Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1987, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1987, Qupperneq 33
MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1987. 45 Sandkom Dýrara en í Kringlunni Áður hefur verið fjallað um í þessum dálki byggingu „pylsusöluskúrs" á knatt- spyrnuvellinum á Akureyri sem tekinn var í notkun í sumar. Mörgum hefur blö- skrað kostnaðurinn við byggingu skúrsins og senni- lega eru margir orðnir yfir sig hissa. En ekki eru öíl kurl komin til grafar enn. Erlend- ur Hermannsson, starfsmað- ur húsameistara á Akureyri, segir að kostnaður við bygg- ingu skúrsins nemi nú 1.390 þúsund krónum og eigi eftir að hækka því nýlokið sé við að setja pappa á þakið. Og hér kemur stóra spumingin: Kostnaður við hvern fer- metra skúrsins nemur nú 77.200 krónum! og er það tal- svert hærra en fermetraverð í Kringlunni í Reykj avík. Til samanburðar má geta þess að kostnaður við hvern fer- metra í einbýlishúsi er á bilinu 35-40 þúsund krónur. ÆtU hér sé ekki um að rasða dýrasta „pylsusöluskúr" ver- aldar? „Big Red" til hjálpar Steingrímur Hermannsson hefur látið í ljós óánægju sína með að „maðurinn með „nið- urskurðarhnífinn" í fjár- málaráðuneytinu ætli að lækka framlög ríkisins til íþróttahreyfingarinnar um 45%. Ljóst er að þar hefur íþróttahreyfingin eignast góðan málsvara. Steingrím- ur, sem er mikiil íþróttagarp- ur og fiölhæfur, gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að vel sé stutt við bakiö á íþróttahrey ftnpnni. Sjáifur syndir Steingrímur sem selur eins og löngu er heimsfrægt Steingrímur kemur iþróttahreyfing- unni til hjálpar. og þegar hann var við nám í Bandaríkjunum var hann áberandi í íþróttalífi þar og hafði viðurnefnið „Big Red“ semslíkur. Ólafur helgi, Ólafur hinn Lítið er fjallaðum formanns- slaginn í Alþýðubandalaginu í blaðinu Norðurlandi sem gefið er út af Alþýðubanda- laginu í NorðurlandsKjör- dæmi eystra. Eina klausan um mál málanna í Alþýðu- bandalaginu þessa dagana er á baksíðu og fylgir með henni lítíl vísa eftir Starra í Garði. Þarsegir: „Sagnfróðir menn þekkja hversu mjög Ólafi konungi helga var annt um sálarheill heiðinna Norð- manna og íslendinga á þjóðveldisöld og virðist Starri hafa hrifist svo nyögaf um- hyggju Ólafs Ragnars fyrir velferð kristinna íslendinga á atómöld að helst er hægt að likja henni við einlægan trú- boðsáhuga þess fyrrnefnda." Og hér kemur svo vísan eftír StarraíGarði: Ólafur helgi, Ólafur hinn, eitt sinn kristnaði Norð- manninn. Sigfús bœjarstjóri hótar aö hætta ef Úlfhildur tekur nefiö ekki upp ur smáatriöunum. Ólafur Ragnar, Ólafur minn, er ailaballa trúboðinn. Með nefið í smáatriðun- um Nokkur „hvellur" varð á síð- asta fundi bæjarstjómar Akureyrar milli Úlfhildar Rögnvaldsdóttur bæjarfull- trúa og Sigfúsar Jónssonar bæjarstjóra. Úlfhildur gagn- rýndi harðlega að gengið hafði verið framhjá Öldruna- rráði bæjarins erákvarðanir voru teknar varðandi bygg- ingarframkvæmdir viö dvalarheimilið Hlíð. Sigfús Jónsson svaraði fullum hálsi og sagðist líta á sig sem yfir- framkvæmdastjóra bæjarins og umrætt mál hefði ekki átt erindi til Öldrunarráðsins. Sigfús bætti síðan við að ef póhtiskar nefndir á vegum bæjarins ætluðu sér að vera með nefið ofan í smáatriðum