Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1987, Síða 36
36
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1987.
Sviðsljós
Olyginn
sagði...
Stefanía Móna-
kóprinsessa
hefur þessa dagana frið fyrir
afskiptasemi föðursíns, Raini-
ers fursta. Karlinn vill alltaf
vera að skipta sér af Stebbu
sinni og er margt eða flest í
hennar fari sem fer í taugarnar
á þeim gamla. Til dæmisfinnst
honum kærastinn ekkert til að
hrópa húrra fyrir og ýmislegt
sem Stefanía tekur sér fyrir
hendur. En í bili er friður því
Rainier sér ekkert annað í ver-
öldinni en nýja barnabarnið,
yngsta son Karólínu. Er hrifn-
ingin svo mikil að furstinn sér
ekki einu sinni sólina fyrir
honum, barnið skyggir á allt
annað en sjálft sig.
En Stefanía er ánægð með
gang mála. Rainier bíður svo
bara eftir því að Stefanía fari
að róast, finni sér almennileg-
an mann og fari að eiga börn
líkt og systir hennar.
Woody Allen
er með eindæmum sjóhrædd-
ur maður. Eins og heitan eld
forðast hann að fara í sjóferð
en vissulega hefur hann þurft
þess á lífsleiðinni. Woody
segir að hann hafi tvisvar
sinnum á ævinni siglt árabát.
„Það var ægilegt," segir hann.
„I bæði skiptin varð ég sjó-
veikur, sólbrann og féll fyrir
borð." Síðan hefur hann ekki
róið sjálfur og vill sem minnst
um það tala. Hann segist þó
ekki þeinlínis vera vatns-
hræddur heldur sé það
einhver óskiljanleg hræðsla
við sjó sem angri hann.
Linda Evans
eyðir góðri summu í fatakaup
í viku hverri. Oftast slagar sú
upphæð í hundrað þúsund
kallinn, stundum er hún hærri
og stundum lægri. Miklum
fjármunum ver hún svo í snyr-
tivörur og annað sem tengist
úlitinu. Þegar hún er spurð að
því hvers vegna hún eyði svo
miklum peningum í föt svarar
hún ákveðin að margur eyði
nú tífalt meira en hún. Svo
bætir hún við að á meðan
fólk hafi efni á því sem það
langar til eigi það bara að láta
hlutina eftir sér.
Jannike þykir vera hógvær og hefur aldrei sóst eftir peningum Björns. Björn Borg ásamt syninum sem hann heldur mjög mikið upp á. Sonurinn
Hana langar til að starfa við snyrtivörur i framtíðinni. heitir Robin og er tveggja ára. „Það er mikið atriði að skilnaöurinn komi
ekki illa niður á honum,“ segir Björn.
Skilnaður Björns Borg og Jannike
Björling hefur vakið mikla athygli.
Þau byrjuðu að vera saman fyrir
þremur árum þegar Jannike var að-
eins átján ára og Björn tuttugu og
átta ára. Saman eiga þau soninn
Robin sem er tveggja ára.
Bjöm vill sem minnst segja um
skilnaðinn en kunnugir segja að síð-
astliðið vor hafi Jannike alvarlega
verið farin að ókyrrast í sambandinu.
Stúlkan er ung að árum og hefur
þessi þrjú ár með Bimi verið bundin
honum og hans ráðagerðum. Hann
hefur viljað stjóma henni of mikið,
ráða hvað hún gerir og hveija hún
hittir. Æskuvinina hefur hún sára-
sjaldan fengið að hitta síðan þau
hófu búskap og fleira í þeim dúr.
Vitanlega er þvílíkt óþolandi til
lengdar og ekki síst fyrir komunga
manneskjuna. En svo var það síðast-
liðið vor, þegar Björn var einhvers
Strax eftir að fréttist um skilnaðinn var sagt að Bjöm heföi i samkvæmi i
London komist I kynni vjð sautján ára gamla stúlku, Mandy Smith.___________
staðar úti í heimi á ferðalagi að
Jannike fór út að skemmta sér með
yngri systur sinni. Þegar bóndinn
kom heim varð hann alveg æfur yfir
því að hún hafði vogað sér út að
skemmta sér án hans. Þá var Jannike
nóg boðið. Hún pakkaði niður í
tösku, tók soninn unga og barði að
dyrum í föðurgarði. Síðan þetta gerð-
ist hefur ýmislegt gengið á. Jannike
hefur risið úr sæti og barið í borð
og sagt hingað og ekki lengra. Og
nú er svo komið eins og raun ber
vitni.
Skilnaðurinn fer fram í mesta bróð-
erni, að minnsta kosti segir Jannike
svo vera. „Við erum bestu vinir
áfram. En Bjöm er það skynsamur
að hann hlýtur að skilja að ég þoli
ekki lengur að vera lokuð inni eins
og fugl í búri,“ segir Jannike. „Því
verðum við að slíta sambandinu því
að hann getur ekkert breytt sér og
sínum viðhorfum."
Jannike þykir vera hógvær ung
stúlka sem hafi aldrei sóst eftir pen-
ingum Bjöms. Svo gerir hún heldur
ekki nú þegar þau slíta samvistum
en Bjöm segir að hann muni sjá til
þess að mæðginin fái góða íbúð og
hafi það gott. „Það er frumskilyrði
að sonurinn hljóti engan skaða
vegna skilnaðarins," segir Bjöm.
Jannike segir að hún muni alveg
örugglega spjara sig án Björns. Hana
langar til að starfa í snyrtivöruiðn-
aðinum og hyggst jafnvel setja á
stofn eitthvert fyrirtæki eða verslun
en hún hefur lengi haft áhuga á
starfi tengdu snyrtivörum.
Um leið og tilkynnt var um skiln-
aðinn fréttist af Björn í samkvæmi í
London þar sem hann á að hafa hrif-
ist af Mandy Smith, sautján ára
gamalli stúlku, fyrrverandi kæmstu
Byll Wyman í Rolling Stones. En
Bjöm þvertekur fyrir að hafa átt
vingott við hana. Hann segist ein-
ungis hafa hitt stúlkuna í þessu
samkvæmi og ekkert annað.
Konunglegar
grettur
Sannarlega konunglegar grettur þarna á ferðinni. Eins og sjá má er þetta
hin eina og sanna Sarah Ferguson en í fylgd móður sinnar Susan Barrantes.
Þær mæðgur sýndu þessi stórkostlegu tilþrif þegar þær fylgdust með tenni-
skappleik ekki alls fyrir löngu.