Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Page 33
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
49
Fólk í fréttum
Guðjón Baldvin Ólafsson
Guðjón Baldvin Ólafsson, forstjóri
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga, hefur verið í fréttum DV vegna
Útvegsbankamálsins.
Guðjón er fæddur 18. nóvember
1935 í Hnífsdal og ólst þar upp. Hann
lauk landsprófi frá Gagnfræðaskól-
anum á ísafirði og var í 1. bekk
menntaskóla. Guðjón sat í Sam-
vinnuskólanum 1952-1953 og var í
framhaldsdeild Samvinnuskólans
1953-1954. Hann hóf störf hjá Sam-
bandi íslenskra samvinnufélaga í
maí 1954 og varð framkvæmdastjóri
skrifstofu SÍS í London 1964-1968.
Guðjón var framkvæmdastjóri sjáv-
arafurðadeildar SÍS 1968-1975 og
framkvæmdastjóri Iceland Seafood í
Bandaríkjunum 1975-1986. Hann
hefur verið forstjóri SÍS frá 1987.
Kona Guðjóns er Guðlaug Brynja,
íþrótta- og teiknikennari, Guðjóns-
dóttir, bankafulltrúa i Rvík, Jóns-
sonar og konu hans, Jensínu
Sigurveigar Jóhannsdóttur.
Systir Guðjóns er Ásgerður, um-
ferliskennari, gift Sigurði Rúnari
Jónssyni, hljómlistarmanni í Rvík.
Foreldrar Guðjóns eru Ólafur
Kjartan Guðjónsson, kaupmaður á
Akranesi, og kona hans, Filippía
Jónsdóttir. Faðir Ólafs var Guðjón,
sjómaður í Hnífsdal, Ólafsson, b. á
Fæti, bróður Rannveigar, langömmu
Valdimars, föður Ómars varafrétta-
stjóra. Ólafur var sonur Sigurðar,
b. á Strandseljum, Þorsteinssonar,
b. í Ögri, Sigurðssonar, b. í Ögri,
Ólafssonar, lögsagnara á Eyri í
Seyðisfirði, Jónssonar. Meðal systk-
ina Sigurðar í Ögri var Ingibjörg,
amma Jóns forseta og langamma
Jóns Jenssonar, afa Jóhannesar
Nordals. Meðal afkomanda Ólafs á
Eyri eru Matthías Á. Mathiesen ráð-
herra, Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, Haraldur
Blöndal lögfræðingur, Styrmir
Gunnarsson ritstjóri, Geir Hall-
grímsson og Valur Amþórsson,
stjómarformaður SÍS.
Móðir Ólafs var Ásgerður Jens-
dóttir, b. í Amardal, Jónssonar,
bróður Halldórs, langafa Jóns Sig-
urðssonar viðskiptaráðherra.
Móðir Guðjóns, Filippía, er systir
Jóns, afa fréttamannanna Jóns
Baldvins og Atla Rúnars Halldórs-
sona. Faðir Filippíu var Jón Baldvin,
b. á Jarðbrú í Svarfaðardal, Hall-
grímsson, b. á Stóru-Hámundarstöð-
um, bróður Þorláks, langafa Bjöms
Th. Bjömssonar listfræðings. Faðir
Hallgríms var Hallgrímur, b. á
Stóru-Hámundarstöðum, Þorláks-
son, b. og dbrm. á Skriðu í Hörgár-
dal» Hallgrímssonar. Móðir Filippíu
var Þóra, systir Jórunnar, ömmu
Hafliða Hallgrímssonar sellóleikara
og Tryggva, afa Þómnnar Ash-
kenazy. Þóra var dóttir Jóhanns, b.
á Ytrahvarfi í Svarfaðardal, Jóns-
sonar, b. á Ytrahvarfi, Þórðarsonar,
bróður Páls, langafa Hermanns Jón-
assonar forsætisráðherra, föður
Steingríms utanríkisráðherra. Móð-
ir þeirra bræðra var Sigríður, systir
Jóhönnu, langömmu þeirra bræðra
Hallgríms, fyrsta forstjóra SÍS, Sig-
urðar, forstjóra SÍS, Jakobs fræðslu-
málastjóra og Aðalsteins, forstjóra
innflutningsdeildar SÍS, afa Áma
Ámasonar, frv. framkvæmdastjóra
Verslunarráðs.
Guðjón Baldvin Ólafsson
-r
Andlát
Afmæli
Þorbjörg Pálsdóttir
Þorbjörg Pálsdóttir lést 15. 9. sl.
