Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Page 10
10
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
Utlönd
Báðu um pólitsskt hæll
Sextíu þeirra áttatíu hermanna frá
Nicaragua, sem contraskæruliðai-
létu lausa í Costa Rica fyrir helgi,
hafa beðið um pólitískt hæli. Hinir
tuttugu hafe þegar verið afhentir
yfirvöldujn í Nicaragua, að því er
talsmaður stjómarinnar í Costa Rica
sagði.
Að sögn hermannanna höfóu þeir
verið meðhöndlaðir vel af skærulið-
um sem segjast hafe látið hermenn-
ina lausa í anda friðaráætlunar
Mið-Ameríkuríkja sem undirrituð
var þann 7. ágúst síðastliðinn. í
áætluninni var gert ráð fyrir lausn
pólitískra fanga. Hingað til hafa yfir-
völd í Niearagua ekki látið lausa
neina contraskæruliða sem teknir
hafa verið til fanga.
Sex milljónir ölþambara
Það er bjórtími á ný í Baejara-
landi. Á slaginu tólf á hádegi á
laugardaginn opnaði borgarstjórinn
í Miinchen fyTstu bjórtunnuna á
októberhátíðinni og þar með voru
hátíðahöldin sett en þau munu
standa yfir í sextán daga Um sjö
þúsund manns gengu í þjóðbúning-
um um götur borgarinnar og er slík
skrúðganga liður í hátíðahöldunum.
Búist var við að rúmlega sex millj-
ónir bjórunnenda hvaðanæva úr
heiminum kæmu til að svolgra í sig
mjöðinn.
Fjörugar skattaumiæður
umræður sem þar hafe ferið fram í fiörutíu ár. Eftir umræðtimar var frum-
varp stjómarinnar um tekjuskatt og virðisaukaskatt samþýkkt. Þingmenn-
imir þrjú hundruð og fjömtíu höföu ýmislegt að athuga við frumvarp
stjómarinnar og köstuðu menn sér á næsta hljóðnema til að segja álit sitt
á því. Tekjuskatturinn getur orðið allt að sextíu prósent og virðisaukaskatt-
urinn allt að tuttugu prósent. Skattalöggjöfin tekur gildi á næsta ári.
Fómaríamba jarðskjátfta mlnnst
A laugardaginn var þess minnst í
höfuðborg Mexíkó að tvö ár voru
liðin frá því að átta þúsund manns
létu þar lífið í miklum jarðskjálftum.
Híddnar vom messur allan daginn
og ættingjar fómarlambanna heim-
sóttu rústirnar þar sem ástvinir
jeirra höfðu látið lífið.
Messa var einnig haldin þar sem
áður haföi verið tuttugu og tveggja
hæða hús en það jafnaðist við jörðu.
Yfirvöld sögðu að fimm hundmð
manns hefóu farist er það hrundi en
ættingjar fullyrða að hinir látnu
hafi verið eitt þúsund.
Borgaryfirvöld segja að viðgerðum
á húsum, er skemmdust í jarðakjálft-
anum, verði lokið eftir hálft ár.
Ókinná
Þrír menn létu lífíö og þrír særð-
ust á laugardaginn er vömbíl,
skrásettum i Englandi, var ekið á
gesti er sátu fyrir utan krá í borg-
inni Evreux í Frakklandi.
Bfistjórinn missti stjóm á vöm-
bílnum er bíll fyrir fraraan hann
beygði án þess að gefe viðvörunar-
merki Bílstjóri vörabilsins slapp við
meiðsli en hann fékk taugaáfaU.
Leiðtogafundur
araba í Jórdaníu
Utanríkisráðherra iraks við upphaf fundar utanríkisráðherra Arababandalags-
ins í Túnis í gær. Símamynd Reuter
Arabaríkin hafa boðað til toppfund-
ar í Jórdaníu eftir sjö vikur vegna
Persaflóadeilunnar. Þar með er Sam-
einuðu þjóðunum gefinn kostur á að
koma á vopnahléi en Javier Peréz de
Cuellar, aðalritari Sámeinuðu þjóð-
anna, er að reyna að koma af stað
viðræðum milli íran og írak.
Þetta var niðurstaðan af fundi utan-
ríkisráðherra Arababandalagsins, sem
haldinn var í Túnis nú um helgina,
en meðlimir bandalagsins höfðu hótað
að-slíta stjómmálasambandi við íran
og höfðu gefið frest til 20. september
til að koma á vopnahléi.
