Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1987, Blaðsíða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1987.
Tarðarfarir
Svava S. Guðmundsdóttir lést 20. okt-
óber sl. Hún var faédd í Reykjavík
21. ágúst 1955, dóttir hjónanna
Margrétar Tómasdóttur og Guö-
mundar Magnússonar. Svava lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
við Tjörnina og stundaði síðan fram-
haldsnám í Svíþjóð. Eftirlifandi
eiginmaður hennar er Pétur Tyrf-
ingsson. Þeim hjónum varð tveggja
barna auðið. Útför Svövu verður
gerð frá Áskirkju í dag kl. 13.30.
Sigríður Jónsdóttir, áöur til heimil-
is á Kleppsvegi 24, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju föstudaginn 30.
október kl. 13.30.
Harpa María Björnsdóttir, Ægis-
grund 20, sem lést miðvikudaginn 21.
október, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni flmmtudaginn 29. október
kl. 13.30.
Tage Möller hljómlistarmaður,
Skúlagötu 54, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 29.
október kl. 15.
Hulda Tryggvadóttir, Aragötu 16,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík fimmtudaginn 29. októb-
er kl. 10.30.
Jóhanna Stefánsdóttir verður jarð-
sungin frá Stykkishólmskirkju laugar-
fjaginn 31. október kl. 14.
LUKKUDAGAR
28. okt.
78194
Raftæki frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 3.000.
Vinningshafar hringi í síma
91-82580.
Betzy Kristín Elíasdóttir lést 20.
október sl. Hún var fædd í Reykjavík
11. júní 1945. Foreldrar hennar voru
hjónin Randí Þórarinsdóttir og Elías
Kristjánsson. Betzy var tvígift. Fyrri
maður hennar var Kristján Friðjóns-
son og eignuðust þau tvö börn. Þau
slitu samvistum. Eftirlifandi eigin-
maður hennar er Haraldur Örn
Haraldsson og eignuðust þau saman
eina dóttur. Útför Betzyar verður
gerð frá Dómkirkjunni kl. 15.
Emil A. Sigurjónsson lést 20. oktöb-
er sl. Hann fæddist í Reykjavík 21.
nóvember 1907. Foreldrar hans voru
Emilía Sigurbjörg Ingimundardóttir
og Sigurjón Sigurðsson. Emil lauk
sveinsprófi í málaraiðn frá Iðnskól-
anum í Reykjavík og stundaði þá iðn ,
alla tíð meðan aldur og heilsa leyfðu.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Margrét Guðjónsdóttir. Þau hjónin
eignuðust fimm börn en Emil eignað-
ist eina dóttur fyrir hjónaband. Útfór
hans verður gerð frá Hallgríms-
kirkju í dag kl, 13.30.
Fundir
ITCdeildin Melkorka
heldur kvnningarfund í kvöld, miðviku-
daginn 28. október. Fundurinn verður í
Gerðubergi og hefst kl. 20.
Norræni sumarháskólinn
Nú er Norræni sumarháskólinn að hefja
vetrarstarfið. Kynningarfundur verður í
Norræna húsinu í kvöld, 28. október, kl.
20.30. Norræni sumarháskólinn er opin
öllu áhugafólki.
Haukur Bergmann, starfsmaður Tilkynningaskyldunnar, við tölvubúnaðinn.
DV-mynd
Tölvuvædd Tllkyniungaskylda:
Biörgunarlíkur aukast að mun
Með tölvuvæðingu Tilkynninga-
skyldunnar mun öryggi íslenskra
sjómanna aukast að mun. Auk þess
gerir tölvan alla vinnu léttari og ör-
uggari. Frá því í vor hefur tölva verið
notuð ásamt handskráningu.
Hewlett-Packard umboðið hefur
gefið Slysavarnafélaginu tölvu sem
notuð hefur verið og Oddfellow-
stúkan Þorfinnur karlsefni gaf
fullkominn prentara.
