Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1987, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1987, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 1987. 25 Fólk í fréttum Ámi Bjömsson Ámi Björnsson tónskáld var gerður að heiðursfélaga Sambands íslenskra lúðrasveita síðastliðinn sunnudag. Árni fæddist 23. desember 1905 að Lóni í Kelduhverfl. Hann fluttist til Reykjavikur 1928 og var við nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík 1931-1935. Hann lauk burtfarar- prófi í píanóleik 1935 og starfaði að tónlistarmáium í Reykjavík þangað til hann fór í framhaldsnám við Royal Manchester College of Music í Englandi 1944-1946. Aðalnáms- greinar Áma vom flautu- og píanóleikur en auk þess lagði hann stund á stofutónlist (kammermús- ík), undirleik, tónfræði og tónsmíð- ar og lauk þriggja ára námi á tveimur árum. Hann var kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík 1946-1952 en lék jafnframt í Út- varpshljómsveitinni, Lúðrasveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit íslands. Ámi lagði jafnframt stund á tónsmíðar og samdi fjöldann all- an af tónverkum sem hafa notið mikilla vinsælda. Hann varð fyrir slysi 1952 sem skerti starfsorku hans en hefur haldið tónlistargáfu sinni og samið mikið af tónlist eftir sem áður. Árni er heiðursfélagi Tónskáldafélags íslands. Ámi giftist 1941 Helgu Þorsteins- dóttur, f. 26. ágúst 1913, dóttur Þorsteins Jóhanns Jóhannssonar, kaupmanns í Rvík, og konu hans, Katrínar Guðmundsdóttur. Börn þeirrá eru Katrín Sigríður, f. 30. maí 1942, og Björg, f. 2. júlí 1947. Foreldrar Árna voru Björn Guð- mundsson, b. og hreppsstjóri í Lóni í Kelduhverfi, og kona hans, Sigríð- ur Bjarnína Ásmundsdóttir. Faðir Bjöms var Guðmundur, b. í Lóni. Bróðir Guðmundar var Árni í Lóni, sem var giftur Önnu, systur Bjarg- ar, konu Guðmundar. Þeirra sonur var Árni píanóleikari, faðir Kristj- áns menntaskólakennara. Guð- mundur var sonur Kristjáns, b. og hreppstjóra á Víkingavatni. Systir Kristjáns var Kristjana, móðir Sveins Víkings rithöfundar..Bróðir Kristjáns var Óli, faðir Árna Óla rithöfundar. Kristján var sonur Áma, umboðsmanns á Árnanesi Þórðarsonar, b. á Kjarna í Eyjafirði Pálssonar sem Kjarnaættin er kehnd við. Meðal barna Þórðar voru Páll, afi Friðriks Friðriksson- ar æskulýðsleiðtoga, Björg, lang- amma Rögnvaldar Sigurjónssonar píanóleikara, Þórdís, langamma Sæmundar, fóður Þorsteins stjörnufræðings, Þorbjörg, lang- amma Vilhjálms Hjálmarssonar, fyrrv. menntamálaráðherra, Krist- björg, langamma Ragnars Hall- dórssonar, forstjóra ÍSALs, og Ingibjörg, langamma Ingibjargar, móður Sigurjóns Péturssonar borgarráðsmanns. Móðir Kristjáns var Jóhanna, systir Gunnars, lang- afa Gunnars Gunnarssonar skálds. Jóhanna var dóttir Skíða-Gunnars b. á Ærlæk Þorsteinssonar. Móðir Guðmundar var Sigurvejg Guð- mundsdóttir, b. í Ærlækjarseli Árnasonar. Móðir Sigurveigar var Ólöf, systir Bjargar, ömmu Jóns Sveinssonar, Nonna. Önnur systir Ólafar var Guðný, móðir Kristjáns Fjallaskálds. Ólöf var dóttir Sveins b. á Hallbjarnarstöðum Guð- mundssonar. Móðir Björns var Björg, systir Petrínu, ömmu Kristj- áns Eldjárns forseta. Petrína var dóttir Hjörleifs prests á Skinnastað Guttormssonar. Móðir Árna, Bjarnína, var systir Guðmundar læknis. Bjarnína var Árni Björnsson. dóttir Ásmundar