Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 36
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
52
Svidsljós
Ólyginn
sagði...
Cybil Sheperd
gengur með tvíbura. Hún
varð yfir sig hrifin þegar hún
fékk fréttirnar og segir að
þetta hafi verið það sem
hana dreymdi um. Cybil seg-
ist alveg vera sama hvort
hún eigi stráka eða stelpur
en segir þó að skemmtileg-
ast væri auðvitað að fá sitt
af hvoru kyni. Móðirin til-
vonandi hefur látið út
ganga, til vina og ættingja,
lista yfir þær vörur sem hún
helst óskar að sér og börn-
unum verði gefnar. Á þeim
lista er að finna jafnhvers-
dagslega hluti eins og
barnavagn, kerru, leikföt og
fatnað ýmiss konar.
Boy George
segir það með ólíkindum
hve aðdáendurnir eru dug-
legir að fylgjast með. Eins
og kunnugt er hefur hann
breytt útliti sínu ansi mikið
að undanförnu. Litað og
klippt hárið og ýmislegt
fleira. Hörðustu aðdáend-
urnir sem alltaf hafa viljað
líkjast poppstjörnunni hafa
nú breytt útliti sínu á sama
veg. Það voru færustu sér-
fræðingar frá New York sem
lögðu Boy George lið sitt
og gáfu honum nýju línuna.
Og eins og segir er nú svo
komið að fjöldi manns
skoppar inn á snyrtistofur
og biður um Boy George-
útlit.
Diana prinsessa
er farin í megrun. Eins og
flestir vita þá eyddi hún
sumarfríinu ásamt fjölskyl-
dunni á Mallorca og
klædd -st hún þar auðvitað
engu öðru en bikinibaðföt-
um. Henni og bónda hennar
til mikillar hrellingar pös-
suðu baðfötin ekki eins vel
og sumarið þar áður. Mag-
inn var orðinn alltof stór og
slappur og hreinlega hékk
yfir bikinibuxunum. Þegar
heim var komið lét prinsess-
an útbúa fyrir sig sérstakan
þriggja mánaða megrunar-
matarkúr sem samanstendur
af grænmeti og annarri holl-
ustufæðu. Prinsessan
hyggst líka iðka líkamsrækt
og synda tvisvar í viku. Allt
gert til að öðlast spengileg-
an kropp á nýjan leik.
DV
Norsku og íslensku nemendurnir ásamt Frederick Roastad frá Noregi, sem kennt hefur íslensku þar I landi og gefið út kennslubók I íslensku, Liv Hag-
en, kennari norsku nemendanna, og Brynjúlfur Sæmundsson cand mag. DV-mynd Brynjar Gauti
Norskir nemar
í heimsókn
Tuttugu og fjórir norskir krakkar
komu ásamt kennara sínum í heim-
sókn til íslands í síðustu viku.
Krakkarnir eru á aldrinum átján til
nítján ára og stunda nám í Stabekk
menntaskólanum í Bærum sem er
rétt utan við Osló. Þeir höfðu kynnst
fslandi og íslenskri tungu dálítið í
norskunáminu í skólanum en þar er
hægt að velja á milli kafla um ís-
lensku eða fornnorsku. Krakkarnir
sem völdu íslenskuna hrifust af þvi
sem þau lærðu um landið og hafa
síðastliðið ár safnað fyrir ferðinni
hingað til lands. Norskukennari
þeirra Liv Hagen hafði áður komið
til íslands og leist vel á þessa hug-
mynd krakkanna.
Á meðan á dvölinni stóð ferðuðust
krakkamir um landið, meðal annars
til Þingavalla, í Skálholt, Gullfoss
og Geysi og til fleiri staða. Þá voru
þau í þrjá til fjóra daga í Mennta-
skólanum við Sund þar sem þau
hlýddu á fyrirlestra um landafræði
og sögu landsins og kynntust ís-
lenskum jafnöldrum sínum. Þessa
daga bjuggu krakkarnir á heimilum
MS-inga. Ætlunin er svo síðar að
nemendur MS fari í svipaða fræðslu-
ferð til Bærum í Noregi.
Nemendurnir og fylgdarmenn þeirra
létu mjög vel af dvöl sinni hér á
landi.
Fékk bréf frá Europe
Hljómsveitin Europe á án efa
marga aðdáendur hér á landi en
líklega er enginn þeirra eins dygg-
ur og hann Baldur Ingi Ólafsson,
10 ára strákur í Reykjavík.
Baldur segist hafa hrifist fyrst af
Europe þegar hann heyrði í henni
á Stöð 2. Hann sagði að honum
hefði þótt lagið The Final Count-
down svo skemmtilegt að hann
hefði tekið það upp. Hann hefði
síðan séð heimilisfang hjá aðdá-
endaklúbbi Europe og skrifað
honum og gerst félagi. Baldur lét
sig ekki muna um að skrifa sjálfur
þó að bréfið þyrfti að vera á ensku.
Baldur er að læra á hljómborð
og hefur mikinn hug á því að verða
tónlistarmaður. Að sjálfsögðu fór
hann á tónleika Europe í vor en
ekki náði hann að spjalla við goð-
in. Hann varð að fara snemma heim
af því að hann þurfti að bera út
blöðin daginn eftir en hann er í
þeim röska her sem ber út DV.
Baldur hefur fleiri áhugamál en
að hlusta á Europe því hann stund-
ar bæði badminton og knattspymu.
Hann veit ekki af fleiri stuðnings-
mönnum Europe hér á landi en
hefur mikinn hug á því að heyra
frá þeim og þá jafnvel að stofna
aðdáendaklúbb.
Baldur Ingi með blaðið sem hann fékk með eiginhandaráritun strákanna i Europe hljómsveitinni
DV-mynd KAE