Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987. 15 Af hvalamálum og varnarmalum Undanfama mánuði og raunar miklu lengur hefur margt verið ritað og rætt um hvalveiðar almennt, frið- un hvala, en þó lyrst og fremst um hvalveiðar íslendinga. Mun það vera flestra manna mál að þessum al- ræmda þjóðflokki, sem eitt sinn tókst að kála geirfuglinum svo rækilega, að ekki hefur sést af honum tangur né tetur í fleiri mannsaldra, muni nú einnig takast að ganga frá flest- um hvalategundum, sem lifa í norðanverðu Atlantshafi, á sama hátt og geirfuglinum og það fljótlega ef ekki verður við spomað. Það hafa verið haldnar ráðstefhur, valdamikl- ir menn hafa ræðst við og íslenskir vísindamenn hafa sent skýrslur um, að það gangi ekkert að hvalnum, það megi veiða hann hér innan vissra marka, án þess að það komi að sök. Ekkert virðist samt duga. Vitrir menn og virtir úti í heimi em stað- ráðnir í að telja þessar skýrslur fleipur eitt og vísindunum sé gerð skömm og svívirðing ef það eigi að koma vísindaheiti á gegndarlaust hvaladráp íslendinga. Þó hefur kvis- ast að íslendingar megi gera eins og grannar þeirra, eskimóamir á Grænlandi. Þeir megi éta eins mik- inn hval og þeir torga, bara ef þeir gera það á staðnum og fara ekki að plata aðra til að kaupa hann. Heimaátið þykir fara miklu betur með hvalastofhinn. Svona em vis- indin fúrðuleg stundum - eða kannski það séu fremur stjómmálin? Tilgangslaus útrýming Afstaða margra til hvalveiða virð- ist oft vera fremur tilfinningalegs eðlis en þeim séu náttúruvemdar- Kjallaiinn Þengilsson læknir, Reykjavik sjónarmiðin ofarlega í huga. Hval- imir em stórar skepnur, þeir em spendýr, það hefur flogið fyrir að þeir væm mjög gáfaðir, a.m.k. sumar tegundir, og þeir röbbuðu saman í sjónum á sérstöku táknmáli. Þetta færði þá nær okkur og satt að segja em veiðiaðferðir stundum heldur subbulegar. Og þetta getur ýmsum virst sem aftur á móti hafa ekki séð neitt athugavert við það að murkað sé líf úr einni og einni rjúpu uppi á fjöllum að vetrarlagi eða þótt menn hræði veiðidýr úr fylgsnum með hundagjammi og látum eins og ensk- ir aðalsmenn gera og skjóta síðan dýrin unnvörpum þegar þau komast í mátulegt skotfæri. Ég hef lengi haft samúð með sjón- armiðum grænfriðunga, ekki síst í friðarmálum, og alltaf hefur mér fundist sportveiðimennska niður- lægjandi íþrótt. Það er þessi til- gangslausa útrýming á lífi, aðeins ánægjunnar vegna, sem mér finnst sverja sig um of í ætt minksins. En við erum kjötætur og er okkur því nauðsyn að nærast á holdi annarra lífvera, hvort sem þær lifa á láði eða í legi. Meðan við borðum fjallalömb- in verðum við að horfast í augu við það að á hveiju hausti eru þau rekin tugþúsundum saman heim af sælum heiðum sumarsins og beint á blóð- völlinn til þess að seðja maga okkar. Og meira eða minna hamingjusöm- um þorski er ausið upp úr sjónum svo að við getum annaðhvort snætt hann sjálf eða keypt okkur eitthvað fallegt, gott eða nytsamlegt fyrir hann í útlandinu. Eina aðferðin til að afla okkur kjöts eða fisks er að efria til lífs og eyða því aftur. Lífefna- fræðin þarf að komast á þónokkuð hærra stig áður en við getum fengið kjöt og fisk án þess að lífvera sé milliliður. Gáfaöir fiskar En svo er allt í einu komið að hvalnum. Auk tilfinningasjónarmið- anna, sem ég minntist á áðan, koma önnur og kaldari rök skynseminnar: Hvalastofriar, sem Islendingar veiða, eru að deyja út. Þetta verður að stöðva. Fullyrðing á fullyrðingu ofan hefur borist í þessum dúr þrátt fyrir ítarlegar skýrslur fiskifræðinga um það að hvalastofiiinn þoli meiri veiði. íslenskir fiskifræðingar hafa þó verið þekktir fyrir margt annað en bjartsýni um það hvað fiskstofnar