Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1987, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1987, Side 17
MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1987. 17 Meirihluti studentaraðs: Umbjóðendur skipta Við Háskóla íslands er starfandi stúdentaráð sem hefur það hlut- verk að gæta hagsmuna stúdenta og efla félagslíf meðal þeirra. Und- anfarin ár hefur sú stefna verið höfð að leiðarljósi að halda flokka- pólitík og utanríkismálum utan við starfsemi ráösins en einbeita sér að faglegri hagsmunabaráttu í þágu allra stúdenta. En nýjum meirihluta fylgja nýir siðir. Nú nýverið samþykkti núver- andi meirihluti stúdentaráðs að kaupa hlutabréf í útvarpsfélaginu Rót h/f. Efni útvarpsins skal sam- kvæmt stofnsamningi vera „í anda félagshyggju" og ekki þarf annað en líta yfir hlutafj árloforðalista til að sjá að henni er ætlað að verða pólitískt málgagn vinstriaflanna í landinu. Af þessum sökum er ekki réttlætanlegt að faglegt hagsmuna- félag stúdenta gangi inn í stöð með þennan stimpil, auk þess sem pen- ingum stúdenta er betur varið í annað en að stofna hlutafélög úti í bæ. Vettvangur hagsmunabar- áttu Núverandi meirihluti skýlir sér á bak við það aö með hlutafjárkaup- unum fáist vettvangur fyrir hagsmunabaráttuna og baráttu- vettvangurinn þannig víkkaður. Með stofnuninni verði til fjölmiðill sem leggi áherslu á umfjöllun um málefni sem sjaldan fáist rædd. Þeir gleyma hins vegar því að þótt tilgangurinn sé ef til vill göfug- ur er það ekki hlutverk stúdenta- ráðs að auka umræðu um málefni sem sjaldan fást rædd. Hagsmuna- KjaUariim Jónas Fr. Jónsson laganemi baráttuna á heldur ekki að reka fyrir minnihlutahópa eða félags- hyggjufólk sem er markhópur Rótar h/f. Þá baráttu á að reka í almennum fjölmiölum fyrir hið venjulega fólk í landinu en væntan- leg dagskrá stöðvarinnar er ekki mjög aðlaðandi. Hver minnihluta- hópurinn á fætur öðrum að tönnl- ast á sínum vandamálum. Að auki er ljóst að hægt er að notfæra sér þennan vettvang án þess að vera eignaraðili. Margt óklárt enn Margt er þar að auki enn óklárt varðandi þetta Rótarglapræði stúd- entaráðs. Ekki hafa ennþá verið lagðar fram nægilegar upplýsingar um fjármögnun, yfirstjórn og rekstrarfyrirkomulag stöðvarinn- ar. Hagnaði skal varið til almenn- ingsheilla sem er ansi víðtækt hugtak. Stjórn félagsins á að setja skilmála um dagskrárgerð en enn- þá er ekki ljóst hver ber ábyrgð á því sem sagt er á umræddri stöð. Þar að auki hafa einungis borist staðfestingar um hlutafjárkaup frá örfáum aðilum, öðrum en stofnfé- lögum, þegar þetta er skrifað. Vilji umbjóðendanna hunds- aður Ljóst er að sterk andstaða er meðal stúdenta gegn því að láta draga hagsmunafélag sitt inn í póli- tískt dægurþras. Sá vilji kom skýrt fram í síðustu kosningum. And- staða er meðal stúdenta við hluta- fjárkaupin og formanni stúdenta- ráðs „þótti ekki ástæða til að kynna kaupin fyrir formönnum deildarfé- laga fyrr en búið væri að sam- þykkja þau í stúdentaráði". Með þessum hlutafjárkaupum er vilji umbjóðenda stúdentaráðs hundsaður.og gróflega fariö út fyr- ir umboð það sem stúdentaráð hefur. Umboðið er til að sinna hags- munamálum og félagslífi, ekki til að stofna hlutafélög til aö gera minnihlutahópum kleift að ræða áhugamál sín. Stúdentaráð skal notað í pólitískum tilgangi vinstri sinna, sem áhrifalaus hluthafi í vinstri útvarpsstöð. Umbótasinnar æmta hvorki né skræmta enda ekki við því að búast frá b-liöi vinstri manna. Skýrt dæmi um þessa misnotkun er þegar stjómarmaður í Rót og stofnandi hennar greiðir oddaat- kvæði á stúdentaráðsfundi. Hversu sanngjarn og réttsýnn sem viðkom- andi er þá er erfitt að sitja báðum megin við borðið. Að auki skýtur það