Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Side 34
50
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
Jarðaifarir
Þorbjörg Pálsdóttir lést 15. sept-
ember sl. Hún fæddist í Búlandsseli
i Vestur-Skaftafellssýslu 1. janúar
árið 1915. Foreldrar hennar voru
Páll Pálsson og Margrét Þorleifs-
dóttir. Eftirlifandi eiginmaður
hennar er Sigurjón Björnsson. Þau
hjónin eignuðust níu börn. Árið 1961
hóf Þorbjörg störf við pósthúsið í
Kópavogi og starfaði hún þar til árs-
ins 1985, síðustu árin sem póstfulltrúi
og aðalgjaldkeri. Útför hennar var
gerð frá Fossvogskirkju i morgun.
Sigurður Ægir Jónsson lést 10.
september sl. Hann fæddist i Reykja-
vík 20. mars 1943. Foreldrar hans
voru Jón G. Sigurgeirsson og Aðal-
heiður Sigurðardóttir. Ægir starfaði
hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð frá árinu
1964, síðustu árin sem innheimtu-
stjóri. Hann sat einnig mörg ár í
stjórn knattspyrnudeildar KR. Eftir-
lifandi eiginkona hans er Helga
Guðmundsdóttir. Þau hjónin eignuð-
ust einn son. Útför Ægis verður gerð
frá Neskirkju í dag kl. 13.30.
'Emma Guðjónsdóttir lést á Hrafn-
istu 10. september. Jarðarförin hefur
farið fram.
Jón B. Thorarensen andaðist á
Hrafnistu í Reykjavík 5. september
sl. Útförin hefur farið fram.
Útför Ragnars Einars Einarsson-
ar, Furugerði 1, sem andaðist þann
6. september í Landspítalanum, hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Sigríður Þorkelsdóttir lést á Elli-
og hjúkrunarheimilinu Grund að
kvöldi fímmtudagsins 3. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sigríður Samúelsdóttir, áður
Goðatúni 7, Garðabæ, er lést á
^Jdrafnistu í Hafnarfirði 12. september
sl., verður jarðsungin frá Garða-
kirkju í dag, 21. september, kl. 13.30.
Brynhildur Ólafsdóttir, Nýlendu-
götu 22, verður jarðsungin frá kirkju
Óháða safnaðarins þriðjudaginn 22.
september kl. 10.30. f.h.
LUKKUDAGAR
21. september
15177
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800,-
Vinningshafar hringi i sima
91-82580.
Styrkár Guðjónsson frá Tungu,
Hörðudal, Miklubraut 76, sem and-
aðist 12. september, verður jarðsettur
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22.
september kl. 15.
Eiríkur Erlendsson, Leirubakka
12, Reykjavík, verður jarðsunginn
miðvikudaginn 23. september kl.
13.30 frá Fossvogskapellu.
Sigrún Sigurbjörnsdóttir, Hátúni
4, verður jarðsungin frá F'ossvogs-
kirkju þriðjudaginn 22. september
kl. 13.30. Jarðsett verður í Fossvogs-
kirkjugarði.
Jóhanna Marteinsdóttir frá Fá-
skrúðsfirði verður jarðsett frá
Fossvogskirkju í dag, 21. september,
kl. 15.
Halldóra Pálína Halldórsdóttir
lést 12. september sl. Hún var fædd
í Hnífsdal 27. janúar 1929. Foreldrar
hennar voru Elín Elsabet Jensdóttir
og Halldór Hermann Kristjánsson.
Eftirlifandi eiginmaður Halldóru er
ísleifur Magnússon. Þau hjónin
eignuðust tvær dætur. Útför Hall-
dóru verður gerð frá Fossvogskirkju
í dag kl. 13.30.
Tilkyimingar
Sorg og sorgarviðbrögð
Samstarfshópur áhugafólks um sorg og
sorgarviðbrögð heldur kvöldvöku í Templ-
arahöllinni þriðjudaginn 22. september kl.
20. Dagskrá: Tveir stuttir fyrirlestrar, sr.
Sigfmnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur og
Páll Eiríksson læknir. Fyrirspurnum svar-
að. Álmennar umræður, m.a. um formlega
stofnun samtakanna. Kaffi. Allt áhugafólk
velkomið. Aðgangur ókeypis.
,,Slökun og lífefli“
Á dagskrá fræðslustarfs Þrídrangs á síðari
hluta árs 1987 er námskeið í djúpslökun
og lífeðli. Eftir því sem sjúkdómar tengd-
ust streitu og spennu fjölgar í tæknivæddu
þjóðfélagi okkar tíma verður brýnni þörf
fyrir sérhvern einstakling að hafa vald á
leiðum til hvíldar og slökunar. Lífeðli er
kröftug aðferð sem eykur orku og kraft,
losar um djúpstæða vöðvasgennu og skilar
sér í ánægjulegra kynlífi. Á námskeiðinu
sem hefst 26. september nk. verða þessum
aðferðum gerð skil. Einnig verður fjallað
um þjálfun hugans og hagnýting ímyndun-
araflsins við markaðssetningu. Þátttak-
eridum er gert kleift að nota hugtæknileg-
ar aðferðir námskeiðsins á persónubund-
inn hátt, eftir því hvað hver og einn vill
ná fram. Þannig má t.d. grenna sig, hætta
tóbaksreykingum, styrkja viljann eða
sjálfstraust sitt og starfsárangur. Leið-
beinandi er Gunnhildur H. Axelsdóttir, en
hún hefur lokið námi lífeðlissálfræði við
Center for Biosynthesis. Námskeiðið er
eitt kvöld og helgi og eru allar upplýsing-
ar gefnar hjá Þrídrangi milli kl. 17 og 19
í síma 622305 eða í s. 671168 milli kl. 21
og 23.
