Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1987, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987.
Stjómmál
Símakostnaður Alþingis:
Þingmenn virðast
liggja í símanum
Símakostnaður Alþingis frá ársbyrj-
un til októberloka nam um 2,4 millj-
ónum króna. Eru það um 38 til 40
þúsund krónur á hvern alþingis-
mann, eftir því hvort miðað er við
60 eða 63 þingmenn.
Þessi peningur samsvarar því að
hver einasti þingmaöur gæti hafa átt
yfir þrjú þúsund tveggja mínútna
símtöl við kjósanda á Þórshöfn á
Langanesi eða legið í símanum í
fimm sólarhringa samíleytt, dag og
nótt, við að tala við þennan sama
kjósanda hinum megin á landinu.
Á þessu tíu mánaða tímabili starf-
aði Alþingi í minna en þrjá mánuði,
frá miðjum janúar fram í miðjan
Alþingismenn tala mikið í símann.
Hér sést Jón Baldvin Hannibalsson
munda tólið. Ekki er þó þar með
sagt að hann noti það meira en
aðrir.
mars. Nýtt þing kom saman 10. okt-
óber.
Það eru að sjálfsögðu fleiri en þing-
menn sem tala í síma Alþingis. Aðrir
starfsmenn þingsins eru yfir 60 tals-
ins. Þeir starfa allt árið þótt löggjaf-
arsamkundan sé í fríi stóran hluta
úr ári.
Póstburðargjöld Alþingis námu á
áðurgreindu tímabili 470 þúsund
krónum. Fyrir þann pening má
senda um 36 þúsund bréf. Sé fjár-
hæðinni deilt niður á þingmenn fást
hátt í átta þúsund krónur eða frí-
merki undir 600 bréf.
-KMU
Ný læknalög fyrir Alþingi
Guömundur Bjarnason, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra,
hefur lagt fram á Alþingi stjórnar-
frumvarp til læknalaga. Frum-
varpið er að stofni til það sama og
Ragnhildur Helgadóttir, þáverandi
heilbrigðis- og tryggingaráðherra,
lagði fyrir síðasta þing.
Frumvarpið var þá rætt í heil-
brigðis- og trygginganefnd efri
deildar Alþingis. Þar voru gerðar á
því nokkrar breytingar að höfðu
samráði við ráðuneytið, Læknafé-
lag íslands og læknadeild Háskól-
ans. Frumvarpið var þannig útbúið
lagt fyrir neðri deild rétt fyrir þing-
lok en ekki vannst tími til frekari
umræðu.
Meðal breytinga má nefna að í
fyrra frumvarpinu var gert ráö fyr-
ir að lækningaleyfi félli niður við
75 ára aldur. Nú er gert ráð fyrir
að lækni sé óheimilt að reka lækn-
ingastofu eftir 75 ára aldur en
lækningaleyfið sem slíkt falli ekki
niður.
„Að mati ráðuneytisins er mjög
brýnt að frumvarpið verði lagt
fram aftur til þess að færi gefist á
þvi að Alþingi taki endanlega af-
stöðu til þess,“ segir í athugasemd-
um við frumvarpið en þar kemur
fram að gildandi læknalög eru frá
árinu 1932.
„Leggja hagsmunasamtök lækna
mikla áherslu á að frumvarpið
hljóti afgreiðslu á yfirstandandi
Alþingi," segir í athugasemdunum.
-KMU
Bera einhverjir hópar óeðlilega mikið úr býtum?
spyr Borgaraflokkurinn
Þingmenn Borgaraflokksins, meö
Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur í broddi
fylkirigar, hafa lagt fram á Alþingi
þingsályktunartillögu um saman-
burð á dagvinnulaunum og tekjum á
íslandi og í nágrannalöndum okkar.
Borgaraflokksmenn vilja að skipuð
veröi nefnd hlutlausra sérfræðinga
til að annast verkefnið.
í greinargerð með tillögunni eru
birtar tölur um þjóðartekjur á Norð-
urlöndunum og dagvinnulaun
ýmissa hópa. Segir að þær tölur sýni
að laun á íslandi gætu verið svipuð
og annars staðar á Norðurlöndun-
um. Dagvinnulaun á íslandi séu hins
vegar mun lægri. Finna megi mörg
dæmi þess að dagvinnulaun launa-
fólks á íslandi séu meðal hinna
lægstu sem þekkjast í Vestur-Evr-
ópu.
„Því vakna spurningar um það
hvort þjóðartekjum íslendinga sé
misskipt. Er hlutdeild launafólks í
þjóðartekjunum minni en gengur og
gerist í nágrannalöndunum? Eru ein-
hveijir hópar í þjóðfélaginu sem bera
óeðlilega mikið úr býtum?" spyrja
borgaraflokksmenn.
