Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987.
7
Flugfélag Norðuriands:
Réttum
megin við
núllið
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri
„Ég var aö fá í hendurnar uppgjör
fyrs'tu níu mánaöa ársins. Þaö hefur
ekki enn verið kynnt fyrir stjórnar-
mönnum en ég get sagt þér að þetta
kemur mjög vel út og við erum rétt-
um megin við núllið," sagði Sigurður
Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri
Flugfélags Norðurlands, í samtali við
DV.
Sigurður sagði að starfsemi félags-
ins heföi verið með eðlilegum hætti
á árinu. Flogið er til 11 staða í áætl-
unarflugi á svæðinu frá ísafirði
austur til Egilsstaða og einnig áætl-
unarflug til Reykjavíkur.
Flugfélag Norðurlands hefur í
mörg ár flogið talsvert til Græn-
lands. Sigurður sagði að það flug
hefði fram til þessa mest verið á aust-
urströndina en upp á síðkastið hefði
einnig verið flogið á vesturströndina.
Þetta flug er í gangi allan ársins
hring en þó mest á sumrin og FN
notar aðallega Twin Otter vélar í
Grænlandsflugið. Sú nýjung var tek-
in upp með vetraráætlun FN að bjóða
upp á helmings afslátt á öllum áætl-
unarleiðum félagsins. Þetta afslátt-
arflug er sérstaklega merkt í
vetraráætlun félagsins þannig að
fólk getur séð hvaða daga það er í
gildi á hverri áætlunarleið. „Með
þessu vildum viö reyna að hafa áhrif
á hvenær fólk flýgur og ekki síður
stuðla að því að fólk fljúgi oftar en
það hefur gert,“ sagði Sigurður Aðal-
steinsson.
Flugfélag Norðurlands á þrjár
Twin Otter vélar, tvær vélar af gerð-
inni Chieftain, eina Piper Aztec og
einnig á FN tvær vélar sem notaðar
eru við kennslu.
Fiskmarkaður Norðuriands:
Verður afla
ekið suður?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er ekki búið að tengja neina
.aðila á suðvesturhorninu við tölvu-
netið en við höfum fengið fyrirspurn-
ir sem sýna áhuga manna þar á því,“
sagði Sigurður P. Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar
Norðurlands á Akureyri.
„Ég ætla ekki að hafa frumkvæði
að því að við förum að tengjast aðil-
um fyrir sunnan og á Austfjörðum
um tölvunet okkar,“ sagði Sigurður.
„Mér sýnist þó að áhugi sé á þessu
og menn viröast vera tilbúnir að
keyra afla frá Norðurlandi suður til
vinnslu þar.“
Dæmi eru um að afla hafi verið
ekið frá Norðurlandi að undanfórnu
og hann sendur á markaði í Reykja-
vík með góðum árangri. Bílar eru
nú fyrir hendi sem taka allt að 15
tonnum og ef tíðarfar er hagstætt og
færð góð er þessi aðferð ekki talin
óhagstæð hvað sem líður meðferð
hráefnisins.
Ríkisjarðir:
Fari úr ábúð
„Það kom ályktun frá nefnd um að
þær jarðir þar sem byggingar eru í
lélegu ásigkomulagi yrðu ekki settar
í ábúð aftur ef ábúendurnir ákvæðu
að hættu búskap," sagði Jón Helga-
son landbúnaðarráðherra aðspurður
hvort hætt væri að byggja ríkisjarðir
aftur þar sem ábúendurnir hefðu
ákveðið að hætta búskap.