bllémcmll
Blómaval eykur þjónustu við
landsbyggðina
Um þessar mundir eru íbúar utan höfuð-
borgarsvæðisins að fá í hendúrnar 8 síðna
litprentaðan pöntunarlista frá Póstversl-
un Blómavals. Listinn er gefinn út í 40.000
eintökum og verður honum dreift í öll
hús. Að þessu sinni er boðið upp á 58 mis-
munandi tegundir haustlauka og í listan-
um eru leiðbeiningar um ræktun þeirra.
Póstur og sími sér um dreifingu listans.
I gærkvöldi
Olafur Unnsteinsson kennari:
Bestu fréttir Norðurlanda hér
Það verður að segjast eins og er
að mikil framför hefúr orðið í frétta-
flutningi hér á landi að undanfömu.
Fréttimar hér í sjónvarpi gefa ekk-
ert eftir því sem best gerist á hinum
Norðurlöndunum, em jafnvel betri.
Ég hef dvalist mikið á Norðurlönd-
unum og tel mig hafa góðan
samanburð. Fréttimar hér em betur
framsettar og fjölbreytriiri og er þá
sama á hvorri stöðinni er.
Með harðnandi samkeppni verða
þær auðvitað betri en þessi nýji þátt-
ur á Stöð 2,19.19, er heldur langdreg-
inn. Það stendur þó væntanlega til
bóta. Þá vildi ég fá, eins og tíðkast
á hinum Norðurlöndunum, seinni
fréttir á milli 10-11 og þá með stuttum
íþróttaþætti. Sá tími sem nú tíðkast
á seinni fréttum er full óreglulegur.
Erlendis tíðkast að hafa íþróttaþátt
með nýjustu atburðum í seinni frétt-
Ólafur Unnsteinsson.
um .
Það virðast margir skemmtilegir
þættir vera á leiðinni en vonandi
verða góðir skemmtiþættir á dag-
skránni í vetur, bæði innlendir og
erlendir. Það veitir ekki af því að
hafa nóg af skemmtiþáttum til að
lifa af skammdegið. Spumingaþættir
em góðir á sinn hátt en em þó full
þungir. Skemmtiþættir verða að
vera léttir og með nóg af músík.
Myndir helgarinnar vom ekki
upplífgandi en á einn þátt horfði ég
með mikilli athygli en það var þátt-
urinn Aldarhvörf eða bábilja?
Forvitnilegur þáttur og nú er bara
að vona að betri tíð sé framundan í
framhaldi af þeim mikilsverðu at-
burðum sem nú em að gerast.
Ég horfði með athygli á íþrótta-
fréttir, sérstaklega frá HM í Róm.
Þrátt fyrir skemmtilega þætti vil ég
lýsa yfir vanþóknun minni á því að
ekki skuli hafa verið lýst beint frá
þessari merkilegu keppni. Þegar
boltakeppni er annars vegar stendur
ekki á fjölmiðlafólki að vera með
beinar lýsingar en ftjálsar íþróttir
virðast ekki eiga upp á pallborðið.
Skákþing íslands:
Davíð vann Helga
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
Stórmeistarinn Helgi Ólafsson
tapaði skák sinni gegn Davíð Ólafs-
syni í 4. umferð í landsliðsflokki á
Skákþingi íslands í gær. Helgi gafst
upp þegar mát blasti við en hann
hafði lent f miklu tímahraki.
Margeir Pétursson skaust í efsta
sætið í gær er hann sigraði Hannes
Hlífar Stefánsson. Karl Þorsteins og
Jón Garðar Viðarsson em jafnir í
2.-3. sæti. Karl gerði í gær jafntefli
við Sævar Bjamason en Jón Viðar
vann Áskel Öm Kárason.
Önnur úrslit í gær urðu þau að
Dan Hansson og Gylfi Þórhallsson
gerðu jafntefli og einnig Þröstur
Þórhallsson og Ólafúr Kristjánsson
en Þröstur Ámason vann Gunnar
Frey Rúnarsson.
Margeir hefur 3 'A vinning, Karl
og Jón Viðar 3, en siðan koma Helgi,
Þröstur Þórhallsson, Ólafur og Dav-
íð með 2 Vi vinning. Fimmta umferð
verður tefld í Alþýðuhúsinu á Akur-
eyri klukkan 17 í dag.
Merming dv
Frá Sinfóníutónleikunum í Langholtskirkju.
