Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1987, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1987. Útlönd Kapteinn úr lögreglunni í Manila á FUippseyjum, Eduardo Media- villo, var í morgun myrtur í iyrir- sát, sem talið er aö skæruliöar kommúnista á eyjunum hafi staöiö fyrir. I gær uröu sprengingar í tveim sjónvarpsstöövum á Filippseyjum og braust eldur út f báðum þeirra. í morgun var önnur þeirra enn lok- uð en tvær af þrem hæðum bygg- ingar sjónvarpsstöðvarinnar skemmdust mikið í eldinum. Sjónvarpsstöðvamar eru báðar í sömu byggingu en önnur þeirra er ríkisstöö, hin í einkaeiga Það er ríkisstöðin sem enn er óstarfhæf. Talið er hugsanlegt aö sprenging- amar hafi verið skemmdarverk. Hafnimar opnar Nýr samningur milli ríkja Vestur-Evrópu, sem auka mun á samvinnu flota ríkjanna á Persaflóa, sýnir aö Evrópuríki geta gripiö til samhæfðra vamaraðgeröa utan athafnasvæðis Atlantshaísbandalagsins ef þörf þykir til sliks, að sögn embættismanna. Forseti Vestur-Evrópubandalagsins, Hans Van den Broek, utanríkisráð- herra Hollands, sagði í gær að sú ákvörðun aðildarríkja baiidalagsins að auka á samvinnu flota þeirra á Persaflóa væri hluti af áætlun um að samhæfa vamir V-Evrópu meira en verið hefúr. Sagði ráðherrann aö V-Evrópuþjóöir vildu ekki hætta aðild aö NATO en þegar eitthvað geröist utan athafnasvælðis þess gætu ríki þessi gripið sjálf til aðgerða á samhæfðan hátt Tokýo á upplefð Verðbréf á markaðinum í Tokýo, stærsta verðbréfamarkaði heims, fór aftur upp á viö í morgun, annan daginn í röö, í kjölfar hækkunar sem varð á Wall Street í New York í gær. Markaðurinn í Wall Street tók kipp upp á við í gær, annars vegar vegna þess að hækkanir uröu á mörkuðunum í Tokýo og i Hong Kong, hins vegar vegna þeirrar ákvörðunar IBM að kaupa um eins mifljarðs dollara virði af hlutabréf- um sínum til baka. Þá virðast verðbréfamarkaðir annars staðar, til dæmis í London og Ástralíu, vera stöðugri en þeir vom í síðustu viku. Endumýja loftvamir Bretar em nú að endumýja loft- vamir sínar með því að taka í notkun nýjar Tornado ormstuþot- ur til þess að mæta því sem hátt- settur foringi í konunglega breska flughemum segir að sé hræðileg ógnun frá Sovétmönnum. Að sögn breska flughersins er áætlunin um þessa endurnýjun sú umfangsmesta sem hefur veriö gripið tU. Tomado-þotumar em langfleyg- ar og voru hannaöar af Bretum, Vestur-Þjóövetjum og ítölum í sameiningu. TVeir blaða- menn myrtir? Talið er að tveir bandarískir blaða- heimildarkvikmyndar um skæm- myrtir í fyrirsát fyrr í þessum mán- menn, sem voru að vinna við gerð hemað í Afganistan, hafi verið uði, nærri Kabúl, höfuðborg Afgan- istan. Er þetta haft eftir heimildum innan bandarísku utanríkisþjón- ustunnar svo og aðilum úr röðum skæruhða í Afganistan. Ekki ber öllum heimildum um málið saman því að aðrar fregnir herma að blaðamennirnir hafi verið teknir höndum af hermönnum stjómarinnar í Afganistan. Segja þær heimildir að mennimir hafi ver- ið fluttir til Kabúl og em bandarísk stjórnvöld nú að reyna að finna út hvað varð um mennina tvo. Blaðamennimir tveir, Lee Shapiro og Jim Lindelof, hafa verið í Afgan- istan frá því snemma á síðastliðnu sumri. Þeir unnu þar, sem fyrr segir, að gerð heimildarkvikmyndar en Shapiro er sjálfstæður framleiðandi fréttamynda og Lindelof starfar sem hljóðmaður. Stjómvöld í París eru einnig að rannsaka orðróm um að franskur kvikmyndatökumaður hafi verið handtekinn þegar hann var á ferð í Afganistan með islömskum upp- reisnarmönnum. Á hann að vera í haldi í fangelsi í Kabúl. Frakkinn Alain Guyot, sem starfaði