Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1987, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1987.
Útlönd
„Já“ í S-Kóreu
Suður-Kóreumenn greiddu að
yfirgnæfandi meirihluta tíl at-
kvæði með þeirri nýju stjórnarskrá
sem þjóðaratkvæðagreiösla fór
fram um í landinu í gær. Þar með
hafa þeir staöfest rétt siim til þess
að kjósa sér nýjan forseta með
ftjálsum og lýðræöislegum kosn-
ingum í desembermánuði næst-
komandi.
Að sögn embættismanna greiddu
um níutíu af hundraöi kjósenda
atkvæði meö stjómarskránni i gær
en endanleg niöurstaöa verður til-
kynnt á morgun.
Blaði lokað
Lögreglan í Malaysíu tilkynnti 1
morgun að fimmtíu og fimm sljórn-
málamenn hefðu verið handteknir
og eitt af helstu dagblöðum lands-
ins skýrði frá því að ríkisstjórnin
hefði bannað frekari útgáfu þess
af ástæðum sem tengdust öryggi
ríkisins.
Að sögn lögreglunnar í Kuala
Lumpur höfðu athafnir þeirra
stjómmálamanna sem handteknir
vom stefnt öryggi ríkisins í hættu.
Meðal þeirra vom bæði stjórnar-
andstæðingar svo og nokkrir
félagar úr stjómarflokki landsins.
Ný sakauppgjöf
Stjórnvöld í Nicaragua skýrðu frá því í gær að ný Iög hefðu veriö sett
um sakaruppgjöf til handa skæmliöum Kontrahreyfingarinnar, sem bar-
ist hefur gegn ríkisstjórn sandinista í landinu um árabil. Leiðtogar kontra
fullyrða hins vegar aö áætlanir þeirra um að koma til Managua, höfuð-
borgar landsins, til saraningaviðræðna við stjómvöld, hafi strandaö á því
að ríkisstjómin hafi ekki samþykkt þær.
Lög um sakaruppgjöf hafa verið i gildi í Nicai-agua síðan 1984 en þau
undanskiija á þriðja þúsund skæruliða sem áöur voru félagar í þjóðvarð-
liði Anastasio Somoza, fyrram einræðisherra í Nicaragua.
Þriðja fómariambið deyr
í gær lést í Rio de Janeiro í Brasil-
íu liölega tvítugur piltur, Ismael
Batiusta dos Santos, og er hann
þriðja fórnarlamb geislawkninn-
ar, sem lak út í Goiania í mið-
Brasilíu í síðasta mánuði. Alls er
taliö að um tvö hundrað og fimm-
tíu manns hafi orðið fyrir geisla-
virkni í slysinu en til þessa hafa
þrír látið Úfið óg átta til viðbótar
eru taldir í hættu enn.
Slysiö varð þegar fólk fann nokk-
urt magn af efninu Caesium 137 í
tækjabúnaöi til geislameðferðar á
krabbameini, en stjóm sjúkrahúss
eins hafði fleygt tækjunum á haug-
ana.
Silkiormar
íranir em nú að koma fyrir silki-
orma-eldflaugum sínum á nýjum
stöðum og beina þeim af Faaw-
skaganum út á Persaflóa. Talið er
aö tilfærmgar þessar séu undir-
búningur undir frekari árásir á
flóanum.
Kyrrt hefur verið á Persafióa
undanfama daga eftir að Banda-
ríkjamenn tilkynntu um nýjar
viöskiptahömlur gagnvart íran.
Þeir reyna nú að fá riki Vestur-
Evrópu til þátttöku í viðskipta-
banninu.
Bandaríkjamenn telja aö íranir
hafi fengið Silkiorms-flaugarnar
beint frá Kínverjum en sljómvöld
þar neita þvi alfarið.
___________________________________________________________PV
Leita skæruliða
tamíla ákaft
Indversku hersveitirnar á Sri
Lanka hertu í gær til muna tök sín
á aðalstöðvum skæruhða tamíla í
Jaffna og leita nú ákaft um eitt þús-
und skæruliða, sem talið er að hafi
sloppið úr umsátri Indverjanna um
Jaffna-borg síðustu daga.
Indversku hersveitimar náðu end-
anlega valdi á Jaffna-borg á mánu-
dag, eftir hðlega tveggja vikna
mannskæða bardaga um hana. Her-
menninrir mæta enn andstöðu
fámennra skæruliðahópa, sem skjóta
á þá úr launsátri, auk þess að tölu-
vert er af jarðsprengjum og
sprengjugildrum í borginni. Unnið
er að því að hreinsa borgina nú.
