Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
Útlönd
A knattspymuleik þrátt fyrir samsæri
Foreœtisráðherra írlands, Charles
Haughey, lét sem ekkert vœri og
horföi á knattspymuleik í Dublin
áaamt sjötíu þúsund öðrum áhorf-
endum þrátt fyrir fregnir um raeint
samsæri gegn honum.
Frétt birtist í írsku blaði í gær um
að öfgasinnar mótmælenda heföu
lagt á ráðin um að myrða foraætis-
ráðherrann. Sagði í fréttinni að
fenginn hefói verið til verksins fyrr-
verandi hermaður frá Bretlandi.
Einnig var greint frá því i blaðinu
að ef tilræðið viðforsætisráðherrann
misheppnaðist heföi verið ákveðið
að ráða af dögum annaðhvort utan-
ríkisráðherra írlands eða fyrirrenn-
ara hans.
Þrír slósuðust í flugslysi
Þrír slösuðust er þota frá Flugfé-
lagi Filippseyja lenti á grasi grónu
svæði fyrir utan flugbraut á alþjóða-
flugvellinum í Manila, aðeins
nokkra metra frá fjölfömum vegi.
Hundrað Qörutíu og átta farþegar
vom um borð i þptunni sem var að
koma frá Singapore.
Breyting varð á vindátt í þann
mund sem þotan var að lenda og
segir talsmaður flugumferðarstjám-
ar að þotan hafi komið of hratt inn
til lendingar.
í júni hrapaði flugvél frá sama
flugfélagi fyrir norðan höfuðborgina
og létust þá allir sem um borð voru
eða fimmtíu manns.
Háiíðahöld í Moskvu
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi var hvergi sjáanlegur er Moskvubúar
héldu upp á átta hundmð og fjörutíu ára afinæli borgarinnar á Rauða torg-
inu á laugardaginn. Einnig var þess minnst að í október em liðin sjötíu ár
frá því að bylting bolsévíka var gerð.
Þúsundir Moskvubúa höfðu safhast saman á Rauða torginu í tilefrii hátíða-
haldanna en aðeins þeir sem vom með boðskort fengu aðgang að setningu
hátíðahaldanna. Víðs vegar um borgina fóm síðan fram ýmiss konar skrúð-
göngur, hljómleikar og sýningar.
Sévardnadse baðst afsökunar
Bandaríska vamarmálaráðimeyt-
ið hefúr tilkynnt að bandaríski
hermaðunnn, sem særðist er skotið
var á hann og félaga hans í Austur-
Þýskalandi á fimmtudaginn, hafi
ekki verið á bannsvæði.
Einn eða tveir svartklæddir sové-
skir hermenn skutu á farartæki
Bandaríkjamannanna og komu sjö
göt eflir byssukúlur á það.
Utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
Edvard Sévardnadse, sagði að sam-
kvæmt skýrslu frá Moskvu heföu
Bandaríkjamennimir verið að taka
myndir nálægt bannsvæði. Sé-
vardnadse baðst afeökunar á atvík-
inu á fréttamannafundi á föstudag-
inn.
Líbanskir þjóðvarðliðar til libýu
Leiðtogi drúsa í Líbanon, Walid
Jumblatt, kvaddi í gær eitt þúsund
þjóðvarðliða sem ætla að taka þátt
í stríði Líbýumanna gegn Chad.
Aðspurður játti Jumblatt því að hon-
um hefði vcrið boðin efrmhagsleg og
hemaðarleg hjálp í staðinn fyrir
þjóðvarðliðana.
Jumblatt sagði að samkomulag
hefði náðst um að senda þjóðvarðlið-
ana er hann heimsótti Trípólí í
síðasta mánuði.
DV
Herlög hugsanleg
á Filippseyjum
Leandro Alejandro, formaður Þjóð-
emisfylkingarinnar, sem eru samtök
vinstri flokka á Filippseyjum, var
myrtur á laugardaginn. Talsmenn
Þjóðemisfylkingarinnar segja að
öfgamenn úr hemum hafi verið þama
að verki. Skella þeir allri skuld á ríkis-
stjóm landsms og krefjast tafarlausrar
afeagnar hennar.