þoh að vera veiddir. Fremstir í flokki og áhrifamestir í andstöðu sinni eru Bandaríkjamenn, orrustubræður okkar í NATO. Þeir hafa löngum verið okkur félegir bandamenn eða hitt þó heldur. Hjá þeim þrífast líka fjölmennir öfgahópar sem sagt er að geti ráðið miklu um markað þar í landi og hafa nægilegt fjármagn í skefjalausan áróður. Þeir hafa þó lítt beitt honum gegn Bandaríkja- mönnum sjálfum sem eru meðal verstu hvEdamorðingja heimsins, drepa mikið háhyming (sem er tal- inn ein gáfaðasta hvalategundin) og einnig stóran fisk sem nefiúst tún- fiskur og ég er ekki í neinum vafa um að er mjög greindur. Þeir hafa heldur ekki beitt gagnrýni sinni né hótað að nota samtakamátt sinn bandarískri framleiðslu í óhag þótt hinir siðamefiidu rói undir ófiiði sem mest þeir mega út um allan heim, ýmist með vopnasölu eða fjár- styrk til að standa undir hemaðar- rekstri ófriðarseggja. Þetta bendir til þess að grænfriðungar séu heldur litlir í sér. En verst er þó, og okkur íslending- um óþolandi með öllu, sú lítilsvirð- ing sem við höfum mátt þola af bandamönnum okkar, í öllu þessu máli -em og fleirum. Þótt svo virðist í þessum skrifuðum orðum sem eitt- hvað sé að draga saman í deilunni er það að verulegu leyti að þakka harðfylgi oddvita okkar í þessu máli. Munu þeir hafa látið glögglega á sér skilja að Bandaríkjamenn séu okkur íslendingum ekki með öllu ómiss- andi, þótt alltof margir hafi alltof lengi talið þá ganga næst guði sjálf- um. Mun hafa sljákkað eitthvað í bandarísku viðmælendunum við þetta nýja sjónarmið. Ekki er þó enn vitað með vissu hvemig málum lykt- ar. „Vamarlidið" I tengslum við hrokafulla fram- komu Bandaríkjamanna í hvalveiði- málinu hefur komið fram sú skoðun að endurskoða beri öll viðskipti okk- ar við þá. Vonandi felst í þessu það viðhorf að þeir geti ekki verið eilífir augnakallar suður á Miðnesheiði mönnum til angurs og skapraunar, eins og oftsinnis hefur komið fram í viðskiptum við þá. Sú hræsni sem lýsir sér í orðum eins og „vamar- lið“ er einkennandi fyrir stefnu Bandaríkjamanna í utanríkismál- um. Þótt þessu orði hafi verið komið ótrúlega víða á framfæri ætti flestum núorðið að vera ljóst, að „vamim- ar“ em fyrir Bandaríkin en ekki „bandalagsþjóðimar“. Það hefur verið komið á fót með fulltingi þeirra röð vamarstöðva í hæfilegri fjarlægð frá heimalandinu til að taka við fyrsta skelhnum í hugsanlegri styij- öld. Þannig ber að sjálfsögðu að skilja hugtökin vamir og vamarlið. Yfir íslandi vofir ekkert annað en eyðileggingin verði styijöld háð en héðan má reka njósnir og eftirlit með athöfnum andstæðingsins, þannig að fréttir berist af honum í tíma. Eigi íslendingar sjálfir hendur sínar að veija og lífshagsmuni verð- ur lítið um vamir fyrir þá. Það sannaðist áþreifanlega þegar her- skip andstæðinganna óðu hér upp í landsteina, ef þeim sýndist svo, án þess nokkurrar athugasemdar, hvað þá framkvæmdar, yrði vart hjá „vamarliðinu". Guðsteinn Þengilsson Að læra úr sér allt vit „Ertu ekki að verða búin að læra úr þér allt vit?“ spurði frænka mín í sumar þegar ég hitti hana í boði. Ég horfði undrandi á hana. Læra úr sér allt vit, hvemig er það hægt? Er það ekki einmitt þveröfúgt, að maður vitkast eftir því sem maður lærir? Ég man ekki hveiju ég svaraði þessari ágætu frænku minni. Spum- ing hennar varð hins vegar til þess að ég fór að velta fyrir mér sam- hengi skólagöngu, lærdóms, mennt- unar, þekkingar og vits. Þessir þættir þurfa ekki alltaf að fylgjast að og í rauninni er það kannski eins oft að þeir gera það ekki. Þegar ég vann á eyrinni sumrin 1973 og 1974 man ég að samstarfs- menn mínir töluðu oft af fyrirlitn- ingu um menntamenn. Þeir vom til einskis nýtir, gátu varla dýft