Meðlimir bandalagsins em engan
veginn einhuga um ágæti þess að slíta
stjómmálasambandi við Iran og em
nokkur ríki, t.a.m. Sýrland og Alsír,
beinlínis andvíg slíku.
í gær gerðu írakar loftárásir á bæki-
stöðvar frana á Kargeyju og íranskir
fallbyssubátar réðust á saudiarabískt
olíuflutningaskip í mynni flóans. íran-
ar virðast því vera famir að svara
hverri árás íraka með árás á skip þjóða
sem eru vinveittar stjóminni í Bagdad.
Alda pólitískra
morða á Sri Lanka
Jón Ormur HaMórssan, DV, Landan;
Ótryggur friður hefur ríkt á Sri
Lanka síðustu vikumar frá því að frið-
arsamningamir vom undirritaðir við
Indveija og tamíla. Á síðustu dögum
hafa þó að minnsta kosti hundrað
manns verið drepnir í öldu pólítískra
morða á eyjunni.
Átökin em nú milli stríðandi afla
innan tamílska minnihlutans. Skæm-
liðasveitir tamíltígranna höfðu fyrir
fáeinum mánuðum tryggt sér yfirráð
á svæðum tamíla á norðurhluta eyj-
unnar. Þrátt fyrir tilraunir þeirra til
yfirráða á austurhluta Sri Lanka er
andstaðan gegn þeim þar enn öflug.
Hundmð manna féllu í vor þegar bar-
dagar blossuðu upp á milli þessara
stríðandi fylkinga sem um tíma urðu
harðari en bardagamir við stjómar-
herinn.
Eftir friðarsamningana reyndu tam-
íltígramir að ná pólítískum yfirráðum
á öllu svæði tamíla en þetta mistókst
sérstaklega austast á eyjunni þar sem
aðrir hópar tóku stjómmálin í sínar
hendur. Tamíltígramir bmgðu á það
ráð í síðustu viku að myrða sjötíu
andstæðinga sína á tveimur dögum.
Samkvæmt friðarsamningunum ættu
skæruliðar að hafa afhent indverskum
hermönnum öll vopn sín en því fer
fjarri að þetta hafi gerst.
Indverjar standa nú frammi fyrir
þeirri ákvörðun hvort þeir þurfi að
ráðast til atlögu við skæruliða til þess
að ná af þeim vopnum. Ef þeir gera
það lenda þeir í ófyrirsjáanlegum
vandræðum gagnvart skæmliðum á
eyjunni og gagnvart íjölmennum hóp-
um meðal hinna sextíu milljón tamíla
á Indlandi sem em ekki ánægðir með
friðarsamningana. Ef indverski herinn
bíður hins vegar öllu lengur mun þol-
inmæði sinhalesa þrjóta en meðal
þeirra er ekki síður andstaða gegn
friðarsamningunum.
Vongóðir um fækkun
langdrægra kjamavopna
Bandaríkin og Sovétríkin hafa jafna
möguleika á að byggja ofan á bráða-
birgðasamkomulagið um útrýmingu
meðaldrægra eldflauga og bæta þar
við ákvæðum um fækkun langdrægra
eldflauga.
Þetta fullyrtu Frank Carlucci, ör-
yggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, og
öldungadeildarþingmaðurinn Sam
Nunn í sjónvarpsþætti í gær.
George Shultz utanríkisráðherra
sagði í öðrum sjónvarpsþætti að hann
ynni að því að hægt yrði að komast
að samkomulagi við Sovétríkin um
fækkun langdrægra kjamavopna um
helming. Shultz sagðist myndu ræða
fækkun langdrægra kjamavopna við
Sévardnadse er þeir koma saman í
næsta mánuði til að undirbúa fund
leiðtoga stórveldanna. Gorbatsjov
sagði í síðustu viku að hann teldi að
hægt yrði að komast að samkomulagi
um fækkun langdrægra kjamavopna
á næsta ári.
Samkvæmt samkomulaginu um eyð-
ingu meðaldrægra kjamavopna þurfa
Bandaríkjamenn að eyðileggja 348
kjamaodda á Pershing II eldflaugun-
um og stýriflaugunum. Sovétmenn
búi að lesa í Prövdu, málgagni kommúnistaflokksins, um að leiðtogar stórveld- þurfa að eyðileggja rúmlega 1500
anna muni hittast í haust. Símamynd Reuter kjamaodda
Fréttin um bráðabirgðasamkomulagið var birt um allan heim og hér er Moskvu-