nokkuð skökku við aö meðhm- ir í Félagi vinstri manna við Háskólann skuli draga alla stúd- enta inn í fyrirtæki sem vinstri menn em þegar orðnir hluthafar í. Það er hálfógeðfellt aö skrifstofa stúdentaráðs skuli hafa verið not- uö til sölu á hlutabréfum Rótar h/f áður en meirihluti stúdentaráös hafði formlega samþykkt kaupin. Verra er þó að umbótasinnar skuli láta teyma sig í hvem forarpyttinn á fætur öðrum. Hagsmunavettvangurinn fyrir stúdenta í þessari útvarpsstöð er enginn nema þá á neikvæðan máta og hætt er við að rödd þeirra heyr- ist síður í öömm fjölmiðlum þegar þeir „eiga“ sinn eiginn. Nú veltur á því að stúdentar fylg- ist með og láti í sér heyra þegar umboð þeirra og fjármunir em misnotaöir. Stúdentaráð er fyrst og fremst fyrir stúdenta og hags- munabarátta þeirra á enga samleið með Mið-Ameríkunefndinni, Vinstri sósíalistum, Samtökunum 78, Samtökum kvenna á vinnu- markaði eða Æskulýðsfylkingu Alþýðubandalagsins. Jónas Fr. Jónsson „Það er hálfógeðfellt að skrifstofa stúd- entaráðs skuli hafa verið notuð til sölu á hlutabréfum Rótar h/f áður en meiri- hluti stúdentaráðs hafði formlega samþykkt kaupin.“ Launakjör fiskverkafólks „Fólkið, sem vann 1 iðnaði var svipt smávegis yfirborgunum og aldurs- hækkunum svo það fékk sem minnst, helst ekkert 1 grunnhækkun.“ Það hefur hrikt í Verkamanna- sambandinu að undanfórnu. Alhr sem hafa látið í sér heyra í fjölmiðl- um, hvort sem er í töluðu eða skrifuðu máh, hafa verið sammála um að það mundi leiða til hinnar mestu ógæfu fyrir verkafólk, og ekki síst fyrir fiskverkafólk, að nokkrir formenn verkalýðsfélaga skyldu voga sér að ganga út af fundi til að mótmæla því hvemig forysta sambandsins ætlaði að beita allsherjaratkvæðagreiðslu til þess að halda niðri andófi fólksins utan af landsbyggðinni. Samningar þeir, sem Alþýðusambandið beitti sér fyrir og vora samþykktir í des- ember á sl. ári, færðu fólkinu, sem vinnur úti í atvinnuvegum lands- manna og vinnur hörðum og hröðum höndum fyrir þjóðarkök- unni, engar grunnlaunahækkanir. Málin í eigin hendur Fólkið, sem vinnur í fiskinum, aðalútflutningi landsmanna, var sjálft látið borga sér smávæghega hækkun taxtakaups með því að lækka bónusinn. Fólkið, sem vann í iðnaði, var svipt smávegis yfir- borgunum og aldurshækkunum svo það fékk sem minnst, helst ekk- ert, í grunnhækkun. Síðan hafa hópar í öllum mögulegum störfum og opinberri þjónustu fengið ómældar launahækkanir enda margir farið út í það að taka máhn í sínar hendur og gefa toppunum í miðstýringunni frí frá því að fjalla um launasamninga. Nú, svo skeður sú mikla ógæfa að nokkrir formenn verkalýðsfé- laga ganga út og skella hurðum í Verkamannasambandinu til aö mótmæla láglaunastefnu sam- bandsins og mótmæla því hvemig farið hefur verið með laun hinnar almennu verkakonu og verka- manns í fiskvinnu. Fólkið vih sjálft stýra þessu og leggja fram kröfu KjáHaiinn Herdís Ólafsdóttir starfsmaður Verkalýðsfélags Akraness sem hægt er að ná fram. En samn- ingar eru fastir til áramóta og því ekkert hægt að gera nema tuldra eitthvað í skeggið og reyna að bjarga þjóðarsáttinni sem þó er hka sprungin í háaloft. Bónusinn skertur Ungur stjórnmálamaður skrifar fyrir skömmu grein í DV sem ber fyrirsögnina „Sætum lagi“. Þar veltir hann fyrir sér þeirri stað- reynd að atvinnurekendur, sömu aðhar og kaupa nú fisk á hinum frjálsa markaði á langtum hærra verði en áður hefur þekkst, geta með góðri samvisku sannfært fólk um að rekstur fyrirtækja þeirra þoli ekki launahækkun. Hann kemst meðal annars þannig að orði: „Hvemig getum við verið sátt við sjálf okkur þegar við nánast göngum á höfðum þeirra sem vinna við undirstöðuatvinnuveg þjóðar- inar. Þeirra sem skapa verðmætin sem við lifum á? Við verðum að leiðrétta þetta mikla ósamræmi sem nú er við skiptingu þjóðar- tekna. Það eru sjálfsögð mannrétt- indi að 8 stunda vinnudagur og 40 stunda vinnuvika dugi til fram- færslu vísitölufjölskyldunnar. . .