hendi í kalt vatn og við þá var ekki ræð- andi sökum heimsku. Margir eyrar- karlanna höfðu gaman af að rifja upp dæmi þess að þeir höfðu rekið háskólastúdenta í sumarvinnu á gat með einföldustu spumingum. Mig létu þeir þó aldrei gjalda þess að ég var í skóla og hafði uppi áætlanir um að verða það mörg ár enn. Ríkjandi viðhorf ennþá Þó að 13-14 ár séu liðin síðan þetta gerðist virðist mér þetta viðhorf tii mennta enn vera ótrúlega algengt meðal viss hóps fólks á íslandi. Menntun er ennþá talin ef ekki af hinu illa þá að minnsta kosti ekki til neins góðs. Þetta er kannski skiljanlegt í hópi þess fólks sem aldrei hefur átt þess kost að komast til neinna mennta. Bæði er það skiljanlegt að ekki sé hægt að gera sér grein fyrir því sem maður aldrei hefur eignast og eins hitt, að það sem maður veit að aldr- ei er hægt að eignast verður maður að ímynda sér að sé lítils virði. „Þau em súr,“ sagði refurinn þegar hann náði ekki í vínberin. Það em hins vegar ekki eingöngu hinir ómenntuðu Islendingar á full- orðinsárum sem hafa tileinkað sér þetta viðhorf. Þvert á móti er lung- inn úr þeirri kynslóð, sem byggt __________, - , ■ . ’ : . . i > ;_ KjaUaiiim Dóra Stefánsdóttir námsmaður í Danmörku hefur landið, sér meðvitandi um gildi menntunar og þekkingar. Það fólk þreytist ekki á að hvetja mennta- menn til dáða og vill allt leggja í sölumar fyrir þá. Engum er betur ljóst en þessum stóra hópi hvers virði menntun er. Hins vegar virðist mér æ undar- legra því lengur sem ég hugsa um það hversu ungt og skólagengið fólk getur verið blint á þessa staðreynd. Það er eins og að þrátt fyrir alla skólagönguna hafi þetta fólk ekki menntast neitt. Þetta væri kannski sök sér ef það væri ekki fólk úr akk- úrat þessum hópi sem virðist stjóma íslenskum menntartiálum að vem- legum hluta. Þetta em hörð orð, harðar ásakanir. Ég gerði það ekki ef ég þættist ekki hafa fúllnægjandi rök fyrir máli mínu - staðreyndir w.Ij i i\ la lij i nl k> n um þekkingarskort sem virðist ráða ferðinni í íslenskum menntamálum. Dæmi um mistök á mistök ofan Tökum nokkur dæmi (aðeins örfá af nýmörgum sem alls staðar má finna): - Laun kennara em svo lág og annar aðbúnaður svo slæmur að þegar ég fór frá íslandi um mánaða- mótin ágúst og september vantaði kennara um nær gjörvafla lands- byggðina. Þetta var þrátt fyrir að auglýst hefði verið lon og don eftir kennurum og þeim boðin allra handa fríðindi fram yfir kaupið og einnig þrátt fyrir þá staðreynd að í landinu finnst aragrúi fólks sem er búið að mennta sig árum saman af því að það langar til að verða kenn- arar. Þessi löngun er ekki nóg til þess að vega upp á móti þeirri fyrir- litningu sem kennarar finna streyma á móti sér frá stjómendum mennta- mála. - Maður, sem staðið hefur fyrir að efla sérkennslu í sínum lands- fjórðungi, er rekinn úr starfi, að því er virðist beinlínis fyrir það. Hann hafði eytt of miklum peningum. Nú á að skera niður allan „óþarfa“ í kennslumálum, hvort heldur hann heitir sérkennsla, kennsla í listgrein- um eða öðrum aukafögum. Böm, sem eiga þeirrar ógæfu að gjalda að vera fædd öðmvísi en önnur böm (hvort heldur það er með sérstaka hæfileika eða skort á öðrum), verða að gjöra svo vel að samhæfa sig öll- um hinum, eða þau geta átt sig. Kerfið gerir að minnsta kosti ekkert fyrir þau. Þau böm, sem em að ein- hveiju leyti sérstök en em samt svo heppin að eiga bæði heima í Revkja- vík og ríka foreldra, geta sem betur fer ennþá fengið hjálp. Það þarf hins vegar að leita eftir henni og borga fyrir hana. - Unnið er að því leynt og ljóst að gera fólki erfitt að komast i lang- skólanám. Námslán em skert, ekki er lánað til allra sem gjaman vilja læra eitthvað (það fer bæði