skyldu menn fara að huga að því að fá sér nýjan bæjar- stjóra og standa sjálfir í framkvæmdum. Oftar fullir en aðrir? Vangaveltur em uppi um það hvort ökumenn bifreiða á Árskógsströnd í Eyjafirði aki oftar undir áhrifum áfengis en aðrir. Lögreglan á Dalvík segist kannast við að tíðni ökuleyfissviptinga sé óvenju há á Arskógsströnd en hefur ekki tölur í því sambandi. Um 115 manns á Akureyri hafa misst ökuleyfi sín á árinu en hjá lögreglunni á Dalvik hafa 20 manns mátt sjá á eftir skír- teini sínu og liggur þá beinast við að álykta að flestir þeirra séu frá Arskógsströnd. Með „veiði- fálka" í Bárðardaln- um Fálkar hafa um langan aldur veriðtamdirogþeirnotaðir við veiðar. Þessi siður hefur þó ekki viðgengist hér á landi, að minnsta kosti ekki í seinni tíð. Þó fékk ónefndur veiði- maður, sem gekk til tjúpna í Bárðardal í Þingeyjarsýslu á dögunum, aðstoð frá fálka við veiðarnar. Rjúpan var mjög stygg og erfitt að nálgast hana en fálki, sem kom á vettvang, varð tíl þess að rjúpan hélt kyiru fyrir á meðan hann sveimaði yfir. Veiðimaðurinn „greip gæsina" þótt rjúpna- veiðimaður væri og tókst honum að skjóta margar rjúpur á meðan fálkinn „flaug vörð“ fyrir ofan víg- völlinn. Umsjón: GylfiKristjánsson Akureyri: Kvikmyndahátíð í vetur Gyifi Kiistjánsson, DV, Akureyri: „Þessi mál eru ekki endanlega frá- gengin en það er ætlunin að halda hér kvikmyndaviku eða kvikmynda- hátíð í vetur í tilefni af 80 ára afmæli Eðvarðs Sigurgeirssonar á þessu ári,“ sagði Gunnar Ragnars, forseti bæjarstjómar og formaður menning- armálanefndar bæjarins, í samtali viðDV. Menningarmálanefndin hefur ákveðið að beita sér fyrir því að þessi kvikmyndahátíð verði haldin en á henni verða eingöngu sýndar myndir sem Eðvarð hefur tekið á Akureyri á löngum ferli sínum sem kvik- myndatökumaður. „Við urðum varir við þaö að mikiU áhugi var á sýningum sjónvarpsins í sumar á gömlum myndum frá Ak- ureyri sem Eövarð hefur tekið úr bæjarlífmu. Okkur fannst því tilvalið að fá að sýna meira af þessu efni. Við vitum að Eðvarð á mikið safn heimildarmynda sem viö teijum fróðlegt að sýndar verði opinberlega en þetta mun verða skipulagt nánar í samráði við Eðvarð sjálfan," sagði Gunnar Ragnars. Seffoss: Eldri borgarar á fullri ferð Regína Thoiarensen, DV, Selfossi: Opið hús er byrjað hjá eldri borg- urum á Selfossi af fullum krafti. Á hverjum fimmtudegi koma eldri borgarar saman í hinum rúmu húsa- kynnum í Tryggvaskála. Halldóra Armannsdóttir kennir handavinnu í sérherbergi en áður fór kennslan fram í stóra salnum í Tryggvaskála og þar var einnig spil- að, sýndar myndir, sungið ásamt ýmsu öðru. Handavinnan fór þar fram áður en alltaf varð kennarinn að taka handavinnuna með sér og geyma hana heima hjá sér því stóri salurinn í Tryggvaskála var mikið notaður undir annað fundarhald. Eldri borgarar fá frítt í sundlaug- arnar og heitu pottana. Tréskurður byrjar um næstu mánaðamót. Einnig bókband og leðurvinna ef næg þátt- taka fæst. Öll kennslan fer fram í Tryggvaskála. Já, það er mikið gert fyrir eldri borgarana á Selfossi enda Ijóma þeir af gleði. Sveinn Sveinsson flytur fundar- mönnum alltaf vísu hvern fimmtu- dag og hlakka eldri borgararnir feikilega mikið til að heyra vísuna. Þess má geta að Sveinn varð 