Útför hennar verður gerð frá Foss-
vogskirkju í dag, mánudaginn 21. 9.,
kl. 10.30. Þorbjörg fæddist í Bú-
landsseli í Skaftártungu 1.1.1915 en
flutti ung að árum með foreldrum
sínum að Söndum í Meðallandi þar
sem hún ólst upp. Þorbjörg giftist
eftirlifandi manni sínum, Siguijóni
Bjömssyni, 1934 og sama ár fluttu
þau til Reykjavíkur þar sem þau
bjuggu til 1961. Það ár fluttu þau í
Kópavoginn þar sem Sigurjón tók
við stöðu Póst- og símstöðvarstjóra.
Þorbjörg hóf störf við pósthúsið í
Kópavogi 1962 og starfaði þar til
1985 er hún fór á eftirlaun.
Böm Þorbjargar og Siguijóns em
átta, fjórir synir og fjórar dætur, en
einn son misstu þau á fyrsta ári.
Böm þeirra em: Sigurrós Margrét,
f. 1934, er gift Jónasi Gunnari Guð-
mundssyni verkamanni. Þau búa í
Reykjavík og eiga tvo syni. Sigurrós
er starfsmaður hjá Tryggingastofn-
un. Hún hefur tekið virkan þátt í
félagsstarfi Sjálfsbjargar og er einn
af stofnendum félagsins. Erla, póst-
fulltrúi í Hafnarfirði, f. 1936, er gift
Kristmundi Þorsteinssyni málara-
meistara. Hún átti fjögur böm með
fyrri manni sínum en böm þeirra
Kristmundar em tvö. Sigurbjörg, f.
1937, er gift Haraldi Sumarliðasyni
húsasmíðameistara en hann er form-
aður Landssambands iðnaðar-
manna. Þau búa í Reykjavík og eiga
fimm böm. Páll, f. 1939, er múrari.
Sambýliskona hans er Ágústa Hulda
Pálsdóttir. Páll á einn son. Guð-
mundur Armann listmálari, f. 1944,
rekur auglýsingastofu á Akureyri.
Kona hans er Hildur Pedersen og
eiga þau fimm böm. Bima, f. 1946,
er fráskilin og á þrjú böm. Hún er
yfirkennari við Snælandsskóla í
Kópavogi. Bima hefur tekið virkan
þátt í félagsstörfum kennara. Hún
situr í stjóm Kennarasambands ís-
lands og er formaður skólamálaráðs
þess. Jón Páll, f. 1947, er skrifstofu-
stjóri hjá Barðanum í Kópavogi.
Sambýliskona hans er Steinunn
Gunnlaugsdóttir og eiga þau þrjú
börn en auk þess átti Steinunn son
fyrir sem er fóstursonur Jóns. Sig-
Þorbjörg Pálsdóttir
urður prentari, f. 1950, býr í Kópa-
vogi.
Þorbjörg átti fjögur systkini og em
tvö þeirra á lífi: Elstur var Páll Páls-
son smiður, f. 1909, en hann er nú
látinn; Sigujón, b. á Galtalæk í
Landsveit, er f. 1911; Jón, f. 1913,
lést 1947; Þorbjörg var næstyngst en
yngst er Jóhanna Katrín, ljósmóðir
í Hafnarfirði, f. 1917.
Foreldrar Þorbjargar vom Páll
Pálsson, b. og smiður, og Margrét
Þorleifsdóttir.
Ingigerður Anna
Auðunsdóttir
Ingigerður Anna Auðunsdóttir frá
Dalseli andaðist á Dvalarheimili
aldraðra, Lundi, Hellu, miðvikudag-
inn 16. september.
Hún var fædd 17. september 1909
á Dalseli undir Eyjafjöllum og ólst
þar upp. Ingigerður var mjög listræn
og spilaði á harmóníku. Hún hafði
bóksöluréttindi og var bóksali á
Dalseli og síðar á Ránargötu 7 í
Reykjavík. Ingigerður flutti til
Reykjavikur 1947 og vann þar við
skrifstofustörf og bókadreifingu
þangað til hún flutti austur að Gren-
stanga í Landeyjum en var síðustu
árin á dvalarheimilinu Lundi.
Systkini Ingigerðar vom Guðrún,
f. 1903, skáldkona í Stóm-Mörk und-
ir Eyjafjöllum, Ólafur Helgi, f. 1905,
bifreiðarstjóri í Rvík, Leifur, f. 1907,
b. og harmóníkuleikari á Leifsstöð-
um í Landeyjum, er látinn, Haf-
steinn, f. 1908, bifreiðarstjóri í Rvík,
Hálfdán, f. 1911, b. á Seljalandi und-
ir Eyjafjöllum, Margrét, f. 1912,
skáldkona og skólastjórafrú í Fljóts-
hlíð, er látin, Valdimar, f. 1914, b.
og harmóníkuleikari á Grenstanga
í Austur-Landeyjum, Konráð Óskar,
f. 1916, b. á Búðarhóli í Landeyjum,
Guðrún yngri (Donna), f. 1918, hús-
freyja, síðast i Öldutúni 18 Hafnar-
firði, en hún er látin.
