Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1987, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1987, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987. 17 Lesendur Hin sívinsæla og myndarlega jólagjafahandbók kemur út 3. desember nk. Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á aö auglýsa í J ÓL AGJ AF AH ANDBÓKINNI vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild Þverholti 11 eða í síma 27022 kl. 9-17 virka daga sem fyrst. í síöasta lagi fimmtudaginn 26. nóv. nk. Áfengt öl eykur böl 10% AFSLATTUR Bjóðum 10% afslátt á 2,5 og 3,0metra KIMADAN mykjudælum meðan birgðir endast. BOÐI hf Flatahrauni 29 220 Hafnarfirði. Sími 91-651800 Einar Hannesson skrifar: Enn á ný er ölmálið komið á dag- skrá í Alþingi. Eins og fyrr eru skiptar skoðanir um mál þetta, eins og eðlilegt er, þar sem það snertir vissulega alla þjóðfélagsþegnana með einum eða öðrum hætti. Það sem mér hefur fundist athygl- isverðast í sambandi við opinbera umræðu um áfengismálið er plaggið sem var gefið út skömmu eftir ára- mótin seinustu og heitir „Skýrsla Áfengismálanefndar ríkisstjórnar- innar“. Útgefandi er heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið í janúar . 1987. í plaggi þessu er að finna niður- stöðu sem 14 valinkunnir borgarar frá hinum ýmsu samtökum og stofn- unum voru sammála um. Þar sem ölmálið er nú á dagskrá þykir mér rétt aö rifia upp nokkur atriði úr fyrrgreindri skýrslu. í kafla er fiallar um innflutning segir um áfengt öl: „Áfengismálanefnd ríkis- stjórnarinnar er falið að gera tillögur í samræmi viö markaða stefnu Al- þjóöaheilbrigðismálastofnunarinnar sem er m.a. að minnka áfengisneyslu um fiórðung. Kemur því ekki til greina að bæta nýjum gerðum af áfengi við þær sem fyrir eru.“ í fyrrgreindum kafla segir um inn- fluting farmanna og ferðamanna: „Taka þarf til endurskoðunar reglur þær er gilda um tollfrjálsan innflutn- ing á áfengi hjá farmönnum, fluglið- um og ferðamönnum." Á bls. 5 í plagginu er fiallað um sölu öl- og vímugerðarefna: „Sala slíkra efna fari einungis fram á vegum ÁTVR.“ Þá er að flnna í skýrslunni m.a. frá nefnd um mörkun opinberrar stefnu í áfengismálum: ,,h) Innflutningur á bjór ferðamanna verði stöðvaður og bjórsala á Keflavíkurflugvelli af- lögð.“ Ennfremur er í skýrslunni að finna efni úr greinargerð að tillögum um átak í áfengismálum frá 1983 þar sem segir: „Þær reglur sem hér um ræöir mismuna þjóðfélagsþegnunum og verða því að teljast óeðhlegar. Sumir eru þeirrar skoðunar að þessum reglum sé beitt sem kjarabót (þ.e. tollfijáls innflutningur farmanna og flugliða), sem eitt út af fyrir sig er ærið umhugsunarefni, eigi það við rök að styðjast. Að bjóða áfengissýk- ingu heim i kjarasamningum hefði einhvern tíma þótt ótækt.“ Það sem hér hefur verið tíundað úr fyrrgreindri skýrslu áfengismála- nefndar eru skynsamlegar ályktanir manna sem vilja minnka áfengis- neysluna og þar með minnka bölið sem hefur fylgt henni; Þeir eru sjálf- sagt nfiög fáir í þjóðfélaginu sem vilja ekki stefna að því marki að dregið verði úr áfengisneyslu. Hvers vegna þá ekki að taka tillit til ráða, gefin aö bestu manna yfirsýn? Mig minnir að núverandi fiármála- ráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, hafi einhvern tíma látið þau orð falla að ef alþingismenn samþykktu ekki tillögu um sölu á áfengu öli bæri aö afnema allar undanþágur í sambandi við slíkt öl. Ég vildi mega treysta því að þegar og eftir að ölmálið, sem nú er í gangi, verður svæft eða fellt á Alþingi láti fiármálaráðherra hendur standa fram úr ermum, felli niöur tollfríð- indi í sambandi við ölið og afnemi ólöglega (sbr. álit Sigurðar Líndals lagaprófessors) sölu áfengs öls til ferðamanna á Keflavíkurflugvelli og bæti þar með fyrir óhappaverk for- vera síns í embættinu, Sighvatar Björgvinssonar, á sínum tíma. skýrslu, sem bréfritari vitnar í, er lagt til að bjórsala á Keflavíkurflugvelli verði aflögð. Húsbyggjenda- afeláttur Ingunn Ríkharðsdóttir hringdi: Eg var að reyna að fá upplýsingar hjá skattstjóraembættinu hér á staðnum um ofangreint efni og skyld mál, en þar gat ég ekki feng- ið nein viðhlítandi svör. Ég tek dæmi um íbúð sem ég sel á árinu og afskrifa lán upp á 280 þúsund krónur, þar af eru verö- bætur og vextir 260 þúsund. - Samkvæmt gamla kerfinu töldust vextir og verðbætur frádráttarbær- ar, án tillits til þess hvort fólk væri að kaupa eða selja í fyrsta sinn. Nú virðist þetta hins vegar vera óljóst. Þess vegna spyr ég: Er hægt að fá upplýst frekar um þetta at- riöi? Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Lesendasíða DV fékk, þá er allt óbreytt hvað varðar framtals- gerðina í ár, að öðru leyti en því að felldur er út vaxtafrádráttur sem slíkur. Þess í stað er tekinn upp í stað- greiðslukerfinu annars vegar vaxtaafsláttur og hins vegar hús- næðisbætur og er vaxtaafsláttur- inn ákveðið hlutfall af frádráttar- bærum vöxtum, meö vissum takmörkunum þó. Þessi vaxtaaf- sláttur er útborganlegur að vissu marki. Þess má svo geta að lokum að skattstjóraembættin, hvert fyrir sig, eiga að geta gefið allar þær upplýsingar, sem þegar liggja fyrir, varðandi hið nýja staðgreiðslu- kerfi. Enn er verið aö taka saman frekari upplýsingar sem almenn- ingur á að geta haft aögapg að og má búast viö að þær verði tiltækar mjög fljótlega. Laus staða við félagsvísindadeild Háskóla Íslands Staða lektors í aðferðafræði við félagsvísindadeild Háskóla Islands er laus til umsóknar. Staðan verður veitt til þriggja ára. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og náms- feril og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 20. desember 1987. Menntamálaráðuneytið, 18. nóvember 1987. Jólagjafahandbók

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.