Norræn hefð
- um norræna sinfóníutónleika sl. föstudag
Leiðindaveður
um allt land
„Hér er búið að vera bijálað veður
í alla nótt og ekki nokkur maður á
ferli. Þó hefur ekkert fokið því hér er
allt fokið í burtu fyrir mörgum árum
sem á annað borð hefúr getað fokið,“
sagði lögreglumaður í Vestmannaeyj-
um í samtali við DV í morgun.
Að sögn lögreglunnar var veðrið lít-
ið farið að ganga niður í morgun og
allir héldu sig innandyra sem gátu
komið því við enda var vindhæðin
10-11 stig.
Mjög hvasst var á öllu Suðurlandi
í nótt en ekki er vitað um skemmdir
eða að fólk hafi lent í vandræðum
vegna veðurs. Sömu sögu er að segja
af Austfjörðum. Þar hefur verið mjög
hvöss og köld norðaustanátt og hefur
mikil væta fylgt storminure. Ekki er
vitað til þess að veðrið hafi valdið
skaða. -ATA
Pýrt spark
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Það verður honum dýrt, unga mann-
inum sem í reiðikasti sparkaði í rúðu
á Landsbankanum á Akureyri að-
faranótt laugardags.
Rúðan brotnaði við sparkið og er
talið að það kosti um hundrað þúsund
krónur að kaupa nýja. Rúðan var sérs-
taklega þykk og voldug og verður að
panta aðra erlendis frá. Pilturinn náð-
ist og verður að bæta tjónið sem þetta
dýra spark hans olli.
Stefán Valgeirsson:
„Ég er ekki hissa“
„Ég er ekkert hissa á útkomu J-
listans í þessari skoðanakönnun. Það
verður að taka mið af því að skoðan-
könnunin er ekki marktæk fyrir fylgi
J-listann þar sem svo lítið af úrtakinu,
sem spurt var, er úr Norðurlandi
eystra. Við erum hins vegar mikið
spurð alls staðar á landinu hvað við
hyggjumst fyrir. Það er því gott hljóð
í mínu fólki,“ sagði Stefán Valgeirsson
um skoðanakönnun DV.
„Það sem kemur mér hins vegar
mest á óvart er hversu mikið fylgi
stjómarflokkamir hafa samkvæmt
skoðanakönnuninni því mér virðist
fólk ekki hrifið af ríkisstjóminni,“
sagði Stefán Valgeirsson. -jme
Það voru sinfóníutónleikar hjá
UNM í Langholfrkirkju sl. föstudag.
Sinfóníuhljómsveit íslands var þar
mætt, nýkomin fersk og útitekin frá
Grænlandi og hafði engin vettlinga-
Tónlist
Leifur Þórarinsson
tök á hlutunum. Stjómandinn var
enda hreint afbragð, enn einn ungur
Finni úr skóla Panulas, heitir sá
Osmo Vánska.
Þama voru flutt átta tónverk, og
vissulega vom þau í misjöfnum
gæðaflokki. Það sem meira var, að
þama heyrði maður loksins eitt eða
tvö verk sem vom virkilega léleg og
létti mönnum nokkuð við það. Það
er gott til þess að vita að unga fólk-
ið hefúr ekki alveg tapað samband-
inu við hina merku, norrænu
Nýja fyrirkomulagið í getraununum,
að ekki sé greiddur út 1. vinningur
nema fyrir tólf rétta hefur valdið því
að potturinn var orðinn þriggja vikna
gamall á laugardaginn. Enginn náði
tólf réttum í vikunum þar á undan en
loksins kom fram snjall tippari í Ár-
tradisjón. Tónskáldin ungu em ann-
ars stödd misjafnlega í þróunarstig-
anum, sem er sjálfeagt og eðlilegt.
Sumir kunna býsna margt fyrir sér
og hafa fengið góðan skóla, aðrir em
lireinir byijendur. Hvaða nefnd eða
ráð velur á svona hátíð veit maður
ekki, en það em greinilega fijáls-
lyndir menn og velviljaðir. Hvort
nokkur raunvemleg talent finna
nokkum tíma náð fyrir þeirra aug-
um skal að vísu látið ósagt, slíkt er
alltaf nokkrum tilviljunum háð. En
það kæmi mér síst á óvart að marg-
ir þeirra sem áttu verk á þessum
tónleikum fæm tiltölulega fljótt út
í annað en tónsmíðar.
Síðustu tónleikar þessarar þriðju
UNM-hátíðar, sem haldin er á Is-
landi, vom daginn eftir í Skálholti.
Þar vom flutt nokkur verk eftir pena
eldri herra frá ýmsum löndum og var
Þorkell Sigurbjömsson sá eini frá
Norðurlöndum. Verður sagt frá þeim
síðar hér í blaðinu.
bænum núna um helgina og var hann
með alla leikina rétta. Úrslit vom
ekki mjög óvænt en þrátt fyrir það var
hann einn með allan fyrsta vinning
og fær fyrir vikið 1.112.755 krónur. 37
aðilar vom með ellefú rétta og hlutu
tæplega 5600 krónur hver. -E.J.
LÞ
Fýrsti vinningur gekk út um síðir