Foreldrar Ingigerðar vom Auðun
Ingvarsson, b. og kaupmaður á Dal-
seli undir Eyjafjöllum, og kona hans,
Guðlaug Helga Hafliðadóttir. Föð-
ursystkini Ingigerðar vom Ámi,
kennari og skáld á Miðskála undir
Eyjafjöllum, Jón, b. í Borgareyrum,
og Ingvar, b. i Neðra-Dal. Faðir
Auðuns var Ingvar, b. í Neðra-Dal
undir Eyjafjöllum, Hallvarðsson, b.
og skipasmiðs í Neðra-Dal, Jónsson-
ar. Móðir Ingvars var Ingibjörg
Jónsdóttir, b, og hreppstjóra á
Stóm-Mörk, Guðmundssonar. Móð-
ir Auðuns var Ingibjörg Samúels-
dóttir, b. á Tjömum undir Eyjafjöll-
um, Pálssonar, b. og klarínettuleik-
ara í Syðstu-Mörk, Ámasonar.
Móðursystkini Ingigerðar vom
Jakobína, móðir Guðlaugs Gíslason-
ar, frv. alþingismanns, Þorsteinn,
Ingigerður Anna Auðunsdóttir
skósmíðameistari í Vestmannaeyj-
um, faðir Hafsteins, símstöðvar-
stjóra í Rvík, Guðrún, húsfreyja í
Kiðabergi í Vestmannaeyjum, móðir
Jóhönnu, konu Baldurs Ölafssonar,
bankastjóra Útvegsbankans í Vest-
mannaeyjum. Meðal hálfsystkina
móður Ingigerðar vom Jón Hafliða-
son, sjómaður í Vestmannaeyjum,
faðir Borgþórs veðurfræðings, og
Karolína, móðir Vilhjálms Skúla-
sonar, prófessors í lyfjafræði.
Móðir Ingigerðar, Guðlaug Helga,
var dóttir Hafliða, b. á Fjósum í
Mýrdal, Narfasonar. Móðir Guð-
laugar var Guðrún Þorsteinsdóttir,
b. á Fjósum í Mýrdal, Jakobssonar.
Móðir Þorsteins var Karitas Þor-
steinsdóttir, b. og smiðs á Vatns-
skarðshólum í Mýrdal, Eyjólfssonar.
Móðir Guðrúnar var Helga Þórðar-
dóttir, b. á Hvammi undir Eyjafjöll-
um, Þorlákssonar.
Héðinn Valdimarsson lést á
heimili sínu, Álftamýri 20,18. sept-
ember.
Sólveig S. Njarðvík, Dísardal,
lést fimmtudaginn 17. september.
Einar Guðmundsson bóndi,
Austur-Landeyjum, lést að heimili
sínu fimmtudaginn 17. september.
Katrín Sigurðardóttir, Höfða-
götu 2, Hólmavík, andaðist þann
18. september á Borgarspítalanum.
Guðjón Elíasson
Guðjón Elíasson, Bólstaðarhlíð
45, er sjötugur í dag.
Guðjón er fæddur á Flateyri í
Önundarfirði og alinn upp hjá for-
eldrum sínum, þar var hann til
tuttugu ára aldurs. Hann var i Núps-
skóla í tvö ár og lærði síðan i
Kennaraskólanum. Guðjón kenndi á
Hellissandi í þrjá vetur og síðan á
ísafirði í einn vetur. Hann veiktist
af berklum og var tvö ár á Vífils-
staðahæli. Guðjón var gjaldkeri í
Prentsmiðjunni Hólum 1949-1986 og
stofriaði og rak bókaútgáfuna Vík-
urútgáfuna. Guðjón giftist 1952
Helgu, fæddri, 22. maí 1919, dóttur
Sigbjöms, b. og oddvita í Raufholti
í Hjaltastaðaþinghá, Sigurðssonar
og konu hans, Jómnnar Önnu Gutt-
ormsdóttur, en þau hjónin em nú
bæði látin.
Guðjón og Helga eiga flögur böm:
Sigbjöm, f. 1950, jarðfræðing, starfs-
mann SÍS, giftan Matthildi Her-
mannsdóttur og eiga þau þrjú böm.
Kristínu, f. 1952, kennara, gifta
Kjartani Sigurðssvni, tölvufræðingi
í Rvík, og eiga þau þrjú böm. Jór-
unni Önnu, f. 1955, kennara á
Hólmavík, sem er ógift, og Elínu. f.
