættulegum hugsjónamanni, er standi í vegi heimsfriðar. í hverju málinu á fætur öðru hafa Bandaríkin lent í vandræðum við að svara af viti slökunarskrefum Sovétríkjanna. Sanngjarnt er þó að taka fram, að Sovétríkjunum bar að stíga fyrstu skrefin. Þau bera meira en helming ábyrgðar á vígbúnaðarkapphlaupi síðustu tíu-tólf ára. Og þau hafa áratugum saman ógnað umhverfi sínu með Brésnevs-kenningunni um einstefnugötu sósíalisma. Ennfremur er nauðsynlegt að taka fram, að á sumum sviðum hefur ekkert komið áþreifanlegt fram, sem bend- ir til mildaðrar afstöðu Sovétríkjanna. Hæst ber þar grimmdarstríð Rauða hersins í Afganistan. Sovézka friðarhjalið á þeim slóðum hefur reynzt innihaldslítið. Heima fyrir virðist stjórnarfar Sovétríkjanna hafa mildazt. Aukizt hefur gagnrýni á einstök atriði kerfis- ins. Fleiri andófsmenn fá að flytjast úr landi. Hafnar eru tilraunir til að bjóða fram í kosningum fleiri flokks- menn en einn á hvert sæti, sem er til ráðstöfunar. í Persaflóa hafa Sovétríkin farið gætilega, þótt þau hafi reynt að skara eld að sinni köku, svo sem heims- veldi gera gjarna. Minna hefur farið fyrir þeim en Bandaríkjunum, sem hafa fetað áhættusama braut og orðið óbeinir fangar hernaðaraðgerða íraks á sjó. Sovétríkin hafa neitað að láta Nicaragua í té meiri olín og tilkynnt í staðinn verulegan samdrátt þeirra viðskipta. Þetta spillir rekstri hernaðartækja sandin- istastjórnarinnar og bendir til, að Sovétstjórnin geti hugsað sér að draga úr þrýstingi í Mið-Ameríku. Á sama tíma fer stjórn Reagans fram á nærri tvöföld- un hernaðarstuðnings við glæpalýð gamalla somozista, svokallaðra contra-skæruliða. Með þessu grefur Reagan undan tilraunum leiðtoga Mið-Ameríku til að fá fram- fylgt friðarsamkomulagi þeirra frá 6. ágúst. Þar á ofan hefur Reagan rekið hinn sérstaka Mið- Ameríkusendiherra Bandaríkjanna, Philip Habib, sem hefur langa reynslu af friðartilraunum, bæði þar og í Míðausturlöndum. Sök Habibs var að vilja lægja öld- urnar, gegn vilja róttæklingsins í Hvíta húsinu. Sovétstjórnin, sem lengi hefur verið andsnúin virku eftirliti með banni við kjarnorkuvopnum, hefur nú snú- ið við blaðinu og komið aftan að Bandaríkjastjórn, sem ekki virðist vita, hvaðan á sig stendur veðrið. Gor- batsjov hefur þar slegið væna pólitíska keilu. Komið hefur í ljós, að Bandaríkin studdu virkt eftir- lit í trausti þess, að Sovétríkin gerðu það ekki. Þegar blóraböggullinn hvarf, fengu þeir hland fyrir hjartað, sem vilja ekki, að sovézkir snuðrarar séu á ferli á hern- aðarlega mikilvægum stöðum í Bandaríkjunum. Allt bendir þetta til, að Reagan sé enginn bógur til að stjórna heimsveldi til kapps við Gorbatsjov í Sovét- ríkjunum. Reagan er haldinn róttækum hugsjónum, sem þvælast fyrir skynsamlegri hugsun, en Gorbatsjov er sem óðast að láta róttækar hugsjónir víkja fyrir viti. Hið bjarta við þetta er, að Gorbatsjov er að festa sig í sessi og að Reagan mun eftir hálft annað ár víkja fyr- ir nýjum forseta, sem getur tekið á heimsvandamálum. Jónas Kristjánsson Framhaldssaga um sQómmál Nú síðla sumars hafa fjölmiðlar, dyggilega studdir af nokkrum framá- mönnum í Sjálfstæðisflokknum, ekki fundið neitt þarfara að gera en karpa um það fram og aftur, hvort