Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987.
Fréttir
Landsfundur Alþýðubandalagsins
Amór Pétursson hugleiðir að
bjóða sig fram til fomianns
- tek ákvörðun í kvöld eða í fyrramátið sagði Amór í samtali við DV
Amór Pétursson, sem um 20 ára
skeið hefur starfað í Alþýðubanda-
laginu og um árabil verið í forsvari
fyrir samtök fatlaðra hér á landi
sagði í samtah við DV í gær að hann
væri að hugleiða hvort hann ætti að
bjóða sig fram sem formaður Al-
þýðubandalagsins. Sagðist Amór
myndi taka endanlega ákvörðun um
það í kvöld eða í fyrramálið. Hann
sagði ennfremur að hann hefði fengið
aUmargar áskoranir um að gera
þetta.
Amór sagði að eftir að honum var
bolað út úr umferðamefnd Reykja-
víkur fyrir tveimur dögum af forystu
Alþýðubandalagsins í Reykjavík og
eftir að hann féll við landsfundarfull-
trúakjör í hefði hann hugleitt að
segja sig úr flokknum. Allmargir
aðilar hefðu aftur á móti haft sam-
band við sig og skorað á hann að
spyma viö fótum. Þessir aðilar hefðu
skorað á hann aö gefa kost á sér til
varaformanns eða formanns á lands-
fundi.
„Ég hef hugleitt þetta nokkuð. Ég
ætla að sofa á þessu í nótt en taka
síðan ákvörðun í kvöld eða í síðasta
lagi í fyrramálið um hvað ég geri,“
sagði Arnór.
Hann sagðist í augnablikinu ekki
vera viss um að framboð hans nyti
þess stuðnings sem til þyrfti flokkn-
um til hagsbóta. Auk þess sagðist
hann ekki vera viss um að hafa þann
póhtíska metnað né þann tíma eða
þrek sem þetta starf krefðist. Samt
sagðist hann ætla að sjá til.
-S.dór
Þingmennimir::
Geir lýsir
stuðningi
sínum við
Ólaf Ragnar
- sex styðja Sigríði
Geir Gunnarsson, alþingismaður
úr Reykjaneskjördæmi, er eini þing-
maður Alþýðubandalagsins sem ekki
hefur gefið upp afstöðu sína í átökun-
um um það hvort Ólafur Ragnar eða
Sigríður Stefánsdóttir verði formað-
ur flokksins.
Tíðindamaður DV spurði hann á
landsfundinum í gær hvort hann
hefði ekki enn tekið afstöðu og sagð-
ist Geir hafa gert það og myndi hann
styðja Ólaf Ragnar.
Geir sagði að í þeim póhtísku átök-
um sem framuhdan væru í þjóðfélag-
inu treysti hann Ólafi betiu- en
Sigríði til að leysa þau verkefni sem
af formanni verður krafist. Hann
sagðist óttast að ef Ólafur Ragnar
yrði ekki kjörinn formaður myndi
framlengjast um ótiltekinn tíma það
ástand í flokknum sem þegar væri
orðið of langt.
„Þess vegna hlýt ég að styðja Ólaf
Ragnar," sagði Geir Gunnarsson.
Af þingmönnum flpkksins styður
Guðrún Helgadóttir Ólaf Ragnar en
hinir, Svavar, Hjörleifur Guttorms-
son, Steingrímur Sigfússon, Ragnar
Amalds og Margrét Frímannsdóttir,
Skúh Alexandersson eru stuðnings-
menn Sigríðar Stefánsdóttur.
-S.dór
Hvislað í eyra er algeng sjón á
landsfundum stjómmálaflokka. Hér
er það Óttar Proppe, ritstjórnarfull-
trúi Þjóðviljans, sem hvíslar að
Sigurjón Péturssyni borgarfulltrúa.
DV-mynd KAE
Þeir hafa oft eldað grátt silfur síðustu tvö árin, Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, og össur Skarp-
héðinsson, ritstjóri Þjóðviljans, og þegar þessi mynd var tekin virðist sém alvörumál hafi verið á ferðinni eftir
svipnum á þeim að dæma. DV-mynd KAE
Ræða Svavars olli
reiði Olafs-manna
„Aö sjálfsögðu var ræðan vilja-
verk en ég gerði raér þó ekki grein
fýrir að hún myndi valda því að
einhverjir yrðu sárir eftir,“ sagði
Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, þegar tíðinda-
maöur DV ræddi við hann aö
lokinni setningarræðu hans á
landsfundinum í gær. Ræða Sva-
vars var fuh af fostum skotum á
Ólaf Ragnar og stuöningsmenn
hans og olh reiöi margra. Nokkrir
gengu út meðan á ræöunni stóð og
höfðu ljót orð um ræðuna. Þegar
Svavar lauk máh sínu létu hehu
hóparnir i salnum vera að klappa
Helgl Seljan hefur verið nefndur
eins og er: Þaö hefði ekki verið
vinnufriður tíl þess innan flokksins
á undanfórnum tveimur árum að
vmna aö póhtísku endurmótunar-
starfl.