Ekki hefur enn verið ákveðið hven-
ær jarðarför Alejandros fer fram en
talsmenn Þjóðemisfylkingarinnar
hafa lýst því yfir að í kjölfar hennar
verði meiri háttar mótmæli gegn vax-
andi fasisma í landinu.
Vinstri flokkamir, sem höfðu boðað
til mótmælaaðgerða og verkfalla frá
og með deginum í dag, hafa lýst því
yfir að morðsins verði hefnt en þeir
lýsa því á hendur hægri sinnuðum
hermönnum.
Hefiidaraðgerðir hafa heldur ekki
látið á sér standa. I gær réðust 500
manna sveitir kommúnista á jám-
brautarlest í norðurhluta Camarines-
héraðs og neyddu farþega til að
leggjast á gólfið meðan þeir fóm á
lestinni í nálægt bæjarfélag og réðust
á bækistöðvar lögreglu. Þeir létu þó
ekki þar við sitja heldur sprengdu
jámbrautarbrú og festu þar með lest-
ina. Einnig var ráðist á ráðhús í
bænum Del Gallego í suðurhluta hér-
aðsins.
Aquino má því búast við miklum
mótmælurn þessa viku en í gær vom
göngur haldnar í Manila þar sem betri
borgarar sýndu stuðning sinn við
stjóm hennar.
Herinn er nú í viðbragðsstöðu í
kringum höfuðborgina og er ætlunin
að vera á varðbergi bæði gagnvart
hugsanlegum heihdaraðgerðum
vinstri manna sem og leifum hægri
sinnaðra uppreisnarmanna.
Ekkja Leandro Alejandro sést hér fella tár yfir líki manns síns.
Sem mótvægi við fyrirhugaðar mót-
mælaaðgerðir vinstri manna hafa
hægrisinnuð öfl boðað til athafiia til
að halda upp á það að í vikunni em
liðin fimmtán ár frá því að stjóm
Marcosar, fyrrum forseta landsins,
setti herlög. í ljósi hugsanlegra
Símamynd Reuter
hefndaraðgerða hefur forseti landsins,
Corazon Aquino, kallað saman fund í
herráði í dag og hefur verið gefið í
skyn að ætlunin sé að ræða hugsanleg
neyðarlög, jafnvel að sett verði herlög
í landinu ef drápunum linnir ekki, til
að koma á lögum og reglu að nýju.
Páfi tók upp málstað indíána
Jóhannes Páll páfi II hélt messu fyrir þrjú þúsund kanadiska indiana í Fori
Simpson i gær. Símamynd Reuter
GeIí Guðrramdsson, DV, Onlaiio:
Að lokinni tíu daga för sinni um
Bandaríkin kom Jóhannes Páll páfi
II gagngert til Fort Simpson til að
heimsækja kanadíska indíána af
dene-ættbálk á fomum verslunarstað
þeirra í norðvesturríkjunum. Þar hélt
páfi þriggja klukkustunda langa
messu fyrir framan þrjú þúsund inn-
fædda. Var messan haldin við risastórt
indiánatjald.
Þó för páfa hafi aðallega verið af
trúarlegum ástæðum þá vonuðust inn-
fæddir til að hann myndi í ræðu sinni
gefa út yfirlýsingu sem styddi baráttu
innfæddra fyrir eigin sjálfræði og við-
urkenningu stjómvalda um að láta
þeim eftir land -sem þeir telja að hafi
ávallt verið sitt. Páfi brást ekki vonum
innfæddra. í ræðu sinni sagðist hann
vonast til að innfæddir fengju aftur
land sitt og sjálfræði ásamt nauðsyn-
legu tækifæri til að geta lifað í sátt
og samlyndi við stjómvöld í Kanada.
Eftir athöíhina var páfi spurður á
móðurmáli sínu hvort innfæddir
þyrftu á hjálp að halda í baráttu sinni.
„Já, þess vegna er ég hingað kom-
inn,“ svaraði páfi.
Tveimur og hálfri klukkustund eftir
messuna í Fort Simpson steig páfi um
borð í flugvél sem flutti hann heim í
páfagarð.
Páfi á tali við innfædda i Fort Simp-
son. Sagðist hann vona að þeir fengju
aftur land sitt.
Símamynd Reuter