85 ára 27. júní síðastliðinn. Sem dæmi um vísnagerð Sveins birtum við hér tvær þeirra sem eldri borgarar á Selfossi hafa fengið að heyra nýlega: Gleðja sálir ýmsra á okkar Skálafundum. Ástamálin eru þá öll í báli stundum. Hraustir menn og fógur fljóð flykkjast hingað stundum. Úrvalið úr okkar þjóð er á vorum fundum. Kafflð hefur hækkað í 80 krónur á fundum eldri borgara, var 40 krónur í fyrra, og finnst sumum þeirra að verðbólgan geysi hér með hraða sem er meiri en verðbólga ríkisstjórnar- innar, sérstaklega í kaffimálum. Öm og Örlygur: Gefa út alfræðiorðabók „Við höfum verið að skipuleggja útgáfu þessarar alfræðorðabókar síöastliðna sex mánuði. Þetta verður gífurlega stórt verk í tveimur bind- um og við áætlum að það komi út árið 1989,“ sagði Örlygur Hálfdánar- son, forstjóri bókaútgáfu Arnar og Örlygs. „Við ætlum að sníða okkar bók eft- ir alfræðisafni Gyldendals. Það er verið að endurbæta Gyldendalsal- fræðisafniö og við komum til með að styðjast við endurskoðaða handritið, auk þess bætum við inn íslensku efni eftir aðstæðum. Það verða tugir manna sem vinna að þessu verki, við erum að semja við sérfræðinga úti um allan bæ til að annast skrif á hinum ýmsu þátt- um alfræðiorðabókarinnar. Þetta verður óhemju dýr bók í út- gáfu, ég veit ekki á þessari stundu hversu dýr hún verður en það hleyp- ur á nokkrum tugum milljóna króna," sagði Örlygur að lokum. -J.Mar HnibiRfl IViiLSLll VOLVOSALURINN SKEIFUNN115, S. 691600 OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 9.00 TIL 18.00. LAUGARPAGA FRÁ KL. 10,00 TIL 16.00. VOLVO-salurinn Skeifunni 15, s. 691600. ★ Nýjar hugmyndir, ★ Góð kjör. ★ Úrval notaðra bila ★ Heitt á könnunni. Volvo 760 GLE árg. 1983, Ijósgrænn met., sjálfsk. m/od., vökvastýri, ratm. i rúðum, læsingum og spegl- um. Plussáklæði o.fl. Verð 790.000. Góð kjör, ath. skipti á ódýrari. Volvo 740 GLE árg. 1986, ek. 12.000 km, vinrauður met., beinsk., 5 gira, vökvast., rafm. i rúðum að framan, læsingum og speglum, topplúga, plussáklæði og loftkæling, fallegur bill. Verð kr. 930.000. Góð kjör. Volvo 740 GLE árg. 1985, ek. 27.000 km, silfurmetall., sjálfsk. m/od., vökvastýri, álfelgur, pluss o.fl. Verð 860.000. Góð kjör, ath. skipti á ódýr- ari. Volvo 740 GLE árg. 1984, ek. 35.000 km, vínrauður, beinsk. m/od., vökvast., topplúga. Verð 740.000. Góö kjör. Volvo 360 GL árg. 1986, ek. 31.000 km, grænn met., beinsk., 5 gíra, plussáklæði. Verð 555.000. Góð kjör, ath. skipti á ódýrari. Volvo 340 DL árg. 1985, ek. 27.000 km, blár met., beinsk., plussá- klæði. Verð 430.000. Ath. skipti á ódýrari. Volvo 345 DL árg. 1985, ek. 41.000 km, beis, beinsk. Verð 420.000. Góð kjör, ath. skipti. Volvo 345 DL árg. 1983, ek. 79.000 km, beinsk., blár met., mikið af aukahlutum. Verð 330.000. Toyota Landcruiser G árg. 1982, ek. 70.000 km, beinskiptur, 6 cyl., disil, toppeintak. Verð 850.000. Volvo 244 DL árg. 1981, ek. 83.000 km, brúnn, belnsk., vökvast. Verð 320.000. Góð kjör. Volvo 240 GL árg. 1986, ekinn 20.000 km, beinskiptur, blágrænn met., vökvast., sjálfsk. m/od. Verð 700.000. Volvo 240 GL árg. 1986, ek. 25.000 km, siltur met., beinsk., 5 gira, fall- egur bíll. Verð 700.000. NÝIR BÍLAR í SÝNINGARSAL 5T'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.