Borg- araflokkurinn hafi viljað ganga til stjómarsamstarfs við sjálfetæðis- menn eða ekki í vor sem leið. Það er engu líkara en verið sé að gera þetta að framhaldssögu eða rwjum framhaldsþætti í sjónvarpinu. Ég fæ ekki séð, að það skipti almenning nokkru einasta máli lengur, hver vildi fara með hverjum í stjóm. Það sem skiptir máli er sú staðreynd, að eftir allar uppákomumar í stjómar- myndunarviðrEeðunum, sitjum við uppi með ríkisstjóm, sem er ekki lík- leg til mikilla afreka. I blaðagrein, sem Friðrik Sophus- son birti nýlega í Dagblaðinu, telur hann að leiðrétta þurfi þær stað- hæfingar mínar, að við borgara- flokksmenn hefðum verið reiðubúnir til samstarfs við Sjálfstæðisflokk og Alþýðuflokk, hvort heldur undir for- ystu Þorsteins eða Jóns Baldvins. Hann kemur jafhframt með þá skýr- ingu, að þótt nokkrir okkar úr þingflokki Borgaraflokksins hefðum haft áhuga á slíku samstarfi, hafi Albert Guðmundsson verið því mót- fallinn. Þegar við Friðrik hittumst um daginn af öðm tilefiii, þessu máli óviðkomandi, sagði hann mér, að nauðsynlegt væri, að þetta færi rétt inn í íslandssöguna. Því væri hann neyddur til að skrifa ofan- greinda blaðagrein. Ég er ekki eins viss, hvort þetta skiptir máli fyrir söguritun vora eða ekki. En til von- ar og vara tel ég rétt að ítreka það enn einu sinni, að Borgaraflokkur- inn var reiðubúinn til samstarfs við Sjálfstæðisflokk og Alþýðuflokk á seinni stigum stjómarmyndimarvið- ræðnanna. Albert Guðmundsson átti frumkvæði að því að koma slíkum skilaboðum bæði til Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. Bíltúrinn frægi, sem Albert bauð Þorsteini í, eftir góðmennskukast hins síðamefnda á friðardaginn, hafði engan annan til- gang en þann að tjá Þorsteini, að Borgaraflokkurmn væri reiðubúinn til samstarfs við sjálfstæðismenn og forusta Þorsteins í ríkisstjóm væri engin frágangssök. Það sjá allir, að bíltúrinn gat ekki haft annan tilgang af hálfú Alberts, enda var hann í fúllu samráði við aðra þingmenn Borgaraflokksins. Hugsanlega skil- ur Þorsteinn ekki Albert þegar þeir em að ræða saman, og kann það að vera skýringin á öllum vandræðun- um. Ég álít þó, að annað og alvar- legra sé þama að baki, sem sé hagsmunir þröngs klíkuhóps innan Sjálfstæðisflokksins. Fjölmiðlafár í viðtali við Þorstein Pálsson, formann Sjálfstæðisflokksins, í ríkis- sjónvarpinu nú á dögunum, vitnaði hann í fund, sem hann hélt með AI- bert Guðmundssyni og undirrituð- um, ásamt Friðrik Sophussyni. Sagði Þorsteinn, að þar hefði komið fram, að Borgaraflokkurinn hafnaði öllu samstarfi við sjálfstæðismenn. Þar sem hér var ekki farið með rétt mál, hringdi ég á fréttastofu sjónvarps og óskaði eftir því að fá að koma með athugasemd. Þessari ósk var hafnað á þeirri forsendu, að næsti þáttur framhaldssögunnar væri þegar skipulagður, þ.e. viðtal við Albert daginn eftir. Ég varð eðlilega hissa á þessu, enda minnist ég þess, að þá sjaldan Ólafúr Ragnar Grímsson hringir inn á fréttastofu til þess að gera athugasemd, virðist allt ganga af göflunum þar inni til þess að koma henni á framfæri. Það er ekki sama Jón og séra Jón. Satt bezt að segja hefur okkur gengið frekar erfiðlega að koma skoðunum okkar á framfæri. Þar munar að sjálfeögðu