-KMU
Vilja skilatryggingu
vegna úreldingar bíla
„Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni að undirbúa frumvarp
tii laga um skilatryggingu vegna
úreldingar bifreiða."
Svo hljóðar þingsályktunartil-
laga þriggja þingmanna, Guð-
mundar H. Garðarssonar,
Sjálfstæöisflokki, Guðrúnar Agn-
arsdóttur, Kvennalista, og Jóhanns
Einvarðssonar, Framsóknarflokki.
„Fyrirsjáanlegt er að á næstu
árum muni tugir þúsunda bifreiða
úreldast. Áætlað er að árlegur
fjöldi þessara bifreiða verði
Lýsingu á
Eggert Haukdal er fyrsti flutnings-
maður þingsályktunartillögu um að
setja upp lýsingu við Suðurlandsveg
um Hellisheiði að Hveragerði. Sex
aðrir þingmenn úr Suðurlandskjör-
dæmi og Reykjavík, stjórn og stjórn-
arandstöðu, flytja málið með honum.
„Vegna hæðar yfir sjó og náttúru-
10-20.000. Nú þegar er það orðið
alvarlegt vandamál víða um land
að koma þessum bifreiðahræjum
fyrir," segja flutningsmenn í grein-
argerð.
„Er brýnt að nú þegar verði grip-
ið til nauðsynlegra ráðstafana til
að fyrirbyggja frekari neikvæða
þróun í þessum efnum og skylda
bifreiðaeigendur til þess að gera
viðeigandi ráðstafanii' til að koma
gömlum og ónýtum bifreiðum til
úreldingar."
-KMU
Hellisheiði
fars eru gjarnan, sérstaklega í
skammdeginu, mörg veðrabelti á
leiðinni. Fyrirvaralaust skapast oft
hættuástand enda hafa orðið mörg
alvarleg umferðarslys, sérstaklega á
leiðinni úr Hveradölum og niður í
Kamba," segir í greinargerð.
-KMU
Tveir sagt sig úr
Bovgaraflokknum
- segir skrifstofustjóri flokksins
„Fréttir um mikinn óróa og fjöld-
aúrsagnir úr Borgaraflokknum eru
úr lausu lofti gripnar," sagði Hrönn
Hafsteinsdóttir, skrifstofustjóri
Borgaraflokksins.
„Tveir eöa þrír menn, sem ekki
fengu þann frama sem þeir ætluðu
sér, eru með einhveija undirróður-
starfsemi.
Ég er búin að vera hér á skrifstof-
unni í tvo mánuði. Tveir hafa skráð
sig úr flokknum en mun fleiri gengið
í hann á sama tíma," sagði Hrönn.
Hún sagði að annar þessara tveggja
heföi sagt sig úr flokknum 21. októb-
er en hinn í síðustu viku.
-KMU
Ríkið reki heilbrigðisfræðsluráð
Kvennalistaþingmennimir
Guðrún Agnarsdóttir og Danfríður
Skarphéðinsdóttir hafa endurflutt
frumvarp um að ríkið starfræki
stofnun sem nefnist heilbrigðis-
fræðsluráð.
„Heilbrigðisfræðsluráð skal ann-
ast heilbrigðisfræðslu sem miðar
að því að koma í veg fyrir sjúkdóma
og slys. Það skal samræma og
skipuleggja heilbrigðisfræðslu fyr-
ir almenning í landinu í samvinnu
við stjórnendur heilbrigðis-, skóla-
og félagsmála og önnur stjórn-
völd," segir í frumvarpinu.
í greinargerð segir að einungis
lítið brot af heildarfjármagni til
heilbrigðisþjónustunnar renni til
forvarna. Flestir myndu þó sam-
þykkja að í forvörnum lægi
vænlegasti fjárfestingarkostnaður
framtíðarinnar. -KMU
Sundur og saman
Flokksráð Sjálfstæðisflokksins
kom saman um helgina. Þar bar
þaö helst til tíðinda að formaður-
inn, Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra, flutti langa og mikla ræöu
og hvatti til sameiningar sjálfstæð-
ismanna á ný. Þetta er óneitanlega
nýr tónn í Sjálfstæðisflokknum og
kemur sumum stuðningsmönnum
hans og kjósendum nokkuð á óvart.
Á undanfórnum árum hefur nefni-
lega veriö unnið markvisst að því
innan Sjálfstæðisflokksins að
sundra sjálfstæðismönnum og sú
barátta hefur skilað þó nokkrum
árangri, enda var hún tekin alvar-
lega af óbreyttum, eins og dæmin
sanna, meðal annars nú síðast á
aðalfundi Hvatar, þegar Auður
Auðuns sagði sig úr kvenfélaginú
til að mótmæla afskiptum áhugas-
amra kvenna af félaginu.
