Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987. 5 Fréttir Um 40% af því áfengi sem selst í Reykjavík, er selt I Kringlunni. gítarskóli *^~ÖLAFS GAUKS SÍÐASTAINNRITUNARVIKA. Opið í skólanum, Stórholti 16, klukkan 2-5 daglega, sími 27015. Upplýsingar á öðrum tíma í síma 685752. Afhending skirteina laugardaginn 26. sept. kl. 3-6 síðdegis. Ríkið í Kringlunni: Með 40 prdsent af vínsölu í Reykjavík Verslun ÁTVR í Kringlunni er með 40 prósent af magni víns seldu í Reykjavík en aðeins 30 prósent af söl- unni í krónum talið. „Skýringin er sú að það er mun meira selt af léttu víni í Kringlunni en öðrum verslunum okkar,“ segir Höskuldur Jónsson, for- stjóri ÁTVR. Höskuldur segir að sjálfsafgreiðslan hafi sannað sig í að vera skynsamleg út frá rekstrarsjónarmiði. „Það hefur fallið í góðan jarðveg hjá fólki að geta skoðað sig um og nálgast vínið öðru vísi en áður. Ég tel þetta vera ástæð- una fyrir að meira selst af léttu víni í Kringlunni en annars staðar, því teg- undimar em þær sömu.“ Sú nýjung er í Kringlunni að hver flaska er með sérstakan miða sem raf- sjá (scanner) les af þegar vínið er borgað. Þannig sjá þeir að kvöldi ná- kvæmlega hvað hefur selst; hvaða tegund, upphæð, fjöldi flaskna, lítra og alkóhóllítra. Engin önnur verslun er með slíkt kerfi í Reykjavík. „Þetta hefur gengið mjög vel í Kringlunni, ég átti þó von á meiri veltu, ég reiknaði ekki með svo mik- illi sölu léttra vína.“ -JGH Iðntæknistofnun: Sex milljónir til vöruþróunar Iðntæknistofnun er að hefja nýtt átak í vömþróun og verða veittar sex milljónir króna á þessu ári til þessa verkefhis. Markmiðið er að aðstoða fyrirtæki og einstaklinga til þess að þróa vörur sem samkeppnishæfar em á heimamarkaði og hæfar til útflutn- ings. Þá er von á meira fé til þessa átaks á næsta ári. Á blaðamannafundi, sem haldinn var til kynningar á fyrirhuguðu vöm- þróunarátaki, kom það fram hjá Páli Kr. Pálssyni, forstjóra Iðntæknistofn- unar, að stofhunin myndi styrkja ákveðin vömþróunarverkefni um 25% af áætluðum kostnaði og væri hug- myndin sú að velja tiltölulega fá verkefni. Meðal skilyrða við val á verkefhum er að vinnan taki ekki lengri tíma en 24 mánuði og áhersla er lögð á það að sá sem stýrir vinn- unni fyrir hönd fyrirtækisins sé hæfur til verksins og að fjárhagsstaða fyrir- tækisins sé viðunandi að mati stofnun- arinnar. Stefrit er að því að fagdeildir Iðntæknistofnunar taki þátt í sem flestum verkefhunum og að skipulag og stjómun sé í höndum rekstrartæk- nideildar Iðntæknistofnunar eða sambærilegra aðila. Vömþróunará- takið er fjórmagnað af Iðntæknistofn- un og Iðnlánasjóði. Karl Friðriksson hagfræðingur hef- ur verið ráðinn verkefnisstjóri og mun hafa eftirlit með framvindu verkefna og umsjón með fjármála- og fram- kvæmdaþáttum. Ásamt honum mun sérstakt verkefnisráð sjá um stjómun og skipulagningu og ber ábyrgð á verkefninu. -ój OPNUNARTILBOÐ 4 20 TOMMU SAMSUNG LITSJONVARRSTÆKI MEÐ ÞRAÐLAUSRI FJARSTYRINGU FYRIR AÐEINS KR. 33.900 Monitor útlit Tvöfalt hótalarakerfi Sjálfvirkur stöðvarleitari 48 rásir 1 ó stöðva minni Heyrnartólsútgangur Bein vídeótenging (monitor eiginleikar) Hlífðargler fyrir skermi JAPISS BRAUTARHOl T 2 KRINGLAN SiMI 27133 jurii-sf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.