Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1987, Side 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 1987.
Meiming
Afmæliskveðja
- kór Menntaskólans við Hamrahlíð 20 ára
Þegar Pólýfónkórinn var stofnað-
ur, fyrir u.þ.b. 30 árum, hófst nýr
kapítuli í sönglistarsögu íslands.
Síðan hafa verið gerðar æ meiri
kröfur, um blæbrigðaríkan og
áreynslulausan söng, kröfur sem
harðvítugum atvinnukórum er-
lendis þætti jafnvel erfitt að svara.
10 árum seinna varð enn merkis-
viðburður í sönglífinu þegar
Hamrahlíðarkórinn var stofnaður,
þ.e.a.s. Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð, svo ekki sé verið að
rugla skólakórnum saman við
„Framhaldskórinn" sem er annar
handleggur. Þar með var orðinn til
ungmennakór sem gat gefið músík-
inni góðan tíma og þá ást og virð-
ingu sem aðeins er til í óspjölluðum
hjörtum. Og ég éfast ekki um að
margt sem horfir til framfara í tón-
listarmálum landsins á einmitt
rætur að rekja til þessarar starf-
semi sem hefur notið handleiðslu
TánM
Hamrahlíðarkórinn. DV-mynd S
Leifur Þórarinsson
Þorgerðar Ingólfsdóttur Guð-
brandssonar frá byijun. Þetta
erfist semsé og það er engin tilvilj-
un að það eru feðgin sem halda
merki kórsönglistarinnar hæst á
lofti landsins. Kórinn hélt upp á 20
ára afmæli sitt um helgina með
myndarlegum tónleikum í skólan-
um. Þar var mikið fjölmenni vina
og velunnara, ásamt eldri og yngri
kórfélögum sem tóku lagið af hjart-
ans lyst. Þetta var falleg samkoma
sem yljaði manni um hjartarætur
og maður fylltist þakklæti og
hljóðri bæn. Þarna var hamingju-
dagur. -LÞ
Til hamingju
- frá tónleikum Hljómsvertar Tónlistarskólans í Bústaðakirkju
Það voru faliegir og stór-
skemmtilegir tónleikar sem hljóm-
sveit Tónlistarskólans j Reykjavík
hélt í Bústaðakirkju um daginn.
Það voru Guðný Guðmundsdóttir
og Gunnar Kvaran sem leiddu hina
ungu og efnilegu tónlistarmenn í
gegnum þijú meistarstykki, kanón
eftir Pachebel, A-dúr fiðlukonsert-
inn eftir Mozart og Oktett Mend-
elsohns. Og það var augljóst að
þessi heiðurshjón kunna að örva
ungmennin til dáða, leikurinn var
hreinn og tilþrifaríkur.
Aðalmálið var flutningur fiðlu-
konsertsins en þar kom fram ungur
fiðluleikari, Hildigunnur Halldórs-
dóttir, en hún er að útskrifast úr
einleikaradeild skólans þar sem
Guöný hefur verið hennar aðal-
Tórúist
Leifur Þórarinsson
kennari. Og það er engum blöðum
um það að fletta að Hildigunnur á
góða framtíð fyrir sér sem fiðlu-
leikari. Túlkun hennar á Mozart
var bæði vel unnin og lifandi og
framkvæmd af ótrúlega miklu ör-
yggi. Það verður áreiðanlega
gaman að heyra hana á heilum tón-
leikum, með píanói, seinna í vetur.
Til hamingju.
LÞ
Fimmtu áskríftar-
tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands
Nýtt yfirhragð á tónleikum hljómsveitarinnar
Taröarfarir
Útför önnu Kristmundsdóttur,
Hjarðarhaga 44, fer fram í dag,
þriðjudaginn 24. nóvember, frá Laug-
arneskirkju kl. 15.
Útfor Jónbjörns Magnússonar,
Gljúfraseli 2, fer fram frá Háteigs-
kirkju miðvikudaginn 25. nóvember
kl. 15.00.
Laufey Guðnadóttir, Hraunstig 7,
Hafnarfirði, verður jarðsungin mið-
vikudaginn 25. nóvember. Útfórin fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju og
hefst kl. 13.30.
Ágúst Kristjánsson prentari verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 25. nóvember.
Vilhelmína Soffia Tómasdóttir, Hof-
svallagötu 18, verður jarðsungin frá
DómkirKjunni miðvikudaginn 25.
nóvember kl. 15.
Ester Sighvatsdóttir,Blöndubakka 3,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 25. nóvember
kl. 13.30.
Haukur Magnússon, Tunguvegi 3,
Hafnarfirði, vérður jarðsunginn frá
Hafnarfj arðarkirkj u fimmtudaginn
26. nóvember kl. 13.30.
Sísí Tómasdóttir, ráðgjafi á Sogni,
verður jarðsungin frá Langholts-
kirkju miðvikudaginn 25. nóvember
kl. 10.30.
Tapað - Fundið
Kötturinn Tommi frá
Kópavogi er týndur
Hann Tommi er stór og fallegur högni
sem fór aö heiman frá sér í Snælands-
hverfi í Kópavogi sunnudaginn 15.
nóvember og hefur ekki sést síðan.
Tommi er gulbrúnn og bröndóttur en
hvítur að framan og á bringunni og mag-
anum. Hann hefur hvítar loppur. Þegar
hann hvarf að heiman var hann með ljós-
bláa leðuról um hálsinn með rauöu merki
þar sem skráö var nafn hans og síma-
númer.
