Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Síða 15
FÖSTUÐAGUR 6. NÓVEMBER 1987.
15
DV
Lesendur
NILFISK GS 90
hefur mótor með yfir 2000 tíma endingu á kolum =
um 20 ára meðalheimilisnotkun. Þetta er einsdæmi
og annað er eftir því. Nilfisk er tæknilega ósvikin,
gerð til að vinna sitt verk, fljótt og vel, ár eftir ár,
með lágmarks truflunum og tilkostnaði.
Reynslan sannar rekstraröryggi og einstaka endingu.
NILFISK JFOniX
engin venjuleg ryksuga Hátuni6AsiMi01)24420
Hótel Öifc kom
á óvart
Guðrún Jónsdóttir skrifar:
Fyrir stuttu dvaldi ég í eina viku
mér til hressingar á Hótel Örk í
Hveragerði. Ýmislegt hefur verið rit-
að og rætt um þann stað á undan-
fómum misserum. Ég fór því þangað
með blöndnu geði en opnum huga.
Ég verð að segja að staðurinn kom
mér yndislega á óvart. Hótelið er vel
og skemmtilega hannað, afar vel ein-
angrað og mikil tillitssemi við
dvalargesti.
Þar sem ég hef talsverðan saman-
burð erlendis frá þá tel ég möguleika
þessa hótels geta orðið á heimsmæli-
kvarða. Því vil ég segja við þá, sem
ekki sýna biðlund og þolinmæði; hót-
„Allir vita að börn eru sólgin í aug-
lýsingar i sjónvarpi," segir bréfritari.
Aðhafa
bömin
jákvæð
Sigrún Björgvins skrifar:
I vor sem leið, nánar tiltekið hinn
7.4., birtist grein í DV um hina nýju
verslunaránauð sem ég leyfi mér að
kalla þann ósvífna áróður sem hafð-
ur er í frammi í formi sölumennsku
á ýmsum dýrum vörum með afborg-
unarskilmálum.
í þessari grein sagði m.a.: „Fjöldi
manna er farinn að hafa ofan af fyr-
ir sér með því að rugla heila þjóð.
Auglýsingastofur útbúa þaulhugsað-
ar „heilaþvottaseríur" fyrir unga og
aldna. Það er læðst aftan að fólki,
hörnum og fullorðnum, og áróðurinn
er klæddur í skemmtilegan búning
fyrir augu og eyru. Það þýðir ekkert
að segja að þess sé gætt að börnum
sé ekki misboðið. Allir vita að börn
eru sólgin í auglýsingar í sjónvarpi."
Þetta er viðhorf mitt sem neytanda.
Svo kemur verslunin með sín við-
horf og þá kveður að sjálfsögðu við
annan tón.
í Morgunblaðinu hinn 25. júní sl.
er grein um kynningarsölu á svala-
drykk í Bretlandi. Nú gleður það
auðvitað íslendinginn að heyra um
nýjar útflutningsvörur. í því sam-
bandi má minna á stórkostleg áform
um að flytja út vatn. Það ætti að vera
vel seljanlegt. Hreint og gott vatn er
víða munaðarvara. Og aukinn út-
flutningur þýðir meiri gjaldeyri.
Ekki veitir af að auka fjárráðin.
í áðurnefndri grein um svala-
drykkinn tekur umsjónarmaður
þessa markaðs-átaks furðulega til
orða, að mér finnst, og rökstyður
þann hugsanagang sem ég er að
gagnrýna. - Hann talar um að ætlun-
in sé að hefja kynningu í skólum og
mikið atriði væri að hafa börnin, já-
kvæð“, því þau hefðu svo mikil áhrif
á vöruval hinna fullorðnu.
Þar höfum við það. Það sem í mín-
um augum er þaulhugsaður heila-
þvottur heitir á máli sölumenns-
kunnar „að hafa börnin jákvæð“.
Þurfum við frekar vitnanna við? Mér
finnst vera kominn tími til að spyrna
við fótum. Eigum við neytendur ekki
að reyna að skapa almenningsálit
sem sniðgengur og fordæmir slíkar
aðferðir?
elið er nú ekki nema nokkurra
mánaða gamalt og varla búið að ná
andanum ennþá, hvað þá að það sé
fullmótað.
Nýr og efnilegur hótelstjóri, for-
framaður í virtum skólum erlendis,
er nýtekinn til starfa. Hann býr yfir
merkilegum hugmyndum sem eru
nú þegar byrjaðar að taka á sig
mynd.
Starfsfólkið er elskulegt og er allt
af vilja gert til þess að láta manni
líða sem best. Ég flyt Hótel Örk bestu
þakkir fyrir ógleymanlega dvöl,
Frjálst,óháð dagblað
Askrifenduri
Takið vel á móti blaðberunum
DV býður aukna þjónustu
Blaðberar okkar um land allt bjóða nú áskrifendum að áskriftargjaldið verði fært
á EURO- eða VISA-reikning mánaðarlega.
Meðþessum
boðgreiðslum
vinnstmargt:
S Þærlosaáskrifendur
viðónæðivegnainn-
heimtu.
greiðslumátisem
tryggir skilvisar
greiðslur þrátt fyrir
annireðafjarvistir.
S Þærléttablaðberan-
umstöriinenhann
heldurþóóskertum
tekjum.
§ Þæraukaöiyggi.
Blaðberarerutil
dæmisoftmeðtölu-
verðarfjárhæðirsem
getaglatast.
Hafið samband
við afgreiðslu DV
kl. 9-20 virka daga.
laugardaga kl. 9-14
í síma 27022
eða við umboðsmenn okkar
ef óskað er nánari
upplýsinga.