fyrir Sygma TV, var handtekinn í sept- ember og síðar afhentur sovéska hemámsliðinu í Afganistan, að sögn Bandarísku blaðamennirnir Lee Shapiro og Jim Lindelof. Simamynd Reuter heimilda. Rætumar i Bandaríkjunum og Vestur-Þýskalandi Gizur Helgason, DV, V-Þýskalandi: Kauphallarsérfræðingar í V- Þýskalandi hafa látið þau orð falla að ef haldbær lausn er fyrir hendi á fjármálamarkaðnum þá sé hana að finna í Bandaríkjunum og Vestur- Þýskalandi og að annað hvort landið þurfi að taka afgerandi frumkvæði til að leysa þessi alþjóðlegu jafn- vægisvandamál í heiminum. Eftir að dollarinn féll verulega í gær á alþjóðamarkaði hafa þær radd- ir orðið æ háværari er krefjast ráðherrafundar þeírra sjö landa er mega sín hvað mest í fjármálaheim- inum. í gær fór dollarinn niður fyrir 1,8 strikið í V-Þýskalandi. í Frank- furt var gengi hans skráð 1,76 v-þýsk mörk. Það sem setti skriðuna í Wall Street af stað voru erjur á milli Bandaríkj- anna og V-Þýskalands. í síðustu viku gagnrýndi fjármálaráðherra Banda- nkjanna, Baker, V-Þýskaland kröft- uglega og hótaði því, að þyí er sögusagnir herma, að láta dollarann falla. Þjóðverjar eru mjög mikið á móti lækkun dollarans þar eð það skaðar útflutning V-Þýskalands verulega. Bandaríkin hafa auðsjáan- lega hótað því að nota dollarann sem vopn gegn þeirri vaxtahækkun er varð nú nýlega í V-Þýskalandi og auk þess til þess að reyna að fá Þjóðveija til þess að fara í gagnstæða átt, með lækkun vaxta. Svar Þjóðveija er hins vegar að það séu Bandaríkin sem verði að komast fyrir rætur vandans á heimaslóðum og eiga þar við óhag- stæöan vöruskiptajöfnuð þar í álfu. Þegar verðhrunskriðan skall yfir reyndu V-Þjóðverjar að róa stóra bróður í vestri en óopinber ummæli nú hina síðustu daga benda til þess að Þjóðveijar séu famir að brýna raustina. Þeir óttast að Bandaríkja- menn, með hjálp seðlabankans, láti dollarann falla enn meir. Síðan í febrúarmánuði hafa iðnað- arlöndin haldið sig við Lourve- samkomulagið um haldreipi til að verjast sveiflum dollarans en það hefur aldrei verið gert heyrum kunn- ugt hvar mörkin eru, hvenær iðnað- arlöndin grípa verulega í taumana. Einn af þátttakendunum í Lourve- samkomulaginu sagði nýlega í Financial Times að ákveðið hefði verið að halda genginu þar sem það er og að tryggja frávik. Það var líka allt og sumt. Því má segja að gengis- fall dollarans sé ekki endilega samningsrof eða stríði gegn sam- þykktunum í Louvre. Kauphallarmenn eru nú vitni að því að stjóm Bandaríkjanna reynir að beita eigin efnahagskerfi hörðu, það er minnka hallann á vöruskipta- jöfnuði en um leið að leggja þrýsting á V-Þjóðverja til meiri samræmingar í efnahagspólitíkinni. Kjamorkuvopn á Persaflóa? Arkin segir að öll flugmóðurskip beri kjamorkuvopn þegar þau eru á hafi úti. Talsmaður Pentagon, sem beðinn var um viðbrögð við fullyrðingum höfundarins, notaði við það tækifæri hefðbundið svar bandariskra her- málayfirvalda, þess efnis að ekkert yrði sagt til um hvort kjamorkuvopn væra eða væra ekki á einhveiju ákveðnu skipi, hvar sem er á höfum úti. Að sögn höfundar nýrrar skýrslu má telja víst að nokkur þeirra banda- rísku herskipa, sem nú era á Persa- flóa til verndar skipaumferð, beri kjarnorkuvopn, allt frá Tomahawk- flaugum til B-57 djúpsprengja. William Arkin, sem er höfundur skýrslu um kjamorkuvígbúnaðar- kapphlaupið á höfúm úti, fullyrðir aö flugmóðurskipið Ranger, sem nú er á norðanverðu Arabíska hafinu, beri að jafnaði bæði &43 og B-61 kjamorku- vopn, auk djúpsprengjanna. Eru kjarnorkuvopn á Persaflóa?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.