Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987. Spumingin Hefur þú breytt um mataræði síðustu mán- uði? Margrét Karlsdóttir: Nei, held mig við það sama en hef alltaf borðað mikið grænmeti. Þór Ragnarsson: Nei, ekki held ég það. Það var svo heilsusamlegt fyrir. Kristín Ólafsdóttir: Ég borða nú helst hollan mat yfirleitt. Ingibjörg Pétursdóttir: Nei, það hef ég ekki gert. Held mig við það sama að mestu. Alltaf borðað t.d. mikið af fiski. Eygló Ólafsdóttir: Borða venjuíega það sem maður var alinn upp við. Lesendur Hvers vegna eru hér ekki heilsuhæli? Mynd frá heilsuhæli i ísrael - sérstök aðstaða, innisundlaug fyrir giktarsjúklinga, o.m.fl. Þorbjörn skrifar: í landi, sem getur státað af því að eiga heitt vatn í landi sínu og sennilega einu auðlindina, sem hægt er að nýta með einhverri vissu, ólíkt því sem t.d. er um fisk- inn, ætti að vera sjálfgefið að nota þessa auðlind í miklu stærri mæli en nú er gert. Auðvitað er það mikilvægt að nýta heita vatnið til upphitunar húsa og fleiri þæginda við dagleg störf. Og þessi þægindi eru ekkert ódýrari fyrir þaö að vera innlendur orkugjafi - stundum síður en svo. En heita vatnið myndum við ekki vilja missa. Það er þó hin hliðin á málum heita vatnsins okkar sem er mér áhugamál, það að nýta þessa auð- lind til gjaldeyrisöflunar. Það höfum við ekki enn gert, nema óbeint, þ.e. þegar útlendingar gista í húsum okkar og hótelum. Mönnum, sem hafa stundað og verið í forsvari fyrir hinum hefð- bundnu, gömlu atvinnugreinum, landbúnaði og fiskveiðum, hefur verið ráðlagt að taka sér stöðu ann- ars staðar og margir hafa gert það. Þá hefur mörgum fundist eldi loð- dýra og fiska vera nærtækast og hafa mörg og öflug fyrirtæki verið stofnuð í þessum tilgangi með þátt- töku einstaklinga og opinberra aðila, t.d. sveitarfélaga. Nú hefði mátt ætla að í sumum tilfellum, t.d. á stöðum, þar sem jarðhita er aö finna, væri auðveld- ast að takast á við þessa auðlind og reisa heilsustöðvar sem byggðu á heitu vatni, leirböðum og hvers konar þáttumn öðrum sem taldir eru upp, þegar verið er að höfða til allra þeirra sem sækjast eftir dvöl á þessum stöövum. Lengi vel voru margir þeirrar skoðunar hér að heitt vatn fyndist óvíða í heiminum utan íslands.. Þetta er ekki lengur þannig. Heitt vatn og leir til notkunar við endur- hæfingu og líkamsrækt er notað víða um heim. í ísrael t.d. hafa verið byggðar upp frábærar heilsustöðvar með öllum nýjasta útbúnaði og þangað sækir árlega fjöldi fólks alls staðar úr heiminum. Sama er upp á ten- ingnum í Frakklandi, Þýskalandi og víðar í Evrópu, að ógleymdu Sviss. Við íslendingar hefðum fyrir löngu átt að taka við okkur á þessu sviði og fylgja eftir þeim athugun- um sem þegar hafa þó verið gerðar um þessi mál, t.d. á stöðum eins og í Hveragerði og við Svartsengi hjá Grindavík. Við eigum nokkra þekkta áhuga- menn um þessi mál en þeir hafa ekki fengið hljómgrunn sem skyldi hjá opinberum aðilum sem ráða í raun ferðinni í fjármagnsstreymi, t.d. hjá sveitarfélögum. Ég legg nú til að þingmenn okkar og aðrir, sem geta haft forgöngu um nýskipan atvinnumála, þ.m.t. einstaklingar og stjómir sveitarfé- laga, láti gera úttekt á því hvort bygging heilsuhæla og rekstur þeirra geti ekki orðið arðvænleg hér líkt og annars staöar þar sem þessi starfsemi virðist skila góðum árangri. Hringið í síma 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið. Dyravarsla