eftir því hvað menn vilja læra og hvar þeir vilja læra það) og alltaf er verið að tala um að herða endurgreiðslur. Það þarf takmarkalausa ástríðu á námi, algera fiTÍrlitningu á eigin fjölskyldu (ef maður er búinn að eignast hana áður en námi lýkur) og óbilandi sannfæringu um að það sé rétt sem maður er að gera til að ljúka námi. Við sem erum langt komin getum ennþá þraukað en það sást í haust að margir leggja ekki í að byrja. I fyrsta sinn í mörg ár fækk- ar þeim sem sækja um námslán, sem og þeim sem sækja um inngöngu í Háskólann þrátt fyrir það að ennþá séu mjög stórir árgangar á þeim aldri sem venjulegt er að leiti sér mennt- unar. Ertil menntastefna? Eins og ég sagði fyrr: aðeins örfá dæmi af mörgum um þann fáránleika sem virðist ráða íslenskri mennta- stefhu, ef slík stefiia er þá til. Um slíkt leyfi ég mér hins vegar að ef- ast. Ég hef ekki heyrt um neinar athuganir á því hverjir séu hugsan- legir framtíðamámsmenn, hvað sé vænlegt að kenna þeim og þaðan af síður á hvem hátt. Allt slíkt er látið reka á reiðanum og talið fullvíst að fólk sjái um það sjálft að koma sér til þeirra mennta sem þjóðfélaginu og því sjálfú þjóni best. Éf það geng- ur ekki má alltaf yppta öxlum og segja upp á amerísku „too bad“. Það virðist gleymast að ekkert sprettur af engu. Til þess að ungt fólk leggi í að leita sér menntunar verður það að finna bæði að þess sé talin þörf og að það sé einhvers metið. Ekki fyrst og fremst í launum eða öðrum efnalegum gæðum heldur miklo fremur í viðurkenningu þess að menntun sé þjóðinni sem heild til góðs, öll menntun. Ekki bara menntun fárra afreksmanna sem standa sig síðar vel (jafnvel á er- lendri grund) heldur menntun þjóðarinnar sem heildar. Til þess að von sé á afreksmönnum er algerlega nauðsynlegt að efla alla grunnmenntim. Ég vona að Jóhann Hjartarson fyTÍrgefi mér það að ég tek hann hér (að honum forspurðum) sem dæmi. Hann stóð sig alveg feiki- lega vel á taflmóti á erlendri grund í sumar og öll þjóðin samgladdist honum. Ég veit að hann er mikill snillingur og hefur auðvitað fæðst með algera sérgáfu. Lítum hins veg- ar á hvemig að henni hefur verið búið. 1 öllum skólum er teflt frá blautu bamsbeini til að standa sig vel í taflíþróttinni. Haldin em enda- laus mót og veitt vegleg verðlaun. Þeir hæfustu fá stanslausa uppörvun og hvatningu. Það er ekki nema ein leið f>TÍr þá. upp. Hefði Jóhann verið svo óheppinn að fæðast úti á landi. sonur efnalít- illa foreldra og heföi hlotið. váð skulum segja tónlistarhæfileika i vöggugjöf er ekki víst að svona vel heföi farið. Erfiðleikamir við að koma honum til tónlistamáms heföu verið endalausir, kannski enginn kennari, kannski ekki nógu gott hljóðfæri í skólanum til að kenna sæmilega á, kannski em ekki til peningar fyrir kennslunni. Þetta heföu þó kannski verið yfirstíganleg- ir erfiðleikar ef ekki hefði jafiivel bæst ofan á fyrirlitning þorpsbúa á hinni undarlegu iðju að glamra stanslaust á eitthvert hljóðfæri. Sem betur fer em menn í þorpum úti um allt land að verða glöggir á það gildi sem tónlistamám getur haft fyrir böm. Betur að hið sama væri hægt að segja um forráðamenn menntamála. Að þeir væm sér með- vitandi um hversu ómetanlegt gildi það hefur bæði fyrir námsfólk og þjóðina sem heild að menn leggi óhikað út í nærri hvaða nám sem er í þeirri fúllvissu að það komi sér áreiðanlega vel fyrir einhvem, ein- hvem tíma, á einhvem hátt. Dóra Stefánsdóttir „Böm, sem eiga þeirrar ógæfu að gjalda að vera fædd öðruvísi en önnur börn (hvort heldur það er með sérstaka hæfileika eða skort á öðrum), verða að gjöra svo vel að samhæfa sig öllum hinum, eða þau geta átt sig.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.