Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
Dægradvöl
Afram Leiftur! Örlagarík stund.
^ Leiftur frá Ólafsfirði:
I fyrsta skipti
í fyrstu deild
— með hjálp bæjarbúa
Síðastliðinn föstudag fór fram
knattspyrnuleikur milli Þróttar og
Leifturs frá Ólafsfirði á Þróttaravell-
inum í Reykjavík. Leikurinn var
mjög þýðingarmikill fyrir Leiftur því
með sigri gat liðið tryggt sér sæti í
1. deild sem það og gerði. Það vakti
þó mesta athygli hve margir stuðn-
ingsmenn fylgdu liðinu frá Ólafsfirði
til Reykjavíkur. Dægradvöl fór á
leikinn og hitti þar nokkra ákafa
stuðningsmenn Leifturs.
Ólafsfirðingar fjölmenntu
Á föstudag hafði Leiftur aldrei áð-
ur náð svo langt að eiga möguleika
á að komast í fyrstu deild knatt-
spyrnunnar. Einhver sagði þetta
ómögulegt því Ólafsfirðingar gætu
bara keppt á skíðum. Þeir sýndu þó
og sönnuðu að þeir geta ýmislegt
fleira en að renna sér á skíðum enda
naut lið Leifturs dyggilegs stuðnings
bæjarbúa. Fjöldi manna kom gagn-
gert frá Ólafsfirði til að hvetja sína
menn og leggja sitt af mörkum til
að koma þeim upp í fyrstu deild.
Einnig fjölmenntu brottfluttir Ólafs-
firðingar hvaðan sem er af landinu
á leikinn. Það þurfti ekki glögg-
skyggnan mann til að sjá hvar
Ólafsfirðingarnir héldu sig á meðal
áhorfenda. Flestir voru vel merktir
með derhúfur á höfðinu, umkringdir
skiltum með áletruðum hvatningar-
orðum og hvatningarhrópin gullu á
leikmönnum: Berjast Ólafsfirðingar!
Áfram Leiftur! Sýna hörku, strákar!
Án efa hafa þessar upphrópanir haft
mikil og góð áhrif á leikmenn Leift-
urs. Það má með sanni segja að
Ólafsfirðingar styðji vel við bakið á
sínu fólki.
Stuðningsmennirnir voru mjög
uppteknir við að hvetja sína menn
og gátu því varla gefið sér tíma fyrir
blaðamenn. Einn og einn var þó
hægt að draga út úr þvögunni og fá
til að segja nokkur orð.
„Frábær árangur“
Fyrstan hitti Dægradvöl að máli
Guðmund Ólafsson leikara en hann
er brottfluttur Ólafsfirðingur og býr
nú í Reykjavík. Ekki virtist Ólafs-
firðingurinn samt farinn úr ólafi því
hann var mjög spenntur. „Við hitt-
umst heima hjá mér fyrir leikinn og
ætlum svo að fagna saman á eftir,“
sagði Guðmundur.
- Eruð þið vissir um að vinna leik-
inn?
„Það væri náttúrlega mjög gaman
að vinna. Það væri hreint út sagt
frábær árangur ef liðið kæmist í
fyrstu deild. Leiftur hefur aldrei áður
náð svona langt. Þeir hafa ekki verið
nema ár í annarri deildinni svo það
væri gaman að komast beint upp í
þá fyrstu. En við fögnum hvemig sem
þetta fer því hvort sem þeir vinna
eða tapa þá er þetta frábær árangur."
- Ætla Olafsfirðingarnir að stoppa
lengi í bænum?
„Eg býst við að flestir fari heim
um helgina því Greifamir eru með
ball á laugardagskvöldið."
- Hverju vilt þú þakka þennan góða
árangur liðsins?
„Ég held að það sé vegna þess að
strákamir hafa mjög mikinn áhuga
á því sem þeir em að gera. Svo hafa
þeir geipilegan stuðning bæjarbúa
en það hefur mjög mikið að segja.“
Guðmundur snéri nú aftur inn í
hópinn og tók til við að hvetja lið
sitt. Það mátti ekki tæpara standa
því stuttu síðar skoruðu Leifturs-
menn fyrsta mark sitt.
Óendanleg bílalest
Næstan hitti Dægradvöl Hauk Sig-
urðsson frá Ólafsfirði. Hann er einn
dyggra stuðningsmanna Leifturs.
Haukur var meðal þeirra sem komu
akandi frá Ólafsfirði, 465 kílómetra
leið, gagngert til þess að styðja við
bakið á Leiftri. Við byrjuðum að
spyrja hvemig ferðin hefði gengið?
„Ferðin gekk mjög vel. Við fórum
suður í samfloti á eigin bílum og var
bílalestin alveg óhemju löng. Það
hefði sennilega verið ódýrara og ein-
faldara að leggja járnbrautarteina
beina leið suður.“
- Fylgirðu Leiftri oft á keppnisferð-
um?
„Já, ég hef gert nokkuð að því. Til
Guömundur Ólafsson leikari lifir sig ínn í hlutverkið ásamt félaga sfnum.