Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Page 19
Glæsilegur árangur Valsmanna í A-Þýskalandi: Guðmundur Baldursson fórá kostum í markinu - þegar Valsmenn gerðu jafntefli, 0-0, gegn Wismut Aue „Allir strákamir náðu að sýna sitt besta gegn Wismut Aue - þeir léku frábærlega," sagði Hörður Hilmars- son, liðsstjóri Islandsmeistara Vals, eftir að þeir höfðu náð jafntefli, 0-0, gegn a-þýska félaginu Wismut Aue í UEFA-bikarkeppninni í gærkvöldi. Uppselt var á leikinn sem fór fram í Aue - lítilli borg fyrir sunnan Karl- Mai-z Stadt. 20 þús. áhorfendur sáu leikinn sem fór fram kl. 5 í gær í mikl- um hita. „Ástæðan fyrir því að við lékum svo snemma var að ekki voru flóðljós á vellinum," sagði Njáll Eiðs- son, miðvallarspilari Valsliðsins. „Þessi leikur var sigur fyrir vamar- leik okkar. A-Þjóðverjamir fengu ekki mörg tækifæri. Þegar þeir fengu færi sá Guðmundur Baldursson til þess að þeir næðu ekki að nýta þau,“ sagði Hörður. „Já, Guðmundur var frábær. Hann sýndi tvisvar sinnum mark- vörslu á heimsmælikvarða. Harrn byrjaði fyrst á því að verja þrumuskot frá einum A-Þjóðverjanna. Knöttur- inn hrökk út í teig þar sem annar A-Þjóðverji kom og skallaði hann að marki. Guðmundur náði þá á undra- verðan hátt að slá hann frá. Síðan varði hann glæsilega með því að kasta sér flötum í loftinu og góma knöttinn uppi í markhominu. Markvarsla Guð- mundar minnti mig óneitanlega á markvörslu Sigurðar Dagssonar þegar hann var upp á sitt besta,“ sagði Njáll. A-Þjóðverjamir sóttu meira í fyrri hálfleik. Þrátt fyrir það átti Valur Valsson tvö góð marktækifæri. Hann skaut t.d. góðu skoti sem strauk stöng. A-Þjóðverjamir bökkuðu í seinni hálf- leiknum og komu Valsmenn þá meira inn í myndina. „Það var gaman hvað þetta gekk vel hjá okkur. Mótspyma okkar fór í skapið á A-Þjóðverjunum sem vom mjög svekktir undir lokin,“ sagði Njáll. Valsliðið lék eins og hér heima, 3-5-2. „Ég særi ömgglega engan þegar ég segi að árangur okkar hér sé besti árangur félagsliðs frá íslandi í Evrópu- keppninni," sagði Hörður. „Strákamir léku yfirvegað, vömin var sterk og markvarslan frábær. Margir leik- mennimir léku sinn besta leik í sumar. A-Þjóðverjamir em með skemmtilegt lið en þá vantar markaskorara." Góðir möguleikar hjá Valsmönnum Valsliðið var þannig skipað: Guð- mundur Baldursson, Sævar Jónsson, Þorgrímur Þráinsson, Guðni Bergs- son, Njáll Eiðsson, Magni Pétursson, Valur Valsson, Hiimar Sighvatsson, Jón Grétar Jónsson og Sigurjón Kristjánsson. Þegar Guðni fór af leik- velli á 75. mín. kom Ámundi Sig- mundsson inn á. Magni tók stöðu Guðna í vöminni. „Við eigum góða möguleika á að komast áfram í UEFA-keppninni. Við munum leggja okkur alla fram heima," sagði Njáll Eiðsson. -SOS Óvæntustu úrslitin! Sigurður Bjömssan, DV, V-Þýskalandi Iþróttaþulur v-þýska ríkissjónvarpsins hafði stór orð um Valsliðið frá íslandi í gærkvöldi. Er hann las úrslit kvöldsins á Evrópumótun- um hafði hann það á orði að Valsmenn hefðu unnið þrekvirki með því að halda jöfiiu á útivelli og það í sjálfu A-Þýskalandi. Taldi þulur- inn úrslitin í leik Wismut Aue og Vals, markalaust jafntefli, þau óvæntustu í fyrstu umferð Evrópukeppninnar. -JOG • Valur Valsson sést hér á fullri ferð i baráttu við Ulf Einsiedel, vamarleikmann Wismut Aue. Símamynd Reuter Guðna Bergssyni var spavkað niður „Guðni verður orðinn góður fyrir Hilmarsson, liðsstjóri Vaismanna. Einn A-Þjóðverjinn braut þá gróf- landsleikinn gegn Norðmönnum. Guðni Bergsson varð að fara af lega á honum - sparkaði aftan í Meiðsli hans eru ekki eins alvarleg leikvelli þegar 15 mín. voru til leiks- kálfann á honum. og talið var í fyrstu,“ sagði Hörður loka á leik Wismunt Aue og Vals. -SOS : Rússneskur dómari | sýndi Valsmönnum j fimm gul spjöld Rússneskur „heimadómari" lék ■ . stórt hlutverk í leik Valsmanna I og Wistmut Aue. Hann sýndi fimm Valsmönnum gula spjaldið í leikn- um, þeim Jóni Grétari Jónssyni, Njáli Eiðssyni, Ingvari Guðmunds- syni, Guðna Bergssyni og Hilmari L Sighvatssyni. Já, Valsmenn fengu fimm gul spjöld. Þeir fengu aðeins að sjá tíu gul spjöld í átján leikjum í 1. deildar keppninfii. „Dómarinn var hreint ótrúlega lélegur. Hann sýndi okkur gul spjöld fyrir smámuni," sagði Njáll Eiðsson, leikmaður Valsmanna. „Það var til fyrirmyndar hvemig leikmenn okkar héldu ró sinni þrátt fyrir dómaramótlætið. Þeir létu dómarann ekki hafa áhrif á sig,“ sagði Hilmar Hsirðarson, liðs- stjóri Valsliðsins. -SOS • Guðmundur Baldursson. Guðmundur fékk mss- neska dúkku Guðmundur Baldursson, markvörð- ur Valsmanna, sýndi snilldartakta í Aue í A-Þýskalandi þegar Valsmenn náðu þar frábærum árangri. Hvað eft- ir annað klöppuðu 20 þús. áhorfendur honum lof í lófa. Eftir leikinn komu rússnesku línuverðimir til hans og gáfu honum rússneska trédúkku í við- urkenningarskyni. Eftir að línuverðimir höfðu gefið Guðmundi dúkkuna kom dómarinn á svæðið. Rússamir fóm þá að biðja Valsmenn um félagsmerki Vals. -sos

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.