“ og ennfremur „. . .Sannur vilji er aht sem þarf th að leysa launamál fiskvinnslufólks, sem og annarra láglaunahópa." Þetta voru orð hins unga stjóm- málamanns og það er hópur í verkalýðsfélögunum sem er á sama máli, að minnsta kosti útgöngu- menn sem trúa því að nú eigi að sæta lagi og leiðrétta kaupið þótt samningar séu fastir. Vakinn er skhningur á því hvernig farið hefur verið með láglaunafólkið í kapp- hlaupi við launaskrið. Fiskvinnsl- an var látin borga fólki hækkaða kauptaxta með því að lækka bónus og álagsgreiðslur sem því nam en bónusinn hefur fyrr verið notaður th launahækkunar og það hefur gerst með ýmsum hætti. Hér verða rakin tvö dæmi því th staðfestingar. Það fyrra er fyrir tíð tvöfóldu taxtanna (launatölumar eru frá því í sept. en þá var greinin skrifuð). 1/91981 var hæsti nýtingarbónus U300 kr. 42,99. Þá var hæsta tímakaup í fisk- vinnu kr. 31,69. Þá gerir hæsti bónus kr. 11,30 eða 37% meira en að tvöfalda tíma- kaupið. Nú 1/9 1987 er hæsti nýtingabónus U300 kr. 143,89 og hæsta tímakaup í fiskvinnu kr. 178,35 og nú hafa máhn snúist við því nú vantar hæsta bónusinn kr. 34,46 eða 24% th að tvöfalda tíma- kaupið. Staðreyndin er að á þessu tímabhi, frá 1/9 1981 th 1/9 1987, er búið að skerða hæsta bónusinn um 61% miðað við hæsta tímakaup í fiskvinnu. Leiðrétting á iaunum Þótt þessar tölur beri með sér þá gifurlegu skerðingu, sem laun þessa fólks í fiskvinnu hafa orðiö fyrir, er það fullvíst að þeir sem em í lægri kantinum hafa orðið fyrir enn meiri skerðingu. Skal nú nefnt dæmi því th sönn- unar: 1/9 1981 er nýtingarbónus þeirra, sem höfðu U200 kr. 24,57. Hæsta tímakaup er þá kr. 31,69. Á þessum afköstum vantar bónusinn kr. 7,12 eða 30% th aö tvöfalda hæsta tíma- kaup í fiskvinnu. 1/9 1987 er nýtingarbónus þeirra Frá Verkamannasambandsþingi 1987. sem höfðu U200 kr. 71,95. Hæsta tímakaup í fiskvinnu er kr. 178,35. Á þessum sömu afköstum og í fyrra dæminu vantar bónusinn kr. 106,40 eða 148% th þess að tvöfalda hæsta tímakaup í fiskvinnu. Þannig hefur bónusinn verið notaður th lækkun- ar á launum fólks smám saman. Ef menn halda að fiskvinnan hafi fengið meiri hækkun á töxtum á þessum ámm en annað kaup þá er það mesti misskhningur því boriö hefur verið saman margs konar kaup á þessu tímabhi og fiskvinnan hefur ævinlega orðið lægst. í Verkamannasambandinu hafa orðið dehur um kröfur th leiðrétt- ingar á fiskvinnslukaupinu. Alþýðusamband Austurlands hef- ur sett fram aðrar kröfur en sprungu hjá Verkamannasam- bandinu. Og þótt kröfur Alþýðu- sambands Austurlands hafi ekki verið birtar í blöðum, sem ég hef séð, þá er samt alveg ljóst að þær eru ekki hærri en því nemur sem búið er að skerða laun fiskvinnslu- fólks um sem unnið hefur í bónus og premíu undanfarin 6 ár. Og vegna þess að hlutur bónuss- ins og þrældómur hans er á undanhaldi er það rökrétt krafa, sem sett hefur verið fram í Al- þýðusambandi Austurlands, að krefjast hækkunar á tímakaupi th leiðréttingar. Nú er lag th að feha niður bónus- inn en það á ekki að gerast á kostnað verkafólks heldur á að taka upp það kerfi sem hefur verið tekið upp í frystihúsi á ísafirði, að færa hæsta bónus inn í hæsta tíma- kaupið, en þá yrðu mánaðarlaunin, miðað við þær tölur sem hér hefur verið stuðst við í sept. sl„ kr. 51-52 þús. Þama fyrir vestan er gott dæmi um leiðréttingu á launum fiskvinnufólks og því þarf að fylgja eftir annars staðar á landinu. Herdís Ólafsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.