í Evrópu E.E. hringdi: Ég hef verið fastagestur í veitinga- staðnum Evrópu síðastliðnar helgar og alltaf fengið hinar bestu móttökur - þar til um sl. helgi er ég fór þangað með vinnufélögum mínum til að skemmta mér sem endranær. Við biðum fyrir utan í um það bil 10 eða 15 mínútur þangað til við vor- um komnir að dyrum staðarins en þar sýndist mér nýr mannskapur vera viö stjórn. Ég var beðinn um að sýna skilríki en þeim hafði ég gleymt heima. Þaö skipti þá engum togum að mér var hreinlega hrint frá aftur án þess að nokkrar frekari orðræður ættu sér stað. Þetta kom mér algjörlega í opna skjöldu þar sem ég hafði ekki átt þessu að venjast þarna. Ég vona að þetta séu ekki nýir takt- ar hjá veitingahúsinu Evrópu og vænti þess að forráðamenn staðarins vandi betur móttökur við gesti sína í framtíðinni. Félagsmálaráðherra kynnir húsnæðisfrumvarpið. Harmóníkan á ávalit tryggan hóp aðdáenda. i utvarpi Jóhann Þórólfsson skrifar: Það er í sambandi við harmón- íkuþættina. Mér finnst ráðamenn hjá Ríkisútvarpinu sniöganga um of íslenska harmóníkuleikara. 1 þættinum laugardaginn24. f.m. var td. ekki eitt einasta lag leikið af íslenskum Iiarmóníkuleikurum en þeir eru alls ekki siðri en þeir er- lendu. Hvers eiga þessir menn að gjalda? Þetta er auðvitaö til stórskammar af síjómendum þáttarins að sýna íslenskum harmóníkuleikurum ekki meiri viröingu. Það hafa margir minnst á þetta við mig. Ég er því sammála og þess vegna læt ég frá mér heyra. Út- varpsstjóri ætti að ræða þetta við umsjónarmenn þáttarins og þaö sém fyrst svo að hlustendur fái að heyra í okkar mönnum. Af gráti og gnístran tanna Guðmundur Sigurðsson skrifar: Svo segja menn, sem eru fróðir um stjómmálasögu síðustu áratuga, að einn helsti foringi Sameiningar- flokks alþýðu, Sósíalistaflokksins, hafi haft þá siðvenjnu, ef ágreiningur kom upp í þeim herbúðum, að „gráta flokkinn saman“. Að því er sögur herma gafst sú aðferð oft vel. Þá er og sagt að foringi nýs stjórn- málaflokks hafi á næstliðnu vori verið gráti nær í sjónvarpsfréttum. Telja ýmsir að vegna þessa hafi hann fengiö mörg atkvæði í kosningunum. En ekki er ömggt að þessi aðferð gefist alltaf jafn vel. Tahð er að nokkrir þingmenn í tveimur stærstu stjómmálaflokkunum hafi nú í sum- ar reynt að „gráta“ sig inn í ráð- herraembætti en án árangurs. Því er það að svo virðist sem þeir líti vart glaðan dag síðan og kemur vanlíðan þeirra m.a. fram með þeim hætti að reyna að setja fótinn fyrir stjómarfmmvörp. Nú síðast reyna þeir að torvelda framgang húsnæðisfmmvarps Jó- hönnu Sigurðardóttur með því að telja því flest til foráttu og segja t.d. að það sé á vondri íslensku. Þess má nú geta, svona í fram- hjáhlaupi, að alþingi hefur um áratuga skeið haft íslenskufræðinga á launum til þess að færa til betra máls jafnt þingmanna- sem stjórnar- frumvörp að ógleymdum endurbót- um á ræðum þingmanna. Sumir telja að þingmenn þeir sem hér um ræðir stefni að því að sprengja stjórnina í þeirri von að betur gangi með ráðherraembætti næst. Nú kann auðvitað að vera að sitt- hvað megi að hinu nýja húsnæðis- framvarpi finna en úr því mætti auðveldlega bæta. Og hitt er víst aö hinir lakar settu í þjóðfélaginu hafa þegar fundið að þar er reynt að rétta hlut þeirra. Það má glöggt sjá af einróma stuðn- ingsyfirlýsingu fulltrúanna á þingi Verkamannasambands íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.