Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1987, Side 33
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1987.
45
Sviðsljós
Merkum
áíanga
náð
r
■ Um helgina útskrifuðust 119 kandi-
datar úr Háskóla íslands en Háskól-
inn útskrifar kanditata þrisvar
sinnum á ári. Útskriftin fer að jafn-
aði fram í Háskólabíói og mætti fjöldi
aðstandenda með nemendum.
Að þessu sinni var skiptingin milli
deilda þannig. Tveir úr guðfræði-
deild, 15 úr læknadeild, tveir úr
lögfræðideild, 30 úr heimspekideild,
38 úr viðskiptadeild, 10 úr félagsvís-
indadeild, 20 úr raunvísindadeild og
tveir úr verkfræðideild.
DV-myndir S
Séð yfir sal Háskólabíós, fremst sitja útskriftarkanditatar.
'' '' v.' í
1 ■
Hér sést hluti af kanditötum úr hjúkrunarfræði
Sigmundur Guðbjarnason háskóla
rektor fiutti setningarræðu.
Kanditatar úr heimspekideild voru 30 talsins.
Sly og Gitte í
vandræðum
Nýjar fréttir berast stöðugt af
Sylvester Stallone og fyrrverandi
eiginkonu hans, Brigitte Stallone.
Aumingja Stallone þurfti að
borga stjarnfræðilegar upphæðir
þegar hann skildi við Gitte en nú
bætist enn við. Fyrri eiginkona
hans, Sasha, viU nú ekki vera út-
undan og hefur krafist 360 miUjóna
til viðbótar við þær 80 skitnu millj-
ónir sem hún fékk fyrir skilnaðinn
áður. Stallone er víst lítið hrifinn
af þessum útgjöldiun sem hann
hefur þó enn efni á.
Stuttu eftir að Gitte Nielsen skildi
við Sly Stallone fékk hún upp-
hringingu frá Penthouse. Pentho-
usemenn tilkynntu henni á
kurteisan máta að þeir hefðu undir
höndum gamlar nektarmyndir af
henni frá því áður en hún kynntist
Stallone. Það sem verra var, þær
voru teknar fyrir ýmsar aðgerðir
sem gerðar voru á henni, svo sem
brjóstastækkun. Þeir buðu henni
síðan að velja hvört hún vildi sitja
fyrir á nýjum nektarmyndum eða
þær eldri yrðu birtar. Gitte valdi
fyrri kostinn og lái henni hver sem
vill.
Elísabet Breta-
drottning
er vinur í raun. Náungi, sem
hefur komið í heimsfréttirn-
ar fyrir að vera sífellt að
sniglast I kring um Bucking-
hamhöll, tilkynnti um
daginn að hann væri að
hætta þessum starfa sínum.
Þegar Elísabet frétti það
bauð hún honum I tesopa
sem skilnaðarvott. Aum-
ingja maðurinn, sem sífellt
hafði reynt að komast inn í
höllina, þurfti ekki annað en
að hætta því til þess að
komast inn!
Ólyginn
sagði...
Ursula Andress
fyrrum kyntákn, vakti aldeil-
is athygli um daginn. Hún
hefur ávallt haft þörf fyrir
að sýna sig og vera glæsileg
og um daginn mætti hún í
hvítum kjól úr þunnu efni á
leikhús undir berum himni.
Hún var svo seinheppinn
að skyndilega kom úrhellis-
rigning. Kjóllinn var þeirri
ónáttúru gæddur að verða
gegnsær þegar hann blotn-
aði og áhorfendur höfðu
skyndilega meiri áhuga á að
horfa á hana heldur en leik-
ritið.
Rock Hudson
hefur fengið nýtt hlutverk
þótt hann sé kominn til
feðra sinna. Aðstandendur
Louis Tussauds vaxmynda-
safnsins í Blackpool hafa
tilkynnt að þeir ætli að búa
til tvær vaxbrúður af Hud- ?
son. Sú fyrri á að sýna hann
þegar hann var hvað glæsi-
legastur, sú seinni þegar
hann var orðinn þjáður af
Aids. Þetta ku vera liður í
baráttunni gegn Aids.
■s.