mestu,,að_víð. Kjallariim Júlíus Sólnes alþingismaður fyrir Borgaraflokkinn Borgaraflokkurinn á fullu Þetta leiðir óneitanlega hugann að þeirri þögn, sem hefur ríkt um Borgaraflokkinn eftir kosningamar. Fulltrúar gömlu flokkanna hafa ó- spart gefið í skyn, að bólan sé hjöðnuð eins og þeir höfðu spáð. Sæll er hver í sinni trú, því ekkert er eins fjarri sannleikanum. Frá því að kosningunum lauk, höfum við borgaraflokksmenn verið á fullu. Við höfum haldið 30 þingflokks- fundi. Málefnanefndir hafa starfað á vegum flokksins í nær allt sumar, meðan starfsemi hinna flokkanna hefúr nánast legið niðri. Þingmenn og aðrir flokksmenn Borgaraflokks- ins hafa ritað fjölmargar greinar í dagblöðin og verið iðnari við það en flestir aðrir. Þá hefur mikill tími far- ið í að undirbúa og stofna félög á vegum Borgaraflokksins um allt land. „Bíltúrinn frægi, sem Albert bauð Þor- steini í, eftir góðmennskukast hins síðarnefnda á friðardaginn, hafði engan annan tilgang en þann að tjá Þorsteini að Borgaraflokkurinn væri reiðubúinn til samstarfs við sj álfstæðismenn.“ eigum ekkert málgagn. Athafnir og ályktanir Borgaraflokksins virðast ekki vekja mikinn áhuga frétta- manna ríkisfjölmiðlanna, þótt þeim séu hins vegar gerð allgóð skil af hinum frjálsu gölmiðlum. Er engu líkara en fréttamenn ríkisfjölmiðl- anna hafi verið heilaþvegnir af gömlu flokkunum í þá veru, að ekk- ert sé fréttir, nema þær snerti starf gömlu flokkanna. Kátbroslegt er að sjá, hvemig ráðherrar ríkisstjómar- innar em eltir af fréttamönnum og allt lapið upp eftir þeim. Ég held t.d., að Halldór Ásgrímsson hafi flutt sömu rulluna um hvalveiðideiluna einum 10-20 sinnum á örskömmum tíma í sjónvarpinu. Minnist ég ekki allan þann tíma, sem ég bjó erlend- is, að svona umstang væri í kringum ráðherranna. Þó tók út yfir allan þjófabálk, þeg- ar ungir sjálfstæðismenn héldu landsþing sitt í Borgamesi. Sjón-. varpið sendi mann í flugvél upp í Borgames til þess að fylgjast með. Mér er spum. Hvem varðar svona mikið um það hvað stuttbuxnadeild Sjálfstæðisflokksins er að þinga og hvem hún kýs sem formann? Kjördæmisfélög hafa nú verið stofnuð á vegum flokksins í öllum kjördæmum landsins. Kjördæmis- stjóm Suðurlands var kosin laugar- daginn 12. september í Vestmanna- eyjum og kjördæmisstjóm Austfjarðakjördæmis í þessari viku. Á réttum fimm mánuðum hefur Borgaraflokkurinn náð ömggri fót- festu í öllum kjördæmum landsins og grundvöllur verið lagður að skipulegu flokksstarfi um allt land. Þessum áfanga lýkur með fyrsta landsfundi flokksins, sem verður haldinn á Hótel Sögu 24., 25. og 26. september nk. Borgaraflokkurinn er kominn til þess að vera. Hann mun reynast nauðsynlegt afl í íslenzkum stjóm- málum, þjóðinni til heilla. Við munum standa vörð um rétt hinna mörgu gegn alræði hinna fáu. Fyrst um sinn verður það hlutverk okkar að veita stjómarflokkunum nauð- synlegt aðhald og beita okkur jafn- framt fyrir framgangi stefriumála okkar. Ríkisstjómin er veik og sund- urlaus og hlutverk okkar er því enn mikilvægara en ella. Július Sólnes „Hugsanlega skilur Þorsteinn ekki Albert þegar þeir eru að ræða sam- an og kann það að vera skýringin á öllum vandræðunum."..j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.