Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987. 11 Fyrir fimmtán mánuðum var hliðunum að blaðinu La Prensa í Nicaragua lokað. Nú er útgáfa blaðsins leyfð á ný. Simamynd Reuter La Prensa kemur út að nýju Forseti Nicaragua, Daniel Ortega, heíur ailétt banni á útgáíu La Prensa, eina blaði stjómarandstöðunnar, og verður það ekki ritskoðað. Utgáfa blaðsins var stöðvuð fyrir fimmtán mánuðum þar sem því var gefið að sök að vera málpípa Reagan- stjómarinnar en hún styður contra- skæmliða fjárhagslega í baráttunni við stjóm sandinista í Nicaragua. Ákvörðunin um að leyfa útgáfu blaðsins er í samræmi við friðaráætlun forseta Nicaragua, Costa Rica, Hond- uras, E1 Salvador og Guatemala. í áætluninni var kveðið á um lýðræðis- legar breytingar í öllum Mið-Ameríku- ríkjunum og um vopnahlé í þeim þremur styrjöldum sem háðar em á svæðinu. Stjómarerindrekar telja ákvörðun- ina vera mikilvægasta atriðið hingað til í viðleitninni til að koma á tjáning- arírelsi í Nicaragua. Flóttamanni á sundi „bjargað" af Sovétmönnum Gizur Helgasan, DV, Lúbedc Eftir að hafa synt næstum því tutt- ugu og fimm kílómetra í Eystrasalti á flótta frá Austur-Þýskalandi til Danmerkur þá reið þungt áfaO yfir flóttamanninn. Suður af eynni Mön varð honum „bjargað" af sovésku flutningaskipi sem var á leið til Austur-Þýskalands. Flóttamaðurinn hélt ró sinni, þagði yfir því við Rússana að hann væri á flótta en sagði þess í stað að hann væri Vestur-Þjóðveiji frá Lubeck og hefði komist af úr sjó- slysi sem átt hefði sér stað fimmtán klukkustundum áður í Eystrasalti. Skipstjórinn á sovéska skipinu hafði samband við Lyngby útvarpið um slysið og lét vita af þessum ískalda, máttfama manni sem hafði svo naumlega bjargast. Stuttu síðar var haft samband við sovéska skipið frá sjóbjörgunarsveitinni dönsku í Árósum til að fá nánari fréttir af slysinu sem hlaut að hafa átt sér stað á dönsku björgunarsvæði. Sovéska skipið upplýsti að skip- brotsmaðurinn væri mjög hrakinn og danska björgunarsveitin taldi best að senda strax björgunarþyrlu á staðinn til þess að koma honum á sjúkrahús. Skipstjórinn sneri sam- vinnuþýður skipi sínu til móts við dönsku björgunarþyrluna. Skipbrotsmaðurinn upplýsti síðan lögregluna á flugvellinum í Værlöse um að hann væri aldeilis ekki frá Lubeck í Vestur-Þýskalandi heldur frá Austur-Þýskalandi. Hann upp- lýsti einnig að harrn væri sund- kennari þar austur frá og hefði æft lengi fyrir þetta langa sund. Kaupmannahafiiarlögreglan lét flytja manninn til skammtímadvalar á sjúkrahúsi og hann mun svo síðar fá heimild til að fara til Vestur- Þýskalands sem var hinn endanlegi áfangastaður. Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir °g Halldór K. Valdimarsson Osamkomulag um fiskveiðikvóta Gísli Guðmundssan, DV, Ontaiio: Samningaumleitanir Kanadamanna og Frakka um fiskveiðikvóta þeirra síðamefndu við hafið í kringum Ný- fundnaland sigldu í strand eftir níu tíma fundarsetu um helgina. Deilan snýst um hafsvæðið kringum eyjamar St. Tierre og Miquelon sem em í eigu Frakka en liggja rétt fyrir utan suður- strönd Nýfundnalands. Frakkar telja sig eiga rétt á tvö hundmð mílna lögsögu í kringum ey- jamar en Kanadamenn segja þá aðeins hafa heimtingu á tólf mílum. í samþykkt, sem þjóðimar gerðu sín á milli í janúar sl., var svo gengið frá að þjóðimar myndu reyna að ná bráðabirgðasamkomulagi um fiskveið- ikvóta handa Frökkum kringum eyjar þeirra fyrir tímabilið 1988 til 1991. Á meðan væri svo deilan um stærð haf- svæðisins í kringum frönsku eyjamar leystar á alþjóðavettvangi. Næstu fundur þjóðanna um fiskveiðikvótann verður haldinn í Ottawa í októberbyrj- un. Landsfaðirinn PáD VHhjálmsaan, DV, Ostó: Einar Gerhardsen, fyrrum forsæt- isráðherra Noregs og formaður Verkamannaflokksins, lést á sjúkra- húsi í Osló aðfaranótt laugardags. Gerhardsen átti síðustu vikumar við veikindi að