b. á Auðbjargar- stöðum Jónssonar. Móðir Ásmund- ar var Ása Jónsdóttir b. í Ytri-Tungu á Tjörnesi Semingsson- ar, bróður Marsibil, móður Bólu- Hjálmars. Móðir Bjarnínu var Kristbjörg Arngrímsdóttir b. á Fellseli Bjarnasonar, bróður Ein- ars, lángafa Valtýs Péturssonar listmálara. Afmæli Húnbogi Þorleifsson Húnbogi Þorleifsson húsasmið- ur, Hólagötu 41, Njarðvik, er sjötíu og fimm ára í dag. Húnbogi fæddist á Svínhólum í Bæjarhreppi í Lóni, Austur-Skaftafellssýslu, og þar ólst hann upp í foreldrahúsum. Um tví- tugsaldur fór Húnbogi til sjós og var þá á bátum frá Hornafirði og síðan á vertíðum í Vestmannaeyj- um. Hann var svo við nám á Bændaskólanum á Hvanneyri og lauk þaðan prófi 1943. Eftir það fór Húnbogi til Reykjavíkur og hóf þar nám við Iðnskólann 1947 en hann lauk húsasmíðanámi 1949. Hann hefur síðan unnið viö sína iðn, lengst af hjá íslenskum aðalverk- tökum, en hann hóf störf hjá Sameinuðum verktökum 1951 og starfar enn hjá íslenskum aðal- verktökum. Húnbogi bjó í Sand- gerði frá 1951 en hefur svo búið í Njarðvíkum frá 1963. Kona Húnboga er Einarína Jóna, f. 27.2.1922. Foreldrar hennar: Sig- urður, sem lengi var verkstjóri í Sandgerði, Einarsson, og Sigríður Jónsdóttir, ættuð úr Vestur-Skafta- fellssýslu. Húnbogi og Einarína Jóna eiga sjö börn: Ragnhildur, f. 1950, býr á Egill Eðvarðsson kvikmynda- gerðarmaður, Fróstaskjóli 91, Reykjavík, er fertugur í dag. Hann fæddist á Akureyri og lauk stúd- entsprófi frá MA 1967 en stundaði myndlistarnám við Georgia Col- lege í Bandaríkjunum 1967-68. Egill var í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1968-71 og útskrifaðist úr teiknikennaradeild sem teikni- kennari. Hann hóf störf hjá Sjón- varpinu sem upptökustjóri 1971 en var í námi hjá sænska sjónvarpinu veturinn 1971-72.'Egill starfaði hjá íslenska sjónvarpinu til 1980 er hann stofnaði ásamt Birni Björns- syni fyrirtækið Hugmynd sem sér um framleiðslu sjónvarpsauglýs- inga og uppsetningu á sýningum en þetta fyrirtæki reka þeir enn. Egill var aðalhandritahöfundur og leikstjóri að kvikmyndinni Húsinu, 1983, en hann samdi auk þess titil- lagið. Egill hefur sett upp ýmis sjónvarpsverk í samvinnu við Hrafn Gunnlaugsson og má þar Blönduósi. Maður hennar er Karl Tryggvason sem starfar við Blönduvirkjun. Þau eiga þrjú börn. Áslaug, f. 1951, hefur verið verslun- arstjóri í Kaupfélaginu í Njarðvík. Hún á eitt barn. Þorleifur, f. 1953, er húsasmiður og starfsmaður hjá íslenskum aðalverktökum. Guðný, f. 1955, býr í Keflavík. Maður henn- ar er Þórður Magnússon, skipa- smiður og verkstjóri í Keflavík- urslippnum. Þau eiga fimm börn. Halldóra, f. 1956, býr í Njarðvík. Maður hennar er Árni Stefánsson, múrari og starfsmaður hjá íslensk- um aðalverktökum. Þau búa í Njarðvík og eiga þrjá syni. Sólrún, f. 1957, býr í Sandgerði. Maður hennar er Skúli Jóhannsson fisk- vinnslumaður og eiga þau þrjú börn. Ásgeir, f. 1960, er húsasmiður að mennt en starfar á Keflavíkur- flugvelli. Kona hans er Guðbjörg Ásbjörnsdóttir. Þau búa í Hafnar- firði og eiga tvö börn. Fósturdóttir Húnboga er Hannveig Valtýsdóttir, f. 4.11.1945, gift Páli Hlöðverssyni, skipatæknifræðingi á Akureyri, og eiga þau fjögur börn. Húnbogi átti sex systkini en þrjú þeirra eru látin: Hálfsystir Hún- nefna Silfurtúnglið eftir Halldór Laxness, Keramik eftir Jökul