Yfirmenn indversku hersveitanna
telja að um tólf hundmö tamílar, þar
á meðal helsti leiðtogi þeirra, Velup-
ihai Prabhakran, hafi sloppið úr
umsátrinu um borgina. Talið er að
þeir muni reyna að hefjabaráttu sína
að nýju annars staðar á Jaffna-skaga
og leggja þvi Indverjamir aha
áherslu á að finna þá áður en þeir
koma höndum yfir vopon og búnað
til endumýjaðrar baráttu.
Til átaka kom skammt fyrir utan
borgina í gær þar sem hópur skæm-
hða hafði náð að fylkja sér saman.
Töluvert mannfall varð í hði Ind-
verja í bardögunum um Jaffna.
Liðlega hundrað og sjötíu þeirra hafa
falhð svo vitað sé með vissu en nær
fjöratíu er enn saknað.
Indverskir hermenn leita nú dauðaleit að skæruliðum tamíla, sem þeir vilja Tahð er að um sex hundruð skæm-
ná áður en þeir koma höndum yfir vopn og búnað til endurnýjaðrar baráttu. hðar hafi falhð og um þrjú hundmð
Símamynd Reuter hafi verið handteknir.
Nú er tahð að um tuttugu þúsund
indverskir hermenn séu á Sri Lanka.
Sévardnadse til Washington
Sovéski utanríkisráöherrann,
Eduard Sévardnadse, mun fara í
skyndiheimsókn th Washington síð-
ar í þessari viku, en ekki er vitað
hvort heimsókn þessi ve'rður til þess
að greiða götuna fyrir hugsanlegum
fundi leiðtoga stórveldanna tveggja,
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna,
síðar á þessu ári.
Að sögn bandarískra embættis-
manna fór Sévardnadse fram á að til
heimsóknar þessarar yrði efnt á
fundi með sendiherra Bandaríkj-
anna í Moskvu, Jack Matlock, í gær,
þriðjudag. Þetta verður í annað sinn
á tveim mánuðum sem utanríkisráð-
herrann kemur th Washington.
Búist er við að utanríkisráðherr-
ann komi th Washington annað
kvöld, fimmtudagskvöld, og eigi við-
ræður við Reagan, Bandaríkjafor-
seta, og Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, á fóstudag. Búist er
viö að formlega verði tilkynnt um
heimsókn þessa í höfuðborgum stór-
veldanna um klukkan tvö í dag.
Fregnir af heimsókn þessari hafa
vakið upp orðróm um að Mikhail
Gorbatsjov, aðalritari sovéska
kommúnistaflokksins, kunni að hafa
skipt um skoðun varðandi skhyrði
þau sem hann setti fyrir leiðtoga-
fundi nýlega og sé nú reiðubúinn th
slíks fundar.
Felldu hundrað ogfimm-
tíu uppreisnarmenn
Stjórnarher Uganda réðst síðastlið-
inn sunnudag inn í aðalstöðvar
hreyfingar stjórnarandstæðinga sem
kallar sig Hreyfingu heilags anda í
þorpi er nefnist Butte og felldi þar
um hundrað og fimmtíu uppreisnar-
menn, auk þess að fjöldi annarra var
handtekinn.
Varnarmálaráðuneyti Uganda
skýrði frá því í gær að th aðgerða
þessara hefði verið gripiö eftir að
hersveitir hefðu hmndið árás upp-
reisnarmanna á herstöðvar í
Magamaga, um sextán kílómetra
austur af Jinja, fyrr á sunnudag.
Hersveitirnar eltu uppreisnar-
mennina inn á frumskógarsvæði og
að landamærum Kenýa, þar sem
skæruliðamir skiptu sér í smáhópa.
Að sögn dagblaös í Kampala, höf-
uðborg landsins, sást til skæruliða-
hópa skammt norður af Jinja. Ekki
var vitað hversu fjölmennir hóparnir
vom, né heldur hvort meðal skæru-
liðanna væri að finna leiðtoga þeirra,
Alice Lakvena, tuttugu og sjö ára
gamla konu, sem er andlegur leiðtogi
þeirra.
Skæruliðarnir trúa því að andi sá
er þeir nefna Lakwena hafi veitt
Alice heilagt umboð th þess að steypa
ríkisstjóm landins og Yoweri Muse-
veni, forseta þess. Tilgangurinn sé
að hreinsa hlmenni út úr Uganda.
Þeir ganga til bardaga í þeirri trú að
þeir geti látið steina springa eins og
handsprengjur og að olía sem þeir
smyrja líkami sína muni vemda þá
gegn byssukúlum óvinarins.
Alice Lakwena í hópi stuðningsmanna sinna
Símamynd Reuter