Ef einhver hefur orðið var við köttinn
Tottima eða véit hvar hann gæti verið
niðurkominn núna þá vinsamlegast hafi
hann samband við fjölskyldu hans í síma
42139 eða 688943.
Tátaertýnd
Fyrir nokkru hvarf grábröndótt læða frá
'Baldursgötu 12. Hún var með gula ól-og
Tilkyrmingar
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Opið hús frá kl. 14 á sunnudag í Goð-
heimum, Sigtúni 3. Dansað frá kl. 20.
Upplýsingamiðstöð
ferðamála
hefur aðsetur að Ingólfsstræti 5. Þar eru
veittar allar upplýsingar um ferðalög á
ísiandi og það sem er á döfrnni í borg-
inni. Opið mánudaga til föstudaga kl.
10-16 og laugardaga kl. 10-14. Sími
623045.
merkt. Hún gegndi nafninu Táta. Ef ein-
hver veit um afdrif hennar, lifandi eða
dauðrar, þá vinsamlegast hringið í síma
25859 eða til Kattavinafélagsins, s. 76206.
Sýning á skriftargrafík
Howards Glasser
stendur yfir í Gallerí Borg í Austur-
stræti. Verkin eru stílbrigði á latneska
stafróinu og hebresku letri. Þau spanna
nokkurt árabil og eru hluti af sýningu
sem haldin var í London fyrr á árinu.
Howard Glasser var var skrifari og hönn-
uður í New York um árabil. Nú er hann
prófessor í listadeild South-Eastem
Massachusetts University. Þar að auki
er hann forkólfurinn í „LetterWorks".
Sýningin stendur til miðvikudagsins 25.
nóvember.
Múlahreppur
Fyrrum íbúar Múlahrepps ætla að
hittast fóstudaginn 27. nóvember
kl. 20 í Þinghóh, Hamraborg 11,
Kópavogi.
Lögfræðiaðstoð laganema
Orator, félag laganema, er með ókeypis
lögfræðiaðstoð fyrir almenning á
fimmtudagskvöldum í vetur milli kl. 19.30
og 22 í síma 11012.
Hörpuskin
Málningarverksmiðjan Harpa hf. hefur
sett á markaðinn nýja innanhússmáln-
ingu sem nefnist Hörpuskin. Þessi nýja
málning hefur 10% gljástig sem gerir
hana bæöi áferðarfallega og auðvelda í
þrifum. Hörpuskin er einkuip ætlað á
steinveggi innanhúss, er einföld í notkun
og þekur mjög vel. Hörpuskin er fáanlegt
í 10 staðallitum en völ er á fleiri litum
með blöndun við aðrar málningartegund-
ir Hörpu.
Félagsmiðstöð Geðhjálpar
að Veltusundi 3b, er opin á fimmtudögum
kl. 20-22.30, laugardögum og sunnudög-
um kl. 14-18. Einnig hefur Geðhjálp opna
skrifstofu alla virka daga kl. 10-14 þar
sem seld eru minningarkort félagsins og
veittar upplýsingar um starfsemina. Sími
25990.
Dagskráin á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands nk. fimmtudag
verður frábrugðin því sem gestir
hljómsveitarinnar mega oftast venj-
ast. Frumflutt verður nýtt íslenskt
verk eftir eitt okkar yngri tónskálda,
Mist Þorkelsdóttur, Pétur Jónasson
gítarleikari leikur einleik í spænsku
verki og frumflutt verður hérlendis
Sinfónía nr. 1 eftir William Walton.
Stjórnandi verður Frank Shipway
sem stjórnað hefur tvennum tónleik-
um hljómsveitarinnar í haust, auk
þess sem hann stjórnaði við útvarps-
upptökur í síðustu viku.
Verk Mistar heitir Fanta - Sea og
þar er leikið með tóna rétt eins og
leikið er með orðin í nafni verksins.
Mist hefur vakið athygli fyrir tón-
smíðar sínar og hlaut hún meðal
annars 2. verðlaun í samkeppni Rík-
isútvarpsins fyrir ung tónskáld 1985.
Þetta verk er fyrsta verk hennar fyr-
ir fullskipaða sinfóníuhljómsveit.
Pétur Jónasson gítarleikari leikur
í fyrsta skipti á tónleikum með Sin-
fóníuhljómsveitinni en hann lék með
henni í sjónvarpsupptöku 1982. Pétúr
Jónasson lærði gítarleik hérlendis
og erlendis, í Mexíkó og á Spáni.
Hann hefur víða komið fram og hald-
ið fjölmarga tónleika. Hann hefur
hlotið margháttaða viðurkenningu
og styrki, m.a. frá „Sonning" sjóðn
um í Danmörku. í fyrra var hann
valinn ásamt ellefu öðrum úr stórum
hópi gítarleikara víða að úr heimin-
um til þess að leika fyrir Andrés
Segovia á námskeiði sem haldið var
í Los Angeles í Bandaríkjunum.
Innilegt þakklœti sendi ég öllum þeim sem glöddu
mig og aóstoðudu á einn eða annan hátt á 75 ára
afmœli mínu sem haldið var að Hamrahlíð 17.
MARGRÉT ALBERTSDÓTTIR
Pétur Jónasson gítarleikari.