1958, fóstm sem býr í Osló, ógifta
og á eina dóttm-.
Bróðir Guðjóns er Einar, vélvirki
í Rvík, böm hans em Kristinn
vatnafræðingur, Guðrún, húsmóðir
í Rvík, Ásdís, kennari á Laugavatni.
Kona Einars er Bjamey Jónsdóttir.
Hálfsystkini Guðjóns em María,
ekkja Guðmundar Jónssonar, sjó-
manns á Akranesi, en hún býr nú i
Rvík, og Ingibjörg, sem er látin, var
gift Jóni Halldórssyni, bifreiðar-
stjóra á ísafirði.
Foreldrar Guðjóns vom Elias Sig-
urður Hálfdánarson á Flateyri í
Önundarfirði, sem lést 1961, og kona
hans, Kristín Einarsdóttir. Föður-
systkini Guðjóns vom Hálfdán,
útvegsbóndi í Hnífsdal, giftur Ingi-
björgu Halldórsdóttur, Ömólfur, b.
í Skálavík, en dóttursonur hans er
Haraldur J. Hamar ritstjóri, Rann-
veig, gift Sveini Ámasyni, b. í Hvilft
í Önundarfirði, Kristín, gift Stein-
grími Arasyni, útgerðarmanni á
Flateyri, María, gift Guðmundi Pét-
urssyni, trésmið á Flateyri, Jóhanna,
gift Sigurði Guðmundssjnii í Hnífs-
dal, Jón, sjómaður á ísafirði, og
Magnús sjómaður.
Faðir Elíasar var Hálfdán, út-
vegsb. og hreppstjóri í Meirihlíð í
Bolungarvík, Ömólfssonar. Móðh
Guðjóns, Kristín, var dóttir Einars,
bjó í Tálknafirði og í Dýrafirði,
Gíslason. Móðir Kristínar var Krist-
ín Kristjánsdóttir, b. í Laugardal í
Tálknafirði Guðmundssonar.
Sigurður Jósefsson
Sigurður Jósefsson, Torfufelli í
Saurbæjarhreppi í Eyjafirði, er sex-
tugur í dag.
Sigurður er fæddur á Torfúfelli og
alinn upp hjá foreldrum sínum.
Hann varð gagnfræðingur frá
Menntaskólanum á Akureyri og var
bamakennari í bamaskóla Saurbæj-
arhrepps. Sigurður tók við búi á
Torfufelli átján ára er faðir hans féll
frá og bjó hann fyrst félagsbúi í
nokkur ár en tók við búinu 1953 er
hann gifti sig og hefur hann búið
þar síðan. Dóttir Sigurðar og tengda-
sonur hafa nú tekið við búinu.
Kona Sigurðar er Svava Friðjóns-
dóttir. Foreldrar Svövu em Friðjón
Guðmundsson, bakarameistari á
Akureyri, og kona hans, Jóna Jóns-
dóttir. Sigurður og Svava eignuðust
átta böm og era sjö þeirra á lífi. Þau
em Guðrún, f. 1954, gift Lofti Sig-
valdasyni frá Dalvík, þau búa í
Reykjavík og eiga þrjú böm, Jósef,
f. 1955. dáinn, var giftur Soffíu
Amadóttur frá Akureyri og eiga þau
þrjú böm. Ámi, f. 1956, landbúnaðar-
verkfræðingur í Bandaríkjunum,
giftur Hildi Sigurðardóttur og eiga
þau tvo drengi, Jón Hlynur, f. 1958,
Bjamey, f. 1960, viðskiptafræðingur
i Reykjavík, gift Pétri Ágústssyni
jámiðnaðarmanni og eiga þau einn
dreng, Sigrún, f. 1964, gift Einari
SvanbergssyTÚ, b. á Torfufelli, eiga
þau tvær dætur, Hólmfríður, f. 1966,
stúdent, og Sigurður Torfi, f. 1969, í
Verkmenntaskóla, á raftæknisviði.
Sigurður átti tvö systkini, lést ann-
að í bamæsku en systir hans er
Torfhildur, kona Angantýs Hjálm-
arssonar kennara.
70 ára
Hulda Sveinbjörnsdóttir, Efsta-
landi 24, Reykjavík, er sjötug í dag.
40 ára
Vignir Albertsson byggingarfræð-
ingur, Efstasundi 81, Reykjavík, er
fertugur í dag.
Gunnar Guðjónsson, Brekkutanga
9, Mosfellsbæ, er fertugur í dag.
Sérverslun
með blóm og
skreytingar.
ocrBlóm
^Qskrcytingar
Laugauegi 53, simi 20266
Sendum um land allL