Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1987, Síða 32
Hafir þu ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 28. 0KT0BER 1987.
Meint kynferðisafbrot:
Heilt ár
í Sakadómi
Mál á hendur manni, sem grunað-
»4jr er um að hafa framið kynferðisaf-
brot á ungum dreng, hefur verið til
meðferöar hjá Sakadómi Reykjavík-
ur síðan 6. nóvember í fyrra.
Ármann Kristinsson sakadómari
hefur með málið að gera. Hann var
spurður um gang málsins. „Ég segi
ekkert um gang þessa máls. Mál af
þessu tagi eru rekin fyrir luktum
dyrum. Ég get ekki gefið upplýsingar
um málið,“ sagði sakadómarinn.
Eftir því sem DV kemst næst hefur
framburður fómarlambs og þess
grunaða í slíku máli sjaldan eða aldr-
ei verið eins samhijóma. Það er því
undrunarefni hve langan tíma málið
hefur verið í Sakadómi. Á meðan
gengur sá grunaði laus.
DV hafði samband við þann grun-
tiða í gær. Hann sagðist ekkert vilja
fjalla um málið við fjölmiðla. _sme
Síldarsöiumálið:
Samninga-
fundi
frestað
„Ég þori ekkert að láta hafa eftir
mér, hvorki jákvætt né neikvætt. Við
áttum fund með samningamönnum
Sovétmanna í gær, þar sem skipst
var á skoðunum. Fundi, sem átti að
hefjast í morgun, hefur nú verið
frestað fram eftir degi og við verðum
bara að bíða og sjá hvað setur,“ áagði
Gunnar Flóvehz, framkvæmdastjóri
Síldarútvegsnefndar, í samtali við
DV í morgun. Gunnar er foringi
nefndar sem reynir um þessar mund-
ir að semja við Sovétmenn um kaup
á verkaðri síld.
Að þessu sinni er samiö við fulltrúa
frá sovéska sjávarútvegsráðinu en
ekki fyrirtækinu Protentorg eins og
i/erið hefur mörg undanfarin ár.
^ Að fundinum í dag skuli hafa verið
frestað fram eftir degi bendir til þess
að eitthvað í málinu sé í skoðun.
Sovétmenn hafa haldið sig við verð
sem er 40% lægra en íslendingar telja
sig þurfa að fá fyrir síldina. -S.dór
ÞR0STIIR
68-50-60
VANIR MENN
LOKI
Eru rjúpnaskyttur
ekki alfriðaðar?
Helgi Bergs bankastjóri:
Kemur til greina
að ég hætti fyrr
„Ég á tæp þrjú ár eftir í bankan-
um og það er ekki víst að ég sitji í
bankanum allan þann tíma, það
getur komið til greina að ég hætti
fyrr og komi til þess greini ég ekki
íjölmiðlum frá því fyrst,“ sagði
Helgi Bergs, bankastjóri Lands-
bankans, við DV í morgun.
Miklar umræður hafa verið um
bankastjóramál Landsbankans að
undanfórnu. Sverrir Hermanns-
son, fyrrum ráðherra, er kandídat
Sjálfstæðisflokksins í stöðu Jónas-
ar Haralz en hann lætur af störfum
næsta vor þegar hann hefur störf
hjá alþjóðabankanum í Washing-
ton.
Nafn Vals Amþórssonar, for-
manns stjórnar Sambandsins,
hefur í um tvö ár verið bendlað við
stöðu landsbankastjóra. Pétur hef-
ur sagt við DV að hann mundi
hiklaust styðja Val, í stað Helga
Bergs, ef til þess kæmi að Helgi
óskaði eftir því á næstunni að
hverfa frá störfum bankastjóra.
„Það hefur enginn þrýst á mig að
undanfómu að ég hætti fyrr, ég hef
ekki orðið var við slíkan þrýst-
ing,“ sagði Helgi Bergs í morgun
þegar hann var spurður hvort ve-
rið væri að þrýsta á hann að hætta
fyrr.
Spurningin sem liggur því í loft-
inu er sú hvort Sverrir Hermanns-
son og Valur Amþórsson verði
báðir ráðnir á næstunni sem lands-
bankastjórar?