Svavar ræddi um það að kvenna-
listinn hefði tekið mikið fylgi frá
Alþýðubandalaginu. Hann sagði að
alþýöubandalagsmenn gætu margt
af kvennalistanum lært. Síðan
sagði hann að haga ætti manna-
skipan i flokknum þannig að það
yrði ekki th að styrkja Kvennalis-
tann. Þetta gat engiim misskihð
Hann sagði að leggja yrði áherslu
á góðan vinnuanda innan flokks-
ins. Einkapot og sérhyggja væri
verri fyrir sósíalískan félags-
hyggjuflokk en sérhyggjuflokka.
Flokkslegur „egóismi“ yrði að
víkja fyrir heildarsýn. Loks sagði
Svavar á einum stað: „Við vhjum
ekki sósíahsma í kjólfótum."
Loks þakkaði Svavar flokksfélög-
um fyrir samstarfið á undanföm-
urn árum og hvatti til heiðarlegra
vinnubragöa, iausnin væri sam-
vinna.
-S.dór
sem hugsanlegur varaformaöur
Alþýöubandalagsins ef Sigrlöur
fyrir henni. Stefánsdóttlr nær kjörl sem form-
Andrúmsloftíö á iandsfundinum aöur. Hér heiisar hann upp á
var mjög rafmagnað og spenna í landsfundargesti. DV-mynd KAE
loftinu. Ræðan var því sist th þess
að róa fólk og draga úr spennunni. fundi 1985. Á síðustu missemm
Svavar Gestsson ræddi fyrst um heföi hinsvegar verið að skapast
ástandið í flokknum og þróunina sundrung og því ætö að tala um
síðan á landsfundinum 1985. Hann það að ný sundrung væri aö skap-
sagðist hafa tekiö eftir þvi að menn ast i flokknum. Agreiningurinn
væru að tala um nýja samstöðu í væri ekki málefnalegur heldur
flokknum. Það sagði hann undar- snerist hann um per9ónur.
lega th orða tekið. Samstaöan hefði Á einum staö í ræðu sinni sagði
verið góð í flokknum fram að lands- Svavar aö hann yröi að segja alveg
Formannsslagurinn:
Svavar opnaði
möguleika á
að gefa kost
á sér
Nær alhr landsfundarfuhtrúar Al-
þýðubandalagsins, sem DV ræddi við
að lokinni setningarræðu Svavars
Gestssonar í gær, voru á einu máli
um það að í einum kafla ræðunnar
hefði hann opnað möguleika fyrir sig
á að snúa aftur, gefa kost á sér til
formanns. Þetta var þegar Svavar
talaði í þátíö um þá ákvörðun sína
að hætta formennsku og sagði:
„Ég vh taka það fram hér að ég er
þakklátur þeim hundruðum félaga
og kjósenda á öllu landinu sem hafa
haft samband við mig í sumar og
hvatt mig th að starfa áfram sem
formaður flokksins. En ákvörðun
mín VAR óumbreytanleg og ég taldi
líka að það yrði flokknum fyrir bestu
að skipt yrði um forystu og fundin
ný, alveg ný forysta...“
Síðan sagði hann: Það er mín skoð-
un að slíkt HEFÐI auðveldað forystu-
skipti í flokknum...“
Þessi ummæh Svavars vhja margir
túlka sem opnum fyrir hann að
skipta um skoðun. Það kemur hins
vegar ekki í.ljós fyrr en á morgun
hvort svo verður.
-S.dór
Hugmyndir til
lausnar for-
mannsraunum
flokksins
í gærkvöldi voru nokkrir lands-
fundarfulltrúar á landsfundi Al-
þýðubandalagsins aö hugleiða að
koma af stað undirskriftasöfnun um
að skora á Sigríði Stefánsdóttur að
hún gefi kost á sér th varaformanns
flokksins með Ólaf Ragnar sem for-
mann.
Þetta mál var enn aðeins hugleið-
ing meö fullri alvöru á bak við seint
í gærkveldi.
Þá var einnig önnur hugmynd í
gangi um að samkomulag yrði gert
um það að ef Sigríöur yrði kjörin
formaður yrði Ólafur varaformaður
og öfugt. Þetta yröi gert með þeim
hætti aö sthla aðeins þeim tveimur
upp við formanns og varaformanns-
kjör og sá sem tapaði við formanns-
kjör yrði varaformaður.
Alveg eins og fyrri hugmyndin var
þetta aðeins í umræðunni í gær-
kvöldi. í dag ætti að koma í ljós hvort
þessum hugmyndum báöum eöa
annarri hvorri verður hrint í fram-
kvæmd.
-S.dór