Formaðurinn hefur sjálfur geng-
ið á undan með góðu fordæmi.
Hann rak Albert Guðmundsson úr
fyrrverandi ríkisstjórn og lýsti yflr
því að Albert yrði aldrei aftur skip-
aður ráðherra á vegum flokksins.
Þessi skelegga yflrlýsing form-
annsins skilaöi árangri þegar í stað
og varð til þess að Albert stofnaði
nýjan flokk og hirti nokkur þúsund
atkvæði frá Sjálfstæðisflokknum.
Albert tók formann sinn alvarlega
eins og reyndar allir þeir sjálfstæð-
ismenn sem honum fylgdu yfir í
Borgaraflokkinn. Útkoman úr al-
þingiskosningunum í vor var mjög
góð og leiddi til þess að fimm eða
sex þingsæti töpuðust og er ekki
að efa að forystan hefur glaðst
ákaflega yfir svo skjótum árangri
í stefnu sinni að sundra flokks-
mönnum sem mest.
Valdimar Stefánsson, Björn Dag-
bjartsson, Árni Johnsen, Gunnar
Schram og vonarpeningar í
Reykjavík duttu allir út og þar að
auki féll Vilhjálmur Egilsson í sæti
sem hingaö til hefur verið öruggt
til þingsetu. Allt þetta fólk hlýtur
að hafa verið mætt á flokksráðs-
fundinum til að láta hylla sig fyrir
vasklega framgöngu í þágu þess
málstaðar, sem flokkurinn hefur
barist fyrir að undanfömu og felst
í fækkun og sundrangu sjálfstæðis-
manna.
Formaðurinn sparkaði síðan
Sverri, Ragnhildi og Matthíasi
Bjarnasyni út úr ríkisstjórninni og
Matthías hefur látið hafa það eftir
sér í viðtali að hann hafi ekki haft
minnsta áhuga á setu í núverandi
ríkisstjórn, og bera þau ummæli
vott um flokkshollustu Matthíasar.
Hann gengur á undan með góðu
fordæmi og tekur ekki lengur að
sér forystustörf í þágu flokksins
eftir að flokkurinn hefur ákveðið
að ýta fólki eins og honum út úr
áhrifasföðum.
Nú er unnið að því öllum árum
aö koma Sverri Hermannssyni fyr-
ir í Landsbankanum þannig að
flokkurinn sé líka laus við hann.
Reyndar getur það verið ástæðan
að formaðurinn sé að verðlauna
Sverri fyrir að hafa fylgt flokks-
stefnunni eftir í Austurlandskjör-
dæmi með því að fækka kjósendum
Sjálfstæðisflokksins í því kjördæmi
svo myndarlega að ekkert nema
kraftaverk bjargaði Agli á Selja-
völlum inn á þing. Það voru eigin-
lega einu mistökin í kosningabarát-
tunni að Egill skyldi ná kjöri og
spurning hvort Sjálfstæðisflokkur-
inn eigi ekki að refsa honum fyrir
þau mistök. En ef Sverrir kemst í"
Landsbankann hverfur einn í við-
bót úr gamla liðinu af vettvangi og
svona er hægt að fækka í flokknum
svo lítið beri á.
Formaðurinn munstraði þá Frið-
rik Sophusson og Birgi ísleif inn í
ríkisstjórnina og síðan hafa þeir
sest í helgan stein og látið fara eins
lítið fyrir sér og mögulegt er, þann-
ig að enginn fái það á tilfinninguna
að þessir tveir ráðherrar séu að
vinna flokknum fylgi. Það hefði
verið dauðadómur fyrir nýju stefn-
una, að fækka flokksmönnum sem
allra, allra mest. Matthfas Á. Mat-
hiesen er að vísu enn í ríkisstjórn-
inni, en það er nú bara af því að
Matthías er svo gamall í hettunni
og skilur ekki þá nýju strauma, að
aðalatriöið er aö hafa sem fæsta í
flokknum.
En einmitt þegar ný stefna Sjálf-
stæðisflokksins er farin að skila
árangri kemur formaðurinn og
hvetur til sameiningar sjálfstæðis-
manna á ný. Menn rekur í rogast-
ans. En þegar betur er að gáð er
þetta í lagi. Flokkurinn er nefnilega
að móta sér stefnu fyrir næstu öld!
Sundrungarstefnan mun áfram
ríkja til aldamóta.
Dagfari