Með tölvunni er hægt að sjá á
augnabliki þá báta og skip sem eru
stödd næst því hafsvæði sem hugsan-
legt slys verður á. Þar með verður
fljótlegt og auðvelt að gera þeim bát-
um, sem næstir eru, viðvart á
augnabliki. -sme
I gærkvöldi
Ester Jakobsdóttir skrifstofumaður:
Aðalheiður bar af
Það fyrsta sem ég horfði á í gær-
kvöldi var 19.19 fréttaþátturinn. Ég
tek hann fram yfir fréttaþátt ríkis-
sjónvarpsins vegna tímasetningar-
innar, ekki endilega vegna þess að
hann sé betri. Það er talsverður
eðlismunur á fréttum sjónvarps-
rásanna, Stöð 2 tekur meira fyrir
dægurmál en fréttir eru ítarlegri
hjá ríkissjónvarpinu.
Ég fylgdist með um það bil einum
„umgangi" af ræðumönnum frá
Alþingi og var þar. fátt sem mér
kom á óvart eða vakti sérstaklega
athygli mína. Þó fannst mér Aðal-
heiöur Bjarnfreðsdóttir úr Borg-
araflokki mjög röggsöm í
ræðuflutningi, þó ég væri henni
ekki endilega sammála. Það er
undravert þegar tekið er tillit til
þess að hún er nýgræðingur á
þingi. Aðrir þingmenn höguðu orð-
um sínum eins og við mátti búast.
Ég skaut inn í dagskrána hjá mér
þætti frá Stjömunni þar sem Bjarni
Arason valdi gömul Presley-lög. Ég
er gamall Presley-aðdáandi og
fannst lagavalið ágætt hjá Bjarna
en hann er greinilega ekki nógu
vanur að koma fram í útvarpi því
hann er ekki nægilega skýrmæltur.
Ég stillti einnig á Stöð 2 og horfði
á Hunter sem getur oft verið spenn-
andi þó hann skilji lítiö eftir sig.
Af öðrum dagskrárliðum þá sá ég
um það bil helminginn af bíómynd-
inni Strok milli stranda sem er
dæmigerð gamanmynd.
Ester Jakobsdóttir.
Það fer nokkuð í taugarnar á mér
að mikið af spennandi efni er sýnt
á matmálstímum og því oft erfitt
að sameina fjölskylduna við matar-
borðið.
Menriing
Einlægni og trú
- kirkjutónleikar í Laugamessókn
komum. Einsöngvararnir Sigrún
V. Gestsdóttir, sópran, og bassinn
Halldór Vilhelmsson leystu sín
hlutverk með góðum stíl og ekki
skemmdu textar í þýðingum Sigur-
björns Einarssonar og Heimis
Pálssonar. Aðalverkið var þó Glor-
ia eftir Vivaldi en sá hafði lika, eins
og aUir vita, mikil áhrif á Bach sem
umskrifaði mörg verka hans sér til
gagns og ánægju. Þar kom ágæt
altsöngkona til skjalanna, Guðný
Árnadóttir, og gladdi ásamt Sig-
rúnu viðstadda með furðu örugg-
um flutningi erfiðra einsöngs- og
tyísöngskafla.
Ég ætla ekki að halda fram að
þetta hafi verið magnaður flutning-
ur, til þess voru kór og hljómsveit
einfaldlega of fámenn. En þetta var
gert af einlægni og trú og náði til
hjartáns. Ann Toril mun nú eftir-
leiðis verða ein um organistastarfið
í Laugameskirkju því Þröstur hef-
ur fengið stöðu í Garðabæ og
hyggur áreiðanlega gott til glóðar-
innar þar. En hún mun líka vera
einfær um slíkt, það gat maður
sannarlega heyrt úr frábærum leik
hennar á Prelúdíu eftir Buxtehude,
margslungnu einleiksverki fyrir
orgel. Þeir eru ekki á flæðiskeri
staddir í Laugamesi með hana við
orgelið.