-JGH
Veðrið á morgun:
Hiti víðast
nálægt
frostmarid
Á morgun verður hægviðri um
mestallt landið og víða bjart veður.
Skúrir eða slydduél verða þó við
austurströndina og ef til vill smáél
á annesjum vestaniands. Hiti víð-
ast nálægt frostmarki.
Dýra gröfin:
Sýslumaður
meti
kostnaðinn
Sóknamefndir Hveragerðis og Ölf-
ushrepps hafa skrifað sýslumanni
Árnessýslu bréf þar sem farið er
fram á að sýslumaður hlutist til um
að mat varði lagt á verk verktaka frá
Hveragerði í Kotstrandarkirkjugarði
en verktakinn tók eina gröf í kirkju-
garðinum og krafðist um 40 þúsund
króna fyrir verkið.
Samkvæmt upplýsingum, sem DV
fékk hjá Aðalsteini Steinþórssyni,
umsjónarmanni kirkjugarða, var
verktakanum tilkynnt að umrædd
upphæð yrði ekki' greidd og eftir því
óskað að hann endurskoðaði reikn-
inginn. Sagði Aðalsteinn að verktak-
inn hefði ekki fallist á það og því
heíði verið óskað eftir því við sýslu-
mann að hann hlutaðist til um að
verkið yrði metið. Verktakinn hefur
hins vegar sent lögfræðingi reikning-
inn til innheimtu.
„Við munum bíða álits matsmanna
sýslumanns og munum að sjálfsögðu
gangast undir það,“ sagði Aðalsteinn
Steinþórsson í gær. -ój
Umferðin:
Lögreglan
klippir
ogsviptir
Lögreglan í Reykjavík gerði
skyndiskoöun í gær. Fimmtán bílar
voru skoðaðir. Ástæöa þótti til að
klippa númer af þremur bílum. Sjö
bílar voru kyrrsettir og þeir fimm
sem eftir voru fengu aðvörun.
Þá voru kiippt númer af tólf bílum
vegna vanrækslu á aðalskoðun.
Fimmtán ökumenn voru teknir
fyrir of hraðan akstur. Einn ók á 109
kílómetra hraða og var hann sam-
stundis sviptur ökuleyfi.
Alls voru 28 árekstrar í Reykjavík
í gær. Flestir voru þeir í hálkunni í
gærmorgun. -sme
Breiðafjörður:
Bátur
strandaði
- engan sakaði
Glaður ÍS 28 strandaði á skeri við
Flatey á Breiðafirði um klukkan
hálffimm í gær. Áhöfnin, fimm
menn, komust um borð í nærliggj-
andi bát og sakaði engan. Glaður er
enn á skerinu og verður gerð tilraun
í dag til að ná bátnum á flot.
Ólafur Halldórsson útgerðarmaður
sagði í morgun að Halldór Sigurðs-
son ÍS 14 hefði verið nærstaddur og
hefði hann verið kominn á strand-
stað hálfri klukkustund eftir strand-
ið. Haft hefði verið samband við
hjálparsveitina Lómfell á Bijánslæk.
Hjálparsveitin eignaðist hraðbát
fyrir viku og var komið á honum á
strandstað og áhöfnin á Glað feijuð
yfir í Halldór Sigurðsson ÍS.
Glaður og Halldór Sigurðsson eru
einu bátamir sem afla hörpuskelfisk
fyrir Flóka á Bijánslæk og sagði Ól-
afur að strand Glaðs hefði slæm áhrif
fyrir vinnsluna og það fólk sem þar
starfar, bæði til sjós og lands. Hann
sagðist vera bjartsýnn á að tækist að
bjarga bátnum. -sme
Hér er verið að taka heilasýni úr fé sem slátrað var í Sláturhúsinu Vík hf. En á hverjum degi eru tekin sýni og send
til rannsóknar á Keldum til að fylgjast með því hvort riðuveiki sé í sauðfé. Á bæjum, þar sem riða greinist, er
fénu slátrað og búið haft fjárlaust um hríð. Riðuveiki varð vart á einum bæ i Mýrdalnum síðastliðið vor en menn
vonast til að um einangrað tilvik hafi verið að ræða. DV-mynd KAE
Riðuveikisýni tekin