„Ríkisjarðir á landinu öllu skipta
hundruðum og ef á að hætta að
byggja þær þarf að taka tillit til
margra hluta, svo sem hversu marg-
ar eru í hverri sveit og hvort það
raskar byggðinni á viðkomandi
sveitum að setja þær í eyði.“ -J.Mar
Atvinnumál
^ Grásleppuveiðar á næsta ári:
Utlit fyrir hrun
á markaði eriendis
- nær 10 þúsund tunnur af hrognum óseldar hér á landi
Utlit er fyrir að ekki þýði fyrir
íslenska grásleppukarla að ætla að
stunda veiðar á komandi vertíð. í
landinu eru og verða í byrjun ver-
tíðar 8 til 10 þúsund tunnur af
hrognum óseldar. Þess vegna skor-
ar Landssamband smábátaeigenda
á félaga sína að heíja alls ekki veið-
ar á vertíð 1988 nema að eiga trygga
sölu á hrognunum.
Ástæðan fyrir því hve illa gengur
að selja grásleppuhrogn er oífram-
boð á markaðnum vegna mikilla
veiða Kanadamanna sem lítið hafa
sinnt þessari atvinnugrein þar til
fyrir tveimur árum. Kanadamenn
eiga nú í Danmörku 800 tunnur
óseldar og bjóða þær á 925 mörk
tunnuna en í vor var verðið 1200
mörk. Þá er vitað að Kanadamenn
eiga nokkur þúsund tunnur óseld-
ar heima og í Noregi er einnig
eitthvað af óseldum birgðum.
Þetta ástand er mjög alvarlegt
fyrir íslenska trillukarla sem hafa
bætt sér upp höft í bolfiskveiöum
með því að stunda grásleppuveiðar
frá því í febrúar og fram á sumar
eftir landshlutum. Artúr Bogason,
formaður Sambands smábátaeig-
enda, sagði þetta vera alvarleg áfall
fyrir trillukarla og kæmi nú ofan í
þá skelfingu sem við blasti ef setja
á aflakvóta á smábáta eins og gert
er ráð fyrir í drögum aö frumvarpi
um fiskveiðistefnuna.
Artúr sagðist vara trillukarla
sterklega við því að fara að fjár-
festa í veiðarfærum og öðru sem
þarf til grásleppuveiða en slíkur
útbúnaður kcstar ekki undir einni
milljón króna.
-S.dór
Talsmenn smábátaeigenda, taldir frá vinstri: Artúr Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, Sævar Einarsson, Sigurður Gunnars-
son, Haraldur Jóhannsson og Sveinbjörn Jónsson. DV-mynd BG
Smábátaeigendur og fískveiðistefnan:
Kvóti á smábátana þýðir
gjaldþrot og byggðaröskun
Smábátaeigendur um allt land eru
uggandi þessa dagana. í drögum
að frumvarpi til laga um fiskveiði-
stjórnun er gert ráð fyrir því að
bátar undir 10 tonnum falli undir
kvótakerfið í fyrsta sinn. Þar er
gert ráð fyrir að bátar, sem eru 6
lestir og minni, megi ekki veiða
nema 40 lestir á ári og þeir megi
ekki stunda netaveiðar. Þá er eig-
endum báta undir 10 tonnum
óheimilt að selja kvóta sinn og eru
það einu útgerðarmenn landsins
sem ekki mega versla með kvóta.
Smábátaeigendur kalla þetta afar-
kosti og ætla í slag til að koma í
veg fyrir að kvóti verði settur á
smábátana.
Eignaupptaka
Talsmenn Landssambands smá-
bátaeigenda, sem DV ræddi við,
segja að kvóti á smábáta nú þýði í
raun eignaupptöku. Fjöldi smá-
bátaeigenda muni verða gjaldþrota
bara vegna þess að þeir hafl íjár-
fest í nýjum bátum og netum og
netabúnaði sem þeim sé nú bannað
að nota. Þá benda þeir á að 40 lest-
ir á ári af þorskígildum sé svo lítill
afli að útilokað sé fyrir þá sem hafa
smábátaútgerð að aðalatvinnu að
komast af með svo lítinn afla. Þess-
ir menn hafl verið að veiða 60 til
70 lestir á ári undanfarin ár.