-LÞ
Tónlistarstarf í kirkjum hefur
gjörbr-eyst á undanfórnum árum.'
Komnir eru til starfa margir vel
menntaðir organistar, búnir hæfl-
leikum og góðum vilja, og þeir drífa
upp söng og hljóðfæraleik út um
allt.
Gott dæmi um þetta eru tónleikar
sem haldnir voru í Laugarnes-
kirkju sl. sunnudag. Þröstur Ei-
ríksson hefur starfað þar ásamt
konu sinni, Ann Toril Lindstad, í
fjögur ár, en þau eru bæði organist-
ar. Hafa þau komið upp ágætum
kór og nú fengu þau til liðs við sig
þrfá einsöngvara og sjö hljóðfæra-
leikara og efndu til tónleika með
verkum eftir Buxtehude og Vi-
valdi. Fyrst var kantatan „Jesús,
heill míns hjarta" eftir Buxtehude,
Tónlist
Leifur Þórinsson:
meistarann frá Lubeck, sem hafði
meiri áhrif á Bach en flestir aðrir.
Þetta er fallegt verk og sterkbyggt'
og það var í heild vel flutt þrátt
fyrir smávegis öryggisleysi í inn-
Tónleikar í Laugarneskirkju.
Mynd-GVA
Skák
Skákmótið í Belgrad:
Jóhann tapaði aftur
- teflir við Kortsnoj í dag
Jóhann Hjartarson missti foryst-
, una á Invest-banka skákmótinu í
Belgrad í gær er hann tapaði fyrir
júgóslavneska stórmeistaranum
Predrag Nikolic. Jóhann jafnaði
taflið því sem næst eftir byrjunina
en tilraunir hans til þess að brjóta
upp stöðuna í miðtaflinu mistókust
algjörlega. Nikolic náði miklum
þrýstingi á drottningarvæng, vanri
peð og eftir 28 leiki, er Jóhann sá
að frekari barátta var vonlaus,
gafst hann upp.
Önnur úrsht 8. umferðar urðu
þau áð Ljubojevic vann Salov eftir
nótum en Sovétmaðurinn mun eiga
við lasleika að stríða. Þá vann Tim-
man Short í vel tefldri skák og
skemmtilegri. Öldungurinn Glig-
oric vann landa sinn Maijanovic
sem hefur aðeins hlotið hálfan
vinning og er að verða rænulaus
eftir öll vinstri handar höggin.
Beljavsky og Popovic gerðu jafn-
tefli eftir að Beljavsky hafði reynt
til þrautar að knýja fram vinning.
Ljubojevic og Timman hafa þó
Skák
Jón L. Árnason
náð forystu á mótinu með 5'A v.
Kortsnoj gæti náð þeim en skák
hans við Ivanovic stefndi í biðskák.
Að sögn Timmans var staðan lík-
legt jafntefli. Kortsnoj hefur 4 'A v.
auk biðskákarinnar. Jóhann Hjart-
arson, Beljavsky, Popovic og
Nikohc hafa allir 4 !/2 v. og eru jafn-
ir í 4.-7. sæti. Ivanovic hefur 3'/2
v. og biðskák, Short hefur 3'/2 v.,
Salov og Gligoric 3 v. og Marj-
anovic '/2 v.
Búast má við spennandi viður-
eign í dag því að Jóhann Hjartarson
mætir Viktor Kortsnoj, tilvonandi
mótherja í áskorendakeppninni í
Kanada. Þess má geta að Kortsnoj
og Timman tóku upp hanskann
fyrir Jóhann í gær en hann þurfti
að bíða í 4 klst. á skákstaö eftir að
tefla biðskákina við Popovic sem
átti annarri skák ólokið. Þeir félag-
ar töldu til háborinnar skammar
að skákstjórar skyldu hafa krafist
þess að Jóhann yrði til taks á skák-
stað í stað þess að hvíla sig á
hótelherbergi sínu og engin ákvæði
um shkt væri að finna í skáklögum.
-JLÁ