stríða sem að lokum drógu hann til dauða. Hann kom síðast opinberlega fram á níræðisaf- mæli sínu þann 10. maí í vor í hófi sem Verkamannaflokkurinn hélt honum. Gerhardsen er sá maður sem leiddi norsku þjóðina úr fátækt og eymd eftir síðustu heimsstyijöld í velmeg- un og velsæld eftfrstríðsáranna. Harrn var forsætisráðherra í sautján ár, árunum 1945 til 1963. Formaður Verkamannaflokksins var hann frá stríðslokum 1945 til 1965. Gerhards- en er kallaður landsfaðirinn í Noregi og segir viðumefnið meira en mörg orð um stöðu hans í norskri stjóm- málasögu. Einar Gerhardsen fæddist 1897 og var af fátæku fólki kominn. Hann naut lítillar formlegrar menntunar og byijaði snemma að vinna fyrir sér. Hann var verkamaður í vega- vinnu. í Osló tók Gerhardsen snemma þátt í starfi Verkamannaflokksins sem heldur upp á aldarafmæli sitt í ár. Strax á þriðja áratug aldarinnar var Gerhardsen kominn í fremstu fylkingu Verkamannaflokksins þar. Laust fyrir hemám Þjóðverja var Gerhardsen kosinn borgarstjóri. Þjóðveijar hemámu Noreg í apríl 1940. Einar Gerhardsen tók þátt í andspymuhreyfingunni og var með- limur í Hjemmefronten sem var óopinberlega og ólöglega æðsta yfir- vald norsku andspymuhreyfingar- innar og starfaði í samráði við útlagastjómina í Lundúnum. Ger- hardsen var handtekinn af Gestapo 1941 og sendur í fangabúðimar Sachsenhausen í Þýskalandi. Þaðan var hann sendur i fangelsi í Noregi og sat hann inni þegar Þjóðveijar gáfust upp sumarið 1945. Viðurnefnið landsfaðirinn segir melra en mörg orð um stöðu Ein- ars Gerhardsen í norskri stjórn- málasögu. Um dvöl sína í fangabúðunum sagði Gerhardsen síðar að ef hann hefði vitað hvað biði hans eftir stríð þá hefði hann beðið einhveija sam- fanga sína að kenna sér ensku. „Nóg var af tungumálamönnum þar,“ sagði hann. Þrátt fyrir það víti sem fangabúðavistin var þá eignaðist Gerhardsen þar vini sem hann hélt sambandi við æ síðan. Þegar Þjóðveijar gáfust upp eftir Útlönd látinn fimm ára hemám ríkti efhahagslegt, siðferðilegt og pólítískt öngþveiti f Noregi. Verkamannaflokkurinn, með Einar Gerhardsen sem leiðtoga, náði fyrstur að skipuleggja sig, hreinsa út foðurlandssvikara í sínum röðum og leggja fram áætlun um endurreisn Noregs. Verkamannaflokkurinn fékk meirihluta þingsæta í fyrstu kosn- ingunum eftir stríð og hélt þeim meirihluta í hálfan annan áratug. Tímabihð er nefht eftir Gerhardsen sem var forsætisráðherra öll þessi ár. Á fyrstu tveimur áratugunum eftir stríð var velferðarríkið Noregur byggt upp frá grunni. Einar Gerhardsen taldi sig alla tíð sósíalista. Hann sagði einu sinni að það væri sögulegt hlutverk norska Verkamannaflokksins að sýna fram á að lýðræði og sósíalismi gætu farið saman. Á þriðja áratugnum gekk Gerhardsen í lið með þeim sósíalist- um sem höfhuðu vopnaðri byltingu en völdu umbótaleiðina í átt að betra og réttlátara samfélagi. Gerhardsen var alltaf þeirri skoðun sinni trúr að eina raunhæfa leiðin til réttlátara samfélags er að ná umbótum eftir þingræðislegum leikreglum. Einar Gerhardsen lét af for- mennsku Verkamannaflokksins 1965 og við tók Tryggve Bratteli. Gerhardsen settist þó ekki í helgan stein heldur hélt hann árlega fjölda fyrirlestra og lét oft til sín heyra á vettvangi Verkamannaflokksins og í opinberri umræðu. Hann var afar eftirsóttur fyrirlesari og fór landið þvert og endilangt til að halda ræð- ur. Hann tók virkan þátt í kosninga- baráttu Verkamannaflokksins svo seint sem 1985 þegar hann var orðinn áttatiu og sjö ára gamall. 2 traustir NI5SAN PATROL 3,3 díesel - 7 manna jeppi NISSAN PICK-UP 2,3 díesel Eigum þessa traustu Nissan bíla til á lager. Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 14-17. í iH 1957-1987 30 ára Verið velkomin - Alltaf heitt á könnunni mllMGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði. simi 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.