Þá benda talsmenn smábátaeig-
enda á að hver togarasjómaður
hafi að baki sér 200 lestir af fiski á
ári en að trillukarlar séu tveir til
þrír með 200 tonn. Þetta kalla þeir
____Fréttaljós
Sigurdór Sigurdórsson
að mismuna sjómannastéttinni.
Þeir segjast muni berjast fyrir því
að kvótinn verði ekki settur á smá-
bátana með öllum ráðum, eða eins
og Artúr Bogason, formaður
Landssambands smábátaeigenda,
orðaði þaö:
„Ef alþingismenn stöðva ekki
þetta gerræði þá munum við ganga
eins langt og þurfa þykir til að af-
létta okinu.“
Byggðaröskun
Smábátaeigendur fullyrða að ef
kvóti verður settur á trillurnar
muni það hafa mikla byggðaröskun
í för með sér.
Áki Guðmundsson frá Bakkafirði
bendir á að af 11 bátum þar muni
8 missa netaveiðileyfi ef frum-
varpið fer í gegnum Alþingi
óbreytt. Hann sagði að þessir 8 bát-
ar taki 70% af ársafla sínum í net
og að þessir bátar standi undir 50%
af þeim afla sem berst á land af
smábátum á Bakkafirði. Áki segir
að kvóti á trillurnar og netaveiði-
bann yrði til þess að fólk myndi
flytjast frá Bakkafirði í stórum stíl.
Þar yrði ekki lífvænlegt eftir svo
haröar aðgerðir stjórnvalda.
Haraldur Jóhannsson úr Gríms-
ey segir að vegna hafnleysu í
Grímsey séu heimamenn dæmdir
til að gera út smábáta og það sé
mikill misskilningur ef menn haldi
að það sé að ósk þeirra sjálfra að
minnstu bátar eru gerðir þaðan út.
Hann segir jafnframt að þessi smá-
bátaútgerð sé undirstaða atvinnu-
lífsins á staönum. Ef frumvarpið
verði að lögum óbreytt muni það
koma svo hart niður á Grímseying-
um að staðurinn standi það
naumast af sér.
Vilja okkur á stóru bátana
Artúr Bogason, formaður sam-
bandsins, segir trillukarla bestu
sjómenn landsins. Það þurfi dug-
legustu og harðgerðustu sjómenn-
ina til að stunda trilluveiðar. Þetta
segja þeir Kristján Ragnarsson,
formann Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, vita fullvel.
Þess vegna séu hann og aðrir tals-
menn útvegsmanna hlynntir því
að þrengja svo að trilluútgerðinni
að menn gefist upp og ráði sig á
stóru bátana. Þeir segja að þetta sé
í sjálfu sér ekkert nýtt, það hafi
lengi verið vitað að útgerðarmenn
vflji fá trillukarlana yfir tfl sín.
Fyrstu 9 mánuði þessa árs varð
heildarþorskaflinn 321.176 lestir,
sem er 27.478 lestum meira en var
á sama tíma í fyrra. Afli báta undir
10 tonnum varð um 200 lestum
meiri í ár en í fyrra. Smábátaeig-
endur benda á að þótt stærri
bátarnir fari 27 þúsund lestum
fram úr segi enginn neitt en um
leið og trillurnar fara 200 lestir
fram úr eigi að hegna þeim með
því að setja þessa minnstu báta á
kvóta.
Loks benda smábátaeigendur á
að með þessum aðgerðum gegn
trillukörlum sé boðið upp á það að
menn einblíni á reglur í stað þess
að líta til veðurs og vinda. Þeir segj-
ast óttast að kvótakerfið eins og það
er útfært í frumvarpsdrögunum
muni hafa í för með sér djarfari
sókn manna á smábátum sem aftur
myndi þýða aukna slysahættu. Þeir
halda því fram allir sem einn,
stjórnarmenn Landssambands
smábátaeigenda, aö ekkert jákvætt
sé að finna í frumvarpsdrögunum,
sem snertir smábátaeigendur.
-S.dór
J