Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Page 40
FRETT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
Albert Guðmundsson:
Ekki varir
við afturkipp
“* „Við höfum ekki orðið varir við aft-
urkipp. Við höfum verið að stofna
flokksfélög víða um land undanfarið
og fundið annað,“ sagði Albert Guð-
mundsson um niðurstöður skoðana-
könnunar DV þar sem Borgaraflokk-
urinn tapar nokkru fylgi frá síðustu
kosningum.
„Við höfum ekki málgagn og höfum
ekki aðgang að fjölmiðlum fyrir utan
það sem við fáum birt af greinum í
DV. Skoðanakannanir hafa alltaf ve-
rið okkur óhagstæðar og fyrir síðustu
kosningar var okkur spáð minna fylgi
en við fengum. Starfsvöllur okkar er
Alþingi og við skulum sjá hvað gerist
eftir að það kemur saman.
Það sem vekur furðu mína er fylgis-
- hrun Sjálfstæðisflokksins frá skoðana-
könnuninni. sem Helgarpósturinn
gerði fyrir skömmu. þar sem hann fékk
allt að fjórðungi meira fylgi,“ sagði
Albert Guðmundsson.
-GK
Þórfiildur Þorleifsdottir:
„Guð láti
-gott á vita“
„Það er alltaf gaman að koma vel
út úr skoðanakönnunum. Við kvenna-
listakonur höfum hins vegar haft það
fyrir reglu að taka fyrst og fremst
mark á því sem kemur upp úr kjör-
kössunum í kosningum, en ekki
skoðanakönnunum, en guð láti gott á
vita.
Kvennalistinn hefur sætt gagnrýni
fyrir það frá pólitískum andstæðingum
sínum að láta ekki mikið í sér heyra
en mér virðist á þessari skoðanakönn-
un að málflutnigur Kvennalistans hafi
náð eyrum almennings. Kannski end-
urspeglar þessi könnun að fólk íhugar
hlutina en tekur ekki mest mark á
—’peim sem hvað mest eru í sviðsljósi
sjónvarps og annarra fjölmiðla hverju
sinni,“ sagði Þórhildur Þorleifsdóttir,
formaður þingflokks Kvennalista, um
skoðanakönnun DV.
-jme
Allar
gerðir
sendibíla
25050
senDiBíLnsTöÐin
Borgartúni 21
LOKI
Já, því minna ffylgi
því meiri möguleikarl
Einkaaðilar vaða í eriendu lánsfé:
Bæthi á sig4-5millj-
övðum umvram áætlun
Hækkun langtímalána erlendis
frá á þessu ári er komin gersamlega
úr böndunum. Seðlabankinn áætl-
aði lántökur umfram greiðslur á
árinu 1.915 milljónir króna. Nú
þykir ljóst að þessi tala sé komin
í um 6.500 milljónir króna og að
viðbótin skrifist næstum öll á
einkaaðila sem eru því greinilega
vaðandi í erlendu lánsfé.
Niðurstaða gildandi lánsfjárlaga
og áætlunar er sú að opinberir aðil-
ar myndu greiða niður langtímalán
erlendis um 425 milljónir króna,
lánastofnanir hækka sín lán um
1.110 milljónir og einkaaðilar sín
ar varla til áður. Ríkisstjórnin og
ríkisskattstjóri athuga nú skatta-
lega stöðu þessa rekstrar í þeim
tilgangi að hann njóti ekki skatta-
legs hagræðis umfram annan
lánarekstur en talið er að svo geti
verið í gildandi lögum.
-HERB
um 1.230 milljónir króna. Þess í
stað virðast einkaaðilar hafa sópað
inn hátt á sjötta milljarði króna.
Af þessari gríðarlegu lánahækk-
un einkaaðila má rekja 2-2,5
milljarða króna til kaupleigufyrir-
tækjanna sem hafa blómstrað sem
aldrei fyrr á þessu ári og voru raun-
Sjávarútvegsráðherra, Halldór Ásgrímsson, er hér við stýrið á Sjávar-
útvegssýningunni í Laugardalshöll. Sýningin hófst á laugardag og
sóttu hana þúsundir manna um helgina. DV-mynd KAE
- sjá nánar á bls. 4
Páll Pétursson:
Hef góða trú
á DV - könnunum
„Sennilega er þessi könnun ykkar
nærri raunveruleikanum enda hef ég
haft töluverða trú á ykkar könnun-
um,“ sagði Páll Pétursson, formaður
þingflokks Framsóknarflokksins, þeg-
ar blaðamaður DV bar undir hann
niðurstöður skoðanakönnunar blaðs-
ins um fylgi flokkanna.
Páll hafði þó þann fyrirvara á flest-
um skoðanakönnunum að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði oftast fengið meira
fylgi í könnunum en í kosningum
meðan Framsóknarflokkurinn fengi
minna fylgi í könnunum en kosning-
um.
„Annars getum við ekki verið annað
en ánægðir með þessa útkomu. Við
höfum haft þá þumalfingursreglu að
okkur beri að ná til a.m.k. fjórðungs
kjósenda og mér sýnist við vera á góðri
leið með að ná því. Ég finn greinilega
fyrir uppsveiflu í okkar garð og ég
veit að við eigum eftir að gera enn
betur ef kjósendur dæma okkur af
verkunum."
KGK
- sjá einnig bls. 50
Þorsteinn Pálsson:
Styrkjum stöðuna
„Þetta sýnir að við erum að styrkja ráðherra á niðurstöðum skoðana-
stöðu okkar og í rauninni er ekkert könnunar DV um fylgi stjómmála-
meira að segja um það á þessu stigi,“ flokkanna.
er álit Þorsteins Pálssonar forsætis- -HERB
Eiður Guðnason:
Svipuð staða
„Breytingamar em svo litlar frá þremur tapar fylgi má hugsanlega
kosningunum og svo óvenju margir rekja það til þess að undirbúningur
sem taka ekki afstöðu að ég geri ekki fjárlaga er einnþtt í sviðsljósinu þessa
mikið með þetta. Staðan virðist vera dagana. Þar er fjármálaniðherra og
svipuð," segir Eiður Guðnason, for- formaður Alþýðuflokksins í forsvari
maður þingflokks Alþýðuflokksins, fyrir ráðstöfiinum sem þarf hugrekki
um tölur úr skoðanakönnun DV. til að gera og em ekki beint vel falln-
„Ef menn vilja velta vöngum yfir því ar til vinsælda á meðan þær ganga
af hverju einn stjómarflokkurinn af yfir.“ -HERB
Veðrið á morgun:
Hvöss
norð-
austanátt
Á morgun lítur út fyrir hvassa
norðaustanátt víðast hvar á landinu
en líklega verður vindur hægari á
Suðausturlandi. Rigning verður um
norðan- og austanvert landið en úr-
komulítið suðvestanlands. Hiti
verður á bilinu 4 til 10 stig.
Svavar Gestsson:
Okkar út-
koma er léleg
DV hafði samband við Svavar Gests-
son, formann Alþýðubandalagsins, og
innti hann álits á úrslitum skoðana-
könnunar DV:
„Þessi könnun gefur aðra mynd en
könnun Helgarpóstsins sem birtist fyr-
ir skömmu, þær virðast dálítið misvís-
andi. Okkar útkoma er léleg en við
erum að undirbúa landsfimd.
Það em verulegir möguleikar í þjóð-
félaginu fyrir Alþýðubandalagið að
reisa sig en hætt við að þessir mögu-
leikar nýtist ekki strax en eftir lands-
fund á flokkurinn að geta vaxið
aðfylgioginnristyrk.“ -PLP