Jak- obsson og Blóðrautt sólarlag og Sögu af sjónum eftir Hrafn Gunn- laugsson. Egill spilaði í dægurlaga- hljómsveitum frá tólf ára aldri og samdi þá nokkur þekkt lög, m.a. í samvinnu við Gunnar Þórðarson. Hann er starfandi myndlistarmað- ur og hefur haldið þrjár einkasýn- ingar á íslandi og eina í Los Angeles, auk þess sem hann hefur tekið þátt í samsýningum bæði heima og erlendis. Egill hefur unn- ið brautryðjandastarf í gerð ís- lenskra músíkmyndbanda en hann hefur myndskreytt þrjátíu og tvö íslensk dægurlög. Egill er tvíkvæntur. Fyrri kona hans er Hrafnhildur Hrafnsdóttir, f. 30.8. 1950, en sonur þeirra er Finnur Eðvarð, f. 28.2.1971. Seinni kona hans ér Guðrún Valgerður Bjarnadóttir, f. 29.8.1949, kaupkona í Reykjavík, en synir .þeirra eru: Einar, f. 14.6.1978, og Erling, f. 22.4. boga, samfeðra, var Sólveig sem lengi bjó á Eskifirði, gift Halldóri Árnasyni útgerðarmanni, en þau hjón eru bæði látin; Guðrún, systir Húnboga, var síðustu árin húsmóð- ir í Reykjavík, gift Skúla Siguijóns- syni, b. og síðar verkamanni við Ofnasmiðjuna í Reykjvík, en þau hjón eru einnig látin; Inga býr hjá syni sínum í Vík í Lóni en maður hennar var Gunnar Sigurðsson b. sem er látinn; Halldóra bjó á Eski- firði, gift Sigurði Gestssyni sjó- manni, en þau eru bæði látin; Guðmundur, verkamaður á Höfn í Hornafirði, er giftur Hjöltu Júlíus- dóttur; Sigurbjörg býr einnig á Höfn, gift Hannesi Rassmussen kjötvinnslumanni við Kaupfélagið á Höfn. Foreldrar Húnboga: Þorleifur, b. í Svínhólum, Bjarnason, b. á Hvals- nesi og síðast í Svínhólum, Bjarna- sonar, og kona.hans, Ragnheiður ljósmóðir Guðmundsdóttir, b. í Bæ og síðar á Svínhólum, Guðmunds- sonar. Móðuramma Húnboga var fyrri kona Guðmundar, Gróa Sig- urðardóttir. Egiil Eðvarðsson. 1981. Systir Egils er Elsa Friðrika. f. 19.12. 1954, gift Bjarna Torfasyni, lækni í Svíþjóð. Hálfsystur hans. sammæðra, eru: Anna Dóra Harð- ardóttir. gift Hjörleifi Einarssyni. sjómanni í Reykjavík; og Kristín Huld Harðardóttir sem vinnur í niðursuðuverksmiðju Kristjáns Jónssonar á Akureyri, en hún er ekkja eftir Sigurð Þorgeirsson stýrimann á Suðurlandinu, Foreldrar Egils: Eðvarð Sigur- geirsson, lj'ósmyndari og kvik- myndatökumaður á Akureyri, og kona hans, Marta Jónsdóttir. Egill Eðvarðsson Andlát Jóna Þorgerður Gunnlaugsdóttir, Björg Aradóttir lést í Landspítalan- Skagaströnd, andaðist í Héraðshæl- Hæðargarði 32, Reykjavík, áður bú- um 26. október. inu Blönduósi, 25. október. sett í Vestmannaeyjum, andaöist í Jóhann Jónsson, Vesturgötu 1, Ól- Kristin Finnsdóttir, Húnabraut 36, Vífilsstaðaspítala 25. október. , afsfirði, fyrrum bóndi i Hlíð, andaðist Blönduósi, andaðist 26. október á Ágústa Forberg andaðist 27. október að elli- og hjúkrunarheimilinu Horn- Héraðshælinu Blönduósi. á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnar- hrekku 26. októher. Sigrún Guðmundsdóttir frá Skarði firði. Kristín Indriðadóttir, Ægisgrund 8, andaðist laugardaginn 24. oktöber. Guðrún S. Clausen Guðrún S. Clausen, Hraunbæ 97, Reykjavík, er sextug í dag. Guðrún fæddist í Ólafsvík en ólst upp í for- eldrahúsum í Hafnarfirði frá fjögurra ára aldri og í Reykjavík frá tólf ára aldri. Eftir barnaskóla stundaði hún nám í Ingimars'skól- anum. Maður Guðrúnar er Holger P. Clauseri, f. 13.8.1923, en hann hefur verið birgðavörður hjá Vélamið- stöð Reykjavíkurborgar. Foreldrar Holgers voru Axel Clausen. kaup- maður á Hellissandi og síðar sölumaður í Reykjavík. og Svan- fríður Árnadóttir, sjómanns í Ólafsvík Daníelssonar, Vigfússon- ar. Axel var sonur Holgers Claus- ens alþingismanns á Snæfellsnesi og gullgrafara í Ástralíu og seinni konu hans, Guðrúnar Þorkelsdótt- ur prests á Staöastað, Eyjólfssonar. Guðrún og Holger eiga fimm börn. Svanbjörg, f.6.4.1947. er hús- móðir í Reykjavík og starfar jafn- framt við verslunarstörf. Hennar maður er Sverrir Karlsson sendi- bílstjóri og eiga þau tvær dætur. Guörún Olga, f.1.6. 1950. er hús- móðir í Reykjavík og vinnur jafn- framt á auglýsingadeild Þjóðvilj- ans. Hennar maður er Guðmundur Benediktsson hljómlistarmaður og starfsmaður hjá ríkisútvarpinu. Þau búa í Reykjavík og eiga þrjú börn. Elín Auður, f.1.3. 1956, býr í Hollandi og hefur starfað við sauma. Hún á eina dóttur. Krist- björg, f.28.10.1960, er sendibílstjóri í Reykjavík. Einar, f.3.12. 1965. er bílstjóri og býr í foreldrahúsum. Foreldrar Guðrúnar eru bæði lát- in. Þau voru Einar sjómaður. f.8.9. 1875, frá Skammadal í Mýrdal. Jónsson, og Eufemía Elín Guð- björg. f.13.8. 1885 á Kálfarvöllum í Staöarsveit á Snæfellsnesi, Vigfús- dóttir. Föðurforeldrar Guðrúnar voru Jón. f. í Varmahlíð 1825. Tóm- asson. b. í Varmahlíö. f. 1790. Þórðarsonar og. kona hans Hólm- fríður. f.1837. dóttir Jóns. f.1795, Guðmundssonar og konu hans Margrétar. f.1807, Einarsdóttur. Guðrún verður ekki heima á af- mælisdaginn en hún tekur á móti gestum á heimilum dætra sinna að Laugarriesvegi 86. á fjórðu hæð. sunnudaginn 1.11. eftir kl. 17. Guðrún Óh Guörún Ólafia Zoega. Tjarnar- götu 10C, Reykjavík. er áttræð í dag. Maður hennar er Helgi Zoega kaupsýslumaður. Foreldrar Guðrúnar voru Bjarni Þorlákssoh Johnson. sýslumaður í Dalasýslu, og Guðbjörg Þorkels- afía Zoega dóttir á Mörkum. Föðurforeldrar Guðrúnar voru Þorlákur Ó. John- -son. kaupmaður í Reykjavík. og kona hans. Ingibjörg Bjarnadóttir. hreppstjóra á Esjubergi. Bjarna- sonar. Guðlaug Gisladóttir. Smáragrund 13, Sauðárkróki. er fimmtug í dag.. Hjálmar Guðmundsson. Korná. Lýtingsstaðahreppi. er fimmtugur í dag. Margrét Hagalínsdóttir. Drafnar- götu 14. Flatevrarhreppi. er fimmtug í dag. Ásthildur Sigurgeirsdóttir. Sjávar- götu 36, Bessastaðahreppi. er 70 ára Signv Guðbjörnsdóttir. Bakkavegi 15. Þórshafnarhreppi. er sjötug í dag. ‘ 60 ára Axel Þorsteinsson, Litlu-Brekku. Hofshreppi. er sextugur í dag. fimmtug í dag. Ólafur Guttormsson, Hólalandi 16. Stöðvarhreppi, er fimmtugur í dag. 50 ára 40 ára Gunnar Gunnarsson útgerðarmað- ur, Hlíðarvegi 23, Ólafsfirði, er fimmtugur í dag. Bogga Sigfúsdóttir, Djúpavogi 14, Hafnarhreppi, er fimmtug i dag. Bjarni Anton jónsson sjómaður, Hafnargötu 68, Keflavík, er fimm- tugur í dag. Halldór Jóhannesson, Víðigerði, Þorkelshólshreppi, er fimmtugur í dag. Hann verður ekki heima á af- mælisdaginn. Kristján V. Ingólfsson, Grenjaðar- stað. Aðaldælahreppi, er fertugur í dag. Friðrik Aléxandersson, Kambaseli 50, Reykjavík, er fertugur í dag. Edda B. Þorsteinsdóttir, Heiðvangi III, Rangárvallahreppi, er fertug í dag. Hrólfur Karlsson, Hraunholti 10, Gerðahreppi, er fertugur í dag. Þorbjörn Ásmundsson